Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Side 14
Sandkorn M ér þykir vænt um RÚV. Sér­ staklega þykir mér vænt um útvarpsstöðina Rás 1 sem í gegnum tíðina hefur boðið upp á þætti eins og Víðsjá, Spegilinn, Orð skulu standa, Andrarím­ ur – hverjum datt í hug að hætta með þann þátt? – og fleira góðmeti. Svo eru sjónvarpsfréttirnar fastur liður í tilver­ unni. Flestir Íslendingar hafa einhverja skoðun á RÚV, góða eða slæma, en lík­ legt er hún sé yfirleitt fremur jákvæð. Þjóðin hefur alist upp við þægilegan og heimilislegan niðinn frá lesna efn­ inu í útvarpinu, talmálinu í fréttunum og hinum ýmsu þáttum. Þegar ég loka augunum og fer á hundavaði yfir líf mitt í huganum er ég ekki frá því að ég heyri vinalegan óminn frá Rás 1 undir ein­ hverju minningarbroti þar sem mamma var að kalla á mig í mat. Að þessu sögðu þá tel ég hins vegar að fréttastofa RÚV hafi um langt skeið verið á villigötum í áherslum sínum í fréttaflutningi af innlendum málum. Ástæðan fyrir þessu er sú að afar tak­ markaðar sjálfstæðar rannsóknir og athuganir á þjóðfélagsmálunum eru stundaðar á fréttastofunni: Ekki er gert mikið af því að kafa undir yfirborðið. Orðið „rannsóknarblaðamennska“ er stundum notað til að lýsa þess kon­ ar fréttaflutningi þar sem reynt er að afhjúpa mál, kryfja þau með gagnrýnum hætti og opinbera áður óþekktan sann­ leika. Rannsóknarblaðamennska snýst um að reyna að segja eitthvað sem ekki hefur verið sagt, hið ókunna og ósagða. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis voru fjölmiðlar gagnrýndir fyrir skort á slíkum krítískum, dýpri fréttaflutningi og að þeir hefðu í of miklum mæli látið mata sig á upplýsingum frá hagsmuna­ aðilum. Fjölmiðlar hafa vissu samfélagslegu hlutverki að gegna sem snýst meðal annars um miðlun upplýsinga til al­ mennings – það kann fréttastofa RÚV – og að sýna stjórnmálamönnum og viðskiptalífinu aðhald með gagnrýnni umfjöllun. Umfjöllun af síðari gerðinni getur verið óþægileg og leitt til illinda og kallar á annars konar vinnubrögð, sjálf­ stæðari og krítískari en helber „miðlun upplýsinga“. Þess konar fréttaflutningur er nauðsynlegur á öllum almennilegum fréttastofum, sérstaklega þegar þær eru reknar fyrir almannafé eins og fréttastofa RÚV. Besta og erfiðasta blaðamennskan er slík rannsóknar­ blaðamennska en ekki ógagnrýnin miðl un upplýsinga af blaðamannafund­ um, úr fréttatilkynningum eða endur­ spilun á skoðunum þingmanna um til­ tekin mál. En þá þarf líka að leggja sig eftir henni. Viðkvæðið á fréttastofu RÚV er hins vegar „traust“, enda mælist hún langefst í könnunum um traustið sem almenning­ ur ber til íslenskra fjölmiðla líkt og meðal annars kom fram í könnun MMR í síðustu viku. Fréttastofan stendur vörð um þetta traust og stærir sig af því: Hvaða einstak­ lingur, fyrirtæki, stofnun eða lögaðili vill ekki njóta trausts í augum annarra? En þetta traust RÚV er hins vegar dýru verði keypt því fyrir vikið þá virð­ ist fréttastofan ekki hafa áhuga á að sinna erfiðum málum og afhjúpunum um neikvæðum þætti íslensks samfé­ lags. Ástæðan er líklega sú að gagnrýn­ inn og ágengur fréttaflutningur er í eðli sínu erfiðari, viðkvæmari