Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Page 2
Á
svipuðum tíma og kröfuhaf-
ar eignarhaldsfélags í eigu
Péturs Guðmundssonar
þurftu að afskrifa 3,5 millj-
arða króna vegna skuldar
sem ekkert fékkst upp í hjá fyrir-
tækinu lauk byggingu 80 milljóna
króna sumarbústaðar Péturs.
Óvíst er hvert markaðsvirði
bústaðarins er en brunabóta-
matið hljóðar upp á áðurgreinda
upphæð. Sumarbústaðurinn er í
Grímsnes- og Grafningshreppi og
er samkvæmt Fasteignaskrá 260
fermetrar.
Bústaðurinn í nokkur ár á
teikniborðinu
Sumarbústaðurinn er með stærri
sumarbústöðum landsins þó hann
sé án efa ekki sá stærsti. Hann er á
landinu Kiðjabergi og eru nokkrir aðr-
ir sumarbústaðir í grenndinni. Bú-
staðurinn var kominn á teikniborðið
um miðjan síðasta áratug en sam-
kvæmt fasteignaskráningu varð Pétur
eigandi að honum fyrripart ársins
2011. „Er ekki í lagi heima hjá þér?“
spurði Pétur þegar blaðamaður leitaði
eftir upplýsingum um sumarhúsið.
Bústaðurinn er sannkallað glæsi-
hýsi og gnæfir hann yfir aðra bústaði
á svæðinu. Hann er með óhindrað
útsýni yfir Hvítá og er hann byggð-
ur þannig að útsýni er úr mörg-
um herbergjum yfir ána. Glervegg-
ur er á einni hlið hússins, þeirri er
snýr að Hvítá. Stór verönd, þar sem
meðal annars er setlaug og myndar-
legt grill, snýr einnig þannig að út-
sýni er yfir ána. Steinsnar frá sum-
arbústaðnum er svo Golfklúbburinn
Kiðjaberg þar sem hægt er að leika
átján holur.
Vaktað með myndavélum
Umhverfið í kringum bústaðinn er
heldur látlaust og hefur Pétur leyft
lyngi og öðrum gróðri að vaxa í kring-
um bústaðinn óhindrað. Þá er ekki
búið að girða sumarbústaðarlóðina
af en aðrir bústaðir standa nokkuð
nærri sumarhöll Péturs. Það þýðir þó
ekki að Pétur fylgist ekki með þeim
sem koma að bústaðnum og sá blaða-
maður að minnsta kosti eina eftirlits-
myndavél fyrir utan bústaðinn og var
viðvörunarskilti fyrir utan sumarbú-
staðabyggðina þar sem varað var við
eftirlitsmyndavélum og vaktmanni.
Samkvæmt teikningum af hús-
inu er í því að finna fjögur herbergi,
rúmgóða stofu, eldhús, stóra ver-
önd beggja vegna hússins, gufubað,
útisturtu og áðurnefnda setlaug. Þar
að auki eru tvö klósett, þvottahús og
70 fermetra bílskýli.
Með puttana í milljarðaskuldum
Pétur var umsvifamikill í bygginga-
geiranum fyrir hrun og áttu fyrir-
tæki í hans eigu líka hluta í íslensku
bönkunum. Hrunið fór ekki vel með
fyrirtæki Péturs og töpuðust millj-
arðar við bankahrunið og þegar
húsnæðisbólan sprakk. Höfðaborg
ehf., eignarhaldsfélag í eigu Péturs,
skildi til að mynda eftir sig 3,5 millj-
arða króna skuldir sem ekkert fékkst
upp í þegar félagið fór í þrot á síð-
asta ári.
80 milljóna
sumarhöll
2 Fréttir 13. júní 2012 Miðvikudagur
App sem
eykur öryggi
112 Iceland er nýtt snjallsímaforrit
eða „app“ fyrir ferðafólk. Með for-
ritinu geta ferðamenn kallað eft-
ir aðstoð ef um slys eða óhapp er
að ræða. Einnig geta þeir nýtt það
til að skilja eftir sig slóð, „brauð-
mola“, en slíkar upplýsingar geta
skipt sköpum ef óttast er um afdrif
viðkomandi ferðalanga og leit þarf
að fara fram. Ekki er þörf á gagna-
sambandi til þess að nýta forritið,
hefðbundið GSM-samband nægir,
segir í tilkynningu frá Landsbjörg.
Í tilkynningu frá Landsbjörg
kemur fram að Valitor þróaði for-
ritið í samvinnu við hugbúnað-
arfyrirtækið Stokk en því er ætlað
að auka öryggi ferðamanna hér á
landi og þéttir það öryggisnet sem
fyrir er í landinu. Að verkefninu
hafa einnig komið Neyðarlínan,
Slysavarnafélagið Landsbjörg og
Almannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra.
Snjallsímaforritið 112 Iceland
má einnig nota erlendis en sam-
skiptin fara þó alltaf fram í gegn-
um númerið 112 á Íslandi. Í slík-
um tilvikum hefur Neyðarlínan
samband við viðbragðsaðila í við-
komandi landi sem aðstoðar síðan
þann einstakling er í hlut á.
Unnt er að sækja snjallsímafor-
ritið 112 Iceland á safetravel.is, í
gegnum iPhone App Store eða á
Play Store hjá Google fyrir þá sem
eru með Android-síma.
Illa farið
hross
Myndband af hrossi frá Þormóðs-
holti í Akrahreppi hefur ver-
ið í umferð á netinu undan-
farna daga. Hrossið er með ljótt
sár vinstra megin í náranum og
annað smærra sár hægra megin.
Þegar DV hafði samband við
bóndann á bænum til að óska eft-
ir nánari upplýsingum um mynd-
bandið og sárin á hrossinu kvaðst
bóndinn ekki vilja tjá sig um það.
„Þarf ég eitthvað að fræða fólk um
það?“ sagði hann. Athygli hér-
aðsdýralæknis var vakin á málinu
og hefur hann farið og kannað
aðstæður og ástand hrossins. Í
samtali við DV segir Halldór Run-
ólfsson, yfirdýralæknir hjá Mat-
vælastofnun, að Matvælastofnun
hafi borist nokkrar tilkynningar
vegna málsins.
„Það voru strax gerðar kröfur
á eiganda bæjarins um að kalla til
dýralækni og mun bóndinn hafa
kallað til sjálfstætt starfandi dýra-
lækni til að líta á dýrið. Einnig var
farið í fleiri aðgerðir til að koma í
veg fyrir að þetta gerðist aftur. Það
er búið að bregðast við þessu eins
og hægt er.“
Aðspurður segir Halldór að
héraðsdýralæknir hafi áður þurft
að hafa afskipti af meðferð hesta á
þessum sama bæ.
„Er ekki í lagi
heima hjá þér?
n Félag Péturs Guðmundssonar fékk 3,5 milljarða afskrifaða
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Glæsilegt Ekki er
hægt að segja annað
en að sumarhúsið sé
glæsileg bygging.
Gott útsýni Úr flestum herbergjum bústaðarins er óskert útsýni yfir Hvítá.