Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Page 3
Fréttir 3Miðvikudagur 14. nóvember 2012 Sighvati hótað vegna greinaskrifa n Ummæli um „sjálfhverfu kynslóðina“ vekja hörð viðbrögð S ighvati Björgvinssyni, fyrr- verandi ráðherra og þing- manni, hafa borist hótanir vegna greinaskrifa hans í Fréttablaðið. Hann segir hótanirnar hafi borist í ýmsum myndum og að margir hafi hellt úr skálum reiði sinnar yfir hann. „Mér er sagt að þetta hafi verið mikið í fjölmiðl- um í gær og það hafi verið eintómt skítkast til dæmis á blogginu. Stór hluti þessara bloggara gerir ekki annað en útbía allt og alla með sóðalegu orðfæri,“ segir Sighvatur. Greinar hans, sem hafa farið fyrir brjóstið á mörgum, hafa fjall- að um það sem hann kallar „sjálf- hverfustu kynslóðina“ á Íslandi. „Þegar að rætt er um kynslóðir er verið að ræða um það sem ein- kennir þjóðlífið á þeim tíma sem hún er uppi. Það þýðir ekki að allir af þeirri kynslóð séu „sekir“. Menn tala um stríðskynslóðina í Þýskalandi, en það voru ekki allir af þeirri kynslóð sem studdu Hitler. Menn tala um 68-kynslóðina á heimsvísu, en það voru ekki allir af þeirri kynslóð sem voru hippar og blómabörn sem neyttu eiturlyfja“ segir Sighvatur. Í hótununum sem Sighvati hafa borist hefur honum verið sagt að vara sig og passa sig á því að láta ekki sjá sig á almannafæri. „Þetta er bara sjúkt. Þú sérð bara orð- bragðið. Fólk sem skrifar svona það myndi aldrei láta sér til hugar koma að skrifa svona í blöðin. Það birtir þetta á bloggi undir nafni og jafnvel með fjölskyldumyndir af sér. Þar er bara talað í svona óhróðri, menn eru kallaðir land- ráðamenn og þjóðníðingar og ég veit ekki hvað. Það eru fáir að bregðast við og svara efninu en þeir bregðast svona við,“ segir Sighvatur. n astasigrun@dv.is Umbúðalaust Sighvatur hefur vakið hörð viðbrögð með því að kalla kynslóðina frá 30 til 45 ára á höfuðborgarsvæðinu sjálfhverfustu kynslóðina á Íslandi. Mynd GUnnar GUnnarsson G uðmundur Örn Jóhanns- son, fyrrverandi fram - kvæmdastjóri hjá Lands björg, var í sjálfskuldarábyrgð fyrir að minnsta kosti einu láni sem Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrver- andi stjórnarformaður Byrs, veitti einkahlutafélagi á hans vegum í september á síðasta ári. Þetta herma heimildir DV. Félagið er breskt og heitir CCP Systems. Lán- in voru í evrum. DV greindi frá því á mánu- daginn að Jón Þorsteinn hefði flutt hundruð milljóna króna í erlendum gjaldeyri frá Íslandi á þessu ári og því síðasta. Fjármagns- flutningarnir voru dulbúnir sem lánaviðskipti þar sem gjaldeyris- haftalögin taka ekki til lánveitinga frá Íslandi til erlendra lögaðila. Jón Þorsteinn sendi á mánudag frá sér tilkynningu þar sem hann sagði frétt DV ranga: „Hið rétta er að ég lánaði fyrirtækinu CCP Systems Ltd. samkvæmt þremur lánasamn- ingum samtals að jafnvirði um 30 milljónir króna. Um hefðbundna lánasamninga var að ræða sem hafa ekkert með lög um gjaldeyris- höft að gera.