Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Side 22
22 Menning 13. júní 2012 Miðvikudagur
Fann ástina aftur hjá Íslendingi
n Glen Hansard og Markéta týndu ástinni n Markéta og Míó Þórisson upptökustjóri nýtt par
H
in tékkneska Markéta
Irglová fagnaði á
sunnudaginn þegar
söngleikurinn Once
vann til átta Tony-verðlauna.
Söngleikurinn er byggður á
indí-myndinni Once, með
henni og tónlistarmanninum
Glen Hansard í aðalhlutverk-
um.
Myndin er frá árinu 2007
og er rómantísk. Fjallar um
tvo tónlistarmenn í Dublin
sem fella hugi saman. Markéta
og Glen sömdu saman lög
myndarinnar, þeirra á með-
al, Falling Slowly, sem fékk
Óskarsverðlaun það árið fyr-
ir besta frumsamda lagið.
Kvikmyndin vann einnig til
verðlauna á Sundance-kvik-
myndahátíðinni og féll víða í
góðan jarðveg.
Markéta og Glen Hansard
urðu ástfangin meðan á tökum
myndarinnar stóð en hættu
saman árið 2009. Þau héldu
áfram samstarfi og stofnuðu
meðal annars sveitina Swell
Season sem spilaði hér á landi
í apríl á síðasta ári.
Glen spilaði einnig á
Bræðslunni á síðasta ári og á
rómuðum tónleikum á Rósen-
berg og vakti mikla lukku á
tónleikum sínum.
Þau Glen og Markéta hafa
því bæði dvalið um stund á Ís-
landi og þótt þau hefðu týnt
ástinni til hvors annars þá fann
að minnsta kosti annað þeirra
hana aftur.
Markéta fann nefnilega
ástina aftur hjá Íslendingnum
Sturlu Míó Þórissyni, upptöku-
stjóra í hljóðverinu Gróður-
húsinu. Þau hafa hist um skeið
og eru stödd í Bandaríkjun-
um um þessar mundir en snúa
aftur hingað til lands seinna í
mánuðinum.
Eyða
fordómum
Halaleikhópurinn var stofn-
aður 27. september 1992
og verður því tuttugu ára í
haust. Það sem einkennir
leikhópinn er að öllum er
heimilt að taka þátt og hef-
ur það bæði vakið eftirtekt
og skapað honum sérstöðu
í hópi áhugaleikfélaga.
Þannig hefur Halaleik-
hópurinn lagt sitt af mörk-
um við að eyða fordómum í
garð fatlaðra í samfélaginu.
Það að vera fatlaður er eitt-
hvað sem hreinlega gleym-
ist í Halaleikhópnum. Í vet-
ur sýndi hópurinn verkið
Hassið hennar mömmu,
eftir Dario Fo, við góðar
undirtektir.
Í tilefni af 20 ára afmæli
Halaleikhópsins er stefnt
að því að vera með ljós-
myndasýningu í haust þar
sem sýndar verða ljós-
myndir frá starfseminni
frá upphafi til dagsins í
dag. Einnig munu félagar í
hópnum standa fyrir upp-
ákomum í Krika, sumar-
húsi Sjálfsbjargar á höf-
uðborgarsvæðinu, sem
stendur við Elliðavatn. Til
stendur að Halaleikhópur-
inn verði þar 2. júní, 7. júlí
og mögulega oftar.
Hljómsveitin Kiriyama
Family heldur útgáfutón-
leika í Þjóðleikhúskjallaran-
um fimmtudaginn 14. júní.
Tónleikarnir hefjast klukkan
22.00 en húsið verður opnað
21.00. Platan sem er sam-
nefnd hljómsveitinni hefur
fengið mjög góðar undirtekt-
ir og má helst nefna fjögurra
stjörnu umsagnir hjá tónlist-
arrýnendum Fréttatímans
og Fréttablaðsins.
Á plötunni má finna lag-
ið Weekends en það situr nú
í öðru sæti á Vinsældarlista
Rásar 2. Forsala á tónleikana
er í fullum gangi og kostar
miðinn 2.000 kr., en miðar
við hurð eru seldir á 2.500 kr.
Útgáfutónleikar
Kiriyama Family
Valtari í
1. sæti
Nýjasta stúdíóplata Sigur
Rósar, Valtari, sem kom
út fyrir viku hefur hlotið
ágætar viðtökur. Platan
náði strax 1. sæti á ís-
lenska listanum. Platan
hefur einnig hlotið góðar
viðtökur erlendis og hef-
ur hljómsveitin náð sín-
um besta árangri hingað
til á sölulistum í eftirtöld-
um löndum:
1. sæti á listanum í Írlandi
7. sæti í Bandaríkjunum
4. sæti í Japan
5. sæti í Belgíu
18. sæti í Hollandi
Glen og Markéta í Once Markéta fagnaði 8 Tony-verðlaunum söngleiks byggðum á myndinni.
