Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Page 13
Fréttir 13Miðvikudagur 13. júní 2012
„Óttinn er alltaf til staðar“
n Stundaði áður afbrot fyrir Börk n Var hótað og unnustan tekin í gíslingu n Flúði út á land
hagnaðinn. Ég gerði allt fyrir hann
sem hann bað mig um, hvort sem
það var þjófnaður eða barsmíðar.“
Maðurinn ungi taldi Börk áður
til vina sinna og leit upp til hans.
Hann segir strákana sem eru í
kringum Börk öðlast virðingu í
undirheimunum og um leið njóti
þeir verndar. „Börkur á þessa stráka
og lætur þá gera allt sem honum
dettur í hug, það sem honum þókn-
ast hverju sinni. Þjófnaðir, árásir,
rukkanir, og margt fleira ólöglegt
sem honum finnst vera fullkom-
lega eðlilegt. Ég var einn af þessum
strákum.“
Hann segir Börk vera þekktan
fyrir að búa til skuldir á fólk og svíf-
ast einskis til að fá skuldirnar borg-
aðar. „Menn sem kannski segja
honum ósatt eða koma ekki hreint
til dyranna. Slíku fólki er refsað
með sektum eða barsmíðum. Í til-
vikum sem Börkur hefur innheimt
skuldir og viðkomandi svarar ekki
símtali hefur hann lagt 50 þúsund
krónur ofan á viðkomandi skuld
fyrir að ekki var svarað í símann. Ef
viðkomandi borgar ekki á tilsettum
tíma eru settir vextir á skuldirnar og
svo háar að viðkomandi „skuldari“
á eftir að skulda honum fjárhæðir
út lífið.“
Enginn þorði að kæra
Þrátt fyrir að Börkur eigi að hafa
stundað meinta handrukkun og
beitt fjölda fólks ofbeldi um árabil
var hann aðeins nýlega hnepptur í
varðhald. Maðurinn segir að enginn
hafi þorað að kæra Börk af ótta við
hefndaraðgerðir. „Mönnum er oft
sleppt að loknum yfirheyrslum og
maður tók ekki áhættuna. Ég held
að það sé það sem þessi fjölmenni
<hópur sem vill kæra hann hafi ótt-
ast mest. Að þurfa að mæta honum.“
Hann hvetur aðra til að stíga
fram og leggja fram kæru. „Ef ég á
að vera hreinskilinn þá hef ég aldrei
farið upp á lögreglustöð í góðu. Ég
hef dúsað mörgum sinnum upp á
Hverfisgötu fyrir alls konar bull sem
ég sé nú eftir. En við fengum mjög
góðar viðtökur frá yfirvöldum. Okkur
var boðin vernd og þeir [lögreglan]
veita okkur allan þann styrk sem við
þurfum.
Mér finnst ótrúlega frábært hvað
lögreglan sér hvað fólk er að ganga í
gegnum og styður fórnarlömbin al-
gjörlega. Ég bjóst ekki við þessum
móttökum og ég hvet aðra sem hafa
lent í Berki að stíga fram og leggja
fram kæru því það á enginn að geta
komist upp með svona. Ég vil líka
segja þessa sögu öðrum til varnaðar.
Fólki sem umgengst hann og þarf að
umgangast hann. Það geta allir lent í
því sama og ég.“
Vill ekki vera hundur í bandi
brjálæðings
Í dag segist hann vera laus úr heimi
afbrota og glæpa og þangað ætli
hann aldrei að fara aftur. „Í dag get
ég farið út í daginn með vinum sem
eru alvöru vinir mínir og við getum
farið og gert eitthvað skemmtilegt
í staðinn fyrir að fara út í þeim til-
gangi að brjóta lög. Stela þessu, gera
þetta og gera hitt. Vera í rauninni
bara hundur í bandi hjá einhverj-
um einstaklingi sem er snarbilað-
ur og maður veit ekkert hvort mað-
ur verði lifandi á morgun eða ekki.
Þannig að ég tel mig vera kominn út
úr þessum heimi og hef ekki sam-
skipti við marga sem tengjast undir-
heimum. Sem er bæði gott fyrir mig
og mína fjölskyldu.
Ég vil reyna að byggja upp traust
aftur við fjölskylduna sem hef-
ur glatast. Ég ætla að reyna að taka
saman við konuna mína aftur og
stefni á að nýta hæfileika mína í eitt-
hvað annað en að stunda glæpi. Ég
tel mig vera lausan úr þessum heimi
og mig langar aldrei að fara í hann
aftur,“ segir hann að lokum.
Stígur fram Ungi
maðurinn var í felum
í ár eftir að Börkur
hótaði honum og tók
unnustu hans í gíslingu.
Mynd: Eyþór ÁrnaSon