Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Side 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 20. júní 2011 Mánudagur Danskir fjölmiðlar slátra U-21 liðinu sínu: Danir sem flugur í öskuskýi Danskir fjölmiðlar eru óvægnir í garð danska U-21 landsliðsins sem tapaði með þremur mörkum gegn einu í leiknum gegn Íslendingum á laugardag. Danska blaðið BT gefur sjö leikmönnum liðsins núll í ein- kunn fyrir frammistöðu sína í leikn- um. „Fiasko“ segir BT í stórri fyrir- sögn. Þrír fá tvo í einkunn af fimm og meira að segja þjálfarinn fær algjöra falleinkunn. Það verður ekki sagt að danska liðið hafi spilað illa í leiknum. Það skapaði sér 26 marktækifæri á móti 17 færum íslenska liðsins. Munur- inn á liðunum lá í því að íslenska lið- ið nýtti þrjú færi en danska liðið að- eins eitt. Bæði lið sitja eftir með sárt ennið en eins og fram hefur komið hefði íslenska liðinu nægt eitt mark til viðbótar til að komast áfram. „Þetta eru mestu vonbrigði mín á ferlinum,“ sagði framherjinn Nicki Bille sem misnotaði nokkur góð færi í leiknum. Hann gat ekki leynt von- brigðum sínum í samtali við blaða- menn. „En við vinnum sem lið og töpum sem lið,“ sagði hann og and- varpaði. Hann sagðist ætla heim og hugsa sinn gang. „Dönsku lærling- arnir féllu eins og flugur í öskuskýi,“ sagði í fyrirsögn á forsíðu Extra Blad- et, þar sem dönsku strákarnir fengu líka háðuglega útreið. Það þykir ekki fínt í Danmörku að tapa fyrir Íslend- ingum. „Þetta var versti leikurinn okkar,“ sagði þjálfari danska liðsins en sumir leikmenn þess létu hafa eftir sér að þeir hefðu frekar viljað að Íslendingar kæmust áfram en Hvít-Rússar. „Það er bara djók að þeir skuli komast áfram,“ sagði einn þeirra. baldur@dv.is Eyjólfur verður áfram n Eyjólfur Sverrisson mun áfram þjálfa U-21 landslið Íslands. Hann er búinn að semja um að stýra lið- inu út næsta mót. Frá þessu greindi hann í samtali við Fót- bolta.net. Eyjólf- ur hefur náð frá- bærum árangri með ungmenna- lið Íslands, sem undir hans stjórn var hársbreidd frá því að komast í undanúrslit á EM í knatt- spyrnu. Liðið var aðeins einu marki frá því takmarki eftir flottan sigur á Dönum um helgina. Eyjólfur bendir þó á að hann verði ekki áfram með sama liðið því margir leikmenn sem hann stýrir nú eru orðnir of gamlir til að spila með ungmennaliði. Nýir leikmenn muni því koma inn. „Við ætlum okkur langt,“ sagði hann við Fótbolta.net. „Það eru bara spenn- andi tímar fram undan, fullt af efni- legum strákum og ég hlakka bara til að vinna með þeim.“ Jafnt í góðgerðarleik n ÍA og KR gerðu 3-3 jafntefli í góð- gerðarleik sem háður var til styrktar Sigursteini Gíslasyni sem heyr nú harða baráttu við krabbamein. Sig- ursteinn lék með ÍA 1988 til 1998 og með KR 1999 til 2003 og varð Íslandsmeistari samtals níu sinn- um með liðunum tveimur. Það voru gamlir samherjar Sigursteins sem spiluðu leikinn, þar á meðal Karl Þórðarson sem nú er 56 ára gamall. Bjarni Guðjónsson, núverandi fyrir- liði KR, og Ólafur Þórðarson skoruðu mörk Skagamanna og Einar Þór Daní- elsson og Rúnar Kristinsson skoruðu mörk KR. Þá fékk hvort lið fyrir sig eitt mark fyrir bylgju áhorfenda. Meðal annarra sem spiluðu voru Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, Gunn- laugur Jónsson, Bjarki Gunnlaugsson, Guðmundur Benediktsson, Þormóður Egilsson og Brynjar Björn Gunnarsson. 