Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Side 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 22. júní 2011
hald veita takmörkuð völd innan
fyrirtækisins.
Einnig má geta þess að Ólafur
Þór Jóhannesson, framkvæmda
stjóri Miðengis ehf., situr í stjórn
66°Norður þar sem Sigurjón Sig
hvatsson er stjórnarformaður. Mið
engi ehf. er eignarhaldsfélag í eigu
Íslandsbanka sem heldur utan
um eignarhlut bankans í hinum
ýmsum fyrirtækjum og á heima
síðu Miðengis kemur fram að 33,3
prósenta hlutur Íslandsbanka í
66°Norður hafi verið í rekstrarlegri
umsjón félagsins.
Samkvæmt heimildum DV var
það löngu ákveðið að Helgi Rún
ar og Bjarney kæmu að rekstri
66°Norður þrátt fyrir að fyrirtækja
ráðgjöf Íslandsbanka hefði byrj
að á því að auglýsa þriðjungshlut
í fyrirtækinu til sölu í „opnu sölu
ferli“ þann 1. nóvember í fyrra.
Viðmælandi DV segir að Helgi
Rúnar hafi í lok síðasta árs boðið
öðrum fjárfestum en þeim sem nú
komu að kaupunum að taka þátt
í að koma með sér að kaupum á
66°Norður. Upplýsti hann um góð
tengsl sín við Íslandsbanka, fyrr
verandi vinnuveitanda sinn. Helgi
Rúnar reyndi líka að komast yfir
annað fyrirtæki þar sem Íslands
banki var stærsti lánveitandinn en
það fyrirtæki vildi ekki taka þátt í
þeim gjörningi með Helga Rúnari
og bankanum. „Þetta er kunn
ingjasamfélagið í hnotskurn,“ segir
heimildarmaður DV.
„Þetta er snúningur hjá Helga
Rúnari og Bjarneyju. Þau hafa
boðið Íslandsbanka að Helgi Rún
ar tæki við forstjórastarfinu hjá
66°Norður og myndi finna fjár
festa til þess að taka þátt í kaupun
um á fyrirtækinu,“ segir heimildar
maður. Samkvæmt heimildum DV
höfðu aðrir aðilar samband við Ís
landsbanka og lýstu yfir áhuga á
því að koma að rekstri 66°Norð
ur og voru tilbúnir að koma með
töluvert mikið eigið fé inn í félagið.
Bankinn sýndi þeim aðilum hins
vegar lítinn áhuga.
„Alveg út úr kortinu“
Þótt Íslandsbanki hafi farið með
þriðjungshlut í 66°Norður og fyr
irtækið hafi verið með öll lán sín
hjá bankanum, nærri 2,4 milljarða
króna í lok árs 2009 ef næsta árs af
borganir eru meðtaldar, gat Íslands
banki ekki auðveldlega tekið fyrir
tækið alfarið yfir. Ástæðan er sú að
þrátt fyrir að 66°Norður sé mjög
skuldsett hefur fyrirtækið náð að
borga af öllum lánum sínum. Sigur
jón leggur áherslu á að félagið hafi
ekki fengið neinar afskriftir og það
hafi staðið af sér hrunið án þess að
lækka laun starfsmanna.
Heimildarmaður DV segir að
hins vegar hafi þau Helgi Rúnar
og Bjarney tjáð Sigurjóni Sighvats
syni, aðaleiganda félagsins, að þau
hefðu fengið lífeyrissjóði með sér í
að kaupa helmingshlut í fyrirtækinu
sem væru tilbúnir að borga það verð
sem Sigurjón vildi fá. „Þau létu meta
félagið á 3,5 milljarða króna þann
ig að verðið á 50 prósenta hlutn
um sem lífeyrissjóðirnir keyptu að
mestum hluta er alveg út úr kort
inu,“ segir heimildarmaðurinn.
Þegar ársreikningur 66°Norður fyrir
árið 2009 er skoðaður kemur sést að
eiginfjárhlutfall félagsins var þá 1,6
prósent, eða um 40 milljónir króna,
á móti skuldum upp á tæplega 2,6
milljarða króna.
