Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Qupperneq 11
Sigurður Sigurðsson: Bjarni
Benediktsson sagði það hafa blasað við
öllum í hvað stefndi snemma í febrúar
2008 þegar hann og nánustu ættingjar seldu
hlutabréf sín í bönkunum. Blasti það líka við þér á
þessum tíma?
Tryggvi: Eftir að millibankamarkaður fraus
í byrjun árs 2008 fór ég að hafa miklar
áhyggjur – en að ég hafi séð hrunið fyrir – af
og frá.
Fundarstjóri: Spurning sem barst í
tölvupósti: Af hverju þarf stjórnmála-
flokkur að vera með í sinni eigu
stærðarhúsnæði? Stjórnmálaflokkar fá
ríkisstyrki. Getið þið ekki farið betur með
þessa peninga?
Tryggvi: Ég er þeirra skoðunar að framlög
til stjórnmálaflokka eigi að vera frjáls og að
ríkisstyrkir séu barn síns tíma.
Inga Atladóttir: Margt í rannsóknar-
skýrslunni bendir til að þú hafir verið einn
helsti gerandinn í atburðarásinni í
september og október 2008 – er ekki mikilvægt
fyrir þig að atburðarásin þessa daga verði skýrð
frekar?
Tryggvi: Nei, það er ekki rétt. Þar sem ég kem
fyrir er ég þar sem vitni. Engar athuga-
semdir eru gerðar við störf mín... Ég er þeirrar
skoðunar að nokkuð góð mynd sé komin á
atburðarásina.
Aðalheiður Guðjónsdóttir: Fannst þér
ekkert athugavert við að taka sæti á
þingi strax eftir hrun, þegar þú varst
efnahagsráðgjafi Geirs í aðdraganda hrunsins, og
sitja svo sem fastast nú þegar hann er ákærður
fyrir landsdómi?
Tryggvi: Nei, Aðalheiður, það finnst mér ekki.
Ég er ekki grunaður um neitt misjafnt og tel
ekki að störf mín fyrir hrun geri mig á neinn
hátt vanhæfan til að sitja á Alþingi.
Sigurður Sigurðsson: Hannes
Hólmsteinn sagði um sjálfstæðismenn
að þeir væru foringjahollir, hugsuðu ekki
um pólitík og vildu bæta kjör sín og sinna, sbr.
„græða á daginn og grilla á kvöldin“. Sammála
þessari greiningu?
Tryggvi: Mér finnst þetta nú hálf frasakennt
hjá Hannesi. Ég hef þá trú að við berjumst
fyrir alla sbr. okkar gamla slagorð „Stétt með
stétt".
Haukur Herbertsson: Hvernig aðferð
finnst þér heppilegust til þess að
skattleggja stóreigna-einstaklinga?
Hvor skatturinn er sanngjarnari, auðlegðarskattur
eða fjármagnstekjuskattur?
Tryggvi: Ég tel að auðlegðarskattur sé mjög
ósanngjarn skattur. Launaháa einstaklinga
á að skattleggja með tekjuskattskerfinu og
fjármagnstekjuskattskerfinu.
Aðalheiður Guðjónsdóttir: Í hverju
voru þá ráðleggingar þínar til Geirs
fólgnar? Ertu að segja að engar
ákvarðanir sem Geir er ákærður fyrir hafi byggt á
þínum ráðleggingum eða skorti á ráðleggingum?
Tryggvi: Það sem stendur eftir af ákærunni á
Geir snýst nær eingöngu um formsatriði, ekki
beinar ákvarðanir. Ráðleggingarnar voru af
margvíslegum toga.
Aðalheiður Guðjónsdóttir: Mér þykir
svar þitt loðið, getur þú tekið dæmi um
þessa „margvíslegu toga“?
Tryggvi: Ein var að frysta gengislánaafborg-
anir, önnur að fara aðra leið Glitnishelgina
o.s.frv.
Heiða Heiðars: Vissir þú að Mishkin væri
búinn að lagfæra „innsláttarvilluna“ á
skýrslunni ykkar?
