Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Blaðsíða 16
16 Hetja ársins 17. desember 2012 Mánudagur D V velur nú hetju ársins í fimmta sinn. Úr vöndu er að ráða þetta árið en kosið er á milli þeirra 17 sem flestar tilnefningar fengu þegar DV óskaði eftir þeim. Alls bárust um 200 ábendingar. Tekið var mið af þeim en þar að auki komu tilnefningar frá dómnefnd DV. Hana skipuðu Kristjana Guðbrandsdóttir, Viktoría Hermannsdóttir, Birgir Olgeirsson og Aðalsteinn Guðmundsson, blaða- menn. Kosningin á milli þessara 17 fer fram á DV.is og lýkur henni á mið- nætti þann 26. desember. Hér fyrir neðan má sjá og lesa um hetjurnar sem kosið er um, í stafrófs- röð. Hetjurnar Adam Atli Sandgreen og Birgir Arngrímsson Þessir ungu drengir björguðu sex ára barni í Sundlaug Akureyrar í ágúst. Vinirnir voru að leika sér við hlið drengsins og brugðust hárrétt við þegar þeir tóku eftir því að hann lá hreyfingarlaus á botni laugarinnar. Birgir kafaði niður og náði drengn- um upp á yfirborðið á meðan Adam sótti hjálp. Í lauginni voru staddir bæði læknar og sjúkraflutninga- fólk sem hóf endurlífgun um leið og barnið var komið upp á bakkann. Farið var með barnið á sjúkrahús í kjölfarið. Amelía Rún Guðmundsdóttir Amelía Rún vann þrekvirki þegar móðir hennar missti meðvitund um miðja nótt á heimili þeirra. Við- brögð og stilling Amelíu voru til fyrirmyndar og varð til þess að öll neyðarviðbrögð og aðstoð björg- unaraðila urðu skilvirk og björguðu þannig lífi móður stúlkunnar. Amel- ía Rún fékk bronskross Bandalags íslenskra skáta sem er eitt af hetju- dáðarmerkjum skátanna og er veitt þeim sem sýnt hafa hreystilega fram- göngu er slys ber að garði. Annie Mist Þórisdóttir Annie Mist Þórisdótt- ir varði titil sinn á heimsleikunum í crossfit sem fram fóru í Los Angeles í júlí. Var það í fyrsta skipti sem sami keppandi vinnur tvö ár í röð. Hún varði því titill sinn sem hraustasta kona heims. Mikil um- ræða hefur skapast í kjölfarið um hvort crossfit verði skilgreint sem íþrótt og hluti af ÍSÍ. Bjarnhildur og Friðrik Hjónin Bjarnhildur og Friðrik fóru til Kólumbíu fyrir ári til að sækja dætur sínar sem þau höfðu ættleitt. Þau væntu þess að geta komið heim með dætur sínar að sex vikum liðnum eins og vaninn er. Í millitíðinni sner- ist kólumbískum yfirvöldum hugur og meinuðu þeim að yfirgefa landið með börnin. Dvölin var þó lengri en búist var við eða næstum heilt ár en fjölskyldan kom loksins til Íslands fyrir skömmu. Eiríkur Ingi Jóhannsson Eiríkur Ingi komst lífs af þegar togarinn Hallgrímur fórst vest- ur af Noregi í aftakaveðri. Eiríkur Ingi komst einn lífs af en honum var bjargað um borð í þyrlu þremur og hálfri klukkustund eftir að skip- ið sökk. Eiríkur Ingi sagði frá sjó- ferðinni, allt frá því skipið lagði úr höfn og þar til hann var kominn í land í Noregi, í Kastljósviðtali. Hann vakti athygli landsmanna með ein- lægri og tilfinningaþrunginni frá- sögninni. Finnbogi Örn Rúnarsson Finnbogi Örn fæddist 2001 og er með Downs-heilkenni og einnig hjartasjúkdóm. Eins árs fór hann til Svíþjóðar í hjartalokuaðgerð en fyrir skömmu fékk hann heilablóð- fall, hægri hlið líkamans lamaðist að mestu leyti og hann missti mál- ið. Finnbogi Örn er með blóðtappa í heilanum sem olli skaða en eins og hann hefur sýnt þá er hann algjört kraftaverk. Nú gengur hann og talar og er hann sjálfur. Þrátt fyrir allt þetta er hann alltaf glaður og veitir öllum í kringum sig mikla hamingju. Franz Gunnarsson Franz hlúði að eldri konu eftir að strætisvagn hafði keyrt á hana. Franz hringdi á Neyðarlínuna og hlúði svo að konunni sem lá í jörðinni með- vitundarlaus. Þegar lögreglan kom á staðinn hjálpaði Franz einnig, ásamt öðrum, við að losa um um- ferðarteppu sem hafði myndast til að sjúkrabíll kæmist að slysstaðnum. Guðni Bergsson Guðni Bergsson, lögfræðingur og fyrrverandi fótbolta- kappi, sýndi hetjudáð þegar hann kom sam- starfsfélaga sínum til hjálpar eftir fólskulega árás. Í mars kom maður inn á lögfræðistofuna sem Guðni vinnur á og réðst á Skúla Eggert Sigurz og stakk hann ítrekað. Guðni