Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Síða 40
kaloríusnautt
um hátíðarnar
40 Lífsstíll 30. nóvember – 2. desember 2012 Helgarblað
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
É
g hef ævilanga reynslu af
megrunarkúrum. Í gegnum
tíðina hef ég reynt
flest á þessu sviði
annað en að fara
í læknisaðgerð-
ir. Sem dæmi um
megrunaraðgerð
sem ég hef ekki farið í
er garnastytting. Ég hugleiddi það
en hætti snarlega við eftir að góð-
ur kunningi minn lýsti því hvern-
ig tengdamóðir hans kom út úr
slíkri aðgerð.
K
onan sú hafði glímt við offitu
um árabil. Flest hafði verið
reynt en alltaf kom fitan aft-
ur. Hún greip því í samráði
við lækni sinn til þess neyðar-
úræðis að láta stytta í sér garn-
irnar og minnka magann, ef ég
hef tekið rétt eftir. Félagi minn
lýsti þessu í smáatriðum und-
ir óskertri athygli minni. Þetta
bar góðan árangur og kon-
an varð í fyrsta sinn um langan
tíma grönn. En fæstar rósir eru
án þyrna. Hvimleiður fylgikvilli
styttingar og minnkunar var sá að
í hvert sinn sem hún settist leysti
hún vind með tilheyrandi hljóði
og lykt. Þetta sagði félaginn mér
allavega og ég gerðist fráhverfur
aðgerðinni.
A
nnað sem kom til greina var
fitusog. Sú aðgerð er í sjálfu
sér einföld. Mikill vinur
minn og félagi sem auðg-
aðist á hliðaráhrifum útrásarinn-
ar ákvað að taka á sínum málum.
Auði og hagsæld fylgir gjarn-
an óhóf af einhverju tagi. Hann
hafði í vellystingum sínum bætt
á sig alltof mörgum kílóum. Kav-
íarinn, kampavínið og allt hitt
hafði tekið sér bólfestu á líkama
hans. Vinur minn nennti ómögu-
lega í hefðbundna megrun. Hann
nennti ekki að hreyfa sig að gagni.
Þá taldi hann fráleitt að draga úr
neyslu á lúxusmat. Hann datt nið-
ur á þá frábæru lausn að leggjast
á skurðarborðið og láta dæla úr
sér fitunni. Mér fannst þetta líka
sniðugt og fékk að fylgjast með
framvindunni, án þess þó að vera
viðstaddur.
O
g þetta var allt eins og lagt
var upp með. Maður þjak-
aður af offitu fór undir
læknishendur og léttist um
þrjú kíló á hálftíma. Augu mín
urðu sem undirskálar þegar ég
sá umbreytinguna. Það var rétt
eins og hann hefði verið lost-
inn töfrasprota. Hviss bang, og
feitur maður varð mjór. Hann
lýsti þessu í smáatriðum. Það
gengu holnálar inn í spikkápuna
hér og þar. Gulleit slepjan rann
úr líkamanum og í þar til ætluð
ílát. Lýsingin var hrollvekjandi
og ég ákvað að hætta við. Auk
þess átti ég ekki handbærar 250
þúsund krónur til að borga fyrir
kraftaverkið.
V
inur minn fitnaði aftur.
Hann datt niður á nýja
lausn sem var sú að hreyfa
sig og hætta í kampavín-
inu og kavíarnum. Nú
hleypur hann eins
og héri, tágrann-
ur og fínn, um
borg og bý. Konan
með litla magann
og stuttu garnirnar
leysir enn vind þegar hún sest.
Sjálfur hefur ég fundið minn
takt í því að samræma hreyf-
ingu og mataræði. Það eru engar
töfralausnir til, aðeins einfaldar
lausnir. Tryggja þarf að það sem
fer inn gangi aftur út. Annars er
allt í vitleysu.
Léttist um þrjú
kíló á hálftíma
n Borðaðu góðan mat án þess að sleppa fram af þér beislinu
Jólin nálgast Það
er um að gera að nýta
hátíðarnar í að borða
góðan mat með vinum
og vandamönnum.
