Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Síða 11
Fréttir 11Miðvikudagur 11. janúar 2012 „Ég vildi bara að mér liði betur“ n Konur líða kvalir fyrir breytt brjóst n Með óútskýrð sár á brjóstum n 57 konur ætla að kæra lýtalækni þess efnis en hann hefur ekki svar- að þeim. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig mér líður að vera með þetta í brjóstunum. Þetta er ekki ætlað fólki, þetta er ætlað í iðnað. Ég vil ekki hafa þetta í mér.“ Brjóstaaðgerðin „mikill sigur“ „Ég vil því að þetta verði tekið strax og fá nýja púða því þetta er ekki það sem ég borgaði fyrir,“ seg- ir hún. „Að mínu mati hefur þessi læknir kom- ið svoleið- is aftan að mér að ég get ekki líst vonbrigðun- um. Þetta er hræðileg tilfinning, al- veg hræðileg.“ Þær eru báðar sammála um það. „Þetta eru vörusvik,“ segir sú eldri. „Ég sætti mig yfirleitt við hlutina eins og þeir eru. En ég er alls ekki til- búin til að sætta mig við það að vera með þessa púða í brjóstunum eða borga fyrir nýja púða. Mér finnst að hann eigi að taka púðana úr mér og setja nýja í mér að kostnaðarlausu.“ Það var ekki að ástæðulausu sem hún fór í aðgerðina. „Ég var með manni í tólf ár en fór aldrei úr að ofan fyrir hann. Ég var sjúklega spéhrædd. Samt þótti honum bara vænt um mig eins og ég var. Það hafði ekkert með það að gera.“ Hún hefur alltaf verið með þung brjóst og þau voru orðin slöpp svo hún ákvað að láta lyfta þeim. „Ég hefði alveg getað látið lyfta brjóst- unum og sleppt púðunum en þeir voru til þess hugsaðir að brjóstin færu ekki að slappast niður aftur. Þetta var stórt skref fyrir mig og mik- ill sigur.“ Konur skildar eftir hræddar Guðbjartur Hannesson vel- ferðarráðherra kynnti á þriðju- daginn að ís- lenska ríkið taki eingöngu þátt í kostnaði við að fjarlægja PIP- brjóstapúða ef í ljós kemur að þeir leka. Allar þær 440 konur sem fengið hafa slíka púða munu fá bréf á næstu dögum þar sem þeim verður boðið að koma í ómskoðun þeim að kostn- aðarlausu til að kanna ástanda púð- anna. „Hvað á að gera við hinar?“ spyr Saga Ýrr, lögmaður hóps kvenna sem hefur púðana. „Bíða þangað til silíkon- ið er farið að leka og sjá hver skaðinn verður þá?“ Saga bendir á að álit manna á því hvort það sjáist í ómskoðun hvort púð- arnir séu farnir að leka eða ekki sé misjafnt. Sérstaklega ef um lítinn leka sé að ræða. Þetta sé því allt of mikil áhætta sem yfirvöld taki. Anna Lóa Aradóttir var með PIP- brjóstapúða sem hún lét fjarlægja því hana grunaði að þeir væru farnir að leka. Hún lýsti reynslu sinni í Kast- ljósi á mánudagskvöld, en hún tengir veikindi sín og sonar síns, sem hún var með á brjósti, við púðana. Læknirinn sem skoðaði hana áður en púðarnir voru fjarlægðir sá eng- in merki þess að púðarnir væru farn- ir að leka. Hann sagði allt hafa litið vel út. Í ljós kom, þegar púðarnir voru teknir úr, að þeir voru mjög illa farnir og láku á mörgum stöðum. Anna Lóa sendi kanadískum lækni púðana til rannsóknar og telur hann að þeir hafi byrjað að leka á árunum 2003 til 2005. Af sögu hennar að dæma má því ætla að ekki sé hægt að sjá það í ómskoðun hvort púðarnir leki. Áætlaður kostnaður við að fjar- lægja púðana er um 200 þúsund krónur og mun ríkið standa straum af kostnaðinum að undanskildu komu- , skoðunar-, og aðgerðargjaldi. Upp- hæðin sem fellur á konurnar sjálfar nemur 29.500 krónum. Eingöngu er um að ræða kostnað við að fjarlægja púðana. Ef konurnar vilja nýja púða í brjóstin þurfa þær að standa straum af þeim kostnaði sjálfar, að sögn Sögu. Ráðuneytið áætlar að fjarlægja þurfi púða hjá fjórum til þrjátíu kon- um. Saga telur það allt of lága tölu. „Að skilja konur eftir hræddar, mér finnst það skelfileg ákvarðana- taka. Konur eru virkilega hrædd- ar vegna þessa og líður mjög illa að hafa þessa tegund af púðum í brjóst- unum á sér.“ Enn má því búast við málsóknum.n Þ essi fegurðarfirring sem við búum við í dag, hið fullkomna útlit kvenna sem felur í sér að vera mjög grönn en samt með stór brjóst, það er í rauninni útlit sem mjög fáar konur hafa frá náttúrunnar hendi. Yfirleitt, ef konur er grannar, þá eru þær með minni brjóst en þær sem eru þéttari,“ segir Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur. Fegrunaraðgerðir hafa almennt farið vaxandi bæði á Íslandi og erlendis, að hennar sögn, og má rekja það til þrýstings frá samfélaginu um að fylgja fegurðarstöðlum „Núna þykir mun sjálfsagðara að kornungar stelpur fari í brjóstastækkun þegar þær eru kannski 18 til 19 ára og eru ennþá með táningslegan vöxt.