Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2012, Qupperneq 4
Hópur útlaga handtekinn
n Lögreglan fann dóp, bruggtæki, eggvopn og þýfi
S
extán voru handteknir í að
gerðum lögreglunnar gegn vél
hjólagengi á miðvikudagskvöld.
Þær beindust helst að sam
tökunum Outlaws. Aðgerðirnar voru
víðtækar og var framkvæmd hús
leit víða í Hafnar firði, Árnessýslu og á
Suðurnesjum.
Framkvæmdirnar hófust um klukk
an átta um kvöldið og stóðu fram yfir
miðnætti. Lögreglumenn lögðu hald á
nokkra tugi gramma af sterkum fíkni
efnum, stera, bruggtæki og bæði landa
og gambra. Þá var einnig lagt hald á
ætlað þýfi og margs konar eggvopn.
Hluti fíkniefnanna fannst í hús
næði vélhjólagengisins í Hafnarfirði.
Alls var framkvæmd húsleit á fjór
um stöðum á höfuðborgarsvæðinu,
tveimur á Suðurnesjum og einum í
Árnessýslu.
Sumir hinna handteknu voru
einnig handteknir í aðgerðum lög
reglunnar gegn vélhjólagengi í síð
asta mánuði. Eftir aðgerðirnar í gær
kvöldi voru þrettán, ellefu karlar og
tvær konur, vistaðir í fangageymslu
lögreglunnar, en yfirheyrslur stóðu
yfir allan fimmtudaginn. Ekki hefur
verið tekin ákvörðun um hvort kraf
ist verður gæsluvarðhalds yfir ein
hverjum.
Flestir hinna handteknu eru
meðlimir í vélhjólagenginu Outlaws
og hafa áður komið við sögu hjá
lögreglu. Á áttunda tug lögreglu
manna tók þátt í aðgerðunum, sem
voru nokkuð umfangsmiklar, auk
starfsmanna tollgæslunnar sem að
stoðuðu við húsleit með sérþjálfuð
um hundum.
astasigrun@dv.is
4 Fréttir 5.–7. október 2012 Helgarblað
eigandi
aMX fékk
Milljónir
frá lÍÚ
F
élag í eigu eiganda vefmið
ilsins AMX, Friðbjarnar
Orra Ketilssonar, fékk
greiddar rúmlega 25 millj
ónir króna frá Landssam
bandi íslenskra útvegsmanna
(LÍÚ) á árunum 2007 og 2008.
Greiðslurnar voru samkvæmt
samningi sem félagið, Skipaklettur
ehf., gerði við LÍÚ árið 2007. Þetta
kemur fram í gögnum sem DV hef
ur undir höndum. Skipaklettur
hélt á þessum tíma meðal annars
úti vefsíðunni M5, viðskiptafrétta
síðu sem greindi frá viðskiptum á
hlutabréfamörkuðum, hlutabréfa
vísitölum og öðru slíku. Tekið skal
fram að samningurinn var gerður í
apríl 2007, áður en AMX var opn
aður í árslok 2008.
Rekstrarfélag AMX heitir Vef
miðlun ehf. og er skráð til heimilis
í Hádegismóum 2, nánar tiltekið í
Morgunblaðshúsinu. Sömu sögu
má segja um félagið Skipaklett sem
var stofnað árið 2007. Sem dæmi
má nefna að árið 2007 greiddi LÍÚ
rúmar 17 milljónir króna til Skipa
kletts og rúmar átta milljónir árið
eftir. Friðbjörn Orri er tengdasonur
Gunnlaugs Sævars Gunnlaugsson
ar, lögmanns og fjárhaldsmanns
Guðbjargar Matthíasdóttur, út
gerðarkonu í Eyjum og eiganda
Moggans.
Keyptu vefsíðugerð
Friðrik J. Arngrímsson, fram
kvæmdastjóri LÍÚ, segir að samn
ingurinn milli LÍÚ og Skipakletts
hafi snúist um kaup sambands
ins á upplýsingum um sjávar
útvegsmál frá félaginu. „Við gerð
um samning við Skipaklett en það
tengist ekki AMX. Við höfum aldrei
greitt neitt til útgáfufélags AMX.
Samningurinn sem við gerðum við
þetta fyrirtæki snérist um gerð vef
síðna og framleiðslu efnis um sjáv
arútvegsmál. Það var stóra inntak
ið í samningnum,“ segir Friðrik en
meðal annars var um að ræða vef
inn sjosokn.is að sögn Friðriks.
Friðrik segir að samningurinn
á milli Skipakletts og LÍÚ hafi fyr
ir löngu runnið sitt skeið. „Hann
var bara uppfylltur og kláraður sá
samningur. Hann er löngu búinn,
fyrir mörgum árum síðan. Þá
lauk viðskiptasambandi okkar við
Skipaklett,“ segir Friðrik.
Í ársreikningi Skipakletts fyrir
árið 2007 vekur reyndar athygli að
útseld þjónusta er bókfærð á rúm
ar 11 milljónir en launakostnaður
er aðeins rúm milljón. Þá stemm
ir þessi upphæð ekki við þau gögn
sem DV hefur undir höndum þar
sem fram kemur að Skipaklettur
hafi fengið rúmlega 17 milljónir
króna frá LÍÚ árið 2007. Upphæð
irnar stemma því ekki.
