Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 22. júní 2011 Miðvikudagur
Eignarhaldsfélagið Consensus ehf,
sem rætt er um í skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis vegna kaupa
félagsins á framvirkum skuldabréf-
um í FL Group í gegnum Glitni árið
2008, hefur verið tekið til gjaldþrota-
skipta. Skiptum er lokið á búi félags-
ins, samkvæmt auglýsingu í Lögbirt-
ingablaðinu á mánudaginn, og námu
lýstar kröfur rúmlega 13,5 milljörð-
um króna. Engar eignir voru í búinu
á móti þessum skuldum. Glitnir var
langstærsti kröfuhafi Consensus,
samkvæmt skiptastjóra þrotabúsins,
með tæplega 12,7 milljarða króna
kröfu í búið.
Líkt og DV greindi frá í fyrravor
vísaði rannsóknarnefnd Alþingis
máli eignarhaldsfélagsins Consen-
sus áfram til embættis ríkissaksókn-
ara skömmu eftir að skýrsla nefndar-
innar kom út í apríl vegna gruns um
að refsiverð háttsemi hefði átt sér í
viðskiptunum með skuldabréf FL
Group. FL Group var, sem kunnugt er,
stærsti hluthafinn í Glitni árið 2008 og
gat fengið frekari lán hjá Glitni vegna
þessara viðskipta Consensus. Í við-
tali við DV í tengslum við þann frétta-
flutning sagði Björn Bergsson, sett-
ur ríkissaksóknari, að málið væri til
skoðunar. „Við fyrstu sýn þykir þetta
vera skoðunarvert. En það er ekk-
ert nánar sem hefur komið fram um
það … Hvað verður veit ég ekki … Það
er hins vegar ekki búið að taka neina
ákvörðun um það hvort þetta mál
verði rannsakað sérstaklega og þá
enn síður hvort ákært verði í því.“
DV greindi svo frá því í lok nóvem-
ber í fyrra að embætti ríkissaksóknara
hefði sent mál eignarhaldsfélagsins
Consensus til embættis sérstaks sak-
sóknara vegna rökstudds gruns um
lögbrot.
Eigandi Consensus var Kjartan
Broddi Bragason. DV reyndi ítrekað
að ná tali af Kjartani Brodda í fyrra
vegna málsins en án árangurs.
Gátu fengið meira lánað
Hugsanlegt er að tilgangur fjárfesting-
ar félagsins hafi verið sá að fara fram
hjá reglum fjármálamarkaðarins um
hámarkslánveitingar til einstakra að-
ila. Samkvæmt skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis var Glitnir búinn að
lána FL Group svo mikið að bankinn
gat ekki lánað félaginu meira vegna
þessara reglna um stórar áhættu-
skuldbindingar. Fjárfesting Consen-
sus, og annarra eignarhaldsfélaga,
í skuldabréfum FL Group gerði það
hins vegar að verkum að Glitnir gat
þar með lánað FL Group þá 12 millj-
arða sem félögin höfðu fjárfest fyr-
ir í skuldabréfum FL. Af þessum tólf
milljörðum keypti Consensus skulda-
bréf fyrir átta milljarða króna.
„Með því að fá viðskiptavini sína til
þess að gera framvirka kaupsamninga
um skuldabréf Glitnis var hægt að
lána FL Group þessa 12 milljarða þar
sem áhættan var formlega á félögun-
um sem gerðu framvirku samningana
við bankann,“ segir í skýrslunni.
Fjárfesting Consensus kom sér því
afar vel fyrir FL Group. Vegna hennar
gat félagið fengið frekari lán hjá Glitni.
Hugsanlegt er að Consensus-málið sé
rannsakað sem hluti af meintri mark-
aðsmisnotkun Glitnis og FL Group á
árunum fyrir íslenska efnahagshrun-
ið en Stím-málið svokallaða er annað
dæmi um slíka meinta misnotkun.
