Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2012, Síða 21
Erlent 21Helgarblað 5.–7. október 2012
Al-Kaída
kennt um
skógarelda
Skógareldar sem kviknað hafa í
Evrópu undanfarin misseri eru
hryðjuverkasamtökunum al-
Kaída að kenna. Þetta er mat Al-
exanders Bortnikov, yfirmanns
öryggislögreglu Rússlands. Al-
exander segir að íkveikjurnar
séu nýtt herbragð samtakanna,
þær séu ódýrar og nokkuð ár-
angursríkar. „Íkveikjurnar gera
þeim kleift að valda miklu fjár-
hagslegu tjóni án þess að kosta
miklu til,“ er haft eftir honum á
vef rússnesku fréttaveitunnar
RIA Novosti. Máli sínu til stuðn-
ings bendir hann á umræður á
vefsíðum tengdum al-Kaída að
þar sé fólk beinlínis hvatt til að
kveikja í.
Romney
hafði betur
Mitt Romney, frambjóðandi
repúblikana fyrir forsetakosn-
ingarnar í Bandaríkjunum,
hafði betur gegn Barack
Obama, sitjandi forseta, í fyrstu
sjónvarpskappræðunum fyrir
komandi forsetakosningar.
Kappræðurnar fóru fram á
miðvikudagskvöld í Denver.
Samkvæmt nokkrum skoðana-
könnunum sem framkvæmdar
voru eftir kappræðurnar sögð-
ust á bilinu 46–67 prósent að-
spurðra telja að Romney hefði
staðið sig betur. Einungis 22–25
prósent aðspurðra sögðu að
Obama hefði haft betur. Stjórn-
málaskýrendur eru á sama máli
og segja að Romney hafi haft
yfir höndina lengst af og Obama
verið hikandi.
Milljarður á
Facebook
Notendur samskiptavefsíðunnar
Facebook eru í fyrsta sinn
komnir yfir einn milljarð. Þetta
tilkynnti stofnandinn, Mark
Zuckerberg, á fimmtudag. „Það
er frábært að hafa aðstoðað þús-
und milljónir fólks að tengj-
ast. Ég er langstoltastur af því
í lífi mínu,“ sagði Zuckerberg
og bætti við að notendur hefðu
til að mynda sett 219 milljarða
mynda á samskiptasíðuna.
Þetta þykja vera góð tíðindi
fyrir Facebook, ekki síst í ljósi
þess að gengi hlutabréfa í fyrir-
tækinu hafa lækkað talsvert í
verði frá því að það var sett á
markað fyrr á árinu.
Ósáttir kynferðisafbrotamenn
n Vilja gefa börnum sælgæti á hrekkjavökunni en fá ekki
Ó
venjulegt mál er komið upp
í borginni Simi Valley í Kali-
forníu. Fyrir um mánuði sam-
þykktu yfirvöld í borginni að
dæmdum kynferðisbrotamönnum
yrði meinað að gefa börnum sælgæti
á hrekkjavökuhátíðinni sem gengur
í garð vestanhafs í lok mánaðarins.
Á hrekkjavökunni ganga börn jafn-
an á milli húsa og biðja húsráðend-
ur um sælgæti eða eiga ella á hættu
að vera gerður grikkur. Auk þess var
þessum mönnum, sem eru á sérs-
tökum lista yfir dæmda kynferðis-
brotamenn, meinað að skreyta
heimili sín, til dæmis stilla upp
graskerum við heimili sín eins og
tíðkast.
Þessi ákvörðun borgaryfirvalda
hefur orðið til þess að nokkr-
ir þessara kynferðisbrotamanna
hafa ákveðið að stefna yfirvöldum
í Simi Valley. Telur lögmaður þeirra
að brotið sé gegn tjáningarfrelsis-
ákvæði bandarísku stjórnarskrár-
innar. 119 kynferðisbrotamenn eru
skráðir í borginni en nöfn 67 þeirra
eru birt opinberlega. Telja yfirvöld
borgarinnar að hrekkjavakan veiti
kynferðisbrotamönnum „kærkomið
tækifæri“ til að brjóta kynferðis lega
gegn börnum. Bandaríska blaðið
Los Angeles Times greindi frá mál-
inu á dögunum og þar var haft eft-
ir lögreglu að enginn þeirra glæpa-
manna, sem eru á lista yfir dæmda
kynferðisbrotamenn, hafi framið
brot sín á hrekkjavökunni.
„Þetta minnir á Þýskaland nas-
ismans þegar gyðingar voru merkt-
ir gulum stjörnum til að bera
opinberlega,“ segir lögmaður kyn-
ferðisbrotamannanna, Janice
Bellucci, í samtali við Los Angeles
Times. Borgaryfirvöld í Simi Valley
segjast ekki óttast málsóknina og
að ákvörðunin verði ekki dregin til
baka. n
Vilja vera með Kynferðisbrotamenn vilja
fá að gefa börnum sælgæti en borgaryfir-
völd telja að þeim sé langt í frá treystandi.