Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2012, Side 2
Óskar og JÓn Ásgeir
í vinnu hJÁ ashley
2 Fréttir 5.–7. október 2012 Helgarblað
flutt
í Skútuvog 11
Við erum
Verslun: Skútuvogi 11 • 104 Reykjavík • 510 8888
Svona græða þau
á öðrum
3 Steinunn Guðbjarts
dóttir og Páll Ei
ríksson, starfs
menn slitastjórnar
Glitnis, láta fimm
starfsmenn sem
þau ráða í vinnu til lögfræðifyrir
tækis síns vinna fyrir þrotabúið fyr
ir 16 til 20 þúsund krónur á tím
ann en borga þeim svo aðeins lítinn
hlut af þeirri upphæð í laun. Páll
segir aðspurður að fyrirtæki þeirra
Steinunnar, Borgarlögmenn sf., greiði
starfsmönnunum á bilinu 700 þús
und til eina milljón króna á mánuði.
„Þeir fá bara góð laun. Þetta eru góð
laun miðað við stéttina. Ég gef þetta
ekki upp þeirra vegna en þú ert nærri
lagi,“ segir Páll.
Stórhuga sjálf-
stæðismenn
2 DV greindi frá því á mánudag að Sjálfstæðisflokkurinn ætli
sér stórsigur
í næstu þing
kosningum.
Þegar hefur
fjöldi fólks
verið nefndur
sem hugsan
legir kandídatar flokksins. Í þjóðar
púlsi Capacent frá fyrri hluta septem
ber mælist flokkurinn með 36 prósent
atkvæða. Flokkurinn tapaði miklu
fylgi í alþingiskosningunum 2009 en
þá hlaut hann aðeins 23,7 prósent at
kvæða. Það er töluvert minna en hann
hefur mátt venjast. DV tók saman lista
yfir nokkra sem hafa verið nefndir til
leiks eða ætla fram fyrir Sjálfstæðis
flokkinn í prófkjörum flokksins.
Milljarðalán Boga
færð niður
1 DV sagði frá því að 6,3 millj
arða króna skuld
ir eignarhaldsfélags
Boga Pálssonar, fjár
festis og fyrrverandi
forstjóra og eiganda
Toyota, hafi verið færðar niður að
fullu þegar hluti lánasafns gamla
Kaupþings var fluttur yfir í nýja Kaup
þing, eftir hrunið 2008. Bogi var einn
stærsti hluthafi Exista, stærsta hlut
hafa Kaupþings, fyrir hrunið 2008. Í
febrúar 2007 keyptu Bogi og fjölskylda
hans hlutabréf í Exista fyrir 4,8 millj
arða í gegnum félagið sem um ræðir,
Eignarhaldsfélagið Stofn. Sama dag
keypti Erlendur Hjaltason, forstjóri
Exista, hlutabréf í félaginu með láni
frá Kaupþingi.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
J
ón Ásgeir Jóhannesson fjár
festir og Óskar Hrafn Þorvalds
son fréttamaður hafa komið að
því að stofna bresku íþróttasíð
una sportsdirectnews.com síð
ustu mánuði. Netsíðan var opnuð
fyrir skömmu en á síðunni eru sagð
ar fréttir af hinum ýmsu íþróttagrein
um. Á síðunni kemur fram að síðan
sé gefin út af og ritstýrt af félaginu
Myme Limited sem er í eigu fyrir
tækisins Sportsdirect International.
Auðkýfingurinn Mike Ashley, eig
andi knattspyrnuliðsins Newcastle,
er eigandi Sportsdirect International
en fyrirtækið á og rekur stærstu
íþróttavöruverslanakeðju í Bretlandi
sem ber sama nafn. Fyrirtækið rekur
um 470 verslanir víða um heim, með
al annars hér á landi. Í sumar opn
aði Sportsdirect verslun á Smáratorgi
í Kópavogi en framkvæmdastjóri
hennar er sonur eiginkonu Jóns Ás
geirs, Ingibjargar Pálmadóttur. Sá
heitir Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson.
Svo virðist sem Jón Ásgeir vinni nú
fyrir Sportsdirect.
Jón Ásgeir bað Óskar
Í viðtali við DV í júlí síðastliðinn kom
fram að Óskar Hrafn myndi ritstýra
ótilgreindum íþróttavef í London
að undirlagi Jóns Ásgeirs sem boðið
hefði honum starfið. „Það er alltaf
gaman að prófa eitthvað nýtt […] Við
[Jón Ásgeir og Óskar Hrafn, innskot
blaðamanns] höfum nú ekki alltaf
verið sammála um efnistök mín á
málum tengdum honum, en hann
hefur greinilega einhverja trú á mér,“
sagði Óskar Hrafn en með svarinu
vísaði hann til þess að þeir Jón Ásgeir
tókust nokkuð á þegar sá fyrrnefndi
var fréttastjóri Stöðvar 2.
