Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Side 3
Fréttir 3Miðvikudagur 1. febrúar 2012 Dularfull hnífstunguárás n Ætluðu að ganga á milli en voru stungnir Á miðnætti á laugardag komu tveir tvítugir strákar á slysa- deildina með áverka eftir eggvopn. Lögreglan var köll- uð á vettvang og ræddi við þá. Sögðust þeir hafa verið á gangi frá Players og inn í Breiðholt. Á leiðinni, einhvers staðar í Linda- hverfi, hefðu þeir gengið fram á óhugnanlegt atvik þar sem þrír, fjórir menn réðust saman á einn mann. Þeir hefðu ætlað að ganga á milli og skakka leikinn en það hefði ekki farið betur en svo að þeir voru sjálfir stungnir. Annar var með áverka á bak- inu, nánar tiltekið á herðablaðinu, og þurfti að sauma sex spor. Hinn var með stungusár á hendinni og þurfti að sauma fjögur spor í hann. Bættu þeir því síðan við að árásar- mennirnir hefðu hlaupið í burtu og fórnarlamb þeirra sömuleiðis. Atvikið hefur hins vegar ekki verið tilkynnt lögreglu svo ekkert er vitað um þann sem þeir ætluðu að bjarga. Lýsingar á árásarmönn- um eru einnig ónákvæmar og lítið sem ekkert er vitað um þá. Þá var eitthvað á reiki hvar atvikið átti sér nákvæmlega stað. Rannsókn málsins stendur yfir en miðar hægt, enda lítið sem hægt er að byggja á. Það er hins vegar ljóst að einhver átök áttu sér stað. ingibjorg@dv.is Undarlegt Árásarmennirnir og fórnarlambið hlupu á brott. N jála er eins og himnaríki geð- læknisins af því að Njáls saga er eiginlega eins og kennslu- bók í persónuleikafræðum,“ segir Óttar Guðmundsson geðlæknir sem var með fyrirlestur á Læknadögum þar sem hann fjallaði um Íslendingasögur út frá sjónar- horni geðlæknisvísinda. „Það er ákaf- lega lítið um geðsjúkdóma eins og við myndum kalla í dag en það er mjög mikið um persónuleikaraskaða ein- staklinga. Það er svo greinilegt að þessi persónuleikaröskun ræður mjög miklu um framvindu sögunnar.“ Þarf að taka tillit til margs Óttar segir ekki vera að því hlaupið að geðgreina sögupersónur í Íslend- ingasögunum. „Þá þarf náttúrulega að taka tillit til margs, það er nátt- úrulega spurning hvort þetta sé sagn- fræði eða bókmenntir, eða er þetta hvoru tveggja? Svo er tíðarandinn annar og það er ýmislegt sem er ekki eins í nútímaþjóðfélagi og það var á söguöld en sumar þessara sagna eru svo lifandi og persónulýsingarnar svo lifandi að það er alveg hægt að velta fyrir sér hvernig þessir einstaklingar falla inn í þessi greiningarkerfi nú- tímageðlækninga,“ útskýrir hann. Óttar hefur lengi verið aðdáandi Íslendingasagnanna en sá áhugi vaknaði hjá honum á barnsaldri. Síð- an þá hefur hann skoðað sögurnar út frá ýmsum sjónarhornum. Á bak við fyrirlesturinn sem hann flutti á Læknadögum um þetta efni liggur tveggja til þriggja ára vinna. Hann hefur unnið efni til útgáfu í bók sem hann segist vonast til að komi út núna um páskana. Martröð hjónabandsráðgjafans „Ég nota ákveðnar greiningar sem eru mikið notaðar í geðlæknisfræði, eins og hambrigðapersónuröskun. Það er persónuröskun sem við grein- um mikið hjá konum, sem einkennist mikið af sveiflukenndum karakter og reiðiköstum og þessari tilhneigingu að sjá heiminn í svörtu og hvítu. Það eru margar svona konur annars vegar og svo sjáum við þessa narsissistísku karlmenn