Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Side 21
Kolbrún fæddist á Akranesi en ólst upp í Engihlíð í Laxárdal í Dölum. Hún var í Grunnskóla
Búðardals.
Kolbrún ólst upp við öll almenn
sveitastörf í Engihlíð, starfaði við
dvalarheimilið Silfurtún í Búðardal,
sinnti afgreiðslustörfum í versluninni
Dalakjör, starfaði á veitingastað í Kali-
forníu í Bandaríkjunum í eitt ár, starf-
aði hjá Ferskum kjötvörum í Reykja-
vík um skeið, sinnti verslunarstörfum
og fiskvinnslu í Ólafsvík, var síðan
landpóstur á árunum 2007–2011 en
er nú sölumaður hjá Sjávarkistunni í
Ólafsvík.
Kolbrún á hesta og sinnir hesta-
mennsku af kappi.
Fjölskylda
Maður Kolbrúnar er Víðir Haralds-
son, f. 1.3. 1981, sjómaður í Ólafsvík.
Dóttir Kolbrúnar frá því áður er
Alda Karen Antonsdóttir, f. 3.10. 1999.
Dóttir Kolbrúnar og Víðis er Mar-
ela Arín Víðisdóttir, f. 30.5. 2003.
Sonur Víðis frá því áður er Brynjar
Jökull Víðisson, f. 22.2. 2000.
Hálfsystkini Kolbrúnar, samfeðra,
eru Sigurður Ólafsson, f. 26.6. 1955,
rafvirki á Akureyri; Pálmi Ólafsson,
f. 24.10. 1956, húsasmíðameistari í
Kópavogi; Steinunn Lilja Ólafsdóttir,
f. 31.12. 1959, leikskólakennari í Nor-
egi; Páll Reynir Ólafsson, f. 17.2. 1964,
búsettur á Akureyri.
Hálfsystkini Kolbrúnar, sam-
mæðra, eru Harald Óskar Haralds-
son, f. 17.3. 1970, bóndi á Svarfhóli í
Laxárdal; Sigrún Herdís Þórðardóttir,
f. 2.10. 1974, leikskólakennari, búsett
á Kálfhóli í Flóa.
Foreldrar Kolbrúnar eru Valdís
Óskarsdóttir, f. 26.2. 1948, starfsmað-
ur við dvalarheimilið Fellsenda í Mið-
dölum, og Ólafur Árni Pálmason, f.
7.5. 1931, d. 11.5. 2001, bóndi í Engi-
hlíð í Laxárdal.
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21Miðvikudagur 22. júní 2011
Til hamingju!
Afmæli 22. júní
Til hamingju!
Afmæli 24. júní
30 ára
Kamila Monika Chmielewska
Starmýri 9, Neskaupstað
Natalija Harcenko Hraunbæ 72, Reykjavík
Ólafía Friðbjörnsdóttir
Fléttuvöllum 25, Hafnarfirði
Lingyun Yang Ármúla 5, Reykjavík
Logi Helgason Bjarkavöllum 5g, Hafnarfirði
Valur Adolf Úlfarsson
Álfkonuhvarfi 43, Kópavogi
Stefán Gestsson Fífurima 24, Reykjavík
Guðmundur Sveinn Bæringsson
Þorbergsstöðum, Búðardal
40 ára
Joao Paulo Filipe Cabrita
Jaðarsbraut 3, Akranesi
Kleopas Minelga Hringbraut 39, Reykjavík
Elfa Ágústsdóttir Gvendargeisla 110, Reykjavík
Sigurður Fáfnir Bjarnason
Dísaborgum 9, Reykjavík
Helgi Sigurður Einarsson
Norðurtúni 41, Egilsstöðum
Guðmundur Rúnar Kjartansson
Kirkjuvegi 40, Reykjanesbæ
Kristbjörg Ágústsdóttir
Brekkubyggð 56, Garðabæ
Hlynur Wium Finnbogason
Hnjúkabyggð 27, Blönduósi
Linda Björk Helgadóttir Rauðalæk 37, Reykjavík
Sigurveig Guðmundsdóttir
Efstahjalla 5, Kópavogi
Hafrún Lilja Víðisdóttir
Aðalgötu 21, Reykjanesbæ
Þorgeir Einar Sigurðsson
