Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Síða 21
Sport 21Miðvikudagur 11. janúar 2012
Horfir til
Abidal
Arsene Wenger, knattspyrnu
stjóri Arsenal, ætlar sér að
landa franska vinstri bak
verðinum Eric Abidal í sum
ar samkvæmt spænskum
miðlum en samningur bak
varðarins rennur út í sumar.
Liverpool er einnig sagt hafa
áhuga á þessum sterka bak
verði en franska tengingin
við Wenger gæti ráðið för
Abidals. Það er þó ekki loku
fyrir það skotið að Arsenal
klófesti Aly Cissohco, bak
vörð Lyon, í janúarmánuði
og þá mun Liverpool standa
eitt í eltingarleiknum við
Abidal.
Fékk áritaða
treyju hjá
Balotelli
David Beckham bað Mario
Balotelli, framherja Man
chester City, um áritaða
treyju eftir bikarleik Man
chesterliðanna síðastlið
inn sunnudag. Treyjan var
þó ekki fyrir hann sjálfan
heldur elsta soninn, Brook
lyn, sem er víst duglegur að
safna treyjum frægra knatt
spyrnukappa. Balotelli var
ekki lengi að árita treyjuna
og rétta Beckham hana þrátt
fyrir að David sé goðsögn í
lifanda lífi hjá Manchester
United, nágrönnum City.
Kranjcar
fer ekkert
Króatíski landsliðsmaður
inn Niko Kranjcar ætlar
ekki að yfirgefa Tottenham í
janúar þrátt fyrir lítinn spil
tíma. Það er mikilvægt fyrir
Kranjcar að fá að spila þar
sem hann er að berjast um
sæti í hóp Króatíu á EM í
sumar en hann ætlar sér að
taka slaginn hjá Tottenham
og vinna sér inn sæti. „Ég
veit ekki hvað framtíðin ber
í skauti sér, en það eina sem
ég veit er að næstu mánuði
verð ég áfram hjá Totten
ham. Vonandi kemst ég í gott
form og á gott ár,“ segir Niko
Kranjcar.
Þ
að eru aðeins fimm
dagar í að Evrópumót
ið í handbolta hefjist
í Serbíu en þar verða
strákarnir okkar í riðli
með Króatíu, Slóveníu og Nor
egi. Undirbúningur er á loka
stigi en síðasti æfingaleikur
inn verður gegn Finnlandi í
Laugardalshöll á föstudaginn
og vonast Guðmundur Þórð
ur Guðmundsson landsliðs
þjálfari eftir góðri mætingu svo
strákarnir geti tekið með sér ís
lenska stemningu til Serbíu. Ís
land lenti í öðru sæti á undir
búningsmóti í Danmörku um
síðastliðna helgi þar sem liðið
gerði jafntefli við Pólland, vann
Slóvena og tapaði fyrir Dönum
í úrslitaleik. Guðmundur seg
ir hópinn í fínu ástandi þrátt
fyrir smávægileg meiðsli en
hann blæs á þá mýtu að Róbert
Gunnarsson sé ekki í leikformi.
Snorri kemur
á fimmtudaginn
„Við erum með nokkra menn
í hvíld fram á morgundaginn
[miðvikudaginn], bæði vegna
þreytu og meiðsla,“ segir Guð
mundur en þeir Guðjón Val
ur Sigurðsson og Ingimund
ur Ingimundarson eiga við
smávægileg meiðsli að stríða.
„Guðjón Valur fékk tak í lærið
og spilaði því ekki síðasta leik
inn gegn Dönum. Ingimundur
hefur verið að glíma við eymsli
í nára sem stífnaði upp eftir
leikinn gegn Slóvenum. Hann
spilaði því heldur ekki gegn
Dönum. Svo er Alexander bara
þreyttur og fær hvíld vegna
þess,“ segir Guðmundur.
