Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Side 4
G
ylfi Ómar Héðinsson múr-
arameistari er að byggja
sér nærri 500 fermetra
glæsihöll í Kópavogi um
þessar mundir. Eins og
kunnugt er á hann Byggingafélag
Gunnars og Gylfa, BYGG, ásamt
Gunnari Þorlákssyni, bygginga-
meistara. DV hefur áður greint frá
því að félög tengd þeim Gylfa og
Gunnari hafi fengið um 100 millj-
arða króna afskrifaða vegna lána
sem tekin voru hjá stóru viðskipta-
bönkunum þremur fyrir hrun.
„Nei, það get ég ekki,“ sagði Gylfi
aðspurður þegar DV hafði sam-
band við hann og spurði hvort
hann vildi svara spurningum
blaðsins um nýja húsið sitt í Kópa-
vogi.
Samkvæmt heimildum DV hafa
framkvæmdir við húsið gengið
hratt að undanförnu. Það er nán-
ast orðið fokhelt en viðmælandi
sem DV ræddi við telur að það
gæti kostað allt að 150 milljónum
króna að klára húsið sem nú rís
við Austurkór 76 í Kópavogi. Sam-
kvæmt veðbandayfirliti er ekkert
áhvílandi á húsinu í dag.
Gerði kaupmála við konuna
Gylfi býr í dag í um 250 fermetra
húsi við Birkibraut í Reykjavík.
Vorið 2009 gerði hann kaupmála
við Svövu Árnadóttur, eiginkonu
sína, og var húsið þá alfarið fært
yfir á hana. Árið 2011 var gengið frá
fjárhagslegri endurskipulagningu
hjá flestum félögum sem tengjast
þeim Gylfa og Gunnari. Það gæti
hafa haft áhrif á það að nýja húsið
sem Gylfi er að byggja í Kópavogi
ásamt eiginkonu sé skráð á þau
bæði ólíkt húsinu sem þau eiga á
Birkibraut.
BYGG er um þessar mundir
komið á fullt í byggingafram-
kvæmdir eftir lægð á fasteigna-
markaðinum í kjölfar banka-
hrunsins. Þannig bárust fréttir af
því nýlega að fyrirtækið áformi að
reisa alls um 400 íbúðir í Lundi í
Kópavogi sem og 150 íbúðir í Sjá-
landshverfinu í Garðabæ, eða alls
550 íbúðir. Hluta framkvæmdanna
er nú þegar lokið en verið er að ýta
stórum hluta þeirra úr vör þessa
dagana.
DV ræddi við Gylfa í ágúst á
þessu ári og spurði hann að því
hvort það væri ekki undarlegt að
fyrirtæki sem hafi fengið millj-
arða króna afskrifaða væri aftur
komið í stórframkvæmdir á fast-
eignamarkaði. „Nei, það eru bara
ákveðin félög sem stofnuðu til
þessara skulda á sínum tíma. Þetta
voru bara viðskipti,“ svaraði Gylfi
um 100 milljarða króna afskriftir
félaga sem tengjast honum.
Gunnar og Gylfi lifa í lúxus
Líklega finnst sumum það nú
skjóta skökku við að Gylfi skuli geta
byggt sér 450 fermetra hús sem
gæti kostað allt að 150 milljónum
króna eftir að félög tengd honum
hafa fengið um 100 milljarða
króna afskrifaða. Stór hluti lands-
manna virðist að minnsta kosti
eiga nóg með að borga af íbúða-
lánum sínum sem stöðugt hækka
– Gylfi virðist hins vegar ekki eiga
í slíkum vandræðum ef marka má
kaup hans á 450 fermetra húsinu
við Austurkór í Kópavogi.
Hið sama á við um Gunnar Þor-
láksson. DV sagði frá því árið 2011
að Gunnar héldi stórglæsilegu
húsi sínu við Hólmaþing 9 í Kópa-
vogi þrátt fyrir tugmilljarða króna
gjaldþrot fyrirtækja sem honum
tengjast. Hús Gunnars við Hólma-
þing er ekki af verri endanum. Alls
500 fermetrar með turni þar sem
er 25 fermetra koníaksstofa með
kamínu, 40 fermetra eldhús og 25
metra sundlaug á neðstu hæðinni.
Talið er að byggingarkostnaður þess
hafi numið 250–300 milljónir króna.
Þeir Gunnar og Gylfi virðast því lifa
sannkölluðu lúxuslífi þrátt fyrir 100
milljarða króna afskriftir. n
Jens stefnt í PIP-málinu
n Lögmaður kvennanna fer fram á lokað þinghald
B
úið er að stefna Jens Kjartans-
syni lýtalækni fyrir dóm vegna
PIP-brjóstapúða sem hann setti
í fjölda kvenna á síðustu árum.
Smugan greindi frá stefnunni á þriðju-
dag og hefur vefurinn eftir Sögu Ýrr
Jónsdóttur, lögmanni kvennanna, að
hún muni fara fram á að þinghald í
málinu verði lokað. Saga segir enn
fremur að fleiri íslenskum aðilum hafi
verið stefnt í sama máli en hún neitar
að gefa upp hvaða aðilar það eru. Vert
er að nefna að fleiri læknar en Jens
framkvæmdu brjóstaaðgerðir með
PIP-púðunum og hefur Jens staðfest
að hafa látið aðra lækna fá púða sem
hann flutti inn.
