Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Qupperneq 3
Fréttir 3Mánudagur 17. desember 2012
F
áir einstaklingar hafa lagt jafn
mikið af mörkum til þess að
opna umræður um málefni
geðsjúkra og bandarísk kona
að nafni Kay Redfield Jamison.
Kay er prófessor í sálfræði við
John Hopkins-háskólann í Banda-
ríkjunum og í dag er enn helst vitn-
aði í hana í umfjöllun um málefni
geðsjúkra og þá sérstaklega geð-
hvarfasjúkra í fjölmiðlum á Vestur-
löndum.
Kay hefur gefið út tvær bækur um
geðhvarfasýki: An unquiet mind – a
memoir of moods and madness sem
geymir æviminningar hennar og
uppgjör við sjúkdóminn og Touched
by fire sem byggir á rannsóknum
Kay á náðargáfu listamanna sem
hafa þjáðst af geðhvarfasýki og lýsir
tengslum náðargáfu og geðhvarfa-
sýki en fjölmargir af þekktustu og
mestu listamönnum síðari tíma hafa
þjáðst af geðhvarfasýki og í þeim
hópi eru til að mynda rithöfundarnir
Ernest Hemingway, Sylvia Plath og
Virginia Woolf.
Opinskáar æviminningar Kay
opnuðu á sínum tíma mjög um-
ræður um málefni geðsjúkra. Í bók-
inni lýsir hún baráttu sinni við geð-
hvarfasýkina og er bókin merkileg að
mörgu leyti. Í fyrsta lagi vegna þess
að hún er skrifuð af lækni sem er
prófessor við einn þekktasta háskóla
heims og í öðru lagi vegna lýsinga
hennar á sjúkdómnum og upplifun
hennar og tilfinningum í glímunni
við sjúkdóminn.
Lýsingar Kay á fordómum og
þekkingarleysi samfélagsins höfðu
djúpstæð áhrif á umræðu um mál-
efni geðsjúkra víða um heim. Og lýs-
ingar hennar á tilfinningum og upp-
lifun hafa gagnast aðstandendum til
skilningsauka.
„Ég er orðin þreytt á feluleiknum;
þreytt á fyrirhöfninni; þreytt á hræsn-
inni og þreytt á að haga mér eins og
ég hefði eitthvað að fela,“ sagði Kay
svo eftirminnilega um frásögn sína.
n kristjana@dv.is
Þreyttist á feluleiknum
n Frásögnin hafði djúpstæð áhrif
Mikilvæg umræða Kay hefur gefið út
tvær bækur um geðhvarfasýki og báðar
hafa valdið straumhvörfum.
Fordómar gagnvart
geðsjúkum algengir
P
áli Matthíassyni, fram-
kvæmdastjóra geðdeildar
Landspítalans, finnst mikil-
vægt að geðsjúkir geti leitað
á einn stað til upphaflegs
mats og greiningar þegar þeir veikj-
ast.
„Þegar um bráðveikt fólk er að
ræða sem þarf hjálp þá er því sinnt
strax. Fólk er velkomið á Bráðamót-
töku geðsviðs í Geðdeildarhúsinu
á Hringbraut frá hádegi til klukkan
19.00 á kvöldin og frá 13–17 um
helgar. Á öðrum tímum getur fólk
leitað á Bráðamóttöku LSH í Foss-
vogi. Þar er geðlæknir á bakvakt en
biðin getur orðið aðeins lengri. Ef
mat aðstandenda er að einhver þurfi
nauðsynlega hjálp, en sá einstakling-
ur neitar, þá er hægt að hafa samband
við Bráðamóttöku geðsviðs varðandi
ráð. Hins vegar er það vakt lækninga-
forstjóra Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins (kallað vakt borgarlæknis
fyrrum) sem sinnir vitjunum og mati
á því hvort rétt sé að flytja einstak-
linginn til nánara mats á geðdeild.