Tryggvi: Ég sá þetta fyrst í Inside Job. En
þetta voru einföld mistök sem engu máli
skipta í stóra samhenginu. Fjármálakreppan
varð ekki vegna innsláttarvillu.
Sigurður Sigurðsson: F. Mishkin fékk
jafnvirði 16,6 milljóna fyrir að skrifa
umdeilda skýrslu sem sagt er að þú hafir
í raun og veru skrifað. Sjálfur fékkst þú einungis
brot af þeirri upphæð. Ekkert ósáttur við það?
Tryggvi: Mishkin fékk 6 milljónir og ég um 2
að mig minnir. Nei, ég var sáttur við þá upp-
hæð á sínum tíma...
Natan Kolbeinsson: Af hverju leggur
Sjálfstæðisflokkurinn ekki fram á Alþingi
efnahagstillögurnar sem þið senduð á
alla landsmenn? Eruð þið kannski bara á fullu í að
tala en ekki svo mikið í að gera hluti?
Tryggvi: Natan, við lögðum fram 40 bls.
þingsályktunartillögu um leið og við sendum
tillögurnar út til landsmanna. Tillagan er nú
til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd.
Pétur Jónsson: Ertu stoltur af skýrslu
ykkar Mishkins? Hvaða gögn var helst
stuðst við?
Tryggvi: Já, ég er það. Við höfðum hins vegar
rangt fyrir okkur í nokkrum atriðum en það er
varla ætlast til að við sjáum framtíðina fyrir
óskeikulir. Gögnin sem við notuðum komu
mest frá erlendum stofnunum og innlendum.
Þetta er mjög vel rakið á vef Viðskiptaráðs.
Halldór Egilson: Hver eru afdrif lána
þeirra, sem þú fékkst til kaupa hlutafjár í
Askar Capital, annars vegar 150 milljóna
frá Askar Capital, hins vegar 150 milljóna frá
Íslandsbanka heitnum?
Tryggvi: Ég fékk ekki þessi lán. Þetta er ein
af mýtunum sem í gangi hafa verið. Ég gerði
mjög vel grein fyrir þessu í bloggi á Eyjunni
áður en ég bauð mig fram, bendi þér á þau
skrif.
Jenný Baldursdóttir: Hver er að þínu
mati ábyrgur fyrir hruninu, ég reikna með
að þú teljir Sjálfstæðisflokkinn ekki
ábyrgan.
Tryggvi: Enginn einn einstakur, Jenný. Þetta
var samspil margra hluta sem of langt mál er
að telja upp. Ég gaf út bók um málið fyrir jólin
og vísa í hana.
Fundarstjóri: Þú munt þurfa að bera
vitni fyrir landsdómi ef ákæran gegn Geir
verður ekki afturkölluð. Hefur það áhrif á
afstöðu þína til málsins?
Tryggvi: Nei, engin...
Sigurður Einarsson: Hvað vilt þú gera í
skuldavandamálum heimilanna?
Tryggvi: Ég tel að mikil mistök hafi
verið gerð þegar bankarnir voru færðir kröfu-
höfum. Eftir það lokaðist sú leið að skrifa
niður skuldir flatt. Ég tel að það sé mikilvægt
að aðilar á fjármálamarkaði flýti því að
koma með endanlega lausn. Annars vísa ég
í efnahagstillögur okkar sem ég tók þátt í að
semja.
Þórmar Jónsson: Telur þú að fólk sem
stundaði fjármálabrask fyrir hrun og
skuldaði gífurlegar upphæðir í
bankakerfinu sé trúverðugt sem þingmenn
þjóðarinnar?
Tryggvi: Ertu með einhver sérstakan í huga,
Þórmar?
Haukur Herbertsson: Eru þá
skuldugum heimilum allar bjargir
bannaðar?
Tryggvi: Nei, Haukur. Ég tel það heilaga
skyldu stjórnmálamanna að auka ráð-
stöfunartekjur fólks – með skattalækkunum
og með því að koma hagvexti sem byggir á
framleiðslu í gang. Þannig hækkar líka hús-
næðisverð og lífskjör batna.