og hættu­ legri en „miðlun upplýsinga“. Í gagn­ rýnum fréttaflutningi um eitthvað sem ekki liggur fyrir og sem erfitt getur verið að afla upplýsinga um, þar sem miklir hagsmunir einstaklinga og lögaðila geta verið í húfi, eru fréttastofur líklegri til að misstíga sig en þegar þær miðla fyrir­ liggjandi upplýsingum, sjálfsögðum staðreyndum sem allir aðrir fréttamiðl­ ar segja líka frá eða skoðunum þing­ manna. Fréttastofa RÚV virðist ekki vilja taka þessa áhættu, ef marka má fréttastefnu stofnunarinnar. Fyrir vikið nær fréttastofan ekki að sinna því hlut­ verki sínu að vera ríkisrekið aðhaldsafl í stjórnmála­ og viðskiptalífinu. „Traust“ RÚV bíður ekki skaða og helst hátt því fréttastofan misstígur sig síður við kranablaðamennsku og miðlun þekktra upplýsinga. Fréttastofa RÚV ætti að vera best til þess fallin af öllum fjölmiðlum að sinna þessu aðhaldshlutverki. Hún er ríkisrek­ in og líkurnar á því að spilltir eigendur misnoti hana í þágu sérhagsmuna eru engar – líkt og við höfum til dæmis séð á Morgunblaðinu síðastliðin ár, hún ræður yfir miklum fjölda starfsmanna og hefur aðgang að miklum fjármun­ um á fjárlögum. Allar ytri aðstæður á fréttastofu RÚV ættu að benda til þess að hún ætti að vera leiðandi í „rann­ sóknarblaðamennsku“ á Íslandi en í stað þess einbeitir hún sér að langmestu leyti að „traustri miðlun upplýsinga“. Fjölmiðlar sem hafa það að stefnu sinni að reyna að afhjúpa erfiða og nei­ kvæða hluti í samfélaginu, spillingu og annað slíkt, eru dæmdir til að misstíga sig einhvern tímann. Þeir fjölmiðlar sem reyna þetta ekki eru síður líklegir til að misstíga sig og halda því trausti fólks því mistökin eru færri af því tilraunirnar til að segja nýjar fréttir, byggðar á sjálf­ stæðum athugunum og mokstri undir yfirborðinu, eru fáar. Þetta stöðuga traust sem almenn­ ingur hefur á fréttastofu RÚV breytir því þó ekki að hún er ekki að sinna sínu að­ haldshlutverki sem skyldi. Minna traust í garð RÚV gæti einmitt bent til þess að RÚV væri að sinna aðhaldshlutverki sínu betur og væri því kannski fagnaðar­ efni. Auðvitað er ekki samasemmerki á milli þess að njóta minna trausts og að stunda „rannsóknarblaðamennsku“ þar sem reynt er að afla nýrrar afhjúpandi þekkingar, með tilheyrandi neikvæðum afleiðingum eins og mistökum og minna trausti, en það geta verið tengsl þar á milli. Að mínu mati þarf að breyta þessu því fréttastofu RÚV ber að sinna þessu hlutverki sínu sem skyldi. Ef sú breyting kemur ekki að innan, til dæm­ is frá Páli Magnússyni útvarpsstjóra eða Óðni Jónssyni fréttastjóra, ætti ríkis­ valdið að grípa inn í til hins betra. Slíkt væri gott fyrir samfélagið: Að alveg sama hvernig ári í samfélaginu, og alveg sama hversu margir auð­ eða stjórnmála­ menn hafi keypt sér fjölmiðil til að sinna hagsmunagæslu, þá væri RÚV „traust­ ur“ en líka ágengur, gagnrýninn og af­ hjúpandi fasti í íslenskri fréttaflóru. Ólafur til umba n Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, var ekki ánægð með málflutn­ ing þeirra Ólafs Ísleifs- sonar og Ólafs Arnar- sonar í Bítinu á Bylgjunni í síðustu viku. Nafnarnir hraunuðu þar yfir emb­ ætti umboðsmanns fyrir að