Hins vegar er rétt að leggja áherslu á
að þvinganir skila til lengri tíma yfir-
leitt ekki árangri og reynt er í lengstu
lög að komast hjá því að beita nauð-
ungarinnlögn. Ef til slíks þarf að grípa
þá er það aðeins ef líf og heilsa við-
komandi eða annarra er í hættu. Lög-
ræðislögin skapa ramma um slíkt og
þvingunum er miklu minna beitt hér-
lendis en tíðkast í öðrum löndum,
reynt er að ná sátt við fólk um leiðir.“
Sérstakt teymi í þróun
„Úrræði að loknu mati eru fjölmörg
og of langt að telja upp en aðal atriðið
að fólk geti leitað á einn stað til upp-
haflegs mats og greiningar,“ segir
Páll.
Jafnframt bendir hann á að þegar
ekki er um bráðavanda að ræða sé
eðlilegt að leita fyrst á heilsugæslu-
stöð viðkomandi varðandi úrræði og
þaðan er málinu síðan vísað áfram ef
þörf krefur.
Hann nefnir að einmitt nú sé að
hefjast þróunarvinna á göngudeild
Geðsviðs LSH til að byggja upp sér-
stakt teymi fyrir fólk með geðhvörf.
„Þar að auki er á vegum geðsviðs
LSH sérstakt teymi til staðar fyrir
ungt fólk í byrjandi geðrofi, en þar
á meðal er fólk með byrjandi geð-
hvörf,“ segir Páll.
Samfélagsgeðþjónusta í
uppbyggingu
Spurður um framtíðarsýn í með-
höndlun geðsjúkra segir Páll að það
vandasamt verk. Sú sýn sé miklu víð-
tækari en svo að hægt sé að greina frá
henni í stuttu máli. Hún byggi hins
vegar að miklu leyti á stefnumótun
sem geðsvið LSH og fjöldi aðila úr
notendasamtökum og velferðar-
þjónustu landsins unnu í júní 2009
og sem vel gengur að útfæra.
„Í stuttu máli þá eru grunn-
atriðin sem til grundvallar liggja
þau að þróa geðheilbrigðisþjón-
ustu í nær umhverfi fólks. Efla þarf
heilsugæsluna þannig að hún geti
sinnt einfaldari málum sem best og
hafi aðgang að viðtalsmeðferð. Sér-
hæfð geðheilbrigðisþjónusta, fyrst
og fremst á vegum geðsviðs LSH en
einnig annarra, sinnir flóknari mál-
um. Sú þjónusta fer samt, eftir því
sem kostur er, fram utan stofnana
og í nærumhverfi. Efla þarf sam-
starf og byggja brýr á milli geðsviðs
LSH og heilsugæslunnar og einnig
byggja upp samfélagsgeðþjónustu.
Samvinna og samstarf heilsugæslu,
félagsþjónustu og geðheilbrigðis-
þjónustu er svo algert lykilatriði, því
vandi fólks með geðrænan vanda
liggur oft á mörkum heilbrigðisþjón-
ustu og félagsþjónustu og ekki not-
endunum í hag að skilja þar á milli.
Málefnaleg umræða dregur úr
fordómum
En skyldi skorta fleiri og fjölbreytt-
ari úrræði? Og ef svo er, hverjar
eru þá leiðirnar að þeim? „Já,“ seg-
ir Páll. „Það má alltaf gera betur.
Uppbygging almennari þjónustu
í nærumhverfi með greiða leið að
sérhæfðari þekkingu og sérhæfðum
teymum er lykilatriði þarna. Að þörf
fólks fyrir þjónustu og þjónustan
sem í boði er passi saman, að kerfin
vinni saman þannig að fólk upplifi
samfellda þjónustu sem hjálpar með
þann vanda sem fólk á við að stríða,
hvers eðlis sem hann kann að vera.“
Páll telur uppbyggilega og gagn-
rýna umræðu mikilvæga því fordóm-
ar séu geysialgengir. „Uppbyggileg
umræða, eftirfylgd og aðhald með að
þjónustan sé í lagi skiptir miklu máli.
Málefnaleg, jákvæð – en gagnrýnin
– umræða dregur úr fordómum og
eykur þekkingu fólks á geðsjúkdóm-
um, en fordómar eru geysialgengir
og sem betur fer er næstum alltaf
hægt að hjálpa mjög mikið.“ n
n Páll Matthíasson segir umræðu vinna gegn fordómum
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
„Umræða dregur
úr fordómum og
eykur þekkingu fólks á
geðsjúkdómum, en for-
dómar eru geysialgengir.
