Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Side 11
Fréttir 11Miðvikudagur 13. júní 2012
K
röfuhafar eignarhaldsfélags-
ins Bergsins ehf. hafa af-
skrifað tæplega 3,8 milljarða
króna vegna lánveitinga til
félagsins. Eigendur félags-
ins voru Steinþór Jónsson, athafna-
maður og fyrrverandi bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ,
og Jónmundur Guðmarsson, núver-
andi framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins og fyrrverandi bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi. Þetta kemur fram í
Lögbirtingablaðinu. Heildarkröfurn-
ar í bú Bergsins námu 3.775.983.824
krónum og var félagið eignalaust við
gjaldþrotaskiptin.
Ingi Poulsen, skiptastjóri Bergs-
ins, gat ekki veitt DV upplýsingar um
uppgjörið á þrotabúi Bergsins þegar
eftir því var leitað á þriðjudaginn.
Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar
um skuldastöðu Bergsins og lánveit-
endur þess liggur hins vegar nokkurn
veginn fyrir hvaða fjármálafyrirtæki
það eru sem þurfa að afskrifa kröfur
sínar á hendur Berginu – Sparisjóða-
bankinn, Sparisjóðurinn í Keflavík
og Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, nú Drómi.
Keyptu fyrir fjóra milljarða
Bergið keypti hlutabréf í Sparisjóða-
banka Íslands síðla árs 2007 fyrir
rúmlega fjóra milljarða króna. Um
var að ræða 9,5 prósenta hlut í bank-
anum og varð Bergið í kjölfarið einn
stærsti hluthafi bankans. Spari-
sjóðurinn í Keflavík var sömuleið-
is stór hluthafi með um 12 prósenta
eignarhlut. Formaður bankaráðs
Sparisjóðabankans var Geirmund-
ur Kristinsson, sparisjóðsstjóri hjá
Sparisjóðnum í Keflavík.
Lánin til að kaupa hlutabréfin
í Sparisjóðabankanum komu frá
bankanum sjálfum og frá Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis og Spari-
sjóðnum í Keflavík. Lánveitingin frá
Sparisjóðabankanum nam rúmlega
1,1 milljarði króna en Steinþór, einn
af eigendum Bergsins, var varafor-
maður bankaráðs hans á þessum
tíma. Stærstur hluti lánsins, um tveir
milljarðar króna, kom hins vegar frá
Sparisjóði Reykjavíkur og nágrenn-
is. Lánin til Bergsins voru að mestu
í erlendum myntum, svissneskum
frönkum og japönskum jenum.
Breyttu lánareglum bankans
Lánveitingin til Bergsins var hluti
af rúmlega 8,7 milljarða króna lán-
veitingum frá Sparisjóðabankanum
til starfsmanna sinna á seinni hluta
árs 2007 en fjármunirnir voru not-
aðir til að kaupa bréf í bankanum. Í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is er rakið hvernig bankaráð Spari-
sjóðabankans breytti lánareglum
sínum til að geta veitt starfsmönn-
um lánin. Veðin fyrir lánunum voru
í hlutabréfunum sjálfum.
Í fundargerð stjórnar Ice-
bank þann 7. október 2007 kom
eftir farandi fram: „Í minnisblaði
bankastjóra [Finns Sveinbjörnsson-
ar, innskot blaðamanns] er lagt til að
formanni bankaráðsins og varafor-
manni verði veitt fullt umboð til þess
að ganga til samninga við lántaka úr
hópi kaupenda um lánsfjárhæðir og
lánskjör með fulltingi sérfræðinga
bankans auk ytri endurskoðenda
verði það talið heppilegt. Var það
samþykkt samhljóða.“
Í kjölfar þessa, samkvæmt því
sem segir í rannsóknarskýrslunni,
samþykkti bankaráð Sparisjóða-
bankans að breyta reglum um eig-
in verðbréfaviðskipti stjórnenda
bankans „…til að gera þeim kleift
að kaupa hluti í bankanum í gegn-
um félög í þeirra eigu.“ Bankaráðið
samþykkti einnig að bankinn lán-
aði fyrir kaupunum á hlutabréfun-
um og að bréfin sjálf yrðu tekin sem
veð og að ekki yrði farið fram á nein-
ar viðbótartryggingar. Í skýrslunni
kemur einnig fram að eftir að þetta
var samþykkt hafi verið ákveðið á
fundi í lánanefnd bankans að veita
Berginu lán til hlutabréfakaupa í
bankanum.
Stjórnendur Sparisjóðabankans
ákváðu því að breyta reglum hans
um viðskipti með bréf í bankanum
svo þeir gætu lánað sér sjálfum og
starfsmönnum fyrir hlutabréfum í
bankanum. Þessir stjórnendur og
starfsmenn bankans skuldsettu svo
eignarhaldsfélög sín um milljarða
króna í kjölfarið vegna umræddra
hlutabréfakaupa. Þessi lán til félag-
anna hafa verið eða verða að lang-
mestu leyti afskrifuð, líkt og í tilfelli
Bergsins.
