Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Page 10
10 | Fréttir 22. júní 2011 Miðvikudagur
Stjórnendur Sparisjóðs Keflavík-
ur hundsuðu Fjármálaeftirlitið og
tilmæli þess í kjölfarið á skýrslu
eftirlitsins um sjóðinn í septem-
ber 2008. Þetta kemur fram í úttekt
PriceWaterhouseCoopers sem fyr-
irtækinu var falið að gera í júlí 2010.
Fyrirtækið vann úttektina fram í
apríl 2011 og afhenti Fjármálaeft-
irlitinu skýrsluna fyrir skömmu.
Skýrsla eftirlitsins er mjög harð-
orð í garð sjóðsins þar sem gerðar
eru á sjötta tug athugasemda við
stjórn sjóðsins. Virðist sem stjórn-
endur sparisjóðsins hafi að mörgu
leyti ekki sinnt tilmælum Fjármála-
eftirlitsins. „Virðist stjórn Spari-
sjóðs Keflavíkur ekki sinna eftirlits-
hlutverki sínu með rekstri sjóðsins
á fullnægjandi hátt,“ segir í skýrslu
Fjármálaeftirlitsins frá 2008 sem
DV hefur undir höndum. Í úttekt
sem PriceWaterhouseCoopers
gerði fyrir Fjármálaeftirlitið seg-
ir að ekki verði séð að eftirlitshlut-
verk stjórnar hafi aukist þrátt fyr-
ir alvarlega athugasemdir FME á
regluverki sjóðsins. Stjórn sjóðsins
hélt áfram að vera að mestu í hönd-
um Sparisjóðsstjórans Geirmunds
Kristinssonar, eða þangað til FME
skipaði tilsjónarmann inn í stjórn
sparisjóðsins í júní 2009.
Viðbrögð sparisjóðsins
Eftir að FME gagnrýndi stjórn SpKef
harkalega í skýrslunni í september
2008 réð sparisjóðurinn ráðgjafa
frá Deloitte til að koma með tillögur
að úrbótum og koma því í lag sem
gerðar höfðu verið athugasemd-
ir við af hálfu FME. Athugasemdir
voru meðal annars gerðar við veik-
leika í áhættustýringu, innri reglum
sjóðsins og eftirlitshluverki stjórnar
sparisjóðsins. Í framhaldinu voru
settar nýjar reglur um áhættustýr-
ingu innan sparisjóðsins, útlána-
reglur voru uppfærðar og þá voru
settar nýjar starfsreglur fyrir stjórn
og erindisbréf fyrir sparisjóðsstjóra.
Í erindisbréfinu koma fram skyldur
sparisjóðsstjóra. Eftir þessa vinnu
var ekki fjallað meira um skýrslu
Fjármálaeftirlitsins eða hverju
mætti breyta vegna skýrslunnar í
stjórn sjóðsins. „Þrátt fyrir framan-
greinda setningu reglna verður ekki
séð að eftirlitshlutverk stjórnar hafi
aukist þrátt fyrir mjög alvarlegar at-
hugasemdir frá hendi FME á reglu-
verk sjóðsins,“ segir í skýrslu PWC
sem bendir til þess að lítið hafi
breyst í innra eftirliti sjóðsins. Þor-
steinn Erlingsson var formaður
stjórnar sjóðsins þegar FME gerði
athugasemdirnar við stjórn sjóðs-
ins en auk hans skipuðu þeir Krist-
ján Gunnarsson, Heimir Ágústsson,
Birgir Þór Runólfsson og Björgvin
Sigurjónsson stjórn sjóðsins.
Eftirlitið veiktist eftir
tilmæli FME
Lánanefnd sparisjóðsins var gagn-
rýnd af FME árið 2008 fyrir að setja
sér ekki starfsreglur. Beint var til
sparisjóðsins að setja slíkar starfs-
reglur fyrir lánanefndina þar sem
kveðið væri á um heimildir, und-
irbúning ákvarðana og hvernig
ákvarðanir væru teknar. Útlána-
reglur sjóðsins voru óskýrar og var
óljóst hvaða reglur væru þar í gildi.
Í skýrslu PWC fyrir Fjármálaeftirlit-
ið er tekið dæmi um að eftirlit innan
sparisjóðsins hafi veikst í kjölfarið á
athugasemdum FME. Reglum um
lánanefnd var breytt í þá veru að
hlutverk hennar væri að taka ein-
ungis fyrir þau mál sem ekki voru
ákvörðuð af Geirmundi Kristinssyni
sparisjóðsstjóra. „Með þessu voru
rýmkaðar heimildir sparisjóðs-
stjóra með ákvörðun mála án sam-
ráðs,“ segir í skýrslu PWC um sjóð-
inn. Í skýrslu FME frá 2008 kemur
fram að ekki hafi verið sett sérstök
mörk á heimildir sparisjóðsstjóra.
Honum bar einungis að tilkynna
stjórn sjóðsins á næsta fundi um
skuldbindingar sem sparisjóðurinn
hefði gengist undir og farið hefðu
yfir 10 prósent af eigin fé hans.