Talið er að eitt prósent þjóðarinnar sé
með geðhvörf en þau skiptast í fjóra
flokka; geðhvörf I, geðhvörf II, hverfilyndi
(cyclothymia) og geðhvörf ekki nánar
tilgreind. Geðhvörf kallast það þegar
manneskja sveiflast milli oflætis og
þunglyndis, geðhæðar og geðlægðar.
Sumir fá eingöngu einkenni oflætis.
Sjúkdómurinn hamlar oft getu til
eðlilegra athafna í daglegu lífi, truflar
dómgreind eða leiðir til ranghugmynda.
Algengast er að ungt fólki fái geðhvörf.
Það er einstaklingsbundið hversu langur
tími líður milli geðhæðar og lægðar og
hafa þar utanaðkomandi þættir eins
og lyfjameðferð og umhverfisaðstæður
líka áhrif. Oft er sagt að sjúkdómurinn sé
algengur meðal einstaklinga með frjótt
og kraftmikið ímyndunarafl, til dæmis
meðal framkvæmda- og listafólks og
stundum hefur sjúkdómurinn verið
kallaður „listamannasjúkdómurinn“.
Er það meðal annars vegna þess að í
geðhæðum fær fólk aukinn innblástur og
kraft í sköpun sína en oft getur sá hugs-
anastormur feykt fólki yfir landamæri
raunveruleikans.
Sjálfvígshlutfall meðal geðhvarfasjúkra
er mjög hátt eða 18 prósent.
n Geðhvörf I er það form geðhvarfa
sem einkennast af gríðarlegum
oflætissveiflum sem oft standa lengi
yfir, en þunglyndissveiflurnar eru ekki
mjög djúpar. Fólk með þessa tegund af
geðhvörfum setur hvað mestan svip
á sjúkdóminn og gefur honum andlit.
Þetta eru einstaklingarnir sem í oflætinu
eru ósigrandi og búa yfir óþrjótandi
orku til að sigra heiminn. Þeir svífa um
í hæðstu hæðum oflætisins. Iðulega
þarf að leggja fólk með geðhvörf I inn á
geðdeildir í langan tíma til að ná því niður
úr oflætinu, sem oft hefur varað lengi og
hefur jafnvel valdið líkamlegu tjóni.
n Geðhvörf II er annað birtingar-
form á geðhvörfum sem lýsa sér með
meira og langvarandi þunglyndi en hjá
fólki með geðhvörf I. Inn á milli upplifa
þessir einstaklingar stutt og oft væg
oflætistímabil. Tímabil sem vara 3–15
daga. Þetta fólk er oft ranglega greint
taugaveiklað eða með persónuleika-
röskun.
n Geðhvörf III er svolítill jaðarhópur.
Hér er um að ræða fólk sem er oft þung-
lynt og er á þunglyndislyfjum eða í raf-
meðferð sem kemur því í oflætisástand.
Stundum geta jafnvel steralyf eins og
kortisón komið fólki upp í geðhæð eða
oflæti. Einnig getur fólk sem er ranglega
greint þunglynt og sett er á þunglyndislyf
skotist upp í oflæti. Þessir einstaklingar
eru flokkaðir með geðhvörf III.
n hverfIlyndI (cyclothymia). Í
þessum flokki eru þeir sem kallast
„rapid cyclers“. Þeir sem fá vægar og
örar geðsveiflur. Þetta er fólkið sem
fær oft frábærar hugmyndir, byrjar á
stórum verkefnum af krafti en klárar þau
aldrei. Fólkið sem þarf stöðugt að vera
á ferðinni. Fólkið sem kemur geysimiklu
í verk á skömmum tíma en dettur svo
niður inn á milli, án þess þó nokkurn
tímann að missa dómgreind eða upplifa
slæmt þunglyndi eða sturlunarkennt of-
læti. Þessir einstaklingar eru oft ranglega
greindir með persónuleikatruflanir.
n Blandað áStand (mixed
states). Margir sérfræðingar lýsa
þessum blönduðu geðhvörfum sem „ör-
væntingarfullum kvíða“. Þunglyndi með
einstaka hugarflugi oflætis inn á milli.
