Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Blaðsíða 17
Neytendur 17Mánudagur 19. nóvember 2012 Bílaverkstæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað n Vildarpunktar kreditkortanna safnast hægt n Árgjaldið lægst hjá American Express n Finndu hvaða kort hentar þér Ekki Eltast við punktana Landsbankinn Gull A-kort Árgjald: 8.900 kr. Söfnun: Safnar 5 Aukakrónum af hverjum 1.000 kr. af innlendri verslun kortsins. Veruleg viðbótarsöfnun hjá samstarfsaðilum. Notkun: Aukakrónur má nýta hjá samstarfsaðilum. Gull Vildarkort Árgjald: 8.900 kr. Söfnun: Safnar 5 vildarpunktum í Icelandair Saga Club af hverjum 1.000 krónum. Notkun: Hægt að nota til að kaupa flug og hótel hjá Icelandair. Gullkort með ferðaávísun Árgjald: 9.500 kr. Söfnun: Safnar 5 krónum af hverjum 1.000 krónum af innlendri verslun í MasterCard ferðaávísun hjá söluaðilum sem hafa sölusamning við Borgun. Korthafar fá 5.000 króna ferðaávísun við stofnun fyrsta korts. Notkun: Korthafar fá senda ávísun einu sinni á ári sem þeir geta notað hjá öllum helstu ferðaskrifstofum og flugfélögum á íslandi. Íslandsbanki Gullkort tengt við Vildarklúbb Íslandsbanka Árgjald: 9.000 krónur Árgjald fyrir aukakort: 4.000 krónur Söfnun: Innlend notkun kortsins, með reglulegum sparnaði, viðbótarlífeyrissparnaði, bílafjármögnun hjá Ergo, þjónusta hjá Eignastýringu eða Einkabankaþjónusta hjá VÍB. Notkun: Punktum er hægt að breyta í peninga, sparnað, góðgerðarmál, ferðaávísun MasterCard eða vildarpunkta Icelandair. Gullkort með Vildarpunktum Icelandair Árgjald: 9.000 krónur Árgjald fyrir aukakort: 4.000 krónur Söfnun: Kortið safnar 5 vildarpunktum Icelandair fyrir hverja 1.000 kr. innlenda notkun hjá söluaðilum í færsluhirðingu hjá Valitor. Einnig fást sérstaklega vildarpunktar vegna viðskipta við Icelandair og ýmsa samstarfsaðila í verslun og þjónustu. Notkun: Hægt er að nota vildarpunktana til farseðlakaupa samkvæmt reglum Icelandair. Söfnunarleið Íslandsbanka Upphæð í þúsundum Gullvildarpunktar á mánuði 20 til 49 550 50 til 99 650 100 til 149 800 150 til 199 1.000 200 til 249 1.300 250 til 299 1.600 300 til 349 2.050 350 til 399 2.400 400 til 459 2.900 450 til 500 3.150 500 + 3.900 American Express Classic-kort Árgjald: 8.500 Aukakort: 4.250 Söfnun: 8 punktar fyrir hverja 1.000 króna notkun innanlands óháð færslu- hirðingu. 8 punktar fyrir hverja 1.000 króna notkun erlendis óháð færslu- hirðingu. 12 punktar fyrir hverja 1.000 króna verslun við Icelandair. 8 punktar fyrir hverja 1.000 króna verslun á netinu. 5.000 upphafspunktar. Félagamiði hjá Icelandair ef ársvelta fer yfir 3.6 milljónir. 5.000 vildarpunktar þegar félagamiða er náð. Notkun: Punktana má nota hjá samstarfsaðilum auk þess sem hægt er að nota þá á points.com en þar er hægt að kaupa gjafabréf fyrir punktana hjá verslunum eins og amazon.com, Best Buy og Target. Félagamiði Þegar meðlimur kaupir sér Vildarmiða á hann rétt á samskonar miða fyrir ferða félaga í sama flug. Korthafinn getur leyft hverjum sem er að nýta Félaga miðann en verður sjálfur að ferðast með á Vildarmiða. Skilyrði er að Félaga miði og aðalmiði hefji ferð saman. Korthafar Classic Icelandair American Express eiga rétt á Félaga- miða fari velta á kortinu yfir 2.6 millj- ónir á 12 mánaða tímabili. (3.6 milljónir eftir 27. janúar 2013).Arion banki Gull e-kort VISA Árgjald: 9.900 krónur Árgjald aukakorts: 4.950 krónur Söfnun: Safnar 0,5 prósenta endurgreiðslu hjá fyrirtækjum sem eru með sölusamning við Valitor. Notkun: Endurgreiðsla í desember. Gull Vildarkort VISA Árgjald: 9.900 krónur Árgjald aukakorts: 4.950 krónur Tengigjald við Icelandair: 1.500 krónur og árlega safnast 2.500 vildarpunktar Söfnun: 3 vildarpunktar á 1.000 krónur af innlendri veltu hjá söluaðilum sem eru með sölusamning við Valitor. Notkun: Hjá samstarfsaðilum Icelandair Saga Club. Ekki elta punktana n „Ég mundi ekki keyra hringveginn bara til þess að safna punktum á öllum bensínstöðvunum, “ segir Ingólfur H. Ingólfsson hjá Sparnaði ehf. aðspurður hvernig hann líti á vildarpunkta sem kreditkortahafar geta safnað og hvort það borgi sig að eltast við þá. Hann segir jafnframt að hann mundi ekki versla við dýrustu verslunina þótt þar fengi hann vildarpunkta. Það borgi sig aldrei. Ingólfur ráðleggur fólki að nota kreditkort einungis til að greiða fyrir föst útgjöld, svo sem mánaðarlega reikninga eins og tryggingar og fleira. Ef maður safni punktum með því þá sé það bónus og þá má kíkja fyrir áramótin hve mikið af punktum maður hefur safnað og nýta sér þá. n „Ég mundi ekki nota kreditkort til daglegra nota því með því er ég í rauninni að skuldsetja mig fyrirfram. Þó notkun á debetkorti kosti eitthvað mundi ég frekar nota það því þá er ég að ganga á pening sem ég á. Best af öllu er þó að taka út pening og skammta sér svokallaðan vasapening. Þá er gott að ákveða að hann eigi að duga til dæmis út vikuna og standa við það,“ segir hann og bætir við að það sé merkilegt hve íhaldssöm við verðum þegar við erum með peningana í höndunum. Hann segist ekki geta sagt til um hvaða kort eru best eða hagstæðust því það sé afar misjafnt hvað fólk sé að leita að. Aðspurður hvort hann hvetji korthafa til að reyna að fá árgjöld kortanna felld niður segir hann að það sé ekki spurning. „Maður á alltaf að reyna að prútta, hvort sem það er í Kolaportinu eða hjá kortafyrirtækjunum.“ Punktasöfnun Icelandair Saga Club Hér þarftu að versla til að safna vildarpunktum Icelandair Flug: Hótel: Icelandair Icelandair hótelin Saga Shop og Saga Kitchen Hilton Worldwide Alaska Airlines Hótel Edda Finnair Park Plaza® Flugfélag Íslands Radisson Blu og Park Inn Vita Radisson Hotels & Resorts® Bílaþjónusta: Verslun og þjónusta: Hertz bílaleigan Olís og ÓB Sixt bílaleiga VISA og Icelandair Bílahótel Iceland Excursion Tekur langan tíma að safna Kreditkortafyrirtækin auglýsa punkta-söfnun sína í gríð og erg en hún getur tekið langan tíma. Aðrir hlutir eru mikilvægari þegar kemur að því að velja rétta kortið fyrir þig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.