Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir 17. desember 2012 Mánudagur
Borgin bótaskyld vegna kennslustofu
n Kennari hætti störfum vegna astma
R
eykjavíkurborg er bótaskyld
gagnvart fyrrverandi smíða
kennara í Laugarnesskóla sem
hætta þurfti kennslu vegna
slæms astma. Héraðsdómur Reykja
víkur féllst á föstudag á þá skoðun
kennarans að aðstæður í kennslu
stofunni þar sem hann sinnti vinnu
hafi ekki verið nógu góðar og að sjúk
dómurinn hafi ágerst þess vegna.
Samkvæmt framburði læknis fyrir
dómi kom fram að kennarinn hafi
verið með slæmt tilfelli astma sem
versnaði vegna kulda, ryks, sterkrar
lyktar og sérstaklega kvefpesta.
Skýrslur Vinnueftirlitsins, sem
kom í nokkrar eftirlitsferðir í kennslu
stofuna, voru lagðar fyrir dóminn
en í þeim voru gerðar athugasemdir
vegna aðstöðunnar þar. Í dómnum
segir að svo virðist sem Vinnueftirlitið
hafi séð í gegnum fingur sér varðandi
aðstöðuna því til hafi staðið að reisa
nýja stofu. „Ekki kemur fram í gögn
um málsins nánari frásögn af ný
byggingu þessari og áætlunum um
hana, en hafi aðstæður verið ófull
nægjandi dugar ekki að benda á hug
myndir um byggingu nýs húss,“ segir í
niðurstöðu dómsins.
Dómurinn telur augljóst orsaka
samhengi á milli sjúkdóms kennar
ans og vanrækslu skólastjórnenda til
að bæta aðstöðu þar sem heilsufar
hans hafi batnað á sumrin þegar hann
var ekki í skólanum og eftir að hann
hætti störfum. Niðurstaða dómsins
um bótaskyldu borgarinnar var byggð
á því að einfalt hefði verið að bæta að
stæður í kennslustofunni svo sjúk
dómur kennarans plagaði hann ekki
sérstaklega vegna starfsins. n
n Samningaferlinu um framtíð Frumherja á að vera lokið
F
innur Ingólfsson, fjárfestir og
fyrrverandi þingmaður, ráð
herra, seðlabankastjóri og for
stjóri VÍS, heldur skoðunar
fyrirtækinu Frumherja eftir
áralangar samningaviðræður við Ís
landsbanka um framtíðareignarhald
félagsins. Þetta kemur fram í ársreikn
ingi Frumherja fyrir árið 2011 sem ný
lega var skilað til ársreikningaskrár
ríkisskattstjóra. Viðræður Frumherja
og Íslandsbanka um framtíð félagsins
hafa staðið yfir síðastliðin ár en í árs
reikningnum er tekið fram að þeim
eigi að verða lokið í lok þessa árs.
Frumherji er skoðunarfyrirtæki
sem er einna þekktast fyrir bifreiða
skoðun. Fyrirtækið hefur verið með
um 60 til 70 prósenta hlutdeild á bif
reiðaskoðunarmarkaðnum hér á
landi síðastliðin ár en það kann að
hafa breyst aðeins með tilkomu Tékk
lands. Fyrirtækið er með starfsemi á
30 stöðum á landinu á sex mismun
andi sviðum skoðunar. Um 100 starfs
menn vinna hjá Frumherja.
Finnur Ingólfsson keypti
skoðunarfyrirtækið af athafnamann
inum Óskari Eyjólfssyni sumarið
2007 og hefur átt það síðan í gegnum
eignarhaldsfélagið Spector ásamt
Jóhanni Ásgeiri Baldurs, eftirmanni
Finns á forstjórastóli Vátryggingafé
lags Íslands, og Helga S. Guðmunds
syni, fyrrverandi bankaráðsformanni
Landsbankans. Eftir efnahagshrunið
eru hlutabréfin í Frumherja eina
verulega verðbréfaeign Finns Ingólfs
sonar.
Viljayfirlýsing við Íslandsbanka
Í ársreikningi Frumherja fyrir
árið 2011 er að finna skýringu um
rekstrar hæfi félagsins sem er sam
hljóma skýringu sem var birt í árs
reikningi fyrir 2010 fyrir utan að
breytt hefur verið lokaári samninga
ferlisins við Íslandsbanka. Orðrétt
segir í skýringunni: „Frumherji hf. og
Íslandsbanki hafa skrifað undir vilja
yfirlýsingu um fjárhagslega endur
skipulagningu Frumherja hf. Í vilja
yfirlýsingunni kemur meðal annars
fram að markmið fjárhagslegrar
endurskipulagningar félagsins sé að
tryggja áframhaldandi starfsemi fé
lagsins, tryggja hagsmuni starfsfólks
og birgja, tryggja hámarks endur
heimtur Íslandsbanka hf. vegna úti
standandi lána bankans til Frum
herja hf. Rekstur félagsins hefur að
mestu gengið samkvæmt áætlun
um þrátt fyrir niðursveifluna í efna
hagslífinu og telst félagið því lífvæn
legt í skilningi sameiginlegra reglna
fjármálafyrirtækja um fjárhags
lega endurskipulagningu fyrirtækja.