Geðsveiflurnar eru svo örar að einkenni
þeirra birtast með mjög skömmu millibili
í hegðun. Ef sveiflurnar vara skemur en
tvær vikur er viðkomandi í blönduðu
ástandi.
(persona.is: Héðinn Unnsteinsson)
Fjögur stig geðhvarfa
Fjölmargir hafa stigið fram og sagt frá
því að þeir séu með sjúkdóminn í von um
að opna á umræðuna um hann.
n Þar á meðal er Högni Egilsson söngv-
ari hljómsveitarinnar Hjaltalín sem var í
viðtali við Fréttatímann á föstudaginn.
Þar sagði Högni: „Það er eins og ákveðin
feimni einkenni allt sem viðkemur
andlegri líðan. Einmitt þess vegna hef
ég ákveðið að stíga út úr skápnum með
þetta.“ Hann hlaut mikið lof fyrir en
fjölmargir þökkuðu honum fyrir að stíga
fram og opna á umræðuna. „Ég er með
sjúkdóm sem heitir geðhvarfasýki. Þetta
er sjúkdómur sem ég greindist með í
byrjun sumars og hef verið að kljást við í
gegnum sumarið,“ sagði Högni í viðtalinu.
„Ég fer í maníur, örlyndi og það tekur
mig á flug á staði þar sem ég er ekki í
sambandi við umhverfið. Heldur er sem
ég sé dreginn inn í heim hugsana og
fótunum er kippt undan mér. Ég svíf svo
um í draumaheimi. Þegar ég er á þessum
stað finnst mér eins og allir séu geðveikir
nema ég því enginn skilur mig.“
Harpa Einarsdóttir fatahönnuður hefur
líka sagt frá því að hún sé með geðhvörf,
bæði í viðtali við Nýtt Líf og DV. Þar sagð-
ist hún hafa lært að lifa með sveiflunum
og að þær hjálpi henni við sköpun. „Það
getur verið gaman að fara í uppsveiflu
þótt það sé ekki gaman að fallinu. Ég er
einhvern veginn búin að ná þannig tökum
á því að ég fer bara upp en ég er búin að
ná að taka þessa toppa af og nýti frekar
orkuna á jákvæðan hátt. Ég fer ekki of
langt niður og ekki of langt upp. Bestu
listamennirnir og hönnuðirnir eru allir
pínu klikkaðir og pottþétt allir með ein-
hvers konar maníu eða þunglyndi,“ sagði
hún í viðtali við DV á síðasta ári.
n Ljóðskáldið Bragi Páll sagði í viðtali við
Fréttablaðið að hann hefði greinst með
geðhvarfasýki sem hefði haft áhrif á vinnu
hans við ljóðabókina Fullkomin ljóðabók.
„Undir lok vinnunnar með BA-verkefnið
greindist ég með geðhvarfasýki, fór upp í
mikla maníu og í kjölfarið í mikið þunglyndi
þannig að það var mikill óróleiki í lífi mínu,“
sagði hann og sagði mega lesa á ljóðunum
í hvernig ástandi hann var þegar þau voru
ort, í maníu eða þunglyndi eða á lyfjum.
Opna á umræðuna
Frægir með geðhvörf
Þessir einstaklingar eiga það sameigin-
legt að hafa annaðhvort sagt frá því að
þeir séu með geðhvörf eða eru taldir hafa
haft þau:
Russel Brand, Kurt Cobain, Robert
Downey Jr., Carrie Fisher, Stephen Fry,
Macy Gray, Linda Hamilton, Ernest
Hemingway, Demi Lovato, Sinéad
O‘Connor, Florence Nightingale, Axl Rose,
Nina Simone, Frank Sinatra, Ted Turner,
Jean-Claude Van Damme, Mark Vonneg-
ut, Amy Winehouse, Virginia Woolf, Brian
Wilson, Vincent van Gogh, Catherine
Zeta-Jones.