Búðavegi 50, Fáskrúðsfirði
Ríkharður Sveinn Bragason
Fagradal 10, Vogum
Sveinn Kristinn Hjálmarsson
Sólheimum 23, Reykjavík
50 ára
Bozena Modzelewska
Heiðarholti 14d, Reykjanesbæ
Jerry Deniega Villaespin
Brimnesvegi 12, Flateyri
Jacek Ociepski Melbrekku 8, Reyðarfirði
Helga Baldvina Ásgrímsdóttir
Hraunbæ 37, Hveragerði
Sigurlaug Eggertsdóttir
Maríubaugi 141, Reykjavík
Jóhannes Ágúst Stefánsson
Foldahrauni 42d, Vestmannaeyjum
Halldór Guðmundsson Víðibergi 1, Hafnarfirði
Ólafur Rúnar Ólafsson Laugartúni 2, Akureyri
Jón Gísli Þorkelsson
Vatnsendabletti 1a, Kópavogi
Ólöf Magnúsdóttir Reynilundi 7, Akureyri
Ólafur Örn Ólafsson Básbryggju 2, Reykjavík
Agnes Heiða Skúladóttir
Helgamagrastræti 22, Akureyri
Björn Vignir Björnsson Húnabraut 3, Blönduósi
Kristín Þorsteinsdóttir Veghúsum 17, Reykjavík
Friðþóra E. Þorvaldsdóttir
Hólabraut 2, Höfn í Hornafirði
60 ára
Margrét Sigurjónsdóttir Egilsgötu 10, Reykjavík
Edda Baldvinsdóttir Dvergaborgum 3, Reykjavík
Geir Þorsteinsson Stuðlaseli 17, Reykjavík
Sverrir B. Þorsteinsson Furuhjalla 10, Kópavogi
Þorkell Elí Guðmundsson
Logafold 123, Reykjavík
Karl Lúðvíksson Furulundi 10, Varmahlíð
Ingibjörg Hjartardóttir
Bollagörðum 39, Seltjarnarnesi
Sóley Ísaksdóttir Ægissíðu 25, Grenivík
Ásta G. Sigurðardóttir Reynigrund 38, Akranesi
70 ára
Guðlaug Elísa Kristinsdóttir
Suðurgötu 72, Hafnarfirði
Ólafur Ingólfsson Arnarhrauni 48, Hafnarfirði
Gunnar Þór Alfreðsson Sörlaskjóli 13, Reykjavík
75 ára
Guðríður Jónsdóttir
Vestur-Sámsstöðum 1, Hvolsvelli
Sólveig Guðmundsdóttir Litla-Hvammi 2, Vík
80 ára
Svanhvít Jónsdóttir Holtagötu 8, Akureyri
Svala Ásbjörnsdóttir Hjarðarhaga 46, Reykjavík
Ólafur Friðbjarnarson Heiðarbraut 3, Hnífsdal
Svava Benediktsdóttir Sunnuvegi 4, Þórshöfn
Garðar Gíslason Illugagötu 50, Vestmannaeyjum
Hjördís Þorgeirsdóttir Sléttuvegi 23, Reykjavík
Sjöfn Zophoníasdóttir Vesturbergi 19, Reykjavík
Sóley Jónsdóttir Hafnarstræti 63, Akureyri
85 ára
Jónatan Ágúst Ásvaldsson
Vesturgili 6, Akureyri
Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir
Álftamýri 56, Reykjavík
90 ára
Guðrún Jónsdóttir Garðsenda 15, Reykjavík
30 ára
Sergey Kuznetsov Flúðaseli 93, Reykjavík
Przemyslaw Jan Lemecha
Álfaskeiði 70, Hafnarfirði
Kristín Eiríksdóttir Strandvegi 23, Garðabæ
Guðný Dalbjörk Ingvadóttir
Bláargerði 59, Egilsstöðum
Sævar Sævarsson
Smáratúni 36, Reykjanesbæ
Guðni Butt Davíðsson Breiðuvík 24, Reykjavík
Hildur Tryggvadóttir Flóvenz
Hlégerði 19, Kópavogi
Ragnhildur Helga Thorsteinsson
Ásakór 15, Kópavogi
Anna Fjóla Helgadóttir
Þorláksgeisla 1, Reykjavík
Kristján Jón Jónatansson
Asparholti 5, Álftanesi
Guðmundur Arnar Grétarsson
Krókamýri 58, Garðabæ
Hrund Ólafsdóttir Smáratúni 7, Selfossi
40 ára
Evaldas Gruzdys Klapparstíg 18, Reykjavík
