Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Page 2
Ósigrandi og svo djúp lægð 2 Fréttir 17. desember 2012 Mánudagur n Marteinn hefur verið með geðhvörf frá 12 ára aldri M ér líður rosalega vel og það er ekkert sem er ekki framkvæmanlegt. Mað- ur getur allt.“ Þannig lýsir Marteinn Jakobsson því hvernig honum líður þegar hann er í uppsveiflu en hann hefur verið með geðhvörf síðan hann var 12 ára. Marteinn er 62 ára þannig að hann þekkir sjúkdóminn vel enda hefur hann lifað með honum alla tíð. Hjá honum lýsir hann sér í uppsveiflum og niðursveiflum sem standa yfir í nokkrar vikur í senn. Heyrði raddir „Ég hef verið með þetta frá því ég var tólf ára og var greindur þegar ég var 14 ára. Þá fékk ég lyf, liþíum. Ég var bara alltaf upp og niður, öll unglings- árin. Ég fór upp í mikla maníu, fékk ranghugmyndir og heyrði raddir. Þetta var óraunveruleikatilfinning en samt gerði ég mér grein fyr- ir því að þetta væri ekki eins og það ætti að vera en gat ekkert gert í því,“ segir Marteinn. „Hjá mér var þetta þannig að eftir tvítugt þá fór þetta að verða svona reglulegt þannig að ég var í jafnvægi á milli sveiflnanna upp og niður. Það er hægt að segja þetta þannig að ég hef verið í maníu kannski tvisvar, þrisvar sinnum á ári, kannski þrjár vikur í þunglyndi þrisvar og svo tvær vikur í maníu og jafnvægi hvort tveggja yfir árið,“ segir Marteinn. Hann hefur alla tíð unnið þrátt fyrir sjúkdóminn. „Það var ekkert annað í boði. Ég fór þetta á hnefanum. Það var ekki annað til umræðu. Ég kláraði gagnfræðaskól- ann og var á sjó milli bekkja, byrj- aði þegar ég var nýorðin þrettán ára. Svo var ég tvö heil ár, var svo vél- stjóri til sjós og að mestu leyti yfir- vélstjóri. Þetta var rosabarátta, það er ekki hægt að segja annað. Að vera yfirmaður, með þunglyndi og þurfa að berjast við það. Það er ekkert auðvelt,“ segir hann. „Ég hef líka alla tíð verið fjölskyldumaður. Við konan kynntumst þegar við vorum tvítug og eigum þrjá syni. Það kom því aldrei neitt annað til greina. Það var aldrei annað í boði en að standa sig í því og sjá fyrir fjölskyldunni. Ég vissi að ef ég legðist með tærnar upp í loft þá gæti ég ekki séð fyrir fjölskyldunni og að missa hana kom ekki til greina.“ Ósigrandi og svo djúp lægð Hann lýsir uppsveiflutímunum þannig að honum hafi fundist hann ósigrandi og svo hafi í kjölfarið fylgt djúp lægð. „Líðanin er mjög góð og ég var þannig að ég fór á mikið flug og eyddi peningum hægri, vinstri. Eitt skiptið var það þannig að við áttum skuldlausa íbúð í Reykjavík og ætluðum að flytja austur á land – austur á Eskifjörð. Ég byrja á því að kaupa mér Benz og svo kaupi ég stóran jeppa. Svo flytjum við austur og þá vorum við búin að kaupa ein- ingahús og byggjum það. Svo koma timburmennirnir og þá fer ég niður í mikið þunglyndi. Ég byrja á því að selja jeppann, svo sel ég Benzinn,“ segir hann og segir það hafa verið afar erfitt að takast á við þunglyndið sem kom í kjölfarið. Fjölskyldan þurfti að flytja aftur í bæinn vegna þess að einn sonur þeirra þurfti á læknisaðstoð að halda. „Við þurft- um að kaupa íbúð í bænum og hún kostaði einni milljón meira en við fengum fyrir húsið. Þannig að þrátt fyrir að hafa átt hina íbúðina skuld- laust þá dugði hún ekki fyrir öllu þessu.“ Fékk eitrun af lyfinu Marteinn var á lyfinu liþíum við geðhvörfunum þar til ársins 2006 en hann segir það í raun ekki hafa haft mikil áhrif, hann hafi samt fengið miklar sveiflur. Hann fór reglulega í blóðprufu til þess að fylgst væri með magni liþíums í blóði hans. Marteinn var sjómaður og þegar hann fór að fara lengri túra á sjóinn þá var ekki hægt að fylgjast jafnvel með liþíummagni í blóði hans. „Svo var ég farinn að sigla miklu meira þannig að það var orðið óreglulegt hvenær ég fór í blóðprufur. Ég var farinn að vera hálft ár í burtu í einu. Þá gat ég ekki farið í blóðprufu en það þarf að gera að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Það sem gerð- ist var að ég fékk eitrun af þessu lyfi og veiktist mikið árið 2006. Ég fékk líka blóðtappa og þurfti að hætta að vinna. Það var mikið áfall fyrir mann sem alltaf hefur unnið að geta það ekki lengur.