Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Blaðsíða 18
fjölbreyttar
skreytingar
18 Lífsstíll 17. desember 2012 Mánudagur
Ekki labba og senda
n Enn hættulegra að senda sms en við héldum
V
ið þekkjum öll hættuna
sem felst í því að skrifa
sms-skilaboð við akstur en
nú hefur komið í ljós að
notkun smáskilaboða í farsíma er
einnig hættuleg gangandi vegfar-
endum.
Vísindamenn í Seattle komust
að því að einn þriðji gangandi veg-
farenda var annars hugar þegar
þeir gengu um götur borgarinnar
vegna þess að þeir skrifuðu smá-
skilaboð á meðan. Aðrir vegfar-
endur sem töluðu í símann eða
hlustuðu á tónlist á meðan þeir
gengu reyndust ekki vera í jafn
mikilli hættu.
Samkvæmt rannsókn vísinda-
mannanna er langhættulegast að
senda sms þegar maður gengur
en í ljós kom að þannig ertu fjór-
um sinnum ólíklegri til að líta til
beggja hliða áður en þú gengur yfir
götu, fjórum sinnum ólíklegri til
að fara eftir umferðarljósunum og
fjórum sinnum ólíklegri til að eða
fara yfir götu á réttum stöðum. Þeir
stoppuðu einnig tveimur sekúnd-
um lengur á gatnamótum en þeir
sem sendu ekki sms á göngu sinni.
Á síðasta ári lentu yfir 1.100
einstaklingar á bráðamóttöku
sjúkrahúsanna í Seattle vegna
þess að þeir voru að nýta sér smá-
skilaboð farsíma sinna á meðan
þeir gengu um göturnar. Vísinda-
mennirnir telja þó að talan sé mun
hærri í rauninni. Þessir 1.100 eru
þeir sem sögðu lækni að þeir hefðu
verið að senda sms þegar þeir slös-
uðust. n
indiana@dv.is
Ekki senda sms á göngu Samkvæmt vísindunum ertu fjórum sinnum ólíklegri en aðrir til
að líta til beggja hliða ef þú ert að senda sms á meðan þú gengur.
Gjafir handa
matgæðingnum
Ristaðar
valhnetur
Á meðan
möndlur og
valhnetur fá
alla athygl-
ina vilja pek-
anhnetur oft
gleymast. Farðu
í heilsubúð og finndu fallega
pakkningu af þessu ristaða og
saltaða snakki.
Kryddsett
Þessir snið-
ugu baukar
eru snilldar
hönnun fyrir
hágæða krydd.
Girnileg ostakarfa
Þeir sem eru duglegir í eldhús-
inu geta alltaf notað góðan ost í
eldamennskuna.
Lífrænt vín
Tilvalið handa þeim sem fá haus-
verk eftir að hafa drukkið hefð-
bundið léttvín og þeim sem vilja
forðast eiturefnin í skordýraeitrinu.
Fallegt og hollt te
Sælkerar fá aldrei nóg af því að
prófa eitthvað hollt. Te er gott
gegn brjóstakrabbameini og
hjálpar þér að halda mittismál-
inu í skefjum.
Vínskammtari
Við þekkjum
öll jákvæðu
og heilsu-
samlegu
áhrifin sem
léttvín hefur
ef skammturinn
er í nægilega litlu
magni. Það er bara ekkert gam-
an að opna flösku, drekka eitt
glas og láta afganginn skemm-
ast. Með þessari sniðugu hönnun
er hægt að láta flöskuna sjálfa
skammta þér eitt glas á kvöldi.
Jójó-megrun
er slæm
Miklar þyngdarsveiflur, oft nefnd
jójó-áhrif, þegar líkaminn þyngist
og léttist til skiptis hefur slæm
áhrif á heilsuna. Þetta kemur fram
í niðurstöðum rannsóknar sem
vísindamenn við Wake Forest-
háskólann í Bandaríkjunum stóðu
fyrir.
Í rannsókninni voru skoðaðar
hundrað konur sem allar voru
komnar yfir miðjan aldur og voru
of feitar. Þær voru látnar á megr-
unarkúr í fimm mánuði og var
meðalþyngdartap á þessum tíma
rúm ellefu kíló. Eftir að kúrnum
var lokið var fylgst með konunum
í eitt ár. Að þessu ári loknu höfðu
konurnar bætt aftur á sig um
tveimur kílóum að meðaltali. Þrátt
fyrir að vera léttari en áður var kól-
esterólmagn í blóði í sumum til-
fellum hærra en áður en megrun
hófst. Hjá konum sem bættu á sig
mestu þyngdinni eftir að hafa lést
var blóðþrýstingurinn einnig hærri
áður en megrunarkúrinn hófst.
n Einfaldar og fallegar hugmyndir fyrir borðhaldið yfir jólahátíðina
Fyrir tónelska Hátíðleg borðskreyting
fyrir tónelska. Notið nótnablöð til skrauts á
hátíðarborðið.
Náttúruna heim í stofu F ærið náttúruna heim í stofu með stórri borðskreytingu í miðju.
Persónulegt Allt sem er handgert og
persónulegt gæðir borðhaldið lífi. Hér er
notast við mjög einfaldar skreytingar sem
með smekkvísinni heppnast mjög vel.
Náttúrulegt Fáðu innblástur úr nátt
úrunni, notaðu kanilstangir, köngla og
trjágreinar til skrauts. Ef ekki er til drifhvítur
dúkur er hægt að gera hann sjálf. Í raun er
hægt að nota hvaða efni sem er og strauja
inn endana. Engin þörf er á að sauma dúk
eða kaupa fyrir eitt kvöld.
Falleg sætindi Sætindi í fallegum skálum
eða kössum gleðja auga. Hugsaðu vel um
áferð og liti, hér er súkkulaðitrufflum raðað
saman í fallegan, ljósbláan kassa með
borða.
Perlur og könglar Borðskreyting sem er
ákaflega einföld í framkvæmd. Plastperlur
á bandi má kaupa víða, festu þær á borð
brúnina með könglum og greni og útkoman
verður einstaklega hátíðleg.
Skemmtileg skreyting Það er vel hægt
að leggja áherslu á stólana í stað þess að
ofhlaða borðið skrauti. Hér er notaður hring
ur úr frauðplasti vafinn með striga og festur
með borða á stólbak. Skreytið hvern hring
með kanilstöngum og ávöxtum, könglum
eða þurrkuðum berjum.
Falleg kertaskreyting Vel gerð
kertaskreyting á miðju borðsins er einföld
leið til þess að gera borðhaldið hátíðlegt.
Notið jólakúlur, perlur og kaupið fallegt
kerti.
Greinar í loftljósið Festið langar greinar
við loftljósið fyrir ofan borðstofuborðið
og skreytið með fallegu skrauti. Útkoman
verður alltaf hin fegursta en hér þarf lagni
til að festa greinina vel.
Léttleiki og litadýrð Ekki eru allir fyrir
hátíðlegt og klassískt jólaskraut. Þeir sem
kjósa léttleikann geta valið að skreyta með
gagnsæjum glerkúlum og valið óhefð
bundnari en frísklegri liti með.
Borðað úti Þeir sem búa svo vel að eiga
fallega borðaðstöðu úti við geta lagt stellið
ofan á þykkt teppi, klætt sig vel og borið
fram heitt kakó og með því meðan börnin
njóta hollrar útivistar á jóladag.