Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Síða 2
2 Fréttir 1. febrúar 2012 Miðvikudagur Geir Gat illa vitað að hann væri brotleGur R efsiákvæðin sem Geir H. Haarde er sagður brotlegur gegn eru ekki nægjanlega skýr til að hann geti með eðlilegum hætti varist. Þetta kemur fram í greinargerð Andra Árnasonar, verjanda Geirs, um þær sakir sem á hann eru bornar í lands- dómsmálinu svokallaða. „Engum verður gert að sæta refs- ingu nema hann hafi gerst sekur um háttsemi sem var refsiverð sam- kvæmt lögum á þeim tíma þegar hún átti sér stað eða má fullkomlega jafna til slíkrar háttsemi. Viðurlög mega ekki verða þyngri en heimiluð voru í lögum þá er háttsemin átti sér stað,“ segir í stjórnarskrá Íslands. Sýknukrafa verjanda er meðal annars byggð á því að refsiheimildir sem ákæran byggir á séu svo óljós- ar og matskenndar að þær brjóti gegn meginreglu um skýrleika refsi- heimilda. „Sá annmarki á málsókn- inni leiðir þegar til sýknu á ákær- unni í heild sinni,“ segir í greinargerð ákærða. Skírleiki orðalags mikilvægt „Í ákvæðinu felst áskilnaður um að refsiákvæðið uppfylli lágmarkskröfur um skýrleika, það er að þau veiti ein- staklingnum sanngjarna og eðlilega viðvörun um hvaða háttsemi telst refsiverð. Þess vegna þarf orðalag refsiákvæðis að vera nægilega fastk- veðið og skýrt, að ekki leiki vafi á því hvert inntak hins refsiverða verknað- ar er,“ segir í greinargerð ákærða. Það má því segja að vörn Geirs fyrir landsdómi byggi allavega að hluta á því að þau lagaákvæði sem ákæran gegn honum byggir á séu svo óljósar að honum hafi ekki verið hæft að átta sig á hvort aðgerðir hans sem ráðherra eða aðgerðaleysi hafi í raun verið lögbrot. „Óskráðar reglur“ Verjandi telur lög um landsdóm víð- tæk og matskennd. Vitnað er í lög um ráðherraábyrgð þar sem segir: „… framkvæmir nokkuð eða veld- ur því, að framkvæmt sé nokkuð, er stofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þess sérstaklega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur farast fyrir að fram- kvæma nokkuð það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmd ferst fyrir.“ Bent er á að í greinargerð með frumvarpi til laga um ráðherra- ábyrgð sé sagt að þessi lagagrein sé „óneitanlega nokkuð matskennd“ og að þar komi fram „séreðli ráðherra- ábyrgðarinnar.“ Raunar fjallaði Ólafur Jóhannes- son, sem ritaði bókina Stjórnskipun Íslands, um þetta. Þar segir að ráð- mennskubrot, sem meðal annars er sú tegund brota sem Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er gert að hafa framið séu mjög víðtækur flokkur brota. „Í hann koma afbrot, þar sem ráðherra hefur brotið á móti þeim reglum sem krefjast má að hver góður og samviskusamur embættis- maður fylgi í embættisfærslu sinni. Enda þótt framkvæmd sé ekki bein- línis lögboðin eða framkvæmdaleysi lögbannað.“ Greinargerð verjanda vitnar í þessi orð Ólafs og því bætt við að þar sem ábyrgðaregla þessi sé svo almennt orðuð geti verið álitamál, hvenær brotið sé á móti tíundu grein laga um ráðherraábyrgð. „Verður Al- þingi fyrir sitt leyti að gera sér grein fyrir því, áður en það samþykkir málshöfðun, en endanlega er það undir mati landsdóms komið,“ segir í Stjórnskipun Íslands sem verjandi Geirs vitnar í. Verjandi Geirs segir að samkvæmt þessu hafi verið talið að tíunda grein ákvæða um ráðherraábyrgð eigi við þegar ráðherra hefur brotið gegn óskráðum reglum um hvernig góð- um og gegnum embættismanni í sömu stöðu og Geir beri að bregð- ast