Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Page 21
Þ eir sem iðka af ástríðu þrek- eða átaksíþróttir lifa ekkert lengur eða betur en þeir sem stunda rólegri dægradvöl á borð við golf, skotfimi eða krullu ef marka má niðurstöður glænýrrar rannsóknar. Sú er birt í jólahefti fagtímaritsins British Medical Journal, BMI, en þar báru vísindamenn saman lífslíkur topp- íþróttamanna úr ýmsum greinum sem allir áttu það sameiginlegt að hafa tekið þátt á Ólympíuleikum á árunum 1896 til 1936. Allt er best í hófi Niðurstöður þessarar rannsóknar sem náði til rétt tæplega tíu þúsund einstaklinga sem flestir voru yfir- burðaíþróttamenn á sínum tíma, sýna að þrek- eða þolíþróttir höfðu ekki jákvæð áhrif á lífslíkur við- komandi íþróttamanna. Með öðr- um orðum; þeir sem kepptu reglu- lega í líkamlega erfiðum íþróttum á borð við hjólreiðar, maraþon eða róður þar sem reynir mjög á hjarta- og æðakerfi reyndust ekki lifa lengur eða betur en hinir sem létu sér nægja rólegri íþróttir sem lítið reyndu á þol eða þrek. Sífelld áreynsla eldir líkamann Ein kenning vísindamannanna varð- andi þessar merkilegu niðurstöður er sú að mikil og ítrekuð áreynsla á lík- ama fólks hefur oft og tíðum neikvæð áhrif til lengri tíma. Púl er þannig mjög jákvætt en aðeins í smærri skömmtum svo líkami hvers og eins nái að jafna sig að fullu. Það er ekki hægt þegar fólk púlar hvern einasta dag og keyrir líkamann eins hart dag hvern og frekast er unnt. Slíkt gerir ekki annað en valda skemmd- um á líffærum sem sífellt verða fyrir áreynslu án þess að fá næga hvíld inn á milli. Slit og eða verkir vegna slíks valdi því einmitt að toppíþrótta- maður í hjólreiðum nýtur ekki lengra eða betra lífs en áhugagolfarinn eða skotfimimeistarinn. Hvað með núið? Margir eru eflaust sammála kenn- ingu vísindamannanna enda mý- mörg dæmi, fyrr og síðar, um íþrótta- menn sem keyra sig út langt fyrir tímann. Ekki þarf einu sinni að fara út fyrir landsteinana til að vita að margir toppíþróttamenn Íslands meiðast oft og títt og á stundum alvarlega. Merkilega oft, segja sumir, með tilliti til að þeir eru í toppformi á öllum sviðum líkamsræktar. En spurningin vaknar engu að síður um hvort niðurstöðurnar eigi við um nútímafólk enda ýmis- legt breyst á hundrað árum eða svo. Bæði æfingar og aðstaða íþróttafólks í dag sé snöggtum betri en hjá þeim íþróttamönnum sem rannsókn BMI náði til. Enn fremur séu nú til ýmis efni sem aðstoða líkamann og ekki síður sé læknisfræðin mun lengra á veg komin en fyrir hundrað árum. Rannsakendur telja niðurstöð- urnar engu að síður eiga við enn þann dag í dag og fjölmiðlar sem fjall- að hafa um skýrslu þessa hafa bent á að þetta sé nú ekki fyrsta stóra rann- sóknin sem sýni að harðar íþróttir sem reyna mikið á hjarta og æðakerfi séu ekki endilega svo jákvæðar fyrir fólk. Þvert á móti fjölgar rannsókn- um sem sýna hið gagnstæða. n Hreyfing góð, en aðeins í hófi Fréttir 21Mánudagur 17. desember 2012 Samskipti við frostmark n Ekkert bólar á lausn í deilu eigenda og leikmanna í NHL-deildinni í íshokkí Í shokkíaðdáendur um heim allan bíða nú eftir að samningar takist milli eigenda og leikmanna í NHL- deildinni vestanhafs sem er óum- deilanlega sú besta í heimi. Lítið sem ekkert þokast en leikmenn vilja fá stærri hlut í tekjum liðanna en því eru eigendur vitanlega mótfallnir. Það eru aðdáendur sem tapa og því fer fjarri að