brást við og yfirbugaði árásarmann- inn en var sjálfur stunginn í lærið í átökunum. Skúli lifði árásina af. Guðrún Harðardóttir Í viðtali í Nýju Lífi í febrúar gerði Guðrún Harðardóttir opin- ber bréfaskriftir Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, til hennar þegar hún var á unglings- aldri. Í bréfunum er meðal annars að finna grófar kynlífslýsingar með nafngreindum einstaklingum. Árið 2005 kærði Guðrún samskipti Jóns Baldvins við hana, þá var hún 21 árs. Gunnar Örn Gunnarsson Gunnar Örn var aðeins 19 ára þegar hann, ásamt félögum sínum, kleif Kilimanjaro í febrúar. Þeir voru á ferð í stórri jeppabifreið sem skall á aðra og danskur félagi hans kastað- ist út úr bílnum og varð undir hon- um. Gunnari tókst ásamt öðrum að draga hann undan flakinu en hafði hins vegar sjálfur skömmu áður hlot- ið alvarleg höfuðmeiðsli því stuttu seinna hné hann niður og missti meðvitund. Gunnar lést skömmu síð- ar. Í tilnefningu segir að það sé afrek að klífa Kilimanjaro, en hetjuskapur- inn við það sé lítill samanborið við það að bjarga mannslífi. Hildur Lilliendahl Hildur hefur sýnt mikinn kjark og elju í jafnréttismálum. Hún hefur vakið athygli á óréttlæti sem ís- lenskar konur búa við með því að berjast gegn því að kvenfyrirlitning og lítillækkun á konum í orðræðu landsins verði að „eðlilegum“ hugs- unarhætti. Fyrir faglega vinnu sína í þágu jafnréttismála hefur hún þurft að þola meðal annars persónuárásir, hótanir og útskúfun á Facebook. Hjördís Svan Aðalheiðardóttir Hjördís Svan hefur staðið í harðri forræðisdeilu við fyrrverandi eigin- mann sinn í nokkur ár og voru börn- in tekin af henni með lögregluvaldi í sumar. Hún hefur háð baráttu við ís- lensk og dönsk barnaverndaryfirvöld til að fá dætur sínar til sín aftur. Högni Egilsson Högni Egilsson, söngvari í Hjalta- lín, ræddi um sjúk- dóm sinni í viðtali við Fréttatímann fyrir skömmu. Högni greindist með geð- hvarfasýki í byrjun sumars og með því að tala opinskátt um veikindi sín sló hann á kjaftasögur en fólk hefur jafnvel haldið því fram að hann væri á ólöglegum fíkniefnum. Högni fékk mikið lof fyrir að tala opinskátt um veikindi sín og með því að að opna umræðu um sjúkdóminn. Jón Björnsson Jón var ásamt vinnufélaga sínum við vinnu á þaki húss Ísfélags Vest- mannaeyja á Þórshöfn í október þegar þeir féllu báðir niður. Fallið var rúmir átta metrar og lentu þeir á kranabómu og síðan á steyptri stétt. Jón hélt rænu og náði að hringja í Neyðarlínuna. Hann skreið svo til vinnufélagans sem var illa slasaður, hélt höfði hans uppi og talaði við hann þar til sjúkrabíllinn kom. Þá skipaði hann sjúkraflutningamönn- um að hlúa fyrst að vinnufélaganum. Jón er nú kominn á fætur en vinnu- félaginn liggur enn á spítala. Jón Gnarr Jón Gnarr var tilnefndur fyrir að nota stöðu sína til fræðslu í mannréttinda- málum. Þá er nefnt nýlegt bréf sem hann sendi til borgarstjóra Moskvu, varðandi bann sem sett var við gleði- göngum þar í borg. Bent er á að allt of fáir háttsettir einstaklingar þori að gera þetta og að borgar stjórinn berj- ist fyrir lífskjörum milljóna og sé til fyrirmyndar. Jón Margeir Sverrisson Jón Margeir Sverrisson sund- kappi úr Fjölni/Ösp vann til gull- verðlauna í 200 metra skriðsundi á Ólympíuleikum fatlaðra í London í sumar. Hann kom í mark á nýju heims- og Ólympíumeti á tímanum 1:59:62 mínútum. Áður hafði hann sett Ólympíumet í greininni en það met lifði ekki lengi því í úrslitasund- inu sló hann sitt eigið met. Sannar- legar afreksmaður hér á ferð. Kári Kárason Kári bjargaði mannslífi fyrr á þessu ári þegar hann sá bíl velta á hvolf ofan í Laxá á Ásum. Hann sýndi þar mikið þrekvirki ásamt syni sínum Pétri Arnari Kárasyni. Kári óð út í ána og reyndi að losa manninn úr beltinu. Það tókst hins vegar ekki svo hann hélt höfði hans upp úr vatninu þar til hjálp barst. Pétur Örn hljóp og stoppaði næstu bíla og hringdi í Neyðarlínuna. Hver er Hetja ársins 2012? n Lesendur DV velja hetju ársins í fimmta sinn n Fjölmargir hafa unnið hetjudáð á árinu Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.