Jolanta Agnieszka Kozica
Engjaseli 52, Reykjavík
Stefan Christian Otte Rauðási 23, Reykjavík
Helena Rut Gestsdóttir Ástúni 2, Kópavogi
Jón Haukur Steingrímsson
Fróðaþingi 24, Kópavogi
Þorgerður Ásdís Viðarsdóttir
Heiðarhorni 13, Reykjanesbæ
Vilhjálmur Þorsteinsson
Flúðaseli 4, Reykjavík
Björn Víglundsson Kvistalandi 18, Reykjavík
Magnús Már Jónasson
Krókamýri 38, Garðabæ
Emil Þór Emilsson Ölduslóð 42, Hafnarfirði
Sturla Sigmundsson Ægisbyggð 10, Ólafsfirði
Ljósbrá H. Baldursdóttir
Jakaseli 5a, Reykjavík
Sigríður Erna Guðmundsdóttir
Álftamýri 10, Reykjavík
Víðir Pálsson Miðgarði 2, Neskaupstað
Edward Þórhallur Jeans
Grýtubakka 20, Reykjavík
50 ára
Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir
Þingholtsstræti 15, Reykjavík
Olena María Gústafsdóttir
Logafold 190, Reykjavík
Jón Víkingur Hálfdánarson
Fjóluvöllum 2, Hafnarfirði
Guðni Arinbjarnar Fákahvarfi 13, Kópavogi
Ásrún Ingvadóttir Hringtúni 2, Dalvík
Elísabet Sigríður Ólafsdóttir
Suðurbraut 22, Hafnarfirði
Bjarni Hákonarson Hvammsgerði 6, Reykjavík
Alma Dagbjört Möller Krossalind 4, Kópavogi
Heimir Örn Friðvinsson
Vestursíðu 32, Akureyri
Friðrik Ingi Ágústsson
Stóru-Drageyri Felli, Borgarnesi
Birgitta Baldursdóttir Engjavegi 19, Ísafirði
Lene Zachariassen Kambhóli, Akureyri
60 ára
Ingvar G Snæbjörnsson
Erluási 64, Hafnarfirði
Ólafía Guðfinna Pálsdóttir
Sólarsölum 5, Kópavogi
Hreinn Grétarsson Ránargötu 31, Akureyri
Anna Grímsdóttir Silungakvísl 5, Reykjavík
70 ára
Stefán Þorsteinsson Brekkugötu 25, Akureyri
Víglundur Þorsteinsson Sóltúni 12, Reykjavík
Gunnhildur Höskuldsdóttir
Helluvaði 7, Reykjavík
Ásta Lillý Benedikts Öldugötu 7, Reykjavík
Hjördís Jónsdóttir Ásvegi 13, Dalvík
75 ára
Bragi Jóhannsson
Skagfirðingabraut 39, Sauðárkróki
Lúðvík Guðmundsson
Suðurgötu 8, Reykjanesbæ
Sonja Símonardóttir Suðurbraut 3, Kópavogi
Pétur M. Bjarnarson Grænahjalla 27, Kópavogi
80 ára
Sesselja Ada Kjærnested Sóltúni 51, Selfossi
Sigrún Tryggvína Jónsdóttir
Bjarmalandi 21, Reykjavík
Ingunn Björgvinsdóttir
Safamýri 46, Reykjavík
Erlendur Halldórsson Stóragerði 8, Reykjavík
85 ára
Grímur Jónsson Sléttuvegi 19, Reykjavík
Jóel Bachmann Jóelsson
Sunnubraut 3, Reykjanesbæ
90 ára
Katrín H. Thorstensen Gullsmára 10, Kópavogi
95 ára
Geir Reynir Tómasson Hávallagötu 45,
Reykjavík
Bolli fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík, var
skiptinemi við japanskan mennta-
skóla í Fukushima í einn vetur, lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 2002, stundaði nám í iðn-
aðar- og vélaverkfræði við Háskóla Ís-
lands, lauk þaðan verkfræðiprófi 2007
og hefur stundað MA-nám í fjármál-
um við Waseda University í Tokyo frá
2008 með styrk frá japanska mennta-
málaráðuneytinu. Hann er nú að
ljúka MA-ritgerð.