Níels Ársælsson: Þú sagðir aðspurður á
fundi á Akureyri í aðdraganda síðustu
þingkosninga að þú vildir breytingar á
kvótakerfinu. Spurt er: Hverjar eru þær breytingar
sem þú vilt sjá?
Tryggvi: Sagði ég það, Níels? En í stuttu máli
vil ég fara leið sáttanefndarinnar. Um hana
virðist vera mikil samstaða sbr. að flest allir
stjórnmálaflokkar og hagsmunaaðilar stóðu
að henni.
Halldór Egilson: Þú hefur látið þess
getið að þú borgir með þér sem
þingmaður, svo skammarlega lág séu
laun fyrir einstakling í efri millistétt. Hvers vegna
hættirðu ekki á þingi og ferð að gera eitthvað
annað?
Tryggvi: Af því að ég er að gera þetta af hug-
sjón – ekki vegna launanna.
Fundarstjóri: Hvað finnst þér að þú
ættir að hafa í laun sem þingmaður?
Tryggvi: Cirka 1 milljón.
Sigurjón Hallgrímsson: Er kanadíski
dollarinn raunhæfur möguleiki fyrir
Ísland?
Tryggvi: Ég tel að sömu skilyrði þurfi að vera
fyrir hendi til að hægt sé að vera með dollar
og vera með krónu. Góð hagstjórn!
Tryggvi Jónsson: 1 milljón í laun sem
alþingismaður á meðan meðallaun á
Íslandi eru í kringum 400 þúsund, ertu
ekki að djóka, eða?
Tryggvi: Nei, nafni, ég er ekki að djóka.
Níels Ársælsson: Sæll aftur. Ertu á móti
því að handfæraveiðar verði gefnar
frjálsar?
Tryggvi: Já.
Sigurður Sigurðsson: Hvað viltu segja
um 10 milljarða björgunarframlag
ríkisins í bótasjóð Sjóvár? Var eðlilega
staðið að fjárfestingum með því himinháa bótafé
sem tapaðist? Komu Askar Capital að þessu undir
þinni stjórn?
Tryggvi: Nei, Askar kom ekki að þessu á neinn
hátt. Ég held að sagan hafi sýnt að ekki var
rétt staðið að þessum fjárfestingum.
Ásgrímur Harðarson: Viltu fá nýjan
forseta Alþingis?
Tryggvi: Mér finnst hún hafa vaxið í
starfi og ég styð hana.
Teitur Atlason: Askar Capital = farið á
hausinn. Ríkið undir Haarde = Hrunið.
Hefur eitthvað sem þú hefur komið
nálægt ekki hrunið?
Tryggvi: Háskóli Íslands.
Atli Fanndal: Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins var túlkaður misjafnt en var
hann ekki birtingamynd þess að
flokkurinn telji sig hafa gert upp hrunið og sé
tilbúinn að leiða á ný?
Tryggvi: Jú, við erum tilbúin í að leiða á ný –
eftir kosningar.
Sigurjón Hallgrímsson: Fjöldi
þingmanna hefur lengi verið gagnrýndur.
Hversu marga þingmenn telur þú
„nægja“ á þingi?
Tryggvi: Góð spurning, 25–35.
Níels Ársælsson: Af hverju ertu á móti
því að handfæraveiðar verði gefnar
frjálsar? Svar óskast, það eru þúsundir
sem bíða hér eftir rökum frá þér vegna þessa :-)
Tryggvi: Ég hef fært rök fyrir því margoft. Það
er vegna þess að ég vil að auðlindaarðurinn
tapist ekki í offjárfestingum og óhagkvæmni.
Halldór Egilson: Þú hefur látið þig
skattamál varða. Hví er flækjustig
þrepaskipts tekjuskattskerfis
einstaklinga of mikið fyrir rúmlega 300 þúsund
manna þjóð þegar Bandaríkin hafa 6 stig,
Þýskaland 3 og Lúxemborg 17?