“ Sigrún segir að fegurðarímynd kvenna sé þannig í dag að fullkomlega óraunhæft sé að reyna að standa undir henni með eðlilegum hætti. Þær þurfi því að leggjast undir hnífinn. Að hennar mati eru fjölmiðlar og al- menningur samsekur um að viðhalda vandanum og neita að víkka út sjón- deildarhringinn hvað fegurð snertir. „Með þessum óraunhæfu fegurðar- viðmiðum er alið á óánægju flestra venjulegra kvenna með eigið útlit því það er mjög fjarri því sem telst full- komið samkvæmt ríkjandi viðmiðum,“ segir Sigrún og bendir á að oft sé talað um að fegrunaraðgerðir séu jákvæðar því þær styrki sjálfsmynd kvenna. Þau rök séu síðan notuð til að styrkja öfga- fullar aðferðir. Á síðunni lytalaeknir.is sem Guð- mundur Már Stefánsson og Ólafur Einarsson lýtalæknar eru skráðir fyrir er einmitt sérstaklega tekið fram að brjóstastækkun geti bætt útlit og sjálfstraust. Slík aðgerð uppfylli þó ekki væntingar um hið fullkomna útlit. „Maður hlýtur að spyrja sig hvenær kona ætlar að byrja að sætta sig við útlit sitt því útlit okkar er alltaf að breytast.“ Hún bendir á að þó að kona sé ánægð með útlit sitt þegar hún er tvítug breytist útlitið með aldrinum, barneignum og fleiru. „Við getum ekki tekist á við hvert skref sem útlit okkar tekur í burtu frá þessari staðalímynd um kvenlega fegurð með því að leggjast undir hnífinn. Hvar endar það? Það endar bara í einhverjum lýtaaðgerða- skrímslum.“ Alið á ónægju kvenna með útlitið: Búum við fegurðarfirringu Fegurðarfirring Sigrún Daníelsdóttir segir það mun sjálfsagðara en áður að kornungar stelpur sem enn eru með tán- ingslegan vöxt fari í brjóstastækkun. „Ég var með manni í tólf ár en fór aldrei úr að ofan fyrir hann Mismunandi Brjóst eru jafn mismunandi og þau eru mörg, en margar konur fara í brjóstastækkun í tilraun til að bæta sjálfstraust sitt. Talað er um að fegurðarímynd kvenna sé þannig í dag að fullkomlega óraunhæft sé að standa undir henni með eðlilegum hætti. Konur þurfa því að leggjast undir hnífinn til að standast kröfur samfélagsins um hvernig þær eiga að líta út. Lítil brjóst „Ég er 24 ára og er á móti þeirri hugmynd að fólk láti framkvæma skurðaðgerðir á sér til að passa inn í einhverja staðlaða ímynd. Ég er ánægð með minn heilbrigða líkama, og það er mikilvægast af öllu.“ Stór brjóst „Ég er 21 árs. Brjóstin á mér hanga svolítið því þau eru stór. En það er í lagi, svo lengi sem það er innan eðlilegra marka.“ „Stökkpallurinn“ „Ég er 23 ára og er ánægð með það hvernig brjóstin á mér líta út, jafnvel þó mér hafi ekki líkað þau þegar ég var yngri. Annað brjóstið er stærra en hitt og hangir meira niður. En maður tekur varla eftir því.“ Lafandi brjóst „Ég er 39 ára og hef alltaf verið of þung, án þess að glíma við offitu. Ég hef aldrei sýnt á mér brjóstin á almannafæri, ekki einu sinni í sundi.“ Framstæð brjóst „Ég er 23 ára og hef aldrei verið ánægð með brjóstin mín. Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að þau væru undarleg í laginu. Vegna þess hef ég haft lítið sjálfstraust.“ „Forvitin“ brjóst „Ég hef alltaf verið svolítið grönn. Ég tek getnaðarvarnar- pilluna og með því vonast ég til þess að brjóstin mín stækki.“ Niðurvísandi brjóst „Ég er 22 ára. Brjóstin mín byrjuðu að stækka þegar ég var 11 ára gömul og brjóstin hafa hangið niður allar götur síðan.“ „Fullkomin“ brjóst „Ég er að læra að verða ljós- móðir en hef aldrei átt börn eða orðið ólétt. En þegar það gerist munu börnin mín fá næringu úr þessum brjóstum. Ég legg til að sams konar síða verði stofnuð um sköp kvenna. Margar konur skammast sín fyrir píkuna sína.“ Alls konar brjóst eru eðlileg Á vefsíðunni 007b.com er að finna mikið magn mynda af venjulegum brjóstum. Markmið síðunnar er að berjast gegn staðalímyndum með því að sýna fram á hve ólík brjóst geta verið. Þau séu til þess að gefa börnum næringu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.