sinna skjólstæðingum illa og setja þá í hlekki. Í kjöl­ farið mætti Ásta í viðtal þar sem hún lýsti þekkingarleysi nafnanna á umfjöllunar­ efninu. Bauð hún þeim í framhaldinu að koma í heimsókn til að hægt væri að fræða þá um embættið og skyldur þess. Skuldugur umbi n Umboðsmaður skuldara er í nokkrum rekstrarvanda þar sem um 240 milljóna króna gat er hjá embættinu. Ásta Sigrún Helgadóttir átti í vanda með að svara ágeng­ um spurningum Heimis Karlssonar í Bítinu. Færðist forstöðumaðurinn undan því að svara efnislega en sagði að málið væri flókið og erfitt að útskýra. Til þess ber að líta að umboðsmaðurinn mun eiga betra með að setja sig í spor skjólstæðinga sinna þegar staðan er svona. Silkihanskar n Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður er ekki í öf­ undsverðri stöðu nú þegar hann hefur verið ákærð­ ur í svoköll­ uðu Aur­ um­máli. Gangi áform saksóknara eftir blasir við honum allt að sex ára fangelsi. Fjölmiðlum hef­ ur gengið illa að fá við­ brögð hins ákærða sem er með með skrifstofu hjá 365 miðlum. Þar á bæ tókst að­ eins Þórði Snæ Júlíussyni, blaðamanni Fréttablaðsins, að kreista út nokkur orð frá „eigandanum“ til að setja inn í silkimjúka umfjöll­ un sína. Steingrímur skapvondur n Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra og oddviti VG, hefur verið viðskotaillur að undan­ förnu. Þetta mátti glöggt sjá þegar hann mætti Gylfa Arn- björnssyni, forseta ASÍ, og hraunaði yfir hann. Inn­ an VG er fullyrt að þyngst hafi undir fæti hjá Stein­ grími eftir að Björn Valur Gíslason fór í bjarmalands­ för sína til Reykjavíkur og lagði til atlögu við valkyrj­ urnar Katrínu Jakobsdóttur og Svandísi Svavarsdóttur. Björn Valur tapaði stórt og Steingrími er kennt um. Hann hefur líklega aldrei verið umdeildari innan flokks. Ég er vongóð Ég verð að lifa með þessum mistökum Ragna Erlendsdóttir vonast til að fá dætur sínar aftur. – DV Dýrkeypt traust RÚV Á formað er að hefja olíuleit á út­ hafinu norðan við Ísland. Olíuleit krefst vandaðs undirbúnings og ýtrustu aðgæslu í umhverfismál­ um. Það er alls óvíst hvort olía finnist á Drekasvæðinu og líklegast eru ára­ tugir í að vinnsla þar gæti hafist, ef leitin ber á annað borð árangur. Rannsóknir þarf að undirbúa af kostgæfni, því ef rannsóknarborun hittir á lind byrjar olían strax að streyma. Fyrirætlanirnar krefjast þess að við íhugum kosti okkar vandlega og undirbúum framtíðina af fullri ábyrgð og með hagsmuni komandi kynslóða og lífríkisins alls að leiðarljósi. Við þurfum líka að spyrja okkur gagnrýninna spurninga. Viljum við verða olíuvinnsluþjóð? Viljum við taka áhættu af mengunarslysi sem gæti orðið á kostnað fiskimiðanna okkar? Viljum við mótsögnina sem fylgir því að skipa okkur í fremstu röð þeirra sem vilja draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna jarðaefnaeldsneytis og á sama tíma standa fyrir leit að því? Þversögn í loftslagsmálum Augu manna beinast í auknum mæli að olíulindum á norðurslóðum, þar sem þær verða sífellt aðgengilegri vegna bráðnunar íss, sem orsakast einmitt fyrst og fremst af hlýnun vegna brennslu jarðefnaeldsneytis. Með öðrum orðum: Afleiðingar alvarlegra