Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Qupperneq 10
Vigdís hlýtur
verðlaun
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for
seti Íslands, hlaut í dag verðlaun Jóns
Sigurðssonar forseta fyrir árið 2011.
Verðlaunin hlýtur hún fyrir að efla og
styrkja vináttu milli Íslands og Dan
merkur sem ötull talsmaður menn
ingarsamskipta þjóðanna. Forusta
hennar í stjórn sjóðsins Den Nord
atlantiske Brygge tryggði endurbygg
ingu „Bryggjunnar“ þar sem síðan
hefur verið haldið á lofti menningu
Íslands í Kaupmannahöfn, eins og
stendur í fréttatilkynningu. Jóhanna
Sigurðardóttir flutti hátíðarræðu við
þetta tilefni og Sólveig Pétursdóttir,
formaður undirbúningsnefndar af
mælis Jóns Sigurðssonar, kynnti marg
miðlunarsýningu sem gerð var í tilefni
200 ára afmælisársins.
10 | Fréttir 20. júní 2011 Mánudagur
Margrét Friðriksdóttir segir hunda
fangara á vegum borgarinnar hafa
gengið of langt þegar hann hirti chi
huahuahund sem hafði þvælst yfir
í næsta garð. Nágrannakona Mar
grétar hefur skrifað undir yfirlýsingu
þar sem hún fullyrðir að hún hafi
haft hundinn í gæslu þegar hunda
fangarinn hirti hann.
Sagðist ætla að bíða
Tildrög málsins eru þau að hundur
inn sem Margrét hefur umsjón með
slapp. Hundurinn hafði verið úti í
garði þar sem hann er oft og slapp
yfir í næsta garð. Hann er ógeldur
og var að vitja tíkur. „Nágrannakona
mín fann hundinn og tók hann, svo
hringdi hún í mig,“ segir Margrét í
samtali við blaðamann. En á sama
tíma segir Margrét að hringt hafi ver
ið í hundaeftirlitið. Stuttu eftir það
kom hundaeftirlitsmaður og að sögn
Margrétar hafði hann afskipti af ná
grannakonu hennar. „Hann sagði
henni að hann myndi bara bíða eft
ir mér með hundinn, mér að meina
lausu.“ Nágrannakonan fékk, að sögn
Margrétar, eftirlitsmanninum hund
inn. En þegar Margrét hafði sam
band við eftirlitsmanninn var henni
tjáð að hann væri á leið með hund
inn upp að Leirum, sem er hunda
hótel. Nokkurt orðaskak varð á milli
þeirra þar til hundafangarinn skellti
á Margréti, að hennar sögn.
Skráður í nærliggjandi húsi
Hundurinn er skráður í Nökkvavogi,
sem er nærliggjandi hús, en Margrét
hefur hann oft til umráða í blokkarí
búð í Sólheimum. „Eigandi hunds
ins vinnur mikið og ég hef hann oft
til umráða. En hann hefur aldrei
ónáðað neinn,“ segir Margrét. Eftir
litsmaðurinn gerði athugasemd við
þetta, en þegar hún fór til þess að
sækja hundinn á Leirur var henni
tjáð að hún þyrfti lagalegt umboð frá
eiganda. Þegar þess var aflað þurfti
hún að lokum að greiða 30.000 króna
handtökugjald. Venjulega er einnig
greitt 7.000 króna gjald fyrir hvern
dag sem hundurinn er vistaður á
Leirum, en starfsmaður hótelsins
ákvað að rukka Margréti ekki þar sem
honum ofbauð, að sögn Margrétar,
framkoma hundaeftirlitsmannsins.
„Hann sagði mér það maðurinn uppi
á hundahóteli að þetta handtöku
gjald væri aldrei rukkað undir þess
um kringumstæðum. Ég skil ekki af
hverju þeir eru að fara svona með
mig,“ segir Margrét, döpur með fram
vindu málsins. „Samkvæmt hunda
lögum mega þeir bara taka hunda
sem eru í lausagöngu, en hann var í
gæslu.“
Hundaeftirlitið stendur á sínu
Árný Sigurðardóttir, framkvæmda
stjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykja
víkur vildi ekki tjá sig ítarlega um
málið. „Hundaeftirlitið er ekki sam
mála Margréti um málsatvik,“ sagði
Árný í samtali við blaðamann.
„Hundaeftirlitinu er skylt að fjar
lægja hunda sem eru í lausagöngu
og færa í hundageymslu, eins og gert
var í þessu tilviki. Þetta var gert í sam
ræmi við verklagsreglur. Hundurinn
var í lausagöngu og þá var hann tek
inn,“ segir Árný.
Margrét segist íhuga að kæra mál
ið og segir að athæfi hundaeftirlits
ins sé ekkert annað en kúgun. „Þetta
snýst ekkert um hundinn. Þarna er
verið að misnota lögin og brjóta á
rétti,“ segir hún.
Margrét Friðriksdóttir Segir hundinn hafa verið í gæslu þegar hann var tekinn.
n Chihuahua-hundur fór á milli garða og var hirtur af hundafangara
n Umsjónarmaður hundsins borgaði 30 þúsund og er ósáttur við hörkuna
Gremst harka
hundafangara
„Ég skil ekki af
hverju þeir eru að
fara svona með mig.
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Fannst látinn
Fimmtugur karlmaður sem leitað
var á Rangárvöllum á laugardag
fannst látinn. Björgunarsveitir og
lögregla leit
uðu mannsins
á laugardag en
hann ætlaði að
hlaupa á laugar
dagsmorgun
frá Selsundi við
Heklurætur nið
ur á Hellu sem er
um 25 kílómetra
löng leið. Samkvæmt Vísi fór maður
inn frá sumarhúsi í landi Svínhaga á
Rangárvöllum í gærmorgun og ætl
aði að hlaupa til Hellu og hitta fjöl
skyldu sína þar.
Þegar maðurinn skilaði sér ekki
var farið að grennslast fyrir um hann
og ríflega 70 björgunarsveitarmenn
ásamt leitarhundum og þyrlu björg
unarsveitarinnar voru kallaðar út.
Maðurinn fannst rétt fyrir klukkan
tíu á á laugardagskvöld og talið er að
hann hafi orðið bráðkvaddur.
Vill Besta flokk-
inn á þing
„Við þurfum eitthvað til að hrista upp
í kerfinu því það er svo spillt,“ segir
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þing
maður Vinstri
grænna, í úttekt
breska blaðs
ins Guardian á
Besta flokknum.
Hún vill að Besti
flokkurinn bjóði
fram á landsvísu.
Ítarleg umfjöll
un er um Besta
flokkinn í Guardian en blaðamaður á
vegum blaðsins var á landinu 17. júní.
Þar ræddi hann við Jón Gnarr og fleiri
meðlimi flokksins. Í umfjöllun blaðs
ins er flokknum lýst sem vel heppn
aðri samfélagslegri tilraun, sem eigi
ekkert skilið við hefðbundna pólitík.
Jón segist elska að „fokka“ í skamm
sýnu fólki sem taki sig of alvarlega.
Honum finnist fátt skemmtilegra en
að reita hrokafullt fólk til reiði, fólk
sem vilji stjórna því sem almenningur
segir og gerir.