Stefnt er að því að fyrirsvarsmenn og
eigendur Frumherja hf. annars vegar
og Íslandsbanki hf. hins vegar hafi
náð samkomulagi fyrir árslok 2012
um eiginfjármögnun og lánasam
setningu félagsins.“
Finnur Ingólfsson og viðskipta
félagar hans virðast því halda Frum
herja eftir þessa fjárhagslegu endur
skipulagningu.
Tapaði 370 milljónum
Frumherji tapaði rúmlega 370 millj
ónum króna í fyrra en að mestu var
um ræða fjármagnsgjöld, gengistap.
Rekstrartekjur Frumherja námu tæp
lega 1.450 milljónum króna. Út frá
þessum tölum er ljóst að fyrirtækinu
liggur á að endursemja um skuldir
sínar sem eru að mestu leyti í erlend
um myntum.
Samkvæmt efnahagsreikningi
Frumherja námu eignir samstæð
unnar rúmlega 2.370 milljónum
króna og voru rúmlega 2.670 milljóna
skuldir á móti þessum eignum. Bók
fært eigið fé félagsins í árslok 2011
var neikvætt um tæplega 299 milljón
ir króna. Um 1.700 milljónir króna af
eignunum eru viðskiptavild.
Í ársreikningnum er gerður fyrir
vari um skuldastöðu félagsins vegna
dóma um ólögmæti gengislána. n
Finnur Ingólfsson
heldur Frumherja
Tekjur upp á 1.450 milljónir
Frumherji er með tekjur upp á
rúmlega 1.450 milljónir króna.
Finnur Ingólfsson hefur haldið
félaginu eftir hrunið og áralangar
viðræður við Íslandsbanka.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Stefnt er að því
að fyrirsvars-
menn og eigendur
Frumherja hf. annars
vegar og Íslandsbanki
hf. hins vegar hafi náð
samkomulagi fyrir
árslok 2012
Ábyrg Héraðsdómur telur Reykjavíkurborg bótaskylda vegna ótímabærra starfsloka
smíðakennara.
Haldlögðu mjólk
Niðursoðin mjólk var meðal
þess sem yfirvöld lögðu hald á í
aðgerðum gegn ólöglegum mat
vælum fyrr í þessum mánuði.
Vörurnar komu frá löndum utan
Evrópska efnahagssvæðisins og
voru ekki vottaðar eins og reglur
gera ráð fyrir. RÚV greinir frá
þessu.
Tollstjóraembættið til
kynnti á laugardag um aðgerð
ir gegn innflutningi og sölu á
fölsuðum og ólöglegum mat
vælum og drykkjum í samstarfi
við Heilbrigðiseftirlitið og Mat
vælastofnun. Um var að ræða
hluta af alþjóðlegri aðgerð sem
heitir Opson II og tuttugu og níu
lönd tóku þátt í.
Ekki hefur verið gefið upp
hvar þessi niðursoðna mjólk var
seld. Engar vísbendingar eru um
að varan sjálf sé hættuleg.
Ríkið
bótaskylt
Íslenska ríkið hefur verið dæmt
til að greiða Valgeiri Magnússyni
300 þúsund krónur í bætur með
vöxtum eftir að hann var beittur
harðræði af lögregluþjónum á
Suðurnesjum. Lögreglumaður er
í dómi héraðsdóms sagður hafa
farið offari í starfi sínu. Það stórsá
á Valgeiri eftir samskipti hans
við lögreglumenn en hann fór á
bráðamóttöku Heilbrigðisstofn
unar Suðurnesja eftir að honum
var sleppt. Þar kom fram að hann
var með kúlu höfði og mar á hálsi
ásamt ýmsum áverkum víðsvegar
um líkamann meðal annars
tveggja sentímetra djúpan skurð
á hendi.
Aðfaranótt 17 desember
árið 2009 barst lögreglunni á
Suðurnesjum kvörtun vegna
hávaða úr íbúð í Grindavík. Fóru
tveir lögreglumenn á staðinn.
Þeir virðast fljótlega hafa misst
stjórn á sér. Samkvæmt frum
skýrslu lögreglunnar töldu þeir
að Valgeir væri undir áhrifum
örvandi efna. Þvagprufa staðfesti
hins vegar síðar að svo var ekki.
Valgeir lýsti því fyrir dómi
hvernig lögreglumaður hefði
tekið hann svo harkalegu háls
taki að hann hafi verið við það
að kafna. Lögreglumaður sagðist
ekki kannast við að hafa tekið
manninn svæfingartaki en sam
kvæmt læknisvottorði reyndist
ákærði vera með mar á framan
verðum hálsi og til hliðar, við
brjóstbein og á öxl. Þá var hann
einnig með sprungnar háræð
ar í augnhvítu. Áverkarnir þóttu
styðja frásögn mannsins um að
hann hefði verið tekinn hálstaki.