Nokkrir mánuðir eru frá því að
málið komst upp en það teygir anga
sína víða. Um franska brjóstapúða er
að ræða sem fluttir hafa verið hingað
til lands um margra ára skeið. Púðarnir
reyndust innihalda iðnaðarsilíkon en
ekki silíkon sem ætlað er til ígræðslu
í fólk. Það sem gerir málið hér á landi
hins vegar enn sérstæðara er sú staða
sem Jens er í. Hann framkvæmdi ekki
bara aðgerðirnar heldur flutti hann
einnig púðana inn sjálfur. Hann seg-
ist þó ekki telja sig bera fjárhagslega
ábyrgð vegna málsins.
Á sama tíma og málið er höfðað
sætir Jens rannsókn hjá skattrann-
sóknarstjóra vegna meintra skattsvika
í tengslum við einkarekstur á lýta-
læknastofu sinni. Í lok október sagði
Bryndís Kristjánsdóttir skattrann-
sóknarstjóri að rannsóknin væri vel
á veg komin þó að henni væri ekki
lokið. Hún vildi að öðru leyti ekki tjá
sig frekar um stöðu málsins. Rann-
sóknin hefur staðið í marga mánuði en
DV greindi frá því um miðjan jan úar
að grunur léki á að Jens hefði fengið
konur til að greiða fyrir brjóstaaðgerðir
í reiðufé gegn afslætti og ekki staðið
skil á skatti þar af. n
adalsteinn@dv.is
REISIR RISAHÖLL
EFTIR AFSKRIFTIR
n Annar eiganda BYGG reisir nærri 500 fermetra höll í Kópavogi
4 Fréttir 14. nóvember 2012 Miðvikudagur
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
„Nei, það
get ég ekki
Austurkór Húsið sem um ræðir er nærri 500
fermetrar, eða hátt í helmingi stærra en húsið
sem Gylfi býr í í dag. Mynd SiGtryGGur Ari
Ekkert áhvílandi Samkvæmt veðbanda-
yfirliti er ekkert áhvílandi á glæsihúsinu sem
Gylfi er að byggja.
Öllum sjómönn-
um Ögurvíkur
sagt upp
„Þetta eru ekki létt skref hjá okkur
og ekki skemmtilegasta stundin í
sögu félagsins,“ segir Hjörtur Gísla-
son, útgerðarmaður og stjórnarfor-
maður Ögurvíkur, sem hefur sagt
upp öllum sjómönnum sínum og
mun þurfa að selja annan tveggja
togara sinna, Frera RE 73.
Hjörtur segir þetta nauðsyn-
legar aðgerðir ef ekki á illa að fara
hjá þessu rótgróna útgerðarfyrir-
tæki. Uppsagnirnar taka gildi í
mars á næsta ári og að sögn Hjartar
er um að ræða 70 sjómenn sem
sagt var upp og áætlar hann að
þegar upp sé staðið verði um 20
störf sem tapast við þessar að-
gerðir.
Kvótinn verður að hans sögn
fluttur yfir á hinn togara Ögurvík-
ur, Vigra RE 71, og verður hann
rekinn með tvöfaldri áhöfn að sögn
Hjartar. Aðspurður um afkomuna
á síðasta ári segir Hjörtur að hún
hefði mátt vera betri. „Hún er ekki
jafn góð og skatturinn segir til um.
Hann er að hafa af okkur stærstan
hluta af afkomunni. Enda er þetta
meðaltalsskattur, ekki miðað við
efnahagsreikning okkar.“
Ung stúlka
laug til um nafn
Tæplega tvítugur ökumaður, sem
lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði
fyrir of hraðan akstur á Reykjanes-
braut um helgina, laug til um nafn
sitt þegar lögregla ræddi við hann.
Ökumaðurinn, nítján ára stúlka, ók
á 132 kílómetra hraða á Reykjanes-
braut, þar sem hámarkshraði er
90 kílómetrar á klukkustund. Í til-
kynningu frá lögreglu kemur fram
að stúlkan hafi ekki verið með skil-
ríki en gefið upp nafn, sem reyndist
vera nafn jafnöldru hennar. Stúlk-
an á yfir höfði sér kæru fyrir rangar
sakargiftir og skjalafals, auk um-
ferðarlagabrots, að sögn lögreglu.
Auk ofangreinds ökumanns
hefur lögreglan á Suðurnesjum á
undanförnum dögum stöðvað tíu
ökumenn sem allir óku of hratt.
Einn til viðbótar ók réttindalaus og
annar var með útrunnið ökuskír-
teini.
Ætlað í iðnað Silíkonpúðarnir sem málið
snýst um innihéldu iðnaðarsilíkon en það er
alls ekki ætlað til nota í púða af þessu tagi.
Hér má sjá einn af PIP-brjóstapúðunum sem
íslensk kona fékk settan í sig. Mynd Eyþór ÁrnASon