Tryggvi: Ég er í hjarta mínu á móti þrepa-
skiptu skattkerfi. Þessi lönd sem þú nefnir eru
ekki fyrirmyndir mínar að góðu skattkerfi.
Jenný Baldursdóttir: Kæri fundarstjóri,
mér finnst það krjúsal að Tryggvi gefi upp
afstöðu sýna varðandi byggingu
leiguhúsnæðis, svona miðað við skelfilegt ástand
á þeim markaði.
Tryggvi: Jenný, ég er þeirrar skoðunar að sem
flestir eigi að eiga sitt eigið húsnæði. Hins
vegar á að bjóða upp á leiguhúsnæði – af
einkaaðilum.
Haukur Herbertsson: Hverjar eru þínar
tillögur til þess að stuðla að heilbrigðum
leigumarkaði?
Tryggvi: Að skattaumhverfi verði nýtt á þann
hátt að nægt framboð verði á húsnæði á
hóflegu verði.
Daníel Jónasson: Hvernig telur þú að
Sjálfstæðisflokkurinn geti bætt ímynd
sína meðal almennings nú þegar margir
úr „hrunstjórninni“ sitja enn á þingi? Þarf ekki
meiri endurnýjun hjá ykkur?
Tryggvi: Við þurfum allavega að vera fleiri,
Daníel...
Lee Maginnis: Hvað finnst þér um
málefni námsmanna og LÍN? Eins og
staðan er í dag er manni hálfpartinn
refsað fyrir að vera í námi en ekki á atvinnuleysis-
bótum. Hvernig getum við breytt kerfinu?
Tryggvi: Lee, ég er þeirrar skoðunar að það
sé besta fjárfesting sem ríkið getur lagt í. Ég
vil að fólki sé ekki refsað eins og þú kallar það
fyrir að fara af bótum í nám.
Jón Haukdal: Ertu andvígur því að Geir
fái að sanna sakleysi sitt fyrir dómi?
Tryggvi: Þetta er viðhorf sem ekki
á að sjást, Jón. Þú setur ekki fólk fyrir framan
dómara til að sanna sakleysi sitt. Það verða
að vera meiri líkur en minni á sakfellingu til að
lagt sé í slíka ferð.
Halldór Egilson: Þú áttir þó hlutafé í
Askar Capital, ekki satt? Hversu stór var
sá hlutur í krónum talið og var hann
fjármagnaður af eigin fé þínu?
Tryggvi: Nei, ég átti ekki í félaginu. Ég vann
þar í 1,5 ár en hefði þurft að vinna í 3 ár til að
eignast hlutafé í félaginu.
Ásgrímur Harðarson: Ætlar þú að
bjóða þig aftur fram?
Tryggvi: Já, ég hyggst gera það. En
enginn veit sína ævi fyrr en öll er.
Aðalsteinn Aðalsteinsson: Hver er
afstaða þín til Reykjavíkurflugvallar, á
hann að vera eða fara?
Tryggvi: Vera, tvímælalaust.
Halldór Egilson: Hver er þín skoðun á
máli Baldurs Guðlaugssonar? Ber
Hæstarétti að sýkna hann? Æski þess að
þú svarir málalengingalaust, hefur hingað til
svarað í fleipri og fabúlasjónum.
Tryggvi: Mér er meinilla við að vera að tjá mig
um dómsmál. Í þessu máli er ríkissaksóknari
ákærandi. Í máli Geirs eru ég og 62 aðrir
ákærendur.
Þröstur Ólafsson: Finnst þér að það sé
eiginhagsmunapólitík á Íslandi? Áttu
heiðarlegt svar?
Tryggvi: Auðvitað er það þannig að
þingmenn berjast fyrir mismunandi málum.
En að þeir berjist fyrir eigin hag hef ég ekki
orðið var við hjá neinum þingmanni.
Pétur Jónsson: Ertu hlynntur
verðtryggingu á húsnæðislán? Ert þú
tilbúinn að flytja frumvarp um að festa
vísitölu dagsins í dag? Þar með yrði „afskriftin“ í
því formi að lánin myndu ekki hækka samkv.
vísitölu?
