Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Side 38
Ólíkar en sam-
rýmdar systur
38 Lífsstíll 30. nóvember – 2. desember 2012 Helgarblað
Söfnuðu 2,5 milljónum
n Alþjóðlegi alnæmisdagurinn 1. desember
Á
laugardaginn kemur er Alþjóð-
legi alnæmisdagurinn og í versl-
unum MAC í Smáralind og
Kringlunni verða til sölu Viva
Glam-varalitir og Viva Glam-gloss og
rennur ágóðinn óskertur í sjóð MAC-
fyrirtækisins.
Markmið sjóðsins er að styðja
konur, menn og börn á öllum aldri og
af öllum kynþáttum í baráttunni gegn
HIV og alnæmi með einum varalit í
einu.
Á laugardaginn mun starfsfólk
MAC-verslana halda daginn hátíð-
legan. Klukkan 14.00 mæta til dæmis
fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn,
Yesmine Olsson, Sigríður Klingen-
berg, Haffi Haff og Beggi og Pacas
til að tala um Viva Glam. Allir fá að
prófa Viva Glam-varalitinn sem vilja.
Klukkan 15.00 mun Einar Þór Jóns-
son, framkvæmdastjóri Alnæmissam-
taka Íslands, fá afhenta ávísun upp á
2.500.000 krónur úr sjóðnum. n
Augnhár með
eðalsteinum
Karl Lagerfeld hannaði þessi
fallegu gerviaugnhár fyrir Shu
Uemura sem leggur mikið upp
úr góðu úrvali af fallegum og list-
rænum augnhárum. Þessi eru þó
óvenju dýr enda eru þau alsett ör-
smáum rúbínsteinum.
Kyntákn
kynnir ilm
Einn vinsælasti jólailmurinn í
ár fyrir herrana er Encounter frá
Calvin Klein enda eru ilmtónarn-
ir jólalegir; kardimommur, romm,
jasmína, patchouli, koníak og
musk.
Það er kyntáknið Alexander
Skarsgård sem er andlit ilmsins
og þótti ímynd hans henta ilm-
inum vel. Mikið er lagt í hönnun
glassins sem minnir á ísjaka, eða
koníaksflösku.
Selst vel á Íslandi
Ricky Martin og Nicki Minaj
eru andlit herferðar Viva
Glam í ár. Viva Glam hefur
selst vel á Íslandi. 2,5
milljónir hafa safnast til
baráttunnar gegn alnæmi.
Skapandi
systur Áslaug
Íris og Kristín
Maríella hafa
ólíkan bakgrunn
en eru samrýmdar.
Þær kynntu fyrstu
skartgripalínu sína.
n Áslaug Íris og Kristín Maríella frumsýndu sína fyrstu skartgripalínu í GK
T
win Within – Creative
Jewelry, er samstarf systr-
anna Áslaugar Írisar og
Kristínar Maríellu.
Þær systur kynntu skartið
í verslun GK Reykjavík á fimmtudag
og var haldið teiti þeim til heiðurs.
Þær Áslaug og Kristín hafa ólíkan
bakgrunn en eru þrátt fyrir það afar
samrýmdar systur.
Áslaug útskrifaðist úr myndlista-
deild Listaháskólans árið 2006 og
kláraði svo mastersnám við School
of Visual Arts í New York árið 2009.
Kristín er hefur lært á fiðlu og
síðan á víólu frá unga aldri. Hún
hefur verið virk í íslensku tónlistar-
lífi undanfarin ár en hún hefur spil-
að með fjölda þekktra tónlistar-
manna og hljómsveita. Kristín hefur
jafnframt unnið við tísku frá ýmsum
hliðum bransans.
Samrýmdar systur
„Við höfum alltaf verið samrýmdar
systur og kannski vísar nafnið á
línunni í það samband, við höfum
alltaf verið með svipaðan smekk og
fagurfræði,“ segir Kristín í spjalli við
blaðamann.
„Við komum úr þessu ólíka um-
hverfi. Hún með myndlistina og ég
með tónlistina. En á sama tíma og
ég hef verið í tónlistinni þá hef ég
verið með annan fótinn í tískunni.
Við erum svolítið að reyna að finna
skemmtilegan grundvöll á milli
myndlistar og hönnunar.
Við gerðum til dæmis gluggann í
GK. Þar erum við að reyna að víkka
út hugmyndaheim okkar.“
Notuðu óhefðbundin efni
City Collection er fyrsta skart-
gripalína Twin Within og Kristín
segir hana innblásna af borgarlífi,
en líka af heimsmenningu, ætt-
bálkaskarti og iðnaði.
Festarnar eru grafískar og litríkar
og Kristín segir þær systur hafa not-
ast við óhefðbundin efni.
„Um leið og við erum að vísa í
borgarmenninguna þá erum við
líka að skoða efni og form sem vísa
í hana. Við notumst við efni sem
eru notuð í iðnaði, til að mynda við
veiðar og pípulagningar en eru á
sama tíma efni sem vísa í ættbálka-
menninguna.“ n
kristjana@dv.is
Ættbálkaskart og borgarlíf Í skartgripalínunni er vísað
í afrískt ættbálkaskart og borgarlíf nútímans.
Margt góðra gesta
Boðið var til veislu í GK
við Laugaveg.