Athygli vekur að viðskiptavild
félagsins er metin á um 740 millj
ónir króna. Það er þó töluvert
lægra en hún var árið 2005 eftir
að Sigurjón hafði yfirtekið félagið
ásamt Sjóvá. Þegar Þórarinn Elm
ar Jensen og synir hans seldu fyr
irtækið var viðskiptavild félags
ins metin á 0 krónur. Eftir yfirtöku
Sigurjóns og Sjóvár hækkaði við
skiptavild 66°Norður úr engu í 893
milljónir króna.
Viðmælandi DV sagði að ýms
ar tölur í ársreikningi 66°Norður
bentu til þess að félagið væri ekkert
endilega eftirsóknarverður fjárfest
ingarkostur. Dæmi um það væri að
fatnaður á lager hjá félaginu næmi
nánast árlegri veltu félagsins. „Ef
fyrirtæki er með lager sem nemur
nærri ársveltu er eitthvað að í rekstr
inum,“ sagði viðmælandinn. Flest
bendi því til þess að verðmat upp á
3,5 milljarða króna sé langt umfram
raunverulegt virði félagsins.
Einnig sé ýmislegt annað sem
ekki hafi reynst farsælt fyrir rekstur
fyrirtækisins. Þannig hafi það ver
ið stefnan hjá Sigurjóni Sighvats
syni að gera 66°Norður að dýrasta
útivistarmerkinu. Sú ákvörðun hafi
ekki haft slæm áhrif fyrir söluna á
Íslandi en það hafi takmarkað vaxt
armöguleikana erlendis. „Sigurjón
kaupir fyrirtækið á sínum tíma með
það að markmiði að selja það fljótt
aftur á hærra verði. Það er búið að
byggja upp fyrirtækið og reka það
með því hugarfari að selja það aft
ur og þannig rekstur er alltaf erfið
ur.“ DV hefur einnig heimildir fyr
ir því að ráðgjafarfyrirtæki erlendis
hafi nú reynt að finna kaupanda að
66°Norður í heild sinni í rúmt ár án
árangurs.
Sigurjón glímir við milljarða-
skuldir
Talið er að Íslandsbanki hafi
ákveðið að yfirtaka 16,7 prósent af
eignarhlut Sigurjóns í 66°Norður
vegna slæmrar fjárhagsstöðu fé
laga hans. Eins og áður kom fram
er talið að Íslandsbanki hafi veitt
honum 100 prósenta lán fyrir yf
irtöku hans á 67 prósenta hlut í
66°Norður í upphafi árs 2005.
Hins vegar er ekki hægt að nálgast
neinar upplýsingar um fjárhags
stöðu félagsins EGUS Inc. – sem
nú heldur utan um helmingshlut
Sigurjóns í 66°Norður þar sem fé
lagið er til heimilis á eyjunni Tor
tóla á Bresku Jómfrúareyjunum.
Sjálfur segir Sigurjón að sala
EGUS Inc. á 16,7 prósentum af
hlut sínum í 66°Norður hafi ekki
verið gerð til þess að grynnka á
skuldum félagsins hjá Íslands
banka.
DV hefur áður fjallað um slæma
fjárhagsstöðu hjá félögum í eigu
Sigurjóns. Útrás kvikmyndafram
leiðandans til Danmerkur var fjár
mögnuð með milljarða króna lán
veitingum frá Straumi árið 2007.
Yfirtaka hans á danska dreifingar
fyrirtækinu Scanbox Entertain
ment Group var meðal annars fjár
mögnuð með fimm ára kúlu láni.
Sonur hans segir engar skuldir hafa
verið afskrifaðar. Skuldir félaga
þeirra námu nærri sex milljörðum
við bankahrunið 2008 og er eigið
fé eins þeirra neikvætt um næstum
tvo milljarða króna. „Sigurjón kem
ur aldrei með neitt eigið fé,“ segir
heimildarmaður sem þekkir við
skiptaferil Sigurjóns vel. „Hann er
veðsettur gjörsamlega upp í topp,“
segir annar.
Sigurjón segir að persónuleg
fjárhagsstaða sín sé viðunandi.
„Ekki síst ef tekið er tillit til allra
þeirra sem hrunið hefur leikið
grátt,“ segir hann.