Lánaði 370 milljónir án veða
Í viðtali við DV í fyrrasumar viður-
kenndi Steinþór að hafa verið milli-
liður fyrir Sparisjóðinn í Keflavík í
viðskiptum Bergsins en til stóð að
sparisjóðurinn yrði hluthafi í fé-
laginu. Af þessum sökum lagði
Sparisjóðurinn í Keflavík Berginu til
370 milljóna króna lán sem notað
var sem hluti af eiginfjárframlagi fé-
lagsins í viðskiptunum.
Steinþór sagði við DV að hlut-
hafar Bergsins hefðu lagt fram eig-
infjárframlag sem var einn þriðji
hluti af kaupverði hlutabréfanna í
Sparisjóðabankanum – hluti af eig-
infjárframlaginu var hins vegar
lánsfé. „Það voru margir hluthaf-
ar í Berginu og einn af þeim stóð til
að yrði Sparisjóðurinn í Keflavík […]
Það sem var skráð á mig var 8 pró-
sent af þessu eigin fé sem Bergið
lagði fram, sem sparisjóðurinn átti
að leggja fram, til þess að eignast
hlut í Berginu. Það var gerður samn-
ingur um það sérstaklega. Þetta var
bara sett á heimild til að byrja með til
þess að klárast. Sparisjóðurinn ætl-
aði að eignast í Berginu, það var hug-
myndin. Það var sett á mitt nafn til
að klára þetta,“ sagði Steinþór. Spari-
sjóðurinn í Keflavík virðist því hafa
átt að eignast hlutabréfin í Berginu
sem Steinþór var skráður fyrir.
Í skýrslu frá Fjármálaeftirlitinu
um starfsemi Sparisjóðsins á árun-
um fyrir hrunið 2008, þar sem sett
er fram margvísleg gagnrýni á starf-
semi sjóðsins, kemur meðal annars
fram að 370 milljóna króna lánið til
Bergsins hafi verið veitt án nokkurra
veða. DV greindi frá skýrslu Fjár-
málaeftirlitsins í fyrrasumar en hún
var unnin um haustið 2008. Berg-
ið var því fjármagnað af að minnsta
kosti þremur sparisjóðum.
Jónmundur sagði viðskiptin
eðlileg
Í viðtali við DV í byrjun apríl 2009
sagði Jónmundur að hann hefði keypt
hlutabréf í Berginu fyrir sparifé sitt.
Jónmundur sagði jafnframt að ekk-
ert hefði verið athugavert við við-
skiptin. „Já, ég keypti hlut í félaginu.
Mér bauðst að kaupa hlutabréf í því
og ég gerði það og hætti þar með
mínu sparifé […] Það getur nú ekki
talist undarlegt að menn hafi tek-
ið ákvörðun um að verja sparifé sínu
með tilteknum hætti […] Ég sé bara
ekkert athugavert við það að bæj-
arstjórnarmenn eins og hverjir aðr-
ir geti tekið ákvörðun um það hvort
þeir kaupa hlutabréf í félögum eða
ekki. Þarna er ekkert annað á ferðinni
en bara eðlileg viðskipti,“ sagði Jón-
mundur.
Þá sagði Steinþór, í yfirlýsingu sem
hann sendi DV í apríl 2009, að eigend-
ur Bergsins hefðu verið stoltir hluthaf-
ar í Sparisjóðabankanum fram að því.
„Hluthafar Bergsins hafa verið stolt-
ir eigendur í mikilvægum banka í ís-
lensku þjóðlífi og þykir miður að fram-
tíð hans sé í óvissu um þessar mundir,
en vona um leið að stjórnvöld sjái hag
sinn í að tryggja framtíð hans.“
Nú liggur hins vegar fyrir að við-
skipti Bergsins með hlutabréfin í
Sparisjóðabankanum fóru fram eft-
ir að stjórn Sparisjóðabankans hafði
breytt lánareglum bankans til að hægt
yrði að fjármagna hlutabréfakaup
starfsmanna í honum. Þá liggur jafn-
framt fyrir að hluti lánanna var veittur
án veða eða eingöngu með veðum
í hlutabréfunum sjálfum sem keypt
voru. Að lokum liggur fyrir að lánveit-
endur þurfa að afskrifa tæplega fjóra
milljarða af kröfum sínum á hendur
Berginu. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Þarna er ekkert
annað á ferðinni
en bara eðlileg viðskipti.
n Sparisjóðirnir veittu Berginu lán til hlutabréfakaupa n Félagið reyndist eignalaust
AfskrifA
milljArðA
hjá steinþóri
og jónmundi
Var milliður
Steinþór Jónsson
var milliliður í
viðskiptum Spari-
sjóðsins í Keflavík
og Sparisjóða-
bankans í gegnum
Bergið. Kröfuhafar
félagsins hafa nú
afskrifað tæpa
fjóra milljarða
vegna félagsins.
Eðlileg viðskipti Jónmundur Guðmarsson segir að viðskipti Bergsins hafi verið eðlileg
en í þeim fékk félagið meðal annars veðlaust lán upp á 370 milljónir frá Sparisjóðnum í
Keflavík. Geirmundur Kristinsson var sparisjóðsstjóri í Keflavík.