Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2012, Blaðsíða 26
26 Fólk 13. júní 2012 Miðvikudagur
Fötin seld fyrir heimsreisu
n Diljá og Kamilla opna litla verslun á laugardaginn
Þ
etta er heima hjá mér í
litlu risíbúðinni minni
sem ég er að fara að
flytja út úr,“ segir Diljá
Ámundadóttir, varaborgar-
fulltrúi Besta flokksins, en
hún ætlar ásamt Kamillu Ingi-
bergsdóttur að opna litla versl-
un heima hjá sér á Njálsgötu
16 næstkomandi laugardag.
Diljá tók nýlega mjög afdrifríka
ákvörðun um að selja íbúðina
sína, segja upp vinnunni og
halda í heimsreisu. Verslun-
arreksturinn á Njálsgötunni
er einn þáttur í því að hreinsa
út úr íbúðinni og safna fé upp
í ferðina, en Diljá heldur af
landi brott út í óvissuna í byrj-
un ágúst. „Maður verður að
taka þetta alla leið og opna litla
búð heima hjá sér. Það verður
farið í geymsluna, þannig þetta
verða einhverjir húsmunir og
dúllerí og svo föt, og Kamilla
á sko ótrúlega mikið af flott-
um fötum. Kamilla þarf líka að
safna sér pening því hún ætl-
ar að koma og heimsækja mig
í nóvember, þar sem ég verð,
mjög líklega í Taílandi.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem heimili Diljár er not-
að sem verslunarhúsnæði en
Kamilla opnaði litla verslun
þar árið 2007. „Það gekk rosa-
lega vel og við ætlum að endur-
taka leikinn núna. Svo ætlum
við bara að hafa góða tónlist í
gangi og bjóða upp á gott te og
lakkrís. Það var þannig síðast,
þá vorum við með fullt af lakk-
rís og tei og okkur finnst fyndið
að hafa það aftur.“
Diljá gerir ráð fyrir að
kveðjustemning muni svífa
yfir vötnum á Njálsgötunni á
laugardaginn enda eigi margir
góðar minningar úr íbúðinni
sem hún er búin að eiga í 10 ár.
Hún viðurkennir að það hafi
verið pínu erfitt að selja íbúð-
ina. „Þetta er ljúfsárt, en það er
ótrúlega gaman að eiga svona
góðar minningar þaðan.“ Hún
mun afhenda hana nýjum
eigendum 1. júlí næskomandi.
„Ég fann einmitt minnis-
bók um daginn frá árinu 2002
þegar ég keypti íbúðina og var
að flytja inn í hana. Í bókinni
voru fjölmargir „to do“-listar
sem fylgja þegar maður er að
kaupa íbúð, fara með þetta skjal
til sýslumanns og svona, og nú
er ég með troðfulla tölvu af „to
do“-listum um hvernig á selja
og flytja út úr íbúð,“ segir hún
hlæjandi.
Viðburðurinn á laugar-
daginn nefnist Búðaland
dill&mill og er verslunin
opin frá 12.00 á hádegi til
18.00.
solrun@dv.is
Gott út-
hald hjá
starfsfólki
UNICEF
Nú er hægt að heita á þá
sem hlaupa fyrir góð málefni
í Reykjavíkurmaraþoni Ís-
landsbanka og nú þegar eru
nokkrir búnir að skrá sig fyr-
ir áheitum.
Eva Hrönn Steindórs-
dóttir, verkefnisstjóri hjá
UNICEF og formaður Um-
sjónarfélags einhverfra,
hleypur fyrir félagið. Sjálf
á hún einhverfan dreng og
ætlar að hlaupa 10 kíló-
metra. Það gerir Sigrún
Birgisdóttir líka. Inga Dóra
Pétursdóttir, samstarfskona
Evu Hrannar, hleypur svo
fyrir UNIFEM á Íslandi og
það gerir líka Olga Eleonora
M. Egonsdóttir. Það er því
ljóst að það eru úthaldsgóð-
ir einstaklingar í baráttunni
hjá þessum öflugu góð-
gerðasamtökum.
Sólar
sig með
stjörnum
Förðunarfræðingurinn Mar-
grét R. Jónasardóttir, eða
Magga í Make-Up Store eins
og hún er gjarnan kölluð,
er þessa dagana stödd í sól-
inni á Frönsku rívíerunni.
Samkvæmt Facebook-síðu
Margrétar eru engar aðr-
ar en Hollywood-stjörnu-
rnar Emma Thompson og
Pierce Brosnan í nágrenninu
að taka upp kvikmyndina
Love Punch en Joel Hopkins
skrifaði handrit og leikstýr-
ir myndinni. Margrét hefur
lengi haldið úti vinsælli vef-
síðu þar sem hún fjallar um
tísku, förðun, mat og fram allt
um fræga fólkið svo nú hljóp
heldur betur á snærið hjá
henni.
Afi fékk
nafna
Sjónvarpskonan María Sigrún
Hilmarsdóttir og eiginmað-
ur hennar, Árni Pétur Jóns-
son, útgáfustjóri Viðskipta-
blaðsins, skírðu frumburðinn
sinn um síðustu helgi. Sá
stutti fékk nafnið Hilmar Árni.