þetta sé í fyrsta skipti sem deildin stöðvast vegna deilna um laun og kjör leikmanna. Leik- menn hafa farið í verkfall þríveg- is síðustu tíu ár eða svo og heilu og hálfu tímabilin farið fyrir lítið. Vestanhafs gæla þeir bjartsýn- ustu við að samkomulag náist fljót- lega þannig að hægt verði að spila hálft keppnistímabil eða svo. Slíkt hefur verið gert áður og sumarið svo notað til að leysa það sem út af stendur. Nú er þó meira kul en venjulega í deildinni því sífellt færri áhorfendur mæta á leiki í NHL-deildinni og við það tapa eigendur en ekki leikmenn. Ástæðan er ekki sögð sú að áhugi á íshokkí sé í rénun heldur hitt að dýrt er á leiki og þeir sem hafa áskrift og stóran flatskjá heima fyrir fá miklu betri sýn á leikinn en með því að vera á staðnum. Meðalfjöldi upptöku- véla á íshokkíleik vestanhafs eru 24 talsins eða mun fleiri en til dæmis á helstu leikjum í knattspyrnu. En samanþjappað keppnistímabil er skrambi erfitt. Síðast þegar slíkt gerðist þurftu liðin að spila sjö leiki á fjórtán dögum og þvælast borga á milli í millitíðinni. Slíkt mun gefa liðum með yngri leikmenn ansi gott forskot á hin sem samanstanda af eldri leikmönnum og þreyttari. albert@dv.is Þol og þrek Keppnishjólreiðar eru taldar vera ein erfiðasta íþróttagrein heims en keppendur lifa ekki endilega lengur en hinir sem ekki taka þátt í svo erfiðu sporti. Til samanburðar Kylfingurinn Greame McDowell þarf ekki að reyna svo stíft á sig í golfinu en mun lifa jafngóðu og löngu lífi og þeir sem keppa í erfiðari íþróttum. Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar albert@dv.is Ástralía út af borðinu Þrátt fyrir gylliboð mun David Beckham ekki halda til Ástralíu og leika knattspyrnu þar. Það hef- ur milljarðamæringurinn og eig- andi knattspyrnuliðsins Perth Glory nú staðfest en sá reyndi mikið að fá Beckham til að spila og þjálfa lið sitt. Enn er alls óvíst hvort knattspyrnukappinn mun spila knattspyrnu annars staðar eða hvort hann tekur að sér önnur störf en hann hefur úr ýmsu að velja. Þá þykja líkurnar á að hann snúi aftur í enska boltann minnka með hverjum deginum. Xavi lýkur ferlin- um hjá Barcelona Formlega verður það ekki til- kynnt fyrr en í þessari viku en snillingurinn Xavi hefur ákveðið að framlengja samning sinn við Barcelona til ársins 2016. Hann verður því 36 ára þegar sá samningur rennur út og endar því líklega glæstan feril sinn hjá félaginu. Svo glæstan í raun að hann er sá leikmaður liðsins sem oftast hefur verið valinn í byrjunarlið þess frá upphafi. Þá standa yfir samninga viðræður við aðra stjörnu liðsins, Leo Messi, sem vill líka klæðast peysu Barcelona næstu árin. Lokað veski hjá Tottenham Andre-Villas Boas, þjálfari Totten- ham, mun ekki fá mikla peninga aukreitis til leikmannakaupa í janúarglugganum að því er fram kemur í enskum slúðurblöðum. Eigendur liðsins telja hann þegar hafa keypt nóg til að geta att kappi við toppliðin í ensku úrvals- deildinni. Með fullri virðingu fyrir leikmönnum liðsins er það heldur langsótt og sjálfur hefur Boas talað um nauðsyn þess að næla í einn sterkan framherja í viðbót. n Lífslíkur eru þær sömu hjá maraþonhlaupurum og áhugakylfingum Ekkert leikið enn Allt í lamasessi í vinsæl- ustu íshokkídeild heims enn eina ferðina. n Chelsea tapaði úrslitaleik félagsliða n Er Benítez alveg búinn að missa það?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.