Helmingur 66°Norður
í hendur Glitnistoppa
n Fyrrverandi yfirmenn hjá Glitni fengu að kaupa hlut Íslandsbanka í 66°Norður n Auglýst sem
opið söluferli n 50 prósenta hlutur Sigurjóns Sighvatssonar í 66°Norður í eigu félags á Tortóla
Fyrrverandi yfirmaður hjá Glitni Helgi
Rúnar Óskarsson, núverandi forstjóri 66°Norður var
yfirmaður mannauðssviðs Glitnis á árunum 2006 til
2008. Talið er að hann hafi nýtt sér góð tengsl innan
Íslandsbanka til að komast yfir 66°Norður.
„Mér þykir miður að starfsemi og
fjárhagsleg staða Sjóklæðagerðarinnar
[66°Norður] sé gerð tortryggileg í ljósi þess
að fyrirtækið er eitt af fáum fyrirtækjum í
landinu sem hefur staðið af sér hrunið og
þrátt fyrir afar erfiðar kringumstæður sem
enn eru í smásölu og heildsölu á Íslandi er
ennþá að vaxa.
Fyrirtæki sem hefur staðið við allar sínar
skuldbindingar og hvorki lækkaði laun né
sagði upp starfsfólki eins og flest önnur
og hefur nýlega opnað tvær verslanir til
viðbótar þeim sem fyrir eru auk þess sem
framleiðsla þess heldur áfram að fá verð-
laun og viðurkenningar á alþjóðlegum vett-
vangi í samkeppni við aljóðleg risafyrirtæki.
Á sama tíma hafa ýmsir samkeppnisaðilar
verið teknir yfir af lánardrottnum sínum og
starfa áfram í skjóli þeirra og hafa þannig
óeðlilega samkeppnisaðstöðu á íslenskum
markaði.
66°Norður er einn af hornsteinum ís-
lensks atvinnulífs, þótt það sé ekki stórt og
skipar stóran sess í hugum Íslendinga. Ég er
stoltur að geta verið í forsvari fyrir frábært
félag sem á sér einstaka sögu, hefur á að
skipa frábæru starfsfólki, margt hvert
sem unnið hefur þar um árabil og áratugi
og á því mestan heiðurinn af góðu gengi
og orðspori 66°Nordur, sem fylgir gæða
vöru og góðri þjónustu, sem hafa verið ein-
kunnarorð þess í 85 ár.“
Yfirlýsing Sigurjóns
Svar Íslandsbanka við fyrirspurn DV um
málefni Sjóklæðagerðarinnar, rekstrar-
félags 66°Norður:
„Íslandsbanki var ekki aðili að né hafði
nokkra aðkomu að þeim viðskiptum
sem þú vísar til í fyrirspurn þinni [innsk.
sölunni á helmingshlut í 66°Norður til
Helga Rúnars Óskarssonar, Bjarneyjar
Harðardóttur og SÍA I sjóðsins.]
Aðkoma Íslandsbanka að málum
Sjóklæðagerðarinnar er eftirfarandi. Ís-
landsbanki seldi 33,3% hlut í Sjóklæða-
gerðinni í desember á síðasta ári. Um
opið söluferli var að ræða þar sem öllum
áhugasömum fjárfestum sem uppfylltu
ákveðin skilyrði var boðið að taka þátt. Á
annan tug fjárfesta tóku þátt í ferlinu og
var fjórum fjárfestum boðið að taka þátt
í seinni hluta söluferilsins á grundvelli
tilboða sem lögð voru fram. Óháður aðili
hafði þá farið yfir tilboðin. Kaupandinn
var EGUS Inc., sem var eigandi 2/3 af
útistandandi hlutafjár félagsins. Aðrir að-
ilar sem boðið var að halda áfram skiluðu
ekki inn skuldbindandi tilboði.“
Svar Íslandsbanka
n Viðskiptavild
n Langtímaskuldir
n Eiginfjárhlutfall
2004
26
0
m
ill
jó
ni
r
0
m
ill
jó
ni
r
2004
46
%
2005
14
%
2009
1,6
%
2009
74
3 m
ill
jó
ni
r
20
70
m
ill
jó
ni
r
89
4
m
ill
jó
ni
r
2005
13
05
m
ill
jó
ni
r
Tölur 66°Norður