4. sæti í Evrópubikar n Íslenska landsliðið í frjálsum íþróttum hafnaði í 4. sæti í 3. deild Evrópubikarsins í dag og komst þar með ekki upp um deild eins og stefnt var að. Ísland endaði með 411,5 stig en Ísrael varð í fyrsta sæti með 490 stig og Kýpur í öðru með 469 og tryggðu þau sér þar með sæti í annarri deild á næsta ári. Ásdís Hjálmsdóttir sigraði í spjótkasti kvenna. Hafdís Sigurð- ardóttir náði silfri í langstökki og Helga Margrét Þorsteinsdóttir silfri í kúluvarpi. Boðsveit kvenna í fjórum sinnum 400 metra hlaupi kvenna vann einnig silfur. Spánverjar og Tékkar í undanúrslit n Spánverjar og Tékkar komust upp úr B-riðlinum á Evrópumóti U-21 landsliða í knattspyrnu. Tékkar unnu drama- tískan sigur á Englendingum þar sem sigur- markið kom á síðustu mínútu í uppbótartíma. Spánverjar unnu öruggan 3-0 sigur á Úkraínu- mönnum. Spánverjar unnu riðil- inn með sjö stigum en Tékkar voru með sex stig. Englendingar tvö og Úkraína eitt. Tékkar mæta Sviss- lendingum í undanúrslitum og Spánverjar mæta Hvít-Rússum. Þrjú efstu sætin á mótinu gefa þátttöku- rétt á Ólympíuleikunum í London 2012. Molar Þetta var magnað. Grátbroslegt, en algjörlega magnað. Knattspyrnu- landslið Íslands, skipað leikmönn- um 21 árs og yngri, vann hug og hjörtu þjóðarinnar eftir frækilega frammistöðu gegn jafnöldrum sín- um frá Danmörku, þar sem íslenska liðið vann frábæran sigur. Stemn- ingin á vellinum í Álaborg var hreint út sagt mögnuð og óhætt að segja að íslensku stuðningsmennirnir hafi einnig farið með sigur af hólmi í stúkunni. Um gjörvallan Limafjörð ómaði: „Áfram Ísland“ fram á rauða nótt. Rigningin skemmdi ekki fyrir Íslensku stuðningsmennirnir í Ála- borg voru á annað þúsund og greini- legt að þeir skemmtu sér vel. Þrátt fyrir úrhellisrigningu lungann af deginum skemmdi það ekki fyrir pöbbarölti á Jómfrúargötunni en þar er jafnan mikið fjör. Völlurinn í Ála- borg tekur rétt tæplega 10 þúsund manns í sæti en þrátt fyrir að vera mun færri voru Íslendingarnir dug- legir við að láta í sér heyra. Eftir að leiknum lauk hittust svo íslensku stuðningsmennirnir í Stud- entshuset, en þar höfðu verið skipu- lagðir tónleikar með hljómsveitinni Retro Stefson, sem áttu eftir að verða ógleymanlegir. Náðu loks fram brosi Landsliðsmennirnir sjálfir létu sig ekki vanta í Studentshuset. Þar voru „piltarnir okkar“ eða „vormenn Ís- lands“ mættir í öllu sínu veldi og gáfu sig á spjall við landa sína sem og aðra. Auðsjáanlegt var á drengjun- um að þeir voru svekktir með að hafa ekki náð að komast áfram í undan- úrslit keppninnar en eftir góða hug- hreystingu frá öllum viðstöddum, og þá sér í lagi Retro Stefson, tóku þeir gleði sína á ný. Hápunktur kvöldsins var tvímælalaust þegar Unnsteinn, söngvari hljómsveitarinnar, kallaði landsliðsmennina upp á svið þar sem þeir sungu glæsilega Þetta redd- ast. Áhorfendur klöppuðu bæði lið- ið og hljómsveitina upp og ætlaði allt um koll að keyra þegar piltarnir hneigðu sig í lokin. Eins og sjá má á myndunum var stemningin góð. n Íslendingar og landsliðsstrákarnir fóru eftir leik á tónleika með Retro Stefson n Piltarnir stigu á svið og sungu Þetta reddast n Voru hughreystir eftir sigurinn á Dönum„Áhorfendur klöpp- uðu bæði liðið og hljómsveitina upp og ætl- aði allt um koll að keyra þegar piltarnir hneigðu sig í lokin. Björn Teitsson skrifar frá Kaupmannahöfn bjorn@dv.is Rífandi stemning Íslendingar skemmtu sér konunglega á vellinum og í Studentshuset. Hneigðu sig Strákarnir tóku lagið á sviðinu. Strákarnir hylltir Retro Stefson kallaði ungmennaliðsdrengina á svið og hughreysti þá. MyNDiR BJöRN TEiTSSoN Íslendingar lögðu undir sig Limafjörð Tapa sem lið „Þetta var versti leikurinn okkar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.