Bolli var Questor Scholae og In-
spector Sholae í Menntaskólanum í
Reykjavík, var formaður Heimdallar
2004–2006, sat í stjórn SUS á sama
tíma, í stjórn og gjaldkeri Vöku 2003
og í stjórn Varðar 2004–2006, var vara-
borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
í Reykjavík 2006–2010, var formaður
Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavík-
urborgar, sat í Menntaráði og í fram-
kvæmdaráði Reykjavíkurborgar.
Bolli var fangavörður á Litla-
Hrauni 2007, starfaði fyrir Sigurð Óla
Ólafsson, forstjóra Actavis, í Japan
frá 2007 og átti þá stóran þátt í því að
koma fyrirtækinu inn á japanskan
markað. Þá starfaði hann í hlutastarfi
í íslenska sendiráðinu í Japan.
Bolli starfrækir nú eigið ráðgjafa-
fyrirtæki, Takanawa, í Japan og á Ís-
landi.
Fjölskylda
Hálfbróðir Bolla, sammæðra, er Björn
Á. Pétursson, f. 29.6. 1968, verkfræð-
ingur í Reykjavík.
Hálfsystkini Bolla, samfeðra, eru
Jón F. Thoroddsen, f. 23.4. 1971, hag-
fræðingur í Reykjavík; Halldís Thor-
oddsen, f. 28.9. 1989, nemi við Há-
skóla Íslands.
Foreldrar Bolla eru Skúli Thorodd-
sen, f. 5.8. 1949, lögmaður í Keflavík
og fyrrv. framkvæmdastjóri Starfs-
greinasambands Íslands, og Margrét
Björnsdóttir, f. 1.7. 1948, aðjunkt við
Háskóla Íslands og formaður fram-
kvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.
Ætt
Skúli er sonur Bolla Skúlasonar Thor-
oddsen, borgarverkfræðings í Reykja-
vík, bróður Sigurðar verkfræðings,
föður Dags Sigurðarsonar skálds, og
afa Katrínar Jakobsdóttur mennta-
málaráðherra. Meðal annarra systk-
ina Bolla voru Katrín, læknir og alþm.,
Skúli, lögfræðingur og alþm, Guð-
mundur læknaprófessor og Unnur,
móðir Skúla Halldórssonar tónskálds,
föður Magnúsar arkitekts. Bolli var
sonur Skúla, alþm. og ritstjóra á Ísa-
firði, bróður Þorvalds náttúrufræð-
ings, Sigurðar landsverkfræðings,
föður Gunnars Thoroddsen forsæt-
isráðherra, og bróðir Þórðar, lækn-
is og alþm., föður Emils tónskálds.
Skúli var sonur Jóns, skálds og sýslu-
manns á Leirá Thoroddsen, og Krist-
ínar Ólínu Þorvaldsdóttur, umboðs-
manns í Hrappsey, Sívertssen. Móðir
Bolla borgarverkfræðings var Theo-
dóra Thoroddsen skáldkona, systir
Ásthildar, móður Muggs myndlist-
armanns og Katrínar, móður Péturs
Thorsteinsson sendiherra. Theodóra
var dóttir Guðmundar, prófasts á
Breiðabólstað Einarssonar, bróður
Þóru, móður Matthíasar Jochums-
sonar skálds.
Móðir Skúla lögmanns var Una,
dóttir Kristjáns Jóhannessonar, skip-
stjóra á Sveinseyri við Dýrafjörð, og
Ólafar Guðmundu Guðmundsdóttur
húsfreyju, síðar á Arnarnúpi í Dýra-
firði.