H
ljómsveitin White
Signal hefur vak-
ið mikla og verð-
skuldaða athygli fyrir
vandaða, frumsamda
tónlist og flutning. Hljóm-
sveitin var skipuð fimm ung-
um tónlistarmönnum á aldr-
inum 15–17 ára – Guðrúnu
Ólafsdóttur, Sólrúnu Mjöll
Kjartansdóttur, Brynjari Guð-
laugssyni, Snorra Erni Arnar
og Katrínu Helgu Ólafsdóttur.
Nú hafa þrír meðlima gengið
úr sveitinni og segja ástæðuna
þá að þeir vilji meira sjálfstæði
og minni afskipti umboðs-
manns sveitarinnar. Sá er faðir
annarrar söngkonunnar, Guð-
rúnar.
Vilja vera einlæg
Þau Katrín, Sólrún Mjöll og
Brynjar mættu á ritstjórnar-
skrifstofu DV í stutt spjall um
breytingarnar.
„Við viljum vera sjálfstæð.
Ekki fá allt upp í hendurnar
og við viljum spila eftir hjart-
anu,“ segir Katrín Ólafsdóttir,
söngkona og hljómborðsleikari
sveitarinnar.
„Við leggjum mikinn metn-
að í að semja okkar eigið efni og
viljum vera sem einlægust í því
ferli. Þetta er auðvitað sorglegt,
við vorum svo mikið saman en
okkur fannst við þurfa að gera
þetta,“ segir Katrín.
„Við viljum upplifa þetta
sem okkar verkefni,“ útskýrir
Sólrún Mjöll, trymbill sveitar-
innar.
Sveitin tók þátt í Músík-
tilraunum og heillaði gesti
keppninnar. Svo fór að White
Signal var kosin hljómsveit
fólksins og trommari Músík-
tilrauna var valinn Sólrún Mjöll.
Hún hefur lært á trommur í ein
sjö ár. „Ég ákvað að prófa að
læra á trommur og þá varð ekki
aftur snúið,“ segir hún. Sólrún
Mjöll stundar að auki nám í
Menntaskólanum í Hamrahlíð.
Þurfa að finna sér annað nafn
Sveitin leggur hart að sér við
æfingar um þessar mundir
og þau leita að bassaleikara.
„Guðrún og Snorri halda áfram
sem White Signal. Okkur þykir
það svolítið skrýtið, við eigum
þetta jafnt og þau. En kannski
er ekkert við því að gera,“ segir
Katrín. „Við finnum okkar bara
annað nafn og höldum ótrauð
áfram að semja tónlist. Þetta er
það sem okkur þykir gaman að
gera,“ segir Brynjar.
„Báðar sveitirnar ættu að
finna nýtt nafn,“ segir Sólrún
Mjöll.
Herbert kíkir í heimsókn
Meðan sveitin situr inni á skrif-
stofu DV opnast hurðin og inn
gengur tónlistarmaðurinn Her-
bert Guðmundsson. Hann er
kominn á skrifstofuna til að
næla sér í nokkur eintök af
blaðinu en hann prýddi bak-
síðu mánudagsblaðsins. „Þessa
krakka kannast ég við, segir
Herbert og lítur yfir hópinn.
„Við vorum að spila með syni
þínum á tónleikum um daginn,“
segir Brynjar og Herbert jánkar.
Hann fær fregnir um klofning
sveitarinnar. „Það er gott að þið
hafið trú á ykkur krakkar,“ segir
hann í hughreystandi tón. „Það
er það sem máli skiptir. Þannig
byrjaði ég. Með trú í hjarta. Það
er ekki hægt að semja tónlist ef
maður fær ekki að vera einlæg-
ur,“ segir hann og krakkarnir
kinka kolli og brosa.
„Þetta var nú ágætt
veganesti,“ segir Brynjar og þau
hin skella upp úr.
3 liðsmenn White
Signal gengu út
n Vildu minni afskipti föður eins liðsmanns sveitarinnar n Stofna nýja sveit
Vantar bassaleikara
Þau Katrínu, Sólrúnu
Mjöll og Brynjar vantar
liðsauka. Mynd PressPHOtOs.biz