Hátt lán til eignalítils félags
Ályktunin sem rannsóknarnefndin
dregur af Consensus-málinu er sú að
ef áhættan af viðskiptunum hefði í
raun og veru ekki átt að hvíla á bank-
anum, líkt og ef lánin hefðu borist
til FL Group án þátttöku Consen-
sus og annarra félaga sem fjárfestu
í framvirkum skuldabréfum FL Gro-
up, hefðu þessi félög þurft að vera
nægilega sterk til að þola greiðslu-
fall FL Group. Þetta var ekki raun-
in með Consensus, þar sem félagið
var „skráð án eigna og með 117 þús-
und króna skuldir í lok árs 2007 sam-
kvæmt rekstrarframtali“, eins og segir
í skýrslunni. Sú staðreynd að ekkert
fékkst upp í þessar 13,5 milljarða
króna kröfur á hendur Consensus
þarf því ekki að koma á óvart. Áhætt-
an hvíldi því öll á bankanum hvort
sem er þar sem hann lánaði til við-
skiptanna með skuldabréfin.
Í skýrslunni snýst einn hluti gagn-
rýninnar á viðskipti Consensus með
skuldabréfin í FL Group um þessa
staðreynd: Félagið var eignalaust en
tók þátt í milljarða króna viðskiptum.
Þar er enn fremur rætt um hvern-
ig Consensus fjármagnaði eigin-
fjárframlag sitt í viðskiptunum með
skuldabréfin. Þetta var gert með víxli
frá Icebank upp á tæpar 600 milljónir
króna. Skiptastjóri Consensus segir
að Icebank hafi farið fram á að fé-
lagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta og
hafi gert næsthæstu kröfuna í búið á
eftir Glitni.
Vitnað er í útlánaskýrslu frá Ice-
bank í skýrslunni þar sem sýnt er
fram á þetta. Í útlánaskýrslunni
segir: „Lánið notaði Consensus til
að kaupa víxla útgefna af bankan-
um. Consensus lagði víxlana síðan
fram sem tryggingu vegna framvirks
samnings um kaup á skuldabréf-
um FL Group sem félagið gerði við
Glitni.“
Ályktunin sem rannsóknarnefnd-
in dregur af þessu er sú að Icebank
hafi fjármagnað eiginfjárframlag
Consensus í viðskiptunum. Þetta
þýðir að Icebank lánaði eignalausu
félagi 600 milljónir króna til að kaupa
skuldabréf FL Group. Ekki er greint
frá því í skýrslunni hvaða veð Con-
sensus lagði fram í viðskiptunum við
Icebank.
Þetta makalausa félag er nú orðið
gjaldþrota og verður tíminn að leiða
það í ljós hvort ákæruvaldið mun
aðhafast eitthvað vegna þeirra við-
skipta sem félagið stóð í fyrir hrun.
n Engar eignir á móti 13,5 milljarða skuldum n Fékk átta milljarða lán til
að kaupa skuldabréf FL Group n Málið endaði hjá sérstökum saksóknara
Huldufélag FL í
13 milljarða þrot
FL Group gat
fengið hærri lán
„Eins og kemur fram í kafla 8.7 hér á
undan hafði lánafyrirgreiðsla Glitnis til
FL Group og tengdra aðila vaxið verulega
fram á árið 2008 og átti bankinn erfitt
með að lána félaginu meira vegna reglna
um stórar áhættuskuldbindingar. Með
því að fá viðskiptavini til þess að gera
framvirka kaupsamninga um skuldabréf
Glitnis var hægt að lána FL Group þessa
12 milljarða þar sem áhættan var form-
lega á félögunum sem gerðu framvirku
samningana við bankann. Til þess að
áhættan væri hins vegar sannarlega ekki
Glitnis hefðu þessi félög þurft að vera
nógu sterk til þess að þola greiðslufall FL
Group.“ Um Consensus í 2. bindi skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
FL Group græddi FL Group, stærsti hluthafi Glitnis, græddi á viðskiptunum sem
Consensus átti í þar sem félagið gat fengið meira að láni frá Glitni vegna þeirra. Jón Ásgeir
Jóhannesson var stjórnarformaður og helsti eigandi FL Group. Dæmi í rannsóknarskýrslunni
sýna að Jón Ásgeir nánast handstýrði Glitni í gegnum stjórnendur bankans. Mynd biG
Ungmenni aðstoða ferðamenn í Reykjavík í sumar:
Lifandi vegvísar í miðborginni
Lifandi vegvísar aðstoða ferða-
menn og vísa þeim til vegar á götum
Reykjavíkur í sumar. Starfsmennirn-
ir, sem eru allir ungt fólk, hafa að-
setur á Höfuðborgarstofu og vinna
náið með Upplýsingamiðstöð ferða-
manna í Aðalstræti 2.