Stefnt fyrir meiðyrði
Friðrik J. Arngrímsson hefur stefnt
bloggaranum Ólafi Arnarsyni vegna
ummæla þess efnis að LÍÚ hafi
styrkt AMX um tugi milljóna króna
á ári með dulbúnum fjárframlögum
í gegnum félög sem tengjast Frið
birni Orra Ketilssyni. Ummælin sem
Friðrik stefndi Ólafi fyrir voru með
al annars eftirfarandi staðhæfingar
Ólafs í tveimur pistlum á vefsíðunni
Pressunni. „ LÍÚ ku styðja AMX vef
inn um næstum 20 milljónir á ári í
gegnum félög í eigu Friðbjörns Orra
Ketilssonar.“; „Mér er kunnugt um,
að einhverjir stjórnarmenn LÍÚ
vita ekki af stuðningnum við fugla
dritið á AMX enda munu greiðslurn
ar vera vel dulbúnar í reikningum
samtakanna; „LÍÚ, undir stjórn Frið
riks Arngrímssonar, situr uppi með
það að bera ábyrgð á ósómanum,
sem birtur er í skjóli nafnleyndar á
slefritinu AMX,“ sagði Ólafur meðal
annars í pistlunum.
Rótin að misskilningnum
„AMX var ekki til þegar samningur
inn við Skipaklett var gerður. Ég
skil ekki af hverju þetta hefur far
ið svona langt. Þessi viðskipti okkar
við Skipaklett eru ekkert leyndar
mál. Ólafur Arnarson hefur aldrei
hringt í mig til að spyrja út í þetta,“
segir Friðrik.
Rótin að þeirri sögu að LÍÚ haldi
AMX úti kann því að vera sú stað
reynd að AMX átti í viðskiptum við
Skipaklett áður en AMX var settur
á laggirnar. Þegar sú saga komst á
kreik að viðskiptasamband hefði
verið á milli LÍÚ og Skipakletts
kann sú ályktun að hafa verið dreg
in að um væri að ræða greiðslur
til að halda úti vefsíðunni AMX. Ef
marka má orð Friðriks J. þá er þetta
ekki rétt. Hins vegar má benda
á að Ólafur hélt því líka fram að
greiðslurnar til félaga Friðbjörns
Orra væru vel „dulbúnar“ í reikn
ingnum LÍÚ. Erfiðlega gæti hins
vegar reynst fyrir Ólaf að sanna
þessa fullyrðingu. Dómur verð
ur kveðinn upp í meiðyrðamálinu
innan nokkurra vikna. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Það hefur aldrei
verið greitt til
útgáfufélags AMX
n LÍÚ og Skipaklettur gerðu tugmilljóna samning um vefsíðugerð 2007
Snúið mál Ólafur Arnarson hélt því
fram í bloggfærslu að LÍÚ héldi úti
vefmiðlinum AMX, sem Friðbjörn Orri
Ketilsson stýrir. Friðrik Arngrímsson
stefndi Ólafi fyrir þessi ummæli. Nú
liggur fyrir að LÍÚ átti í tugmilljóna
viðskiptasambandi við annað félag í
eigu Friðbjörns Orra.
Tilraun til
þöggunar
Þór Saari, þingmaður Hreyfingar
innar, ætlar að áfrýja dómi Hér
aðsdóms Reykjaness þar sem
ummæli hans um meint tengsl
Ragnars Árnasonar, prófessors við
hagfræðideild Háskóla Íslands,
við Landssamband íslenskra út
vegsmanna voru dæmd dauð og
ómerk. Þór segir að hann hefði
beðist afsökunar á ummælun
um og að þau hafi verið leið
rétt. „Undirritaður telur að stefna
Ragnars hafi verið með öllu til
hæfulaus og sé tilraun til þöggun
ar á umræðu um málefni sem
hvað heitast hefur brunnið á þjóð
inni í áratugi sem eru breytingar
á kvótakerfinu og úthlutun
aflaheimilda,“ sagði Þór í tilkynn
ingu.
Barn hvarf
Lögreglunni á Suðurnesjum barst
tilkynning um að barn sem var
sofandi úti í barnavagni hefði
verið tekið úr vagninum. At
vikið átti sér stað í Reykjanes
bæ á milli klukkan 13 til 14 síð
astliðinn föstudag. Barnið, 14
mánaða stúlka, hafði verið sof
andi úti í barnavagni við íbúðar
hús í Reykjanesbæ. Þegar huga
átti að barninu reyndist það ekki
vera í vagninum og eftir skamma
leit heyrðist í því og reyndist það
vera í húsagarði við næsta hús en
milli húsanna er 80–90 sentímetra
há girðing. Málið er til rannsókn
ar hjá lögreglunni á Suðurnesj
um sem lítur það mjög alvarlegum
augum.
Á vettvangi Á áttunda tug lögreglu-
manna kom að aðgerðunum.