Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Qupperneq 6
6 | Fréttir 22. júní 2011 Miðvikudagur
Guðmundur á Núpum slapp við gjaldþrot:
Samdi við bankann
Guðmundur Birgisson fjárfestir,
kenndur við bæinn Núpa í Ölfusi,
náði samkomulagi við gamla
Landsbankann vegna skuldamála
sinna eftir að bankinn hafði knúið
hann í þrot í lok síðasta árs. Gjald-
þrotaúrskurðurinn var felldur nið-
ur þann 25. febrúar síðastliðinn eft-
ir að lögmaður Guðmundar, Lárus
Blöndal, hélt því fram að formgalli
hefði verið á málarekstrinum gegn
honum.
Málið var endurupptekið en
Guðmundur virðist hafa náð sam-
komulagi við Landsbankann þann-
ig að bankinn gekk ekki á eftir því
að hann yrði knúinn í þrot aftur
vegna skulda sinna við bankann.
Guðmundur á Núpum er því ekki
gjaldþrota. „Þeir náðu samkomu-
lagi, Guðmundur og bankinn,“ seg-
ir skiptastjórinn í þrotabúi Guð-
mundar, Smári Hilmarsson. Ekkert
varð því úr því að búið yrði gert upp
og að tekin yrði afstaða til kröfu-
lýsinga sem borist höfðu í búið.
Skiptalokin voru auglýst í Lögbirt-
ingablaðinu þann 20. júní síðast-
liðinn.
Guðmundur er meðal ann-
ars einn af hluthöfum jarða-
félagsins Lífsvals, stærsta
jarðaeiganda landsins, sem á
um 50 bújarðir víða um land.
Auk þess átti hann um tíma
hlut í MP Banka, verðbréfafyr-
irtækinu Virðingu, FL Group
og fleiri félögum. Guðmund-
ur er samt líklega þekktast-
ur fyrir að vera í forsvari fyrir
minningarsjóð frænku sinnar
Sonju Zorrilla en ekki er vitað
almennilega hvað varð um þá
fjármuni sem voru í sjóðnum.
Guðmundur á Núpum hefur nú
sótt um greiðsluaðlögun líkt og DV
hefur greint frá.
ingi@dv.is
Ekki gjaldþrota
Guðmundur á Núpum náði sam-
komulagi við gamla Landsbankann
og er því ekki gjaldþrota.
Capacent-nafnið:
Lögbanni
hafnað
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði á
þriðjudag kröfu GH1 ehf., sem áður
hét Capacent, um lögbann á notkun
nafnsins Capacent. Eins og kunn-
ugt er keypti félag í eigu starfsmanna
Capacent félagið í september í fyrra.
Með kaupunum fylgdi bæði rekstur
og vörumerki Capacent. Félaginu
hafði ekki tekist að semja við Ís-
landsbanka um lækkun á höfuðstóli
erlends láns sem tekið var árið 2007.
Því ákváðu starfsmenn að skipta um
kennitölu hjá fyrirtækinu í óþökk Ís-
landsbanka sem í kjölfarið lagði fram
kæru vegna meints kennitöluflakks.
Guðrún Helga Brynleifsdóttir,
skiptastjóri þrotabús GH1 ehf.,
kærði söluna á eignum félagsins til
efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra auk þess að fara fram á lög-
bann hjá sýslumanninum í Reykja-
vík á notkun Capacent-nafnsins.
Sýslumaður hafnaði þó kröfunni um
lögbann og í kjölfarið var farið með
málið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur
sem nú hefur einnig hafnað kröfu
um lögbann. Í samtali við DV segir
Guðrún Helga Brynleifsdóttir að
enn hafi ekki verið tekin ákvörðum
um það hvort úrskurði héraðsdóms
verði áfrýjað til Hæstaréttar.
as@dv.is
Fáir treysta
landlækni
26,7 prósent landsmanna segjast
bera lítið traust til Landlæknis-
embættisins, samkvæmt nýrri
könnun
MMR. Könn-
unin var
framkvæmd
dagana 9. til
15. júní og var
heildarfjöldi
svarenda 867
einstaklingar.
Af þeim
sem tóku afstöðu sögðust 32,3
prósent bera mikið traust til emb-
ættisins, 25 prósent sögðust bera
frekar mikið traust og 7,3 prósent
sögðust bera mjög mikið traust til
til embættisins.
„Það var ekkert skipulagt þann-
ig,“ segir Alma Geirdal, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Forma, sam-
taka átröskunarsjúklinga, aðspurð
hvort samtökin hafi haldið bókhald
eða gert fjárhagsáætlun. Eins og DV
greindi frá í síðustu viku styrktu fjöl-
mörg fyrirtæki starfsemi Forma þau
rúmu tvö ár sem samtökin voru virk.
Nú hafa verið teknar saman aðgengi-
legar upplýsingar um styrki til sam-
takana og voru þeir að lágmarki sam-
tals 9 milljónir króna. Þó má gera má
ráð fyrir að um mun hærri upphæð-
ir hafi verið að ræða enda gátu bæði
einstaklingar og fyrirtæki lagt frjáls
framlög að vild inn á reikning Forma.
Ráðgjafar ekki á launum
Þegar tekið var á móti styrkjum, í
fleiri en einu tilfelli, kom fram að
Forma hygðist nýta peningana í að
efla ráðgjafarstarfsemi sína um allt
land til að auðvelda átröskunarsjúk-
lingum að leita sér hjálpar. Þá átti
einnig að koma á fót skipulagðri for-
varnarfræðslu í áttunda bekk grunn-
skóla og í fyrsta bekk framhaldsskóla.