“ Hjálpar að miðla reynslu sinni Í dag starfar hann sem sjálfboða- liði hjá Hugarafli – samtökum sem voru stofnuð af fólki sem hefur átt við geðræna erfiðleika að stríða og iðjuþjálfum með víðtæka reynslu af geðheilbrigðismálum. Hann segir það hjálpa sér mikið að vera í Hugarafli. „Það eru ýmsir smáhóp- ar sem eru hér og maður tekur þátt í því. Þessi starfsemi gengur út á það að efla einstaklinginn, allir eru jafnir. Það er enginn sem er hærra settur en annar. Það er gott að tala um sína reynslu við fólk sem hefur sömu reynslu og eins get ég miðlað af minni reynslu.“ Hann segist þó enn fá sveiflur en mismiklar og gerir sér fyllilega grein fyrir þeim. „Í síðasta mánuði var ég mjög hress og kátur og svo núna er ég aðeins fyrir neðan strikið. Þessi tími sem er að koma núna er sérstak- lega erfiður tími fyrir yfirleitt alla sem eru með einhverja geðröskun. Það er mjög algengt. Í sumum tilfellum er það myrkrið. Mér líður illa í enda nóvember, byrjun desember og fram í miðjan janúar þá léttist yfir mér, svo fer mér að líða þegar vorar – fram í miðjan júní og þá er þetta rosalega fínt og gott. Þetta eru þessar árstíða- bundnu sveiflur sem eru miklar hjá mörgum,“ segir Marteinn. „Geðhvörf eru rosalega misjöfn eftir einstaklingum. Ég hef alltaf þurft að taka lyf og er núna á lyfjum sem koma í staðinn fyrir liþíumið og mér líður bara ágætlega í dag þó að ég fari enn í sveiflur.“ n Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Ég fór þetta á hnefanum Lifir með sjúkdómnum Marteinn hefur lært að lifa með geðhvörfum. Hann segir þau lýsa sér í uppsveiflum og niðursveiflum sem standa yfir í nokkrar vikur í senn. Mynd sigtryggur ari Falskt útkall af Þorska- fjarðarheiði „Mayday, mayday, föst inni í bíl upp á heiði.“ Nokkurn veginn þannig hljómaði neyðarkall sem barst björgunarsveitinni í Reyk- hólahreppi á laugardaginn. Í kjöl- farið heyrðust skruðningar en svo heyrðist Þorskafjarðarheiði nefnd. Eins og góðum björgunarsveitum sæmir voru menn sendir upp á heiðina, sem er ófær venjulegum bílum, í ferð sem tók þrjá tíma. Björgunarsveitarmenn úr Dag- renningu á Hólmavík fóru upp hinum megin og mættust sveitirn- ar uppi án þess að hafa séð nokk- ur ummerki mannaferða. Eftir að hafa leitað af sér allan grun fóru þeir til síns heima. Svo virðist sem um falskt neyðarkall hafi verið að ræða en fram kemur á vefnum reykholar.is að gabb af þessu tagi sé litið mjög alvarlegum augum. Ekki hefur tekist að hafa hendur í hári þeirra sem stóðu að baki neyðarkallinu. Vændur um umboðssvik Jón Ásgeir Jóhannesson, einn aðaleigenda Glitnis fyrir hrun, er í ákæru í Aurum-málinu svokallaða vændur um að hafa tekið þátt í meintum umboðs- svikum Lárusar Welding, fyrr- verandi bankastjóra Glitnis, og Magnúsar Arnar Arngríms- sonar, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra bankans. Sérstakur saksóknari fer með málið en það verður þing- fest í byrjun janúar. Hin meintu umboðssvik voru framin í tengslum við lán bankans til fé- lagsins FS38. Ákæran var gerð opinber á sunnudag en auk þeirra þriggja er Bjarni Jóhannesson ákærður í málinu. Jón Ásgeir er til vara vændur um hylmingu og til þrautavara sakaður um peninga- þvætti með því að hafa í krafti áhrifa sinna beitt Lárus og Bjarna þrýstingi til að veita félaginu lánið – sex milljarða króna. 38 milljónir króna í sekt Eyjólfur Pétur Pálmason var í Héraðs dómi Suðurnesja á fimmtu- daginn dæmdur til að greiða 38 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs vegna stórfelldra skattalagabrota. Hann var framkvæmdastjóri og prókúruhafi Vélfangs, nú þrotabú VF-45. Hann stóð ekki skil á virð- isaukaskattskýrslu og staðgreiðslu opinberra gjalda á tímabili eftir hrun, þegar verulega fór að halla undan fæti hjá fyrirtækinu. Fram kemur að Vélfang hafi fram að því oftar en einu sinni verið valið fyrir- tæki ársins hjá VR. Arion banki sótti málið en maðurinn þarf að greiða upphæðina innan fjögurra vikna eða sitja tæpt eitt ár í fangelsi. Hann var að auki dæmdur í hálfs árs fang- elsi en sleppur við fangavist ef hann heldur skilorð næstu tvö árin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.