Góðu tíðindin eru þó þau
að leikstjórnandi liðsins, Snorri
Steinn Guðjónsson, kemur til
móts við liðið á fimmtudaginn
og verður með á EM. Þátttaka
hans hafði verið í uppnámi þar
sem hann var að bíða eftir að
kona sín eignaðist barn. Barnið
er nú komið í heiminn og mun
Snorri stýra sóknarleik liðsins.
„Það er auðvitað ekki gott þeg
ar lykilmaður er ekki til stað
ar en það var bara ekkert við
því að gera,“ segir Guðmundur
um fjarveru Snorra á æfinga
mótinu í Danmörku. Það er þó
huggun harmi gegn að Snorri
þarf ekki að læra fræðin upp
á nýtt þegar hann snýr aftur.
„Nei, nei. Hann er með þetta.
Það er enginn vafi á því,“ segir
Guðmundur.
Fækka brottvísunum
„Varnarleikurinn var yfirleitt
nokkuð góður og hraðaupp
hlaupin að virka vel, allavega
í fyrstu tveimur leikjunum,“
svarar Guðmundur aðspurð
ur hvað hann hafi séð gott hjá
íslenska liðinu í Danmörku.
„Sóknarleikurinn batnaði eftir
því sem á leið mótið. Hann var
bestur á móti Dönum. Hann
var ekkert sérstakur í sigur
leiknum gegn Slóvenum. Þar
skoruðum við mikið úr hröð
um upphlaupum og hornum.
Sóknarleikurinn var ansi kafla
skiptur,“ segir Guðmundur sem
var einnig ánægður með varn
arleikinn.
Hann var þó ekki ánægður
með tæknilegu mistökin sem
liðið var að gera, sérstaklega í
fyrsta leiknum gegn Pólverjum.
„Það var alltof mikið af þeim
í fyrri hálfleik á móti Pólverj
um. Bæði sendingarfeilum og
sóknarbrotum. Þetta var eigin
lega orðið absúrd. Svo kom líka
kafli í leiknum þar sem við vor
um að troða boltanum of mik
ið inn á línuna of snemma. Svo
var ég ekki nægilega ánægður
með nokkra af þeim tveggja
mínútna brottvísunum sem við
vorum að fá. Menn verða átta
sig betur á hvernig dómararn
ir eru að dæma. Gegn Dönum
fengum við þrjár óþarfa brott
vísanir og það gengur ekki.
Þetta kostar alltof mikið í leikj
um,“ segir Guðmundur.
Róbert spilar mikið
Línumaðurinn Róbert Gunn
arsson fór á kostum á móti
Dönum og skoraði sex mörk.
„Hann var frábær og er í mjög
góðri leikæfingu. Hann hefur
verið að spila mjög mikið með
RheinNeckar Löwen þó ein
hvern veginn hafi það orðið að
einhverri mýtu að hann sé ekki
að spila mikið og sé ekki í leik
æfingu,“ segir Guðmundur sem
er einnig þjálfari þýska liðsins
RheinNeckar Löwen. „Hann
er að spila mjög mikið. Af þeim
34 leikjum sem búnir eru hef
ur hann spilað allan tímann í
25 leikjum og helming leiktím
ans í hinum leikjunum þann
ig hann er í hörkuformi. Það
bara stemmir ekki sem mönn
um finnst – að hann sé að spila
lítið,“ segir Guðmundur ákveð
inn.
Ásgeir Örn Hallgrímsson fór
líkt og Róbert á kostum gegn
Dönum og skoraði sjö mörk
er hann leysti Alexander Pet
ersson af. Þá kom Kári Krist
ján Kristjánsson einnig sterk
ur inn gegn Pólverjum í fyrsta
leik. „Ásgeir var frábær gegn
Dönum og Kári var mjög góð
ur í síðari hálfleik gegn Pólverj
um,“ segir Guðmundur sem
sér mun á Kára eftir að hann
fór að spila reglulega í Þýska
landi. „Hann hefur þroskast
mikið sem leikmaður og var að
spila vel núna,“ segir þjálfarinn
og nýtti einnig tækifærið til að
hrósa Þóri Ólafssyni.