Tryggvi: Nei, mér finnst að neytendalán eigi
almennt ekki að vera verðtryggð. Nei, ég vil
ekki festa vísitöluna. Hef enga trú á að það
myndi gagnast.
Fundarstjóri: Með hvaða flokki vildir þú
mynda ríkisstjórn?
Tryggvi: Mér finnst Framsókn
vera vænlegust núna. En það gæti breyst á
morgun. Maður veit aldrei hvað getur gerst í
pólitík.
Davíð Lúðvíksson: Er það eðlilegt að
þingmenn séu virkir í atvinnulífinu (sýsla
með hlutabréf eða starfandi í öðrum
fyrirtækjum) á meðan þeir sinna þingstörfum?
Tryggvi: Já, mér finnst í lagi að þingmenn
taki þátt í atvinnulífinu. Ég er hins vegar
þeirrar skoðunar að ráðherrar eigi ekki að gera
það.
Ólafur Ragnarsson: Sjálfstæðis-
flokkurinn skapaði hér umhverfi fyrir
fjármálaglæpi sem hefur rústað velferð
þjóðarinnar, hvað hefur breyst í þeim flokki sem
gerir hann stjórntækan á ný?
Tryggvi: Mér finnst þú gefa þér ranga for-
sendu fyrir spurningu þinni, Ólafur, og get því
ekki svarað henni.
Torfi Símonarson: Finnst þér eðlilegt
að þingmenn Samfylkingar sem sátu í
ríkisstjórn þegar hrunið varð skuli stjórna
landinu í dag? Þá á ég við til dæmis Jóhönnu og
Össur – þetta fólk sem talaði niður „hrunstjórn-
ina“?
Tryggvi: Hemmm. Já, mér finnst eðlilegt
að ef þau hafa verið kosin í lýðræðislegum
kosningum og fengið meirihluta þá sitji þau á
þingi.
Fundarstjóri: Þú vannst náið með Geir
Haarde, ertu ekki bullandi vanhæfur til
þess að vera einn af ákærendum í máli
hans?
Tryggvi: Nei, þingmenn eru aldrei vanhæfir
nema um eigin fjárhagsleg málefni.
Þór Jóhannesson: Hefur þú látið
athuga hvort þú sért ef til vill siðblindur,
Tryggvi? Þá hjá hlutlausum aðila – ekki
með aðkeyptu áliti frá Valhöll.
Tryggvi: Nei, ég hef ekki gert það Þór. Valhöll
býður ekki upp á siðblindupróf.
Aurelius Maximus: Fékkst þú, Tryggvi,
kúlulán fyrir hrun og ef svo er, hvað varð
um eftirstöðvar þess?
Tryggvi: Ég fékk ekki kúlulán hjá bönkunum.
Ég vil ekki ræða persónuleg fjármál. En ég er
hvergi í vanskilum.
Baldur Guðmundsson: Ertu hlynntur
persónukjöri? Af hverju / af hverju ekki?
Tryggvi: Ég er nokkuð sáttur við
fyrirkomulagið eins og það er. En ef ég á að
vera algjörlega heiðarlegur þá liggur þetta
ekki á áhugasviði mínu.
Jenný Baldursdóttir: Styður þú
framboð Ólafs Ragnars til forseta í
komandi forsetakosningum?
Tryggvi: Nei, man lengra aftur en sem
nemur Icesave-samningum.
Jóhann Jóhannesson: Ertu fylgjandi
því að boðið verði upp á skattaafslátt
til þeirra sem fjárfesta í innlendum
hlutabréfum til að koma hlutabréfamarkaðnum
betur af stað?
Tryggvi: Já, Jóhann, það er ég. En ég vil að
löggjöf um fjármálamarkaði sé bætt áður.
Freyr Gustavsson: Sæll, Tryggvi, með
hvaða hætti telurðu best að ná niður
verðbólgu og ná fram agaðri hagstjórn?
Tryggvi: Setja agareglur á stjórnmálamenn.
Ég hef þegar lagt þingsályktun um það
fram.
