Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2013, Qupperneq 12
Ö
ll þjóðin krefst þess að þessi
skrímsli verði hengd. Ég er
sammála þeim.“ Þetta segir
faðir 23 ára konu sem var
fórnarlamb hrottalegrar
nauðgunar í strætisvagni þann 16.
desember í Nýju-Delí á Indlandi.
Nauðgunin og árásin sem konan
varð fyrir var svo hrottafengin að
hún lést af sárum sínum í Singapúr
12 dögum síðar, þann 28. desem-
ber. Málið hefur vakið mikla reiði á
Indlandi og er það almenn skoðun
fólks á Indlandi að ekki sé nógu
hart tekið á ofbeldi gegn konum
og jafnvel sé horft framhjá því.
Árásarmennirnir voru sex en fimm
þeirra voru ákærðir á fimmtu-
dag og bíða þeir nú dóms. Verði
þeir fundnir sekir geta þeir fengið
dauðadóm.
Kölluð „hin hugrakka“
Unga konan hefur verið kölluð „hin
hugrakka“ í indverskum fjölmiðl-
um. Samkvæmt indverskum lög-
um varðar það tveggja ára fangelsi
að nafngreina fórnarlömb kynferð-
isofbeldis og þess vegna hefur nafn
hennar ekki verið gert opinbert. Af
sömu ástæðu hefur ekki heldur ver-
ið birt mynd af henni. Konan unga
var frá þorpinu Mandwara Kalan í
Uttar Pradesh-héraði á Indlandi og
þar ávarpaði faðir hennar fjölmiðla-
menn sem vildu ná af honum tali.
Greint hefur verið frá því að einn
eða tveir ofbeldismannanna hafi
verið undir 18 ára aldri og því ekki
sakhæfir. Faðir stúlkunnar sagð-
ist krefjast þess að breytingar yrðu
gerðar á lögum þannig að heimilt
yrði að dæma til dauða einstaklinga
undir 18 ára aldri.
Vildi bara hjálpa
Í ávarpi sínu talaði faðirinn hlýlega
um dóttur sína og sagði hana ávallt
hafa verið reiðubúna til að hjálpa öðr-
um. Hún stundaði nám í sjúkraþjálf-
un í Nýju-Delí og sagði faðir hennar
að hún hefði heitið því að leggja sitt
af mörkum til að bæta lífskjör íbúa í
heimaþorpi sínu. „Hún sagði: Pabbi,
í þorpinu er allt mjög vanþróað. Ef
ég verð læknir einn daginn þá verð-
ur mitt fyrsta verkefni að bæta kjör
íbúanna hér.“
Mál ungu konunnar virðist hafa
ýtt undir ákveðna vitundarvakningu
í þessu næstfjölmennasta ríki heims.
Í umfjöllun Reuters-fréttastofunnar
kemur fram að kynferðisglæpir séu
tilkynntir á að meðaltali tuttugu mín-
útna fresti á Indlandi. Mikil mótmæli
hafa sprottið upp og á fjöldasamkom-
um er ungt fólk oftar en ekki í for-
grunni.
Þessi mótmæli virðast hafa komið
einhverri hreyfingu á indversk stjórn-
völd því nú þegar hafa verið skipað-
ar tvær sjálfstæðar nefndir sem hafa
það hlutverk að finna leiðir til að
bæta öryggi indverskra kvenna. Önn-
ur nefndanna, sem meðal annars
er skipuð fyrrverandi hæstaréttar-
dómurum, hafði fyrir helgi fengið
sautján þúsund uppástungur frá al-
menningi um það sem betur mætti
fara. Nefndinni er ætlað að skila
fyrstu niðurstöðum sínum fyrir lok
mánaðarins.
Hengingar sjaldgæfar
Alls er óvíst hvaða refsing bíður
hrottanna sem nú hafa verið ákærð-
ir. Margir eru þeirrar skoðunar að
þeir eigi að hljóta grimm örlög og
vera hengdir. Hengingar eru lög-
legar í Indlandi en þeim er beitt afar
sjaldan. Þeirri refsingu var síðast
beitt í nóvember síðastliðnum
þegar uppreisnarmaðurinn Mo-
hammed Ajmal Kasab var tekinn af
lífi. Hann var einn þeirra sem gerðu
hryðjuverkaárás á hótel í Mumbaí
árið 2008. Áður en þeim dómi var
framfylgt höfðu átta ár liðið frá síð-
ustu aftöku með hengingu.
