Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Page 8
Árásin á Hlemmi eðlileg n Formaður Bjartsýnisflokksins til varnar öryggisverði Þ egar einhver hótar manni þá hefur maður rétt til þess að gera eitthvað,“ segir Einar Gunnar Birgisson, formaður Bjartsýnisflokksins, í samtali við DV. Hann sér sig knúinn til að stíga fram til varnar öryggisverðinum Andr- ési Björgvinssyni sem í síðustu viku var vikið úr starfi fyrir að hafa ráð- ist á vegfaranda á Hlemmi. Á mynd- bandi af atvikinu sem blaðamaður Grapevine tók má sjá þegar öryggis- vörðurinn slær vegfaranda í höf- uðið, sparkar í hann og kastar hon- um utan í vegg. „Eðlileg viðbrögð,“ segir Einar Gunnar. Honum finnst árás öryggis- varðarins ekki vera af því tagi að hægt sé að kalla það ofbeldisverkn- að: „Það sá ekki nokkurn skapað- an hlut á þessum manni. Þetta var svona venjulegt útkast eins og fer fram hundrað sinnum hverja ein- ustu helgi á börum í Reykjavík.“ Hann gagnrýnir kjallaragrein Thelmu Ásdísardóttur, starfsmanns hjá Drekaslóð, sem birtist í DV á mánudag. Þar segist Thelma ekki fordæma manneskjuna sem beit- ir ofbeldi, heldur ofbeldið sjálft, en í greininni vísar hún til árásar ör- yggisvarðarins. Einar Gunnar segir að öryggis- vörðurinn hafi verið að verjast „andlegu ofbeldi“ af hálfu vegfar- andans sem hafi öskrað og haft í hótunum. „Ef öryggisvörður vísar manni út þá ber manni að hlýða.“ Hann segir ekkert óeðlilegt við árás öryggisvarðarins, sem margir hafa þó fordæmt. „Getur ekki verið að venjulegt fólk missi stjórn á sér í þessari stöðu og taki manninn hreinlega og hendi honum út?“ Í svoleiðis aðstæðum sé skiljan- legt og eðlilegt að bregðast við með líkamlegu ofbeldi. „Já, það er allavega mjög eðlilegt að bregðast þannig við þegar verið er að hóta manni.“  8 Fréttir 13. júní 2012 Miðvikudagur Íslenskur sálfræðingur mat Breivik: Reyndi að sannfæra teymið Anders Behring Breivik reyndi að sannfæra sálfræðiteymi sem sá um greiningu á honum um að ganga til liðs við sig og hugmynda- fræði sína. Þetta kom fram í máli Maríu Sigurjónsdóttur geðlæknis sem var yfirlæknir teymisins sem kannaði geðheilbrigði Breivik á þriggja vikna tímabili og mat það hvort hann væri sakhæfur. Hún segist ekki hafa metið það sem svo að um geðrof væri að ræða hjá Breivik. Fylgst var með Breivik nánast allan sólarhringinn í þrjár vikur og taldi sálfræðiteymið að hann væri að reyna að sannfæra sig um ágæti hugmyndafræði sinnar. Hann gat þó skilið að það deildu ekki allir hugsjónum hans. María segir að teymið hafi ekki lesið fyrri rannsókn sem geðlæknar gerðu á Breivik til að tryggja að það hefði ekki áhrif á greiningu þeirra. Þeir Torgeir Husby og Synne Sørheim höfðu áður komist að því að Brei- vik þjáðist af ofsóknargeðklofa. Sextán af átján sérfræðingum teymisins mátu það sem svo að Breivik væri sakhæfur, einn þeirra var ekki viðstaddur fundinn og einn kvaðst ekki vera viss. Seg- ir María að teymið hafi ákveðið í upphafi að leita ekki eftir sérstök- um geðsjúkdómum eða geðrofi heldur meta stöðuna eftir þessar þrjár vikur af eftirliti. Fylgst var með Breivik í hversdagslegum aðstæðum svo sem þegar hann borðaði eða vann á tölvu. Trúfélög bönnuð í skólum Á mánudag samþykkti fræðslu- ráð Hafnarfjarðar viðmiðunarregl- ur um samskipti leik- og grunn- skóla Hafnarfjarðar við trú- og lífsskoðunarfélög. Tekið er fram í fyrsta lið að hlutverk skóla sé að fræða nemendur um ólík trúar- brögð og lífsskoðanir samkvæmt gildandi aðalnámskrá og náms- efni. Trú- og lífsskoðunarfélög- um er því ekki lengur heimilt að stunda starfsemi innan veggja leikskóla og grunnskóla Hafnar- fjarðar á skólatíma, sama á hvaða formi um ræðir. Fram kemur að skólastjórnendur geti þó boðið fulltrúum trúar- eða lífsskoðunar- félaga að heimsækja kennslu- stundir í trúarbragðafræði eða lífsleikni undir handleiðslu kennara. n Íslenskir fangar geta