við aðsteðjandi hættu. Andri seg- ir þetta ákvæði ekki uppfylla skilyrði um skýrleika refsiákvæða enda sé það háð frjálsu mati landsdóms. Óvíst um mikilvægi Geir H. Haarde er ákærður fyrir brot gegn 17. grein stjórnarskrárinnar. Í ákæru saksóknara er hann sakaður um að hafa látið fara fyrir að fram- kvæma það sem fyrirskipað er í sömu grein. „Ráðherrafundi skal halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Svo skal og ráð- herrafund halda, ef einhver ráðherra óskar að bera þar upp mál. Fund- unum stjórnar sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis, og nefnist hann forsætisráðherra,“ segir í stjórnarskránni. Í greinargerðinni segir að ekki sé kveðið á um skýra og afmark- aða athafnaskyldu ráðherra. „Texti ákvæðisins gefur ekki vísbendingar um hvenær „stjórnarmálefni“ verð- ur talið „mikilvægt“ og hefur ekki að geyma neina hlutlæga mælikvarða eða viðmiðanir sem styðjast má við í því efni,“ segir í greinargerðinni. Það er mat Geirs og verjanda hans að heimildin sé ekki tæk refsi- heimild með vísan til 69. greinar stjórnarskrár Íslands um að enginn skuli sæta refsingu fyrir háttsemi sem nema hún sé refsiverð sam- kvæmt lögum. Þá á það sama við um fyrstu málsgrein sjöunda kafla mannréttindasáttmála Evrópu sem ber heitið „Engin refsing án laga.“ Í grunninn má segja að rök Geirs séu annars vegar sú að lögin skýri ekki nægjanlega vel hvaða stjórn- armál teljist nægjanlega mikilvæg til að forsætisráðherra sé skuld- bundinn til að halda ráðherrafund. Sem og að lögin brjóti gegn ákvæð- um stjórnarskrár og mannrétt- indasáttmála um að enginn skuli sæta refsingu nema til séu lög sem skýri brotið. Ástæða slíkra ákvæða í stjórnarskrám og mannréttinda- sáttmálum er meðal annars sú að talið er ósanngjarnt ef ekki er auð- veldlega hægt að vita fyrirfram hvort einstaklingur er brotlegur við lög. Verknaðarlýsingar í ákæru óskýrar Ef niðurstaða landsdóms verður að þau laga- og stjórnarskrárákvæði sem vísað er til í ákæru geti talist full- nægjandi refsiheimild, það er nógu skýr að hægt sé að dæma Geir til refs- ingar fyrir brot á þeim, þá mun Geir byggja vörn sína á þeim rökum að lýsingar á brotum sem hann er sak- aður um séu svo óljósar að ekki ætti að beita refsiheimildum. Þar sem lögin sem ákæran byggir á séu svo óskýr hefði ákærandi þurft að leggja sérstaka áherslu á að skýra í hverju og með hvaða verknaði brot hans eiga að felast enda sé það réttur sak- bornings að brot sem ákært er fyrir séu nægjanlega skýr að ásökunum sé hægt að verjast. „Vegna óskýrleika refsiheimilda hefðu verknaðarlýsingar í ákæru þurft að vera skýrar og afmarkaðar auk þess sem nauðsyn hefði borið til að rökstyðja sérstaklega hvaða mæli- kvarða bæri að leggja til grundvallar við mat á ætlaðri refsiverðri háttsemi og hvernig hún uppfylli skilyrði til- vísaðra refsiákvæða [í ákæru],“ segir í greinargerðinni. Þá segir að þessi annmarkar á ákæru og öðrum málatilbúnaði ákæruvaldsins leiði óhjákvæmi- lega til sýknu Geirs H. Haarde á þeim brotum sem hann er sakað- ur um. n Ákærður fyrir brot á „óskráðum reglum“ n Refsiákvæði ráðherraábyrgðar óskýr, segir verjandinn Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is Ákærður Geir H. Haarde á fyrsta degi þinghalds landsdóms. Myndir Sigtryggur ari jÓhannSSon„Verj- andi telur lög um landsdóm víðtæk og matskennd Ver geir Andri Árnason hæstaréttarlög-maður er verjandi Geirs fyrir landsdómi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.