Vildu kenna henni „lexíu“
Lögregluyfirvöld í Nýju-Delí hafa
upplýst að mennirnir hafi játað að
hafa nauðgað ungu konunni og
beitt hana hryllilegu ofbeldi. Sam-
kvæmt upplýsingafulltrúa lögreglu
vildu þeir „kenna henni lexíu“. Hún
er sögð hafa barist hetjulega gegn
þeim og bitið þrjá af þeim. Þegar
mennirnir höfðu hent henni út úr
strætisvagninum reyndi ökumaður-
inn að aka yfir hana en maður sem
var með henni í för og varð einnig
fyrir ofbeldi náði að draga hana frá
vagninum á síðustu stundu. Málið
gegn mönnunum er viðamikið og
hefur lögregla útbúið þúsund blað-
síðna skýrslu sem verður notuð
gegn mönnunum. Meðal annars er
þar að finna vitnisburð manns sem
var rændur eigum sínum af þessum
sömu mönnum fyrr um kvöldið.
Faðir stúlkunnar sagði í lok
ávarps síns að það væri ósk hans að
nafn dóttur hans yrði gert opinbert.
Þannig yrði minningu hennar betur
haldið á lofti. n
„SkrímSlin“
verði hengd
12 Erlent 7. janúar 2013 Mánudagur
n Faðir nauðgunarfórnarlambs á Indlandi opnar sig n Vill dauðarefsingu
Jólagjafir á eBay
Nokkur þúsund jólagjafir rata á
uppboðsvefinn eBay á hverju ári
og virðast jólagjafirnar um ný-
liðin jól ekki hafa verið upp á
marga fiska. Breska blaðið Daily
Mail fjallaði um þetta á dögun-
um en þar kom fram að um þrjú
þúsund jólagjafir þar í landi rati
á uppboðsvefinn. Samkvæmt
óformlegri könnun sem gerð var
fyrir skemmstu kemur fram að
fullorðinn einstaklingur fær að
meðal tali tvær jólagjafir sem hann
kærir sig ekki um. Það kemur því
kannski ekki sérstaklega á óvart að
margar þeirra rati á uppboðsvefi
á borð við eBay. Sumir virðast þó
láta tilfinningarnar ráða för þegar
þeir ákveða að selja gjafirnar á
vefnum. Í einni auglýsingunni
eru þrjár óopnaðar gjafir boðnar
til sölu í eins konar happdrætti
en viðkomandi hafði nýlega hætt
með maka sínum. „Uppboðið
stendur í sólarhring og ég vil bara
losna við þetta. Ég veit ekkert hvað
er í pökkunum en ég veit að þær
eru frá skítseiði sem heldur að
gjafir séu leiðin að hjarta mínu.“
Útskrifuð af
sjúkrahúsi
Fimmtán ára pakistönsk stúlka,
Malala Yousafzai, hefur verið út-
skrifuð af sjúkrahúsi í Birming-
ham á Englandi eftir þriggja
mánaða sjúkrahúsdvöl. Mál stúlk-
unnar vakti mikla athygli í lok síð-
asta árs en hún var skotin í höf-
uðið af stuttu færi í heimalandi
sínu. Árásarmennirnir voru talí-
banar sem vildu hana feiga vegna
baráttu hennar fyrir bættum
réttindum kvenna í Pakistan.
Malala var flutt til Bretlands
eftir árásina þar sem hún hefur
verið undir stöðugu eftirliti lækna.
Þótt ótrúlegt megi virðast er
Malala við nokkuð góða heilsu og
virðist hún hafa náð sér að fullu.
Hún mun dvelja áfram í Bretlandi
og gangast undir lýtaaðgerðir á
höfði á næstunni.
Færri vilja
Ferrari en fyrr
Sala á lúxusbílunum Ferrari og
Maserati var heldur dræm á ný-
liðnu ári, að því er fram kemur í
umfjöllun breska ríkisútvarpsins,
BBC. Sú er að minnsta kosti raunin
á Ítalíu, heimalandi bifreiðanna, en
þar minnkaði sala á nýjum Ferrari-
bifreiðum um 56 prósent frá árinu
2011 og voru einungis 248 