Hópurinn verður einnig með að-
setur í Laugardalnum en Reykja-
víkurborg og Farfuglaheimilið í
Reykjavík vinna saman að tilrauna-
verkefninu Grænt hringborð, en það
er upplýsingaborð þar sem ferða-
menn geta fengið upplýsingar um
umhverfisvæna ferðamáta og fleira.
DV fylgdi tveimur 18 ára veg-
vísum, Davíð Þór Katrínarsyni og
Sunn efu Gunnarsdóttur, við störf
þeirra um miðborgina. „Túristarnir
eru ekki mikið að því að koma upp
að manni og spyrja spurninga eins
og er. Það er um að gera að nálg-
ast þá á blíðlegan hátt og taka skýrt
fram að þetta sé ókeypis þjónusta og
að við séum ekki að selja neitt. Samt
eru ekki svo margir sem þurfa hjálp,
það eru ekki allir týndir,“ segir Dav-
íð. Sunnefa tekur undir það og seg-
ir að mjög margir haldi að þau rukki
fyrir þjónustuna. Jafnframt eru Dav-
íð og Sunnefa sammála um að þau
hafi hingað til lært að meta borgina
betur og tileinka sér umhverfisvæn-
an lífsstíl.
DV spjallaði við Drífu Magn-
úsdóttur, verkefnastjóra Upplýs-
ingamiðstöðvarinnar, um verk-
efnið. „Þessir lifandi vegvísar eru
á ferð um miðborgina með kort af
Reykjavík og eru merktir Upplýs-
ingamiðstöðinni. Þau leiðbeina
ferðamönnum, sem eiga leið sína
um miðbæinn, á þá staði sem
þeir leita eftir. Svo taka þeir á móti
ferðamönnum sem koma hér með
skemmtiferðaskipum, taka á móti
rútunum og fara niður á Miðbakka
þegar þar eru skip. Svo eru ýmis
önnur tilfallandi störf, svo sem að-
stoðarvinna á Upplýsingamiðstöð-
inni, dreifing á gestakortum og
ýmsu öðru.“
Ferðamenn Lifandi vegvísar aðstoða
ferðamenn í sumar.
Misnotaði 16 ára
ölvaðan dreng
Karlmaður hefur verið dæmdur í
9 mánaða fangelsi fyrir kynferðis-
lega áreitni gegn 16 ára unglings-
pilti. Maðurinn er fráskilinn tveggja
barna faðir og starfar sem stýrimað-
ur á dönsku flutningaskipi. Máls-
vörn mannsins var sú að hann hefði
haldið að pilturinn væri kona. Mað-
urinn var einnig sakfelldur fyrir að
gefa tveimur 16 ára piltum áfengi
þetta sama kvöld, þann 20. nóvem-
ber í fyrra.
Forsaga málsins er sú að piltur-
inn fór heim til mannsins ásamt vini
sínum þar sem þeir neyttu áfengis.
Vinurinn varð fljótlega mjög ölvaður
og fór heim til sín. Maðurinn og pilt-
urinn sátu áfram að drykkju. Piltur-
inn fór svo að sofa á heimili manns-
ins en vaknaði við það um hádegið
daginn eftir að maðurinn hafði af-
klætt hann og var að káfa á honum.
Pilturinn hélt því fram að maðurinn
hefði stungið fingri upp í endaþarm
sinn og fróað sér. Hann segir að sér
hafi liðið mjög illa eftir atvikið, hann
hafi viljað enda líf sitt. Hann hafi í
kjölfarið þurft að leita til sálfræðings
til að vinna úr sínum málum.
dótakassinn
opnaður
Dótakassinn, nýtt verkefni
sem ætlað er að virkja leikgleði
borgarbúa og fá þá til að nýta
Klambra tún í alls konar leiki í
sumar, var opnaður á þriðjudag.
Í dótakassanum er fullt af leik-
föngum og leiktækjum sem hægt
er að fá að láni endurgjaldslaust.
Verkefnið er á vegum Frístunda-
miðstöðvarinnar Kamps og
verður þannig að á þriðjudögum,
fimmtudögum og sunnudögum
verður hægt að fá leikföng lánuð,
endurgjaldslaust. Fólk skilar svo
leikföngunum til starfsmanna
Kamps að loknum leik.
Ný kynslóð
Rafskutlur
-frelsi og nýir möguleikar
Einfaldar í notkun og
hagkvæmar í rekstri
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18, lokað á laugardögum 1. maí til 31. ágúst