Óhjákvæmilegt að
spila við liðin í riðlinum
Það kom kannski sumum
spánskt fyrir sjónir að Ísland
spilaði gegn Slóvenum á æf
ingamótinu í Danmörku en
þeir eru einmitt einir af mót
herjum Íslands í riðlinum.
Guðmundur segir óhjákvæmi
legt að komast framhjá slíku
og það hafi bæði kosti og galla.
„Það eru allir að spila á móti
öllum. Danir spiluðu þarna
við Pólverja en þeir eru sam
an í riðli. Þessi mót eru ákveð
in með margra mánaða fyrir
vara þannig ef við ætluðum
okkur eitthvað bíða eftir mót
um þar sem hugsanlega væru
engir mótherjar okkar á stór
mótum værum við bara heima
á skerinu að spila við pressulið
ið. Þetta er óhjákvæmilegt en
maður reynir bara að nýta sér
þetta,“ segir Guðmundur sem
segir Slóvena með gott lið sem
og Noreg og Króatíu, hin lið
in í riðlinum á EM. Hann blæs
á allt tal um að það sé skyldu
verkefni hjá Íslandi að komast
upp úr riðlinum.
„Slóvenar eru mjög góðir
og sýndu það þarna úti. Þeir
gerðu jafntefli við Dani og voru
enn betri á móti Pólverjum.
Þeir eru með góða vörn, góða
markverði og einn af betri leik
stjórnendum heims í dag. Nor
egur er líka með frábært lið. Við
gerðum tvívegis jafntefli við
Noreg í undankeppni HM 2011
og höfum svo unnið það tæp
lega á síðustu mótum. Svo eru
Króatar einnig virkilega sterk
ir. Það skal enginn halda að
þetta sé léttur riðill,“ segir Guð
mundur.
Eitt skref í einu
„Æi, maður getur aldrei dæmt
um þetta. Við erum búnir að
æfa eins og kostur er og það
er margt jákvætt í þessu en við
erum að fara í keppni þar sem
ekkert er gefins,“ segir Guð
mundur aðspurður um hvernig
honum lítist á liðið og verkefnið
fram undan þar sem fimm dag
ar eru í mót. „Við erum að fara
í keppni án Ólafs Stefánssonar
og það þurfa bara aðrir að stíga
upp. Ég treysti þeim í það en
það er eitt og annað sem hef
ur komið upp hjá okkur eins og
þetta með Snorra. En við erum
með reynslumikið lið og á góð
um degi getum við gert vel. Við
þurfum bara að byrja á því að
taka eitt skref í einu því að kom
ast upp úr riðlinum verður ekki
einfalt,“ segir Guðmundur.
Síðasti æfingaleikur Íslands
verður í Höllinni á föstudaginn
gegn Finnlandi. Þar vill Guð
mundur sjá heilsteyptan leik
hjá íslenska liðinu en mest af
öllu vill hann fulla höll af Ís
lendingum til að kveðja liðið.
„Það er alltaf frábært fyrir okk
ur að upplifa íslenska stemn
ingu eins og hún gerist best í
síðasta leik fyrir stórmót. Það
væri því frábært ef fólk fyllti
Höllina á föstudaginn þann
ig að við getum tekið stemn
inguna með okkur í farteskinu
til Serbíu,“ segir Guðmundur
Þórður Guðmundsson.
n Guðmundur segir það ekki stemma að Róbert Gunnarsson spili lítið hjá Löwen n Snorri
Steinn kemur til móts við liðið á fimmtudaginn n Verður erfitt að komast upp úr riðlinum„Við erum búnir
að æfa eins
og kostur er og það
er margt jákvætt í
þessu en við erum að
fara í keppni þar sem
ekkert er gefins.
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Handbolti
Vill fulla höll Guðmundur
óskar eftir íslenskri stemningu
eins og hún gerist best á
föstudaginn gegn Finnlandi.
MyndiR SiGtRyGGuR ARi
Snorri Steinn Búinn
að eignast barn og er
klár í slaginn:
Mýta að
RóbeRt
spili lítið