Í fréttaflutningi um málið í sumar
vildi Óskar Hrafn ekki tjá sig um
hvaða stórfyrirtæki stæði á bak við
vefsíðuna. Þetta virðist hins vegar
vera Sportsdirect, sama fyrirtæki og
opnaði verslun á Íslandi í sumar, sem
stýrt er af syni eiginkonu Jóns Ásgeirs.
Í ágúst 2007 var greint frá samn
ingaviðræðum á milli Jóns Ásgeirs og
Mike Ashley um kaup á Newcastle.
Þau viðskipti runnu hins vegar út í
sandinn.
Vinnur fyrir Mym-e Limited
Fyrirtækið Myme Limited, sem sér
um Sportsdirectnews, sérhæfir sig
meðal annars í fjölmiðlaþjónustu
fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Um er
að ræða eins konar fjölmiðlavakt þar
sem fyrirtækið velur og tekur saman
fréttir um það helsta og mikilvæg
asta sem er að gerast hverju sinni í
heimi viðskiptanna og sendir til við
skiptavina sinna. Þessi þjónusta fyrir
tækisins kallast Myretail media. Á
heimasíðu félagsins kemur fram að
þessi þjónusta sé hins vegar aðeins
byrjunin á „Mymebyltingunni“. Jón
Ásgeir Jóhannesson kemur að vinnu
þessa fyrirtækis auk Gunnars Sigurðs
sonar, fyrrverandi forstjóra Baugs.
Morgunblaðið greindi frá því á
fimmtudaginn að eignir ráðgjafar
fyrirtækisins JMS Partners, sem er
í eigu Jóns Ásgeirs og Gunnars Sig
urðssonar, hefðu tífaldast á árinu
2011 og numið 2,3 milljónum punda
í árslok. Hagnaður félagsins nam
200 þúsund pundum í fyrra. Um
svif þeirra Jóns Ásgeirs og Gunnars í
London eru því einhver og fara vax
andi.
Ekki náðist í Óskar Hrafn á
fimmtudaginn. n
n Íþróttavörurisinn Sportsdirect opnar vef sem stýrt er af Íslendingum„Þetta virðist hins
vegar vera Sports-
direct, sama fyrirtæki og
opnaði verslun á Íslandi í
sumar, sem stýrt er af syni
eiginkonu Jóns Ásgeirs.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Í samstarf Samstarf virðist vera á
milli fyrirtækis Mike Ashley og Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar. Sá síðarnefndi
fékk Óskar Hrafn Þorvaldsson til að
stýra vefsíðu sem fyrirtæki Ashley á.
Missti öll
fóstrin
Kona sem var ófrísk af fimmbur
um, og lét eyða tveimur fóstrum
til að auka lífslíkur hinna þriggja,
hefur nú misst öll fóstrin, að því er
fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá á
fimmtudagskvöld.
Fréttatíminn greindi frá því í
júní að par í Reykjavík ætti von á
fimmburum. Konan var þá kom
in þrjá mánuði á leið og ráðlögðu
læknar henni að láta eyða þremur
fóstrum enda fimmburameðganga
áhættusöm fyrir bæði móður og
börn. Þau tóku þá erfiðu ákvörðun
að fækka fóstrunum í þrjú en hafa
nú misst þau öll, eftir að legháls
konunnar gaf sig.
Sýknaður af
nauðgun
Hæstiréttur Íslands sýknaði á mið
vikudag karlmann af ákæru um
að hafa nauðgað konu á skemmti
stað á meðan hún var svo ölvuð að
hún gat ekki spornað við því. Mað
urinn hefur því verið sýknaður á
báðum dómsstigum.
Í dómi Hæstaréttar segir að
ákæruvaldinu hafi ekki tekist að
færa sönnur á sekt mannsins, en
hann hafði viðurkennt að hafa átt
kynmök við konuna, en sagði þau
hafa verið með hennar vilja.
Stakk mann
í brjóstkassann
Hæstiréttur hefur staðfest gæslu
varðhaldsúrskurð yfir manni
sem grunaður er um tilraun til
manndráps. Hann er grunaður
um að hafa veitt öðrum manni
lífshættulega áverka. Samkvæmt
úrskurðinum stakk hann mann
inn í brjóstkassann í júlí með
þeim afleiðingum að hnífurinn
gekk inn í vinstra lunga brota
þolans. Maðurinn, sem neitar
sök, hefur verið ákærður og hef
ur sú ákæra verið þingfest.
Verði hann sakfelldur getur
hann átt yfir höfði sér allt að tíu
ára fangelsisvist.