Afinn fékk því nafna en faðir
fréttakonunnar er arkitektinn
Hilmar Þór Björnsson. Hilmar
Árni kom í heiminn þann 10.
apríl en athygli vakti á sínum
tíma þegar María Sigrún gerði
sér lítið fyrir og las kvöldfrétt-
irnar í Sjónvarpinu tveimur
dögum áður en hún fæddi.
María Sigrún og Árni Pétur
giftu sig í fyrrasumar en Hilm-
ar Árni er fyrsta barn þeirra
hjóna.
Gersemar Diljá segir Kamillu eiga ótrúlega mikið af flottum fötum sem hún
ætlar að selja á laugardaginn.
Tom Cruise á
leið til landsins
H
ollywood-leikarinn
Tom Cruise er vænt-
anlegur hingað til
lands á næstu dög-
um í tengslum við
tökur á kvikmynd eftir skáld-
sögunni Oblivion í leikstjórn
Joseph Kosinski, samkvæmt
heimildum DV. Tökur á kvik-
myndinni eiga að hefjast í
Hrossaborgum í Mývatnssveit
þann 18. júní næstkomandi.
Sömu heimildir herma að
Cruise hafi tekið á leigu glæsi-
hýsið Hrafnabjörg í Eyjafirði
meðan á dvöl hans stendur
hér á landi. Hrafnabjörg voru
í eigu Jóhannesar Jónsson-
ar, kenndum við Bónus, áður
en skilanefnd Landsbankans
leysti húsið til sín í desember
árið 2010.
Það var svo svissneski auð-
kýfingurinn Thomas Martin
Seiz sem keypti húsið síð-
asta vor á litlar 200 milljónir
króna. Hann staðfesti í sam-
tali við DV að erlendur leikari
hefði tekið húsið á leigu næstu
vikurnar, en sagðist þó ekki
vita hver það væri. Hann sagð-
ist sjálfur ekki vera í neinum í
samskiptum við leigjendur
hússins enda sæi leigumiðlun
alfarið um þau mál fyrir hans
hönd.
Ferðast á milli með þyrlu
Húsið, sem er 427 fermetrar
og á tveimur hæðum, er teikn-
að af arkitektinum Fanneyju
Hauksdóttur. Á efri hæðinni
eru stofa, borðstofa og eldhús
í stóru og opnu rými. Miklir út-
sýnisgluggar í stofunni ná al-
veg niður í gólf, en í rýminu er
einnig arinn. Á neðri hæðinni
er tæknirými, líkamsræktar-
aðstaða og tvö baðherbergi.
Á lóðinni við húsið er svo 40
fermetra útisundlaug og stór
heitur pottur.
Ekki er vitað hvort Cru-
ise verður einn í húsinu, eða
hvort fjölskylda hans verður
með í för. En Cruise er giftur
leikkonunni Katie Holmes og
eiga þau eina dóttur, Suri Cru-
ise. Hvað sem því líður ætti
ekki að væsa um Cruise að
Hrafnabjörgum. Hann mun
svo ferðast á milli glæsihýsis-
ins og tökustaðarins í Hrossa-
borgum með þyrlu.
Cruise er ekki fyrsta stór-
stjarnan sem dvelur í húsinu í
tengslum við tökur á kvikmynd
hér á landi, en heimildir DV
herma að leikstjórinn Ridley
Scott hafi einnig leigt húsið
þegar hann var hér við tökur á
stórmyndinni Prometheus síð-
astliðið sumar.
Aðrir leikar á
Hótel Reynihlíð
Heimildir DV herma að tvö
hundruð manna tökulið komi
hingað til lands vegna kvik-
myndarinnar og þá mun einnig
vera von á fleiri stórleikur-
um úr Hollywood í Mývatns-
sveitina. Morgan Free man er
til að mynda í leikaraliði kvik-
myndarinnar Oblivion. Heim-
ildirnar herma að starfsfólk
kvikmyndarinnar sé þessa
dagana að koma sér fyrir á hót-
elum í sveitinni og sé byrjað
að undirbúa tökur. Samkvæmt
sömu heimildum munu aðr-
ir leikarar en Tom Cruise gista
á Hótel Reynihlíð sem Erna
Þórarinsdóttir, söngkona og
móðir Anítu Briem leikkonu,
rekur ásamt eiginmanni sín-
um. Hótelið er fjögurra stjörnu
og staðsett á einkar glæsileg-
um stað í Mývatnssveit.
Joseph Kosinski, leikstjóri
Oblivion, mun hafa komið
hingað til lands árið 2010 í leit
að heppilegum tökustað fyrir
kvikmyndina sem gerist í fram-
tíðinni. Hann virðist hafa heill-
ast af svæðinu í kringum Mý-
vatn, en stórbrotið og eyðilegt
landslagið á svæðinu hentar
vel sem leikmynd fyrir kvik-
myndina.
Til stendur að frumsýna
Oblivion á næsta ári, en áætl-
aður kostnaður við gerð
myndarinnar er um 12 millj-
arðar íslenskra króna.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
n Tom Cruise hefur tekið Hrafnabjörg í Eyjafirði á leigu, samkvæmt heimildum
Glæsihýsi Það ætti ekki að væsa um Tom Cruise að Hrafnabjörgum í
Eyjafirði.
Á leið til landsins
Tom Cruise mun vera
væntanlegur hingað til
lands á næstu dögum
í tengslum við tökur á
kvikmyndinni Oblivion.