loftslagsbreytinga af mannavöldum ýta undir kapphlaup til að ná í afganginn af eldsneytinu sem orsakar þær. Þessi þversögn er sláandi og má spyrja hvort ekki sé ástæða til að staldra við þess vegna. Eitt mikilvægasta verkefni samtím­ ans er að ná tökum á loftslagsvandan­ um og búa svo í haginn að hægt sé að svara orkueftirspurn framtíðarinnar sem mest með orku sem unnt er að nýta á sjálfbæran hátt. Vilja Íslendingar verða olíuþjóð og eiga þar með á hættu að missa sérstöðuna sem við höfum skap­ að okkur í orkumálum? Mengun og áhætta fyrir lífríki Fleiri ástæður eru til þess að fara var­ lega við olíuborun á norðurslóðum. Þar eru sérstaklega mikilvæg varúðar­ sjónarmið í ljósi þeirra hagsmuna sem Ísland á varðandi lífríki og hreinleika hafsins. Aðstæður eru erfiðar, þar sem ógn stafar af hafís og óblíðu veðurfari. Slysið í Mexíkóflóa árið 2010, þegar olía lak stjórnlaust úr lind neðansjávar í þrjá mánuði, er mönnum í fersku minni. Sambærilegt slys á norðurslóðum hefði enn alvarlegri afleiðingar. Lífríkið er við­ kvæmara og veruleg hætta er á að olían mengi hafís, sem myndi dreifa henni víða og lengi. Ekki þarf að fjölyrða um nauðsyn þess að fyrirbyggja slík slys í hafinu við Ísland. Lífríki hafsins er helsta fjöregg okkar Íslendinga og olíuslys myndi greiða okkur gríðarlegt högg. Ef boranir verða í augsýn eftir einhver ár eða ára­ tugi þarf að stórefla viðbúnað hér til að tryggja eins og hægt er að þær valdi ekki tjóni. Heilbrigður vöxtur reynist best Brýnt er að huga vel að umhverfismál­ um áður en borað er eftir olíu við Ís­ landsstrendur. Það er líka ástæða til að minna á að stórbrotin áform eru eitt og varanleg velferð annað. Auðvelt er að vera ginnkeyptur fyrir skyndilausnum í risapakkningum. Um þetta eru dæmin mörg. Hröð uppbygging stóriðju á árun­ um fyrir hrun skapaði einhver störf, en með miklum kostnaði fyrir um hverfið og gífurlegri skuldsetningu orkufyrir­ tækja, sem enn kemur niður á sveitar­ félögum og almenningi. Á Íslandi er uppbygging. Upp­ bygging eftir hrun sýnir að vel er hægt að ná viðspyrnu án stórkarlalegra og skuldsettra framkvæmda af því tagi. Hún er ekki tilkomin vegna þess að við höfum hitt á einhverja töfralausn til að taka við af bankabólunni. Þúsundir Íslendinga hafa lagt sitt af mörkum með því að finna og nýta sér tækifæri í ferðaþjónustu, hugbúnaðargerð, fisk­ eldi, skapandi greinum og fjölmörgum öðrum atvinnugreinum. Þetta fólk hefur fundið sér viðspyrnu í efnahagslegum endurreisnaraðgerðum stjórnvalda eftir hrunið, sem sannarlega er ekki að fullu lokið. Atvinnuleysi fer minnkandi og grænum vaxtarsprotum fjölgar. Heilbrigður vöxtur á fjölbreyttum grunni hefur alltaf reynst affarasælli en skyndilausnirnar. Viljum við vera olíuþjóð? Leiðari Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 14 17. desember 2012 Mánudagur Kjallari Svandís Svavarsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra „Auðvelt er að vera ginnkeypt- ur fyrir skyndilausnum í risapakkningum Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra um þá ákvörðun að hækka laun forstjóra Landspítalans. – DV.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.