Aðspurð hvort samtökin hafi ráð-
ist í forvarnarfræðslu í skólum segir
Alma þeim ekki hafa tekist það. Öll-
um fyrirspurnum hafi þó verið sinnt.
Hvað ráðgjafarstarfsemina varðar
segir hún þær hafa verið með fjöl-
marga ráðgjafa á sínum snærum en
þeir hafi þó ekki fengið greidd laun.
Greiddu upp persónulegar
skuldir
Alma segir það hafa verið erfitt að
ætla að halda bókhald hjá Forma.
„Styrkirnir komu héðan og þaðan og
það var ekkert fyrsta árið. Þá vorum
við komnar í persónulegar skuldir
sem þurfti að greiða upp.“ Að sögn
Ölmu greiddu hún og Edda Ýrr Ein-
arsdóttir, stjórnarformaður Forma,
sér aðeins 80 þúsund krónur í laun
á mánuði eftir það. Í samtali við DV
í síðustu viku sagði Alma að mestur
hluti þess fjármagns sem Forma fékk
hefði farið í húsaleigu, í að greiða
fyrir auglýsingar og varning sem
samtökin létu útbúa fyrir sig og fór í
styrktarsölu. DV hafði aftur samband
við Ölmu til að bera undir hana millj-
ónastyrkina. „Við fórum líka utan og
kynntum okkur starfsemi og flutt-
um inn erlenda fyrirlesara. Við héld-
um þrjú málþing og það kostaði sitt,“
sagði Alma sem virtist hissa á því hve
háar upphæðir var um að ræða.
Sinntu ráðgjöf á kaffihúsum
Samkvæmt upplýsingum úr fyrir-
tækjaskrá hafði Forma aðsetur á
Klapparstíg 16 í Reykjavík. Alma stað-
festi það í samtali við DV að samtökin
hefðu leigt þar í fjóra mánuði, en það
var skömmu áður en þau lögðu upp
laupana í byrjun árs 2008. Hún segir
húsnæðið hafa verið rándýrt. Þegar
Forma hóf starfsemi höfðu samtök-
in aðsetur í Hinu húsinu en það var
einnig í skamman tíma. Samkvæmt
upplýsingum frá Hinu húsinu er leig-
an þar mun lægri en gengur og gerist á
almennum markaði. Á milli þess sem
Forma var í Hinu húsinu og á Klappar-
stíg fór starfsemin að mestu leyti fram
á kaffihúsum borgarinnar og í heima
hjá skólstæðingunum. Samkvæmt
þessu mun Forma því í mesta lagi hafa
greitt húsaleigu yfir árs tímabil og lága
leigu hluta af því tímabili.
n Forma fékk í það minnsta 9 milljónir króna í styrki á tveimur árum n Hvorki
fjárhagsáætlun né bókhald hjá samtökunum n Greiddu leigu í að mesta lagi ár
Átröskunarstyrkir
fóru upp í skuldir
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Styrkirnir komu hér
og þar og það var
ekkert fyrsta árið. Þá vor-
um við komnar í persónu-
legar skuldir sem þurfti
að greiða upp.
n Samfélagsverðlaun Frétta-
blaðsins, 1 milljón króna.
n Styrkur frá Sparisjóðnum vegna
styrktarátaks í geðheilbrigðis-
málum, 21 milljón króna sem rann
til átta félagasamtaka. Ætla má
að Forma hafi því fengið rúmar
2,6 milljónir króna. Í samtali við
DV sagði Alma þó að sig minnti að
styrkurinn hefði ekki verið nema
800 þúsund krónur.
n Styrkur frá heilbrigðisráðuneyti,
200 þúsund krónur.
n Styrkur frá Soroptimistaklúbbi
Grafarvogs,150 þúsund krónur.
n Andvirði sölu K-lykils Kiwanis-
hreyfingarinnar,14 milljónir króna,
runnu til BUGLs, Geðhjálpar og For-
ma. Ef styrknum var skipt í þrennt
má ætla að tæpar 4,7 milljónir
króna hafi runnið til Forma.
n Styrkur frá Kiwanisklúbbnum
Jörfa,100 þúsund krónur.
n Styrkur frá hvalaskoðunarfyrir-
tækinu Eldingu. Upphæðin liggur
ekki fyrir en á heimasíðu segir: „ Það
er stefna Eldingar að þeir styrkir
sem fyrirtækið veitir séu frekar
færri og stærri heldur en fleiri og
minni.“
n Tónleikar á Nasa undir yfirskrift-
inni Vaknaðu! Miðaverð á tónleik-
unum var 3.900 krónur. Ef miðað er
við að seldir hafi verið um 500 mið-
ar og allir listamennirnir hafi gefið
vinnu sína ætti ágóðinn að hafa
verið tæpar tvær milljónir króna. Á
tónleikunum voru jafnframt til sölu
bolir til styrktar samtökunum.
Styrkir til Forma árin 2006 og 2007
Milljónastyrkir Alma segir að hluti styrkjanna hafi farið í að greiða upp skuldir sem for-
svarsmenn Forma stofnuðu til vegna vinnu við samtökin. H&N-MyNd GuNNaR GuNNaRSSoN
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Grill í Múrbúðinni
– skoðaðu verðið!
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
GAS GRILL
4 ryðfríir brennarar og
hliðarplata. 14 kw/h.
48.000-BTU. Hitamælir.
Kveikja í stillihnapp.
Grillgrind er postulíns-
húðuð. 44x56 cm.
Extra sterk hjól v.gaskút.
Þrýstijafnari og
slöngur fylgja.
59.900kr.