“ starfslok Guðmundar Guðmundur Örn Jóhannsson lét af störfum hjá Landsbjörg í þar síðustu viku eftir að myndbandi þar sem hann ræðir um stórfellda fjármagnsflutninga frá Íslandi var lekið á Youtube. Fjármagnsflutningarnir sem Guðmundur ræddi um eiga sér meðal annars stað með lánveiting- um frá einstaklingum á Íslandi og félögum til erlendra eignarhalds- félaga sem eru í eigu íslenskra að- ila. Meðal þeirra félaga sem Guð- mundur Örn notaðist við var CCP Systems Ltd. Lánveitingarnar eru yfirleitt til skamms tíma, nokkurra mánaða, og skuldbindur lántak- andinn sig til að greiða lánveit- andanum aftur með vöxtum. Þegar fjármunirnir eru komnir frá Íslandi og inn á erlenda bankareikninga greiðir lántakandinn peningana aftur til lánveitandans. Eini til- gangurinn með viðskiptunum er að koma gjaldeyri út úr landinu í trássi við höftin þó svo að viðskiptin sé skilgreind sem lán. rangfærslur Jóns Þorsteins Í yfirlýsingu sinni sagði Jón Þor- steinn að hann hefði lánað CCP Systems 30 milljónir króna. DV hefur hins vegar heimildir fyrir lánasamningum upp á talsvert meira en 30 milljónir króna. Þá ættu tengsl Guðmundar Arnar við lána- viðskiptin, miðað við upptökuna sem birt var með honum á You tube, að renna stoðum undir réttmæti þeirrar fullyrðingar DV að ekki hafi verið um hefðbundna lánasamn- inga að ræða, líkt og Jón Þorsteinn heldur fram. Þá hefur DV heimildir fyrir því að fjármunirnir sem Jón Þorsteinn lánaði CCP Systems hafi ekki glatast heldur hafi hann fengið þá aftur eftir að búið var að milli- færa fjármunina úr landi. DV hefur sent Reyni Karlssyni, lögmanni Jóns Þorsteins, fyrirspurn um eðli lánasamninganna við CCP Systems. Jón Þorsteinn nefndi ekki af hverju hann hefði lánað CCP Systems fjármuni í yfirlýsingunni sem hann sendi frá sér á mánu- daginn. DV reyndi ítrekað að ná tali af Jóni Þorsteini áður en fréttin var birt á mánudaginn en hann hafði ekki samband við blaðið þrátt fyrir að hringt hafi verið í farsíma hans og skilin eftir handa honum skila- boð með erindinu. Jón Þorsteinn afplánar sem kunnugt er fjögurra ára fangelsis- dóm vegna umboðssvika á Kvía- bryggju. DV hringdi á Kvíabryggju og skildi eftir skilaboð fyrir Jón Þor- stein. n n Um hefðbundna lánasamninga var að ræða sem hafa ekkert með lög um gjaldeyrishöft að gera Yfirlýsing Jóns Þorsteins: Y F I R LÝ S I N G Í DV í dag (12. nóvember 2012) er því haldið fram að ég hafi „flutt mörg hundruð milljónir króna í erlendum gjaldeyri frá Íslandi á þessu ári og því síðasta“ eins og það er orðað. Þetta er rangt. Hið rétta er að ég lánaði fyrirtækinu CCP Systems Ltd. samkvæmt þremur lánasamningum samtals að jafnvirði um 30 milljónir króna. Um hefðbundna lánasamninga var að ræða sem hafa ekkert með lög um gjaldeyrishöft að gera. Því er það rangt, sem haldið er fram í DV, að lánin séu „í trássi við gjaldeyrishaftalögin“. Allt útlit er fyrir að þetta fé muni glatast. Ég harma rangan fréttaflutning DV af þessu máli. Rétt er hins vegar hjá DV að ég afplána nú þann dóm sem ég hlaut. Með fullri auðmýkt vil ég minna á að dæmdir menn eru ekki réttlausir. Þeir eiga rétt á sanngjarnri umfjöllun eins og aðrir menn. Með vinsemd, Jón Þorsteinn Jónsson Guðmundur Örn í ábyrgð fyrir láni Jóns Þorsteins Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Beðið svara DV bíður nú eftir svörum frá Jóni Þorsteini um eðli lánveitinganna til CCP Systems. Hann sést hér með lögmanni sínum, Reyni Karlssyni, þegar Exeter-málið var flutt í héraði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.