Hlutverk stjórnarinnar
„Einnig ber að geta þess að stjórn
hefði átt að gera sér betur grein fyr-
ir hlutverki sínu og henni hefði mátt
vera ljóst að eftirlitshlutverki henn-
ar var augljóslega ábótavant að mati
FME,“ segir í skýrslu PWC um stjórn
SpKef. Þar segir að það hafi reynt á
ábyrgð stjórnar um eftirlit og fram-
kvæmd áhættugreiningar á starf-
semi sjóðsins í kjölfarið á banka-
hruninu haustið 2008. Ljóst þykir
að stjórnin hafi ekki verið að fá all-
ar þær upplýsingar sem hún að lág-
marki þurfti til að sinna hlutverki
sínu. FME hafði gagnrýnt stjórnina
harðlega í skýrslunni árið 2008 þar
sem sagt var að frumkvæði og eftir-
lit stjórnar væri í algjöru lágmarki.
Það virðist því ljóst að stjórn Spari-
sjóðsins breytti starfsháttum sínum
lítið í kjölfarið á athugasemdum
FME.
Geirmundur stjórnaði
Í skýrslu FME frá september 2008 er
gerð athugasemd við að Geirmund-
ur Kristinsson sparisjóðsstjóri hafi
haft stjórn sjóðsins að mestu í sín-
um höndum. Tekið var fram að
setja þyrfti sérstök mörk heimilda
sparisjóðsstjóra í útlánareglum
sparisjóðsins þegar í stað. Eins og
komið hefur fram virðist sem heim-
ildir Geirmundar hafi verið rýmk-
aðar eftir athugasemdir FME. Eftir
athugasemdirnar tók lánanefnd
sjóðsins einungis fyrir mál sem
ekki voru ákvörðuð af Geirmundi.
Þetta leiddi til aukinna heimilda
Geirmundar sem sparisjóðsstjóra.
„Sparisjóðurinn í Keflavík held-
ur sjó í því ölduróti sem íslenska
bankakerfið er í og engar meiri-
háttar breytingar eru fyrirhugaðar
á starfseminni,“ sagði Geirmundur í
október 2008 við Víkurfréttir. Þessi
ummæli hans styðja þær upplýs-
ingar sem koma fram í skýrslu PWC
sem benda til þess að litlar breyt-
ingar hafi orðið á starfsemi sjóðsins
þrátt fyrir alvarlegar og fjölmargar
athugasemdir Fjármálaeftirlitsins í
september 2008.
Saknæm athæfi
„Stutt getur verið á milli þess sem
augljóslega telst ekki til venjulegra
viðskiptahátta og þess sem hugs-
anlega gæti verið saknæmt,“ segir
í skýrslu PWC í ljósi þess að stjórn
og stjórnendur voru undir mikl-
um þrýstingi að sýna góða afkomu,
tryggja fjármögnun og halda uppi
virði sjóðsins. Þar segir einnig að
ákveðin hætta sé á því að stjórn-
endur hafi sniðgengið eigin reglur
og reglur sjóðsins við þær sérstöku
aðstæður sem upp komu í íslenska
bankakerfinu haustið 2008. Ljóst er
að það var ekki alltaf farið að lögum
innan Sparisjóðsins og dótturfélaga
hans því til að mynda kom í ljós við
skoðun PWC að gerðabók hafði ekki
verið haldin innan Víkur ehf., dótt-
urfélags Sparisjóðs Keflavíkur. Slíkt
á að gera samkvæmt lögum en þar
sem gerðabók var ekki fyrir hendi
gat PWC ekki rakið ákvarðanatöku
innan Víkur sem vörðuðu hags-
muni Sparisjóðsins.
„Þrátt fyrir framan
greinda setningu
reglna verður ekki séð að
eftirlitshlutverk stjórnar
hafi aukist þrátt fyrir
mjög alvarlegar athuga
semdir frá hendi FME á
regluverk sjóðsins.
Rannsókn á málefn
um sparisjóðanna
Alþingi samþykkti þingsályktunartil-
lögu 10. júní um að skipa þriggja manna
rannsóknarnefnd sem skal leita sann-
leikans um aðdraganda og orsök gjald-
þrots sparisjóðanna á Íslandi. Rann-
sóknarnefndin á samkvæmt tillögunni
meðal annars að meta starfshætti
sparisjóðanna á undanförnum árum
og skoða fjármögnun og útlánastefnu
þeirra. Nefndin skal leggja mat á hvort
um mistök eða vanrækslu hafi verið að
ræða og hverjir kunni að bera ábyrgð.
Samkvæmt tillögunni á nefndin að
skila forseta Alþingis skýrslu um rann-
sóknina eigi síðar en 1. júní 2012 ásamt
þeim samantektum og úttektum sem
nefndin ákveður að láta vinna í þágu
rannsóknarinnar.
Guðni Rúnar Gíslason
blaðamaður skrifar gudni@dv.is
Hundsaði
Fjármála-
eftirlitið
n Sparisjóðsstjórinn fékk
auknar heimildir þrátt fyrir
tilmæli FME um hið gagn-
stæða n Eftirlit innan
Sparisjóðs Keflavíkur
veiktist eftir alvarlega
skýrslu FME
Heimildir Geirmundar Kristins-
sonar til útlána jukust Þrátt fyrir
athugasemdir Fjármálaeftirlitsins
jukust heimildir sparisjóðsstjóra
til útlána að mati PWC.