Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Síða 19
Umræða | 19Mánudagur 20. júní 2011 Alltaf haft áhuga á hjálpar- starfi 1 74 ára í ótrúlegu formi „Mér finnst ég vera yngri nú en ég var fyrir tuttugu árum,“ segir vaxtarræktardrottningin Ernestine Shepherd, sem er á átt- ræðisaldri. 2 Barinn til bana á skemmtistað í Kaupmannahöfn 19 ára gamall karlmaður lést eftir slagsmál á skemmtistað. 3 Maðurinn fannst látinn Fimmtugur karlmaður sem leitað var á Rangár- völlum fannst látinn. Hann hafði ætlað að hlaupa frá Selsundi við Heklurætur niður á Hellu sem er um 25 km leið. 4 Aleinir í flugstöð um nótt Tveir strandaglópar á Dallas-Fort Worth flugvellinum eyddu nótt aleinir á flug- vellinum. Flug þeirra hafði verið fellt niður. 5 Eiginkonu Helmuts Kohl var nauðgað af meðlimum Rauða hersins Hannelore Kohl, eiginkona fyrrverandi kanslara Þýskalands Helmuts Kohl, var nauðgað þegar hún var 12 ára gömul af rússneskum her- mönnum. 6 „Nú á dögum rassskellum við ekki“ Móðir í Texas í Bandaríkjunum hlaut á dögunum fimm ára skilorðs- bundinn dóm fyrir að hafa rassskellt tveggja ára gamalt barn sitt. Ásta Katrín Vilhjálmsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir störf sín og var valin sjálfboðaliði ársins hjá Fjölskylduhjálp Íslands við hátíðlega athöfn í húsi Fjölskylduhjálparinnar í gær, sunnudag. Ásta Katrín þykir hafa staðið sig sérstaklega vel sem sjálfboðaliði og fékk glerstyttu frá Markó og flugmiða frá Iceland Express að launum. Hver er konan? „Ég heiti Ásta Katrín Vilhjálmsdóttir.“ Hvar ertu uppalin? „Ég er alin upp í Reykjavík.“ Hvað drífur þig áfram? „Mér finnst gaman að gera eitthvað gott fyrir aðra. Það er bara mitt mottó.“ Hvað ætlar þú að gera í sumar? „Ég ætla að vinna fyrir Fjölskylduhjálp Íslands.“ Hver eru áhugamál þín? „Að hjálpa öðrum og hlúa að fjölskyldunni.“ Af hverju ertu sjálfboðaliði hjá Fjöl- skylduhjálp Íslands? „Ég var sjálfboðaliði áður en ég varð atvinnulaus og hélt því áfram eftir að ég missti vinnuna. Mér finnst gott að geta farið út og gert eitthvað.“ Hvernig væri hægt að bæta hag þeirra einstaklinga og fjölskyldna sem þurfa að leita til hjálparstofnana til að geta séð sér farborða? „Ég hvet fólk til að leita til Fjölskylduhjálp- arinnar eftir aðstoð. Við fáum mjög góðan afslátt hjá þeim fyrirtækjum sem aðstoða okkur og fólk fær mikið út úr matarpok- anum hjá okkur.“ Hvetur þú aðra til þess að gerast sjálf- boðaliðar hjá hjálparstofnunum? „Já, alveg hiklaust, þá sem hafa áhuga á því. Ég hef alltaf haft áhuga á hjálparstarfi og finnst mjög gaman að vinna þarna.“ Hvað finnst þér mikilvægast í lífinu? „Að hjálpa öðrum og láta gott af sér leiða.“ „Nei, ekki alveg, held ég. Það er smá launa- mismunur.“ Maren Rós 29 ára matráður „Svona að mestu leyti. Það er margt eftir, launamál og þannig. Þetta er að jafnast út.“ Sigurður Rúnarsson 30 ára smiður. „Þekki það ekki af eigin raun. Ég veit það ekki. Kannski er það langt komið.“ Axel Baldursson 54 ára smiður „Nei. Það er svo margt sem vantar upp á, að ég veit ekki hvar ég á að byrja.“ Helga Vattnes 52 ára öryrki „Ja, ætli það sé nú ekki að verða nokkuð jafnt. Kannski ekki alveg, eða jú, ég myndi telja það vera jafnt. Ég sé ekki annað.