sem eru mjög sjálfhverfir,“ útskýrir Óttar. „Það er mjög mikið af sambönd- um slíkra einstaklinga í Njálu, alveg eins og í nútímanum, en slík sam- bönd eru í raun martröð hjónabands- ráðgjafans eða geðlæknisins vegna þess að þessir einstaklingar fara með mjög brenglaða heimsmynd og brenglaðar væntingar inn í sam- bandið,“ segir Óttar sem segir að með tímanum fari þessi sambönd fjand- ans til. Hann segir að gera megi ráð fyrir að fjölskyldulíf þessara einstak- linga hafi verið erfitt. Erfitt fjölskyldulíf „Þekktasta sambandið er lík- lega Gunnars og Hallgerðar. Þar er Gunnar þessi leiðinlegi, sjálfhverfi íþróttamaður og Hallgerður þessi hambrigðapersónuraskaða kona, sem er mjög kvíðin líka.“ Hann bendir á að heimilislífi þeirra sé mjög vel lýst í Njálu. „Þarna hefur loft verið lævi blandið og verið mjög erfitt að lifa á þessu heimili. Það er líka hægt að skilja mjög vel framvindu Njáls sögu ef maður horfir á þetta svona.“ Óttar segist aðspurður þess full- viss að hægt hefði verið að hjálpa sögupersónunum með aðferðum nútímageðlækninga. „En við hefð- um breytt sögunni og sögurnar yrðu ekki nándar nærri eins skemmtileg- ar. Nútímageðlæknar myndu stoppa ákveðið flæði og ákveðna þróun eins og þeir gera gjarnan í fjölskyldum. Þeir halda einkennunum niðri en ákveðið flæði og ákveðin atburðarás berst áfram í krafti einkenna,“ segir Óttar og bendir á að geðlyf hefðu lík- lega haft afgerandi áhrif á Íslendinga- sögurnar. „Með geðlyfjum hefði ekki orðið nein Njáls saga.“ n Rýnir í Njáls sögu með augum geðlæknisfræðinnar Geðlyf hefðu eyðilagt Íslendingasögurnar Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is „Með geð- lyfjum hefði ekki orðið nein Njáls saga Áhugamaður Óttar er mikill áhugamaður um Íslendingasög- urnar en hann hefur verið það síðan í barnæsku. Mynd EyÞór Árnason Geir Gat illa vitað að hann væri brotleGur n Ákærður fyrir brot á „óskráðum reglum“ n Refsiákvæði ráðherraábyrgðar óskýr, segir verjandinn Jaak Liivik gegn Eistlandi Vitnað er í dóm Mannréttinda- dómstóls Evrópu úr máli Jaak Li- ivik sem ákærður var fyrir brot vegna einkavæðingar ríkislesta í Eistlandi. Þar komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að ákvæðið sem heimilaði ákæru gegn Liivik hafi brotið í bága við sjöunda kafla mannréttindasáttmála Evrópu um að refsingar án lagaheimilda séu ekki heimilar. Þar var talið að refsi- ákvæði sem lagði refsingu við að valda ríkinu umtalsverðu tjóni eða hættu á tjóni í opinberu starfi væri of víðfeðmt og mælikvarði refsi- næmis óljós. „Var jafnframt sérstaklega horft til þess að kæranda málsins hafi vegna óskýrleika nefnds ákvæð- is ekki mátt vera ljóst á þeim tíma sem brotið var framið að sú til- tekna háttsemi, sem hann var að lokum sakfelldur fyrir, félli undir ákvæðið og bakaði honum þannig refsiábyrgð …“ Nánar verður fjallað um vörn Geirs H. Haarde fyrir landsdómi á næstu dögum. DV hefur undir höndum hluta af þeim gögnum sem vörn Geirs hefur lagt fram en þau telja mörg þúsund blað- síður. Í skrá yfir framlögð skjöl verjanda ákærða má finna allt frá ríkisreikningum ársins 2007, Rit Seðlabanka Íslands um fjármála- stöðuleika til frétta í erlendum tímaritum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.