fengið að afplána undir rafrænu eftirliti N okkur fjöldi fanga er farinn að afplána dóma sína í raf- rænu eftirliti. Slík afplánun hófst í fyrsta skipti í apríl. Enginn fangi getur afplán- að meira en 240 daga með rafrænu eftirliti og enginn fangi sem dæmd- ur hefur til skemmri refsingar en 12 mánuði óskilorðsbundið. Páll Win- kel fangelsismálastjóri segir rafræna eftirlitið hafi reynst vel en að það sé ennþá í prófun. Öryggismiðstöð- in sér um rafræna eftirlitsbúnaðinn og er því í raun búið að einkavæða hluta af eftirlitskerfi fangelsismála á Íslandi. Nýtt þrep í afplánun Rafrænt eftirlit er ný lausn innan fangelsismálakerfisins hér á landi og bætist við þau úrræði sem þegar eru í boði fyrir fangelsismálayfirvöld að beita í málefnum fanga. Ekki er um að ræða einhvers konar viðbót við þær lausnir sem þegar eru í boði, eins og varðandi opin fangelsi, vernd og reynslulausn fanga. Það kemur þó vel til greina að skoða hvort nýta eigi rafrænt eftirlit á öðrum stigum afplánunar. „Já, ef við teljum ástæðu til þess þá kemur það alveg til álita,“ segir Páll. Rafræna eftirlitið virkar þannig að ef GPS-ökklabandið sem fangar sem lúta slíku eftirliti bera nemur að þeir séu farnir út af fyrirframskilgreindu svæði, eða inn á skilgreint bann- svæði, eða séu ekki á réttum stað á réttum tíma fær Öryggismiðstöðin boð um það og grípur til viðeigandi ráðstafana, samkvæmt því sem fram kemur í frétt um málið á vef Fangels- ismálastofnunar.“ Einkavæðing í fangelsismálum Fá dæmi eru til um jafn mikla einkavæðingu í fangelsismálum á Ís- landi og rafræna eftirlitið er. Fangels- ismálastofnun treystir á Öryggismið- stöðina, sem er í meirihlutaeigu VÍS og að hluta í eigu forstjóra fyrirtæk- isins, Ragnars Þórs Jónssonar, þegar kemur að rafræna eftirlitinu. Samn- ingur var gerður á milli Öryggismið- stöðvarinnar og Fangelsismálastofn- unar um eftirlitið í mars síðastliðinn. Öryggismiðstöðin hefur um- sjón með búnaðinum sem not- aður er til eftirlitsins. Hann er af gerðinni BluTag og á honum er með- al annars fiktvörn á bæði skel og ól. Í gegnum búnaðinn er hægt að skil- greina bannsvæði og þau svæði sem fanginn má ferðast um á. Búnað- urinn er vatnsheldur fyrir allt að 15 metra dýpi og er ljóst að erfitt er að reyna að fá búnaðinn til að hætta að virka. Rafhlaðan á ökklabandinu dugar í allt að 60 klukkustundir á hverri hleðslu. Þurfa að vera heima á nóttunni Þegar einstaklingi er dæmd refsing til 12 mánaða fangelsisvistar óskil- orðsbundið getur viðkomandi feng- ið að afplána 30 daga undir rafrænu eftirliti. Afplánun undir rafrænu eftirliti lengist um tvo og hálfan dag fyrir hvern dæmdan mánuð en get- ur hið mesta orðið 240 dagar, eða um átta mánuðir. Fangar sem afplána með raf- rænu eftirliti þurfa að hafa fastan dvalarstað sem samþykktur er sér- staklega af fangelsismálastofn- un. Fangarnir þurfa einnig að vera undantekningarlaust á dvalarstað sínum á milli 18 og 19 á kvöldin og aftur frá klukkan 23 á kvöldin til 7 á morgnana á virkum dögum. Um helgar þurfa fangar að vera heima við frá klukkan 21 á kvöldin til 7 á morgnana. Auk þess eru almennari skilyrði eins og að fangi neyti ekki áfengis eða ávana- og fíkniefna og að hann fremji ekki refsiverð- an verknað. Fangelsismálastofnun er einnig heimilt að krefjast þess að fangi undirgangist rannsókn á öndunarsýni eða blóð- og þvag- rannsókn. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Hafa visst frelsi Þeir sem sæta rafrænu eftirliti hafa allir fengið 12 mánaða óskilorðsbund- inn dóm eða þyngri dóm. Myndin er sviðsett. MyNd RóBERt REyNissoN Ökklaband Búnaðurinn sem notaður er í rafrænu eftirliti er af gerðinni BluTag og er það Öryggismiðstöðin sem sér um að útvega hann. Búið að einkavæða eftirlit með föngum „Venjulegt útkast“ Einar Gunnar Birgisson, formaður Bjart- sýnisflokksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.