U
m hátíðarnar erum við
gjörn á að leyfa okkur meira
en venjulega þegar kem-
ur að mat og drykk. Enda er
það í góðu lagi. Hátíðarn-
ar snúast að miklu leyti um að njóta
þess að vera til og borða góðan mat
með vinum og vandamönnum. Það
er þó algjör óþarfi að fara alveg fram
úr sér og misþyrma líkamanum með
of mikilli óhollustu.
Þeir sem vilja passa upp á línurn-
ar geta líka alveg leyft sér ýmislegt
án þess að hafa áhyggjur af því að
þyngjast um mörg kíló yfir jólin. Það
þarf bara að velja rétta góðgætið og
njóta þess.
Kokteilar
Hér eru slæmar fréttir fyrir aðdáend-
ur gins og tóniks, því í einu glasi af
þessum vinsæla drykk er jafn mik-
ið sykurmagn og í tveimur kleinu-
hringjum með glassúr. Þá er mun
betra að skála í kampavíni, en glas
af því inniheldur tæplega fjórðung af
því sykurmagni sem er í gini og tónik.
Gin og tónik
n 240 kaloríur
n 22 grömm af sykri
Kampavín
n 100 kaloríur
n 5 grömm af sykri
Ídýfur
Ídýfur sem innihalda grænmeti
geta orðið mjög óhollar ef þær inni-
halda einnig ost, rjóma eða majónes.
Þá er betra að halda sig við ferskari
ídýfur eins og tómatsalsaídýfu eða
bruschettu. Þær eru hitaeininga-
snauðar og hollustan í grænmetinu
fær að njóta sín.
Spínat og ætiþistlaídýfa
(1/2 bolli)
n 300 kaloríur
n 19 grömm af fitu
Salsaídýfa (1/4 bolli)
n 10 kaloríur
n 0 grömm af fitu
Meðlæti
Það getur skipt miklu máli hvaða
hráefni eru notuð saman. Ef þú fyll-
ir til að mynda kartöflur með osti og
beikoni bætirðu að minnsta kosti 150
hitaeiningum við máltíðina. Þá getur
salat orðið mun óhollara ef þú set-
ur út á það brauðteninga og ítalska
dressingu. Þar bætast að minnsta
kosti 140 kaloríur við máltíðina.
Bökuð kartafla með smjöri
og sýrðum rjóma:
n 400 kaloríur
n 14 grömm af fitu (6 grömm
mettuð fita)
Steiktar rauðar kartöflur
(1/2 bolli)
n 100 kaloríur
n 5 grömm fita (1 gramm
mettuð fita)
Heitir drykkir
Ýmsar blöndur af heitum jólaleg-
um kaffidrykkjum njóta sífellt meiri
vinsælda hér á landi. Það kunna að
vera sorgarfréttir fyrir sælkera sem
vilja fá að drekka jólin í sig úr kaffi-
bolla, að margir þessara drykkja
innihalda fleiri kaloríur en Big Mac
hamborgari á McDonald‘s. Ef þú vilt
hugsa um línurnar en samt drekka
gott og öðruvísi kaffi gætirðu prófað
að fá þér svart kaffi með smá mjólk
og hella út í það dreitil af pipar-
myntusýrópi.
Hvítt súkkulaðimokkakaffi
n 660 kaloríur
n 22 grömm af fitu (15 grömm
mettuð fita)
n 95 grömm af sykri
Kaffi með mjólk
og piparmyntusírópi
n 150 kaloríur
n 5 grömm af fitu (3,5 grömm
mettuð fita)
n 17 grömm af sykri
Eftirréttir
Einn óhollasti eftirrétturinn sem þú
getur valið þér er pekanhnetubaka.
Það skrifast aðallega á fyllinguna
sem inniheldur bæði mikið af sírópi
og sykri. Veldu frekar súkkulaði-
fondú með ávöxtum. Það er miklu
hollara og skemmtilegra, sérstaklega
í góðra vina hópi um hátíðarnar.
Pekanhnetubaka
n 810 kalóríur
n 65 grömm af fitu
n 55 grömm af sykri
Súkkulaðifondú
n 340 kaloríur
n 10 grömm af fitu
n 28 grömm af sykri