Davíð Lúðvíksson: Finnst þér eðlilegt
að aðilar sem sátu í nefndum tengdum
fjármálafyrirtækjum hafi losað sig við
„ónýt“ bréf rétt fyrir hrun?
Tryggvi: Nei, það finnst mér ekki.
Fundarstjóri: Hvað finnst þér um
gagnrýni Styrmis Gunnarssonar á
forystu Sjálfstæðisflokksins?
Tryggvi: Mér finnst að Styrmir eigi að muna
að hann er ekki fæddur í gær. Hann hefur
haldið á valdataumum í þessu landi og tekið
þátt í að skapa það samfélag sem hann nú
kallar ógeðslegt. Hann ætti að líta í eigin
barm áður en hann dæmir aðra. Það gengur
ekki að reyna að skrifa sig frá sögunni á
þennan hátt. Það sjá allir í gegnum það.
Ólafur Ragnarsson: Þú varst
efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde 2008,
telur þú að það sé eftirspurn eftir
frekari ráðgjöf af þinni hálfu til þjóðarinnar?
Hafa ber í huga að þú varst ekki kosinn
persónukjöri!
Tryggvi: Ja, ég hef nú haft það prinsipp að
vera ekki í ráðgjöf innanlands frá því ég sett-
ist á þing. En ég fæ annað slagið fyrirspurnir,
þannig að einhver er eftirspurnin.
Jóhann Jóhannesson: Hefur
Sjálfstæðisflokkurinn lagt fram eða
mun leggja fram frumvarp að þeim
lagabreytingum sem þú telur nauðsynlegar til
að hægt sé að endurvekja hlutabréfamarkaðinn
á Íslandi?
Tryggvi: Nei, við höfum ekki gert það en
höfum talað um að það þurfi að gera.
Hjörleifur Guðmundsson: Ertu sáttur
við þín störf sem þingmaður? Telur þú
að þú hefðir eflaust geta gert betur á
einhverju sviði? Ef svo er hvað telur þú að þú
gætir hafa gert betur?
Tryggvi: Já, ég er nokkuð sáttur. Auðvitað
tel ég verk mín ekki fullkomin en það sendur
ekkert eitt upp úr sem ég hefði viljað gera
betur.
Ísak Jónsson: Vilt þú einkavæða
heilbrigðiskerfið?
Tryggvi: Nei, en ég vil nota einka-
framtakið þar sem það á við, Ísak.
Baldur Guðmundsson: Ef þú mættir
velja – hver finnst þér að ætti að verða
næsti forseti Íslands?
Tryggvi: Æi, ég vil ekki vera að tjá mig um
það. Finnst að stjórnmálamenn eigi að vera
á hliðarlínunni í þeim efnum.
Fundarstjóri: Myndir þú vilja sjá Davíð
Oddsson fara aftur í framboð fyrir
Sjálfstæðisflokkinn? Hvers vegna?
Hvers vegna ekki?
Tryggvi: Nei, held að hans hlutverki sé lokið
sem stjórnmálaforingja.
Sveinn Hansson: Hvenær vissir þú að
allt væri að hrynja hér á landi?
Tryggvi: Daginn sem við settum
neyðarlögin. Trúði fram að því að við næðum
að koma í veg fyrir algjört hrun.
Gunnlaugur Sigurðsson: Finnst þér
eðlilegt að Alþingi sé með fingurna í
landsdómsmálinu nú þegar það er
komið þetta langt? Ef já, hvers vegna?
Tryggvi: Vegna þess að Alþingi er ákærand-
inn í málinu og á að taka ábyrgð sem slíkur.
Fréttir 11Miðvikudagur 1. febrúar 2012
Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki vera grunaður um neitt misjafnt. Hann myndi ekki kjósa Ólaf
Ragnar sem forseta og segir að Háskóli Íslands sé dæmi sem afsannar að allt sem hann komi nálægt fari á hausinn.
Tími Davíðs er liðinn
Nafn: Tryggvi Þór Herbertsson.
Aldur: 49 ára.
Starf: Þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Menntun: Iðnrekstrarfræði-
próf, doktorspróf í hagfræði.