Margrét er dóttir Þórðar, verslun-
arfulltrúa, bróður Kristjáns, ritstjóra
Varðar og rithöfundar sem skrif-
aði ritdóminn fræga um Vefarann
mikla frá Kasmír. Þórður var sonur
Alberts, aðalbókara Landsbanka Ís-
lands, bróður Matthíasar þjóðminja-
varðar og Ágústs Flygenring, afa Páls
Flygenring ráðuneytisstjóra. Albert
var sonur Þórðar, b. á Fiskilæk Sig-
urðssonar. Móðir Alberts var Sigríð-
ur, systir Þórðar, föður Björns for-
sætisráðherra, föður Þórðar, fyrrv.
ríkissaksóknara. Systir Sigríðar var
Guðrún, kona Matthíasar Jochums-
sonar skálds, langamma Ragnars
Arnalds, fyrrv. formanns Heims-
sýnar. Sigríður var dóttir Runólfs, b.
í Saurbæ á Kjalarnesi Þórðarsonar.
Móðir Sigríðar var Halldóra Ólafs-
dóttir, b. á Blikastöðum, bróður Ragn-
heiðar, langömmu Guðlaugar, ömmu
Péturs Sigurgeirssonar biskups. Ólaf-
ur var sonur Guðmundar, litara og b.
í Leirvogstungu Sæmundssonar, b.
á Kjarlaksstöðum Þórðarsonar, pró-
fasts á Staðastað Jónssonar, biskups
á Hólum Vigfússonar, langafa Sig-
ríðar, ömmu Bjarna Thorarensen
skálds. Jón var einnig langafi Önnu,
langömmu Jónasar Hallgrímssonar
skálds, og Einars, afa Einars Bene-
diktssonar skálds. Móðir Ólafs var
Guðrún, systir Bjarna, langafa Jóns,
afa Jóhannesar Nordal, föður Ólafar,
alþm. og varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins. Guðrún var dóttir Halldórs,
b. í Skildinganesi Jónssonar, b. á Arn-
arhóli, Tómassonar, ættföður Arnar-
hólsættar í Reykjavík Bergsteinsson-
ar. Móðir Þórðar verslunarfulltrúa
var Steinunn, systir Margrétar Þor-
bjargar, eiginkonu Thors Jensen og
móður Ólafs Thors forsætisráðherra
og Thors Thors sendiherra. Steinunn
var dóttir Kristjáns, b. í Hraunhöfn
Sigurðssonar, b. á Elliða Jónssonar, b.
í Böðvarsholti Pálssonar, b. í Bláfeldi
Magnússonar, bróður Halldórs, lang-
afa Guðnýjar, langömmu Valtýs Guð-
mundssonar. Móðir Steinunnar var
Steinunn Jónsdóttir, b. í Bergsholti í
Staðarsveit Sveinssonar. Móðir Jóns
var Vigdís Ólafsdóttir, lrm. á Lund-
um í Borgarfirði Jónssonar, langafa
Ólafs, langafa Bjarna Benediktsson-
ar forsætisráðherra, föður Björns,
fyrrv. ráðherra og Valgerðar alþm., en
bróðir Bjarna var Sveinn, afi Bjarna
Benediktssonar, alþm. og formanns
Sjálfstæðisflokksins. Ólafur var einn-
ig langafi Eiríks, langafa Þorsteins frá
Hamri. Móðir Steinunnar Jónsdóttur
var Þorbjörg Guðmundsdóttir, pró-
fasts á Staðastað Jónssonar og Mar-
grétar Pálsdóttur, systur Gríms, lang-
afa Ásgeirs Ásgeirssonar forseta.
Móðir Margrétar var Guðrún, að-
stoðarmaður tannlæknis, búsett í
Bandaríkjunum, dóttir Ársæls, skip-
stjóra í Ólafsvík Þorsteinssonar.
Bolli er í Japan um þessar mundir.
Bolli Thoroddsen
verkfræðingur
Kolbrún Þóra Ólafsdóttir
sölumaður hjá Sjávarkistunni í Ólafsvík
30 ára á miðvikudag
30 ára á miðvikudag