Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Blaðsíða 28
Taktu myndir! Sendu þína veðurmynd á netfangið ritstjorn@dv.is Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80 mánudagur og þriðjudagur 17.–18. desember 2012 146. tbl. 102. árg. leiðb. verð 429 kr. Var það súrt eða sætt? Bubbi með eina kröfu n Söngvarinn bubbi morthens hugs­ ar vel um líkama sinn. Það verður ekki annað séð miðað við stöðu­ uppfærslur hans á Facebook þar sem hann heldur eins konar mat­ ar­ og æfingadagbækur. Líkt og all­ ar heilbrigðar sálir þá heldur Bubbi einn nammidag í viku og er ekki annað að sjá en að það sé laugar­ dagur. Bubbi söng á jólatónleik­ um björgvins Halldórssonar um liðna helgi en þar sagðist hann aðeins hafa gert eina kröfu; að fá nammi á laugardeginum. Þegar Bubbi hafði loksins fengið þetta samþykkt sýndi hann gjafmildi í verki og deildi nammi með samstarfsfélögum sínum við mikinn fögn­ uð viðstaddra. Milli steins og sleggju n Magnús vill ekki tjá sig um harðar deilur ASÍ og ríkisstjórnarinnar M agnús M. Norðdahl, lög­ fræðingur ASÍ og vara­ þingmaður Samfylkingar­ innar, vill ekki tjá sig um þá ákvörðun Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, að segja sig úr Sam­ fylkingunni. „Ég gef ekkert upp um skoðanir mínar á því. Þetta er bara hans ákvörðun. Það er ekki við eigandi að ég, sem starfsmaður Alþýðusambandsins, sé að tjá mig um pólitískar athafnir yfirmanna minna.“ Gylfi lýsti því yfir á föstu­ daginn að hann hefði sagt sig úr Samfylkingunni vegna óánægju með störf ríkisstjórnarinnar sem hann hefur gagnrýnt harkalega á undanförnum misserum. Telur hann Samfylkinguna hafa snúið baki við hagsmunum launafólks. Magnús er varaþingmað­ ur fyrir Katrínu Júlíusdóttur, ráð­ herra Samfylkingarinnar, og sat hann á þingi mestan hluta ársins í fjarveru hennar. Þá var hann í launalausu leyfi frá ASÍ. Hann var gjaldkeri Samfylkingarinnar árin 2005–2011. Árið 2009 starf­ aði Vigdís Hauksdóttir, nú þing­ maður Framsóknarflokksins, sem lögfræðingur ASÍ. Hún var látinn hætta störfum þegar hún tilkynnti forseta ASÍ að hún hygðist bjóða sig fram til Alþingis og olli það miklu fjaðrafoki. Landssamband framsóknarkvenna fordæmdi ákvörðunina og í yfirlýsingu frá Framsóknarflokknum sagði meðal annars: „Það skýtur því mjög skökku við að forseti ASÍ, sem er áberandi áhrifamaður í Samfylk­ ingunni, skuli neyða starfsmann sambandsins til að segja sig frá starfi, vegna stjórnmálaþátttöku.“ Í yfirlýsingunni var því haldið fram að Vigdís hefði verið látin gjalda fyrir stjórnmálaskoðanir sínar. Þessum ásökunum vísaði Gylfi á bug. Formenn aðildarfélaga ASÍ komu saman í síðustu viku og funduðu um væntanlega endur­ skoðun kjarasamninga. Í kjöl­ far fundarins lýsti Gylfi því yfir að forystumenn verkalýðshreyf­ ingarinnar ættu ekkert vantalað við ríkisstjórnina. Hennar tími væri kominn og farinn. Ekki get­ ur talist líklegt að Magnús Norð­ dahl sé á sama máli en staða hans er óneitan lega nokkuð óheppileg þegar litið er til harðvítugra deilna ASÍ og ríkisstjórnarinnar. Útlit er fyrir að framundan séu erfiðir kjarasamningar. n olafurk@dv.is Þriðjudagur Barcelona 13°C Berlín 2°C Kaupmannahöfn 4°C Ósló 1°C Stokkhólmur 0°C Helsinki -6°C Istanbúl 10°C London 6°C Madríd 14°C Moskva -17°C París 8°C Róm 12°C St. Pétursborg -17°C Tenerife 21°C Þórshöfn 3°C Bergþóra Einarsdóttir 68 ára sölukona „Maðurinn minn keypti þennan galla fyrir mig þegar ljóst var að ég myndi hafa sölubás í miðbænum í tvær helgar.“ Eymundur Magnússon 57 ára bóndi „Það var fullorðin kona á Egilsstöðum sem prjónaði þessa peysu og sá þegar hún var tilbúin að auðvitað væri hún einmitt fyrir Eymund.“ Veðrið V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u V i n d u r í m /s H i t i á b i l i n u 1 1 3 1 6 0 5 1 3 2 3 1 4 2 6 -3 2 -1 3 2 1 -2 1 -2 2 -1 3 -3 4 1 3 0 5 3 6 0 10 1 4 1 3 0 1 -3 2 -2 2 -6 1 3 4 2 3 3 6 3 7 5 7 2 19 6 9 2 3 3 4 1 8 4 4 4 2 2 2 -1 3 0 3 -6 1 6 1 3 2 4 3 3 5 5 4 1 14 6 7 3 2 2 6 2 8 0 4 1 3 3 0 -1 1 1 0 -2 0 5 3 2 1 3 2 3 4 4 3 1 12 6 5 1 Þri Mið Fim Fös Þri Mið Fim Fös EgilsstaðirReykjavík Stykkishólmur Patreksfjörður Ísafjörður Blönduós Akureyri Húsavík Mývatn Höfn Kirkjubæjarklaustur Þingvellir Hella Selfoss Vestmannaeyjar Keflavík Él norðan- og austanlands Norðaustan 8–15 m/s og dálítil él norðan og austanlands en bjartviðri annars staðar á landinu. Norðan 10–15 á Norð- austur- og Austurlandi og snjó- koma eða slydda. Norðaustan 5–13 í öðrum landshlutum, svolítil él norðvestan til, en bjart sunnan heiða. Frost yfirleitt á bilinu 0–5 stig. upplýsingar af vedur.is Reykjavík og nágrenni Mánudaginn 17. desember Evrópa Mánudagur Norðaustan 5–10 m/s. Léttskýjað og vægt frost. +0° -2° 10 5 11.19 15.29 Veðurtískan 3 4 7 9 15 8 -19 0 13 18 3 3 -6 14 dönsum við í kring um … Krakkarnir á leikskólan- um Hofi tóku forskot á sæluna og dönsuðu í kringum jólatréð á Ingólfstorgi á föstudag. mynd sigTryggur ariMyndin 0 0 0 0 1 2 1 2 00 -14 3 5 5 5 4 10 8 3 8 4 Tjáir sig ekki Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ og varaþingmaður Samfylkingarinnar, vill ekki tjá sig um harða gagnrýni forseta ASÍ á stjórnarhætti Samfylkingarinnar. „Það er ekki viðeig- andi að ég, sem starfsmaður Alþýðusam- bandsins, sé að tjá mig um pólitískar athafnir yfirmanna minna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.