“ Haraldur Lýðsson 81 árs verslunarmaður Mest lesið á dv.is Maður dagsins Hefur jafnrétti kynjanna verið náð? Líf og fjör Það leiddist engum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um helgina. Þar lék blíðan við börnin sem léku við hvurn sinn fingur, eins og sést á meðfylgjandi mynd. Mynd SigtRygguR ARi Myndin Dómstóll götunnar Þ egar Milos Formann kom til Íslands á Alþjóðlega kvik­ myndahátíð sagði hann að hann hefði eitt sinn áformað að gera leikna mynd um Bobby Fisch­ er með hann sjálfan í aðalhlutverki, en Fischer var erfiður við að eiga að vanda og enginn mátti sjá hann á kvikmyndatökustað. Sú mynd var aldrei gerð, svo heimildamyndagerð­ armenn verða að reyna að segja sög­ una út frá því efni sem til er. Bobby Fischer varð undir lok ævi sinnar ættleiddur sonur Íslands. Það var í fyrsta sinn sem Alþingi ákvað að taka fram fyrir hendur Útlend­ ingastofnunar og veita ríkisborgara­ rétt upp á sitt einsdæmi, og mögulega hefur það fordæmi haft eitthvað með það að gera að leikurinn hefur nú ver­ ið endurtekinn, þó að einstaklingarn­ ir 50 sem eiga í hlut séu minna nafn­ togaðir. Það væru þá undarleg, en um leið jákvæð eftirmæli hinnar undar­ legu ævi Bobbys Fischer. Sá tapar aldrei sem ekki teflir Allt frá því að Fischer var sex ára eða svo átti hann sér það eina markmið að verða heimsmeistari í skák. Allar sínar vökustundir einbeitti hann sér að markmiðinu, en það er eins og að um leið og því var náð hafi hann dottið í sundur sem mannvera. Það eina sem nú var eftir var að verja titil­ inn eins lengi og hægt var, en Fischer kaus að gera það ekki. „Sá einn tapar aldrei sem ekki teflir,“ sagði Anatoly Karpov, sem tók við titlinum þegar Fischer neitaði að mæta til leiks. Fyrri hluta lífs síns gerði Fischer fátt annað en að tefla, seinni hlutinn var minna glæstur. Heimildamyndin eyðir mestu púðri í dýrðardaga Fischers í Reykja­ vík árið 1972, og ekki síst þá spennu sem var í loftinu um hvort hann myndi yfirhöfuð mæta. Þegar hann kom var það of seint, svo að Spasskí hefði get­ að neitað að tefla og haldið titlinum. Hann reyndist betri maður en svo, þó Bobby væri betri við taflborðið. Bobby Fischer spilaði skák Skautað er hratt yfir týndu árin í lífi Fischers, en talsvert er fjallað um síðustu árin, þar sem myndefnið er fengið að láni frá Friðriki Guð­ mundssyni úr myndinni „Me and Bobby Fischer.“ Fischer var fagnað sem týndum syni við komuna, en virtist fljótlega gleymast. Kári Stef­ ánsson sóttist í fyrstu eftir fundi við hann, en segir frá því að síðast þeg­ ar hann hafi hitt skákmanninn hafi hann vísað Fischer frá borði sínu. Fáir aðrir en Sæmi virtust geta um­ borið hann til lengdar, og það var undarlegt að sjá Bobby Fischer sitj­ andi á Hlemmi eða verslandi í 10–11 síðustu árin, þar sem enginn veitti honum athygli. Kannski var það ein­ mitt það sem hann þráði. Tvær aðrar myndir eru vænt­ anlegar um Fischer, önnur byggð á bókinni „Bobby Fischer Goes to War“ og hin með köngulóarmann­ inum Tobey Maguire í aðalhlutverki. En hvorug þeirra mun þó fyllilega ná utan um manninn. Ef til vill er samt ekki frá svo mörgu að segja þrátt fyrir allt. Í við­ tali við Friðrik segist hann hafa gert tilraunir með að semja lög, en slíkt hafi mistekist, því til þess að yrkja þurfi maður að byggja á einhverri lífsreynslu og þá hafði Fischer ekki. Bobby Fischer spilaði skák. Kannski er þrátt fyrir allt ekki meira um hann að segja en það. Undarleg ævi Kjallari Valur gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.