Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2012, Síða 20
20 Sport 19. nóvember 2012 Mánudagur Fjöldi markameta í hættu n Lionel Messi orðinn níundi markahæsti leikmaður á Spáni frá upphafi N ý vika og nýjar fréttir af ham­ förum Argentínumannsins Lionel Messi fyrir framan mark andstæðinga Barcelóna. Nýliðin helgi var í engu frábrugð­ in; Messi skoraði tvívegis í leik sinna manna gegn Real Zaragoza. Ekki nóg með að byrjun Barce­ lóna á þessari leiktíð sé nú sú besta, ekki aðeins í sögu þess félags held­ ur á Spáni en reyndar deilir liðið þeim árangri með liði Real Madrid frá tímabilinu 1991 til 1992. Einn sig­ ur í viðbót tryggir að Börsungar fari í sögubækurnar. Ekkert er þó gefið í næsta leik liðsins gegn Levante á úti­ velli. Messi sjálfur er markahæstur á þessari leiktíð með alls sautján mörk meðan helsti keppinautur hans Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid hefur „aðeins“ skorað tólf sinnum á tímabilinu. Á hæla þeirra kemur svo hinn kólumbíski Falcao sem mjög er bitist um af stórliðum Evrópu. Nú vantar Argentínumanninn aðeins sjö mörk í viðbót á þessu ári til að jafna 40 ára markamet Þjóð­ verjans Gerd Müller sem skoraði 85 mörk á einu og sama keppn­ istímabili og hefur enginn komist nálægt því fyrr en nú. En ekki nóg með það. Messi er orðinn, aðeins 25 ára gamall, ní­ undi markahæsti leikmaður í efstu deild á Spáni frá upphafi. Mörk hans nú um helgina voru númer 185 og 186 í treyju Barcelóna og það aðeins í 226 deildarleikjum. Með­ al þekktra nafna sem enn eru fyr­ ir ofan kappann á þeirri töflu má nefna Raúl hinn spænska sem lengi gerði garðinn frægan hjá Real Ma­ drid. Raúl er í þriðja sætinu en hann skoraði alls 228 mörk á sínum ferli í spænsku deildinni og þurfti til þess 550 leiki. n Markahæstir á Spáni nú Mörk m/skotum m/skalla víti aukaspyrnur 1. Lionel Messi 17 15 0 1 1 2. Cristiano Ronaldo 12 7 1 4 0 3. Falcao 10 4 1 4 1 Óstöðvandi Lionel Messi getur slegið fjöldann allan af metum en hann er orðinn vanur því. MYND REUTERS Neymar kýs Ítalíu eða England Brasilíumaðurinn Neymar sem af mörgum er talinn langbesti sóknarmaður sem ekki spilar í Evrópu er galopinn fyrir tilboð­ um en segist helst ekki vilja spila annars staðar en á Ítalíu eða Englandi. Hingað til hafa helst Barcelóna eða Real Madrid verið nefnd til sögunnar en hann hefur þegar hafnað tilboði frá Chelsea einhverra hluta vegna. Walcott til Liverpool Sögusagnir hafa verið á kreiki um tíma að Arsene Wenger muni skoða gaumgæfilega öll tilboð í Theo Walcott sem fyrir allnokkru er hættur að vera mikið efni og hefur aldrei náð að springa út undir stjórn Wengers eins og margir spáðu. Liverpool er sagt hafa mikinn áhuga og færa má rök fyrir að Walcott með sinn eitraða hraða yrði eðalfínn félagi Suarez í framlínu þess félags. Anelka aftur til Englands Fái Sam Allardyce, stjóri West Ham, sínu fram er ekki útilokað að Frakkinn Nicolas Anelka snúi aftur til Englands frá Kína þar sem hann spilar nú. Allardyce segir engan vafa á að sóknarmaðurinn geti hjálpað sínu liði en viður­ kennir að Frakkinn yrði að sætta sig við mikla launalækkun til að það geti orðið raunin. SENDINGARNAR SKIPTA SKÖPUM A llmargir hafa undrast arfa­ slakt gengi ensku meistar­ anna í Manchester City í Meistaradeild Evrópu það sem af er. Liðið er neðst í sín­ um riðli með einungis tvö stig eftir fjóra leiki og þarf að leggja Real Madrid á miðvikudaginn kemur til að forðast að falla út úr keppninni. Jafnvel þó fé­ lagið hafi Spánverjanna er æði langsótt að félagið komist upp úr sínum riðli. Aðeins tveir leikir eru eftir eða sex stig í pottinum og City á eftir að mæta Bor­ ussia Dortmund á útivelli. Hvað veldur slæmu gengi City? Sjaldan er ein bára stök í tólf vind­ stigum og sömuleiðis getur það aldrei verið eitthvað eitt atriði sem veldur því að einu knattspyrnuliði gengur vel en öðru illa. Fótboltinn er sem betur fer óútreiknanlegur leikur og væri málið svo einfalt yrðu þjálfar­ ar fljótir að bregðast við. Með fullri virðingu fyrir öðrum fé­ lagsliðum í Meistaradeildinni þetta árið er það samt svo að fá félög státa af eins fjölbreyttum hópi hæfileika­ manna og einmitt Manchester City. Sé hægt að tala um að hafa valinn mann í hverju rúmi á það sannar­ lega við um City. Þar er á pappírum enginn veikur hlekkur. Liðið hef­ ur sóknarmenn par excellans, fyrsta flokks eldfljóta vængmenn, all­ nokkra nautsterka miðjumenn og ekki er mikið hægt að setja út á vörn liðsins eða markvörð. Að ógleymd­ um varamannabekknum þar sem ekki er þverfótað fyrir stjörnum sem væru lykilmenn í velflestum öðrum félagsliðum. Maður á mann er City ekki með lakari knattspyrnumenn en Barcelóna. Samvinnuskortur og súrar sendingar Hluta af svarinu má fá með því að bera saman tölfræði City annars vegar og Barcelóna hins vegar en öfugt við enska liðið gengur þeim spænsku flest í haginn. Börsungar eru efstir í sínum riðli og eru af lang­ flestum veðbönkum taldir vera lík­ legasta liðið til að hampa Meistara­ deildartitlinum þessa leiktíðina. Við samanburð kemur í ljós að einungis þrír leikmenn City geta státað af því að sendingar þeirra hafi heppnast í meira en 80 prósent tilfella hingað til í Meistaradeildinni. Það er í miklu ósamræmi við sendingargetu leikmanna Barcelóna hingað til. Að­ eins einn einasti leikmaður spænska liðsins er með minna en 80 prósent heppnaðar sendingar. Eiginhagsmunaseggir upp til hópa Enn verra er að þeir þrír einstaklingar hjá City sem gefa bestu sendingarnar eru varnarmenn. Séu bornir saman þeir sem mest og best skapa af fær­ um hjá City, Silva og Nasri, og Xavi og Iniesta hjá Barcelóna er það engin samkeppni. 79 prósent sendinga David Silva heppnast og 72 prósent sendinga Samir Nasri. Hlutfallið hjá Xavi er 91 prósent og Iniesta 86 pró­ sent. Sóknarmenn City eru svo al­ veg úti á túni hvað sendingar varð­ ar. Sergio Agüero, sem margir voru alltaf að bera saman við Leo Messi, nær aðeins 54 prósentum. Önnur hver sending hjá honum fer forgörð­ um. Annar Argentínumaður, Carlos Tevez, er litlu skárri með 57 prósent og Edin Dzeko nær upp í 60 pró­ sent. Hjá Börsungum takast 82 pró­ sent allra sendinga Messi, 86 prósent allra sendinga David Villla og Fabre­ gas skilar sínum bolta til félaga í 84 prósent tilfella. Þetta er í raun engin samkeppni og þó heppnaðar sendingar segi ekki alla söguna þá þýða þær bæði óeigingirni liðsfélaga en er ekki síður vísbending um hreyfanleika og vinnusemi leikmanna inni á vellinum. n Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is n Tölfræðin varpar merkilegu ljósi á stöðuna í Meistaradeild Evrópu Sendingar í sérklassa Xavi stát- ar af 91 prósent heppnaðra sendinga og Andres Iniesta 86. MYND REUTERS Sæmilegt hjá City 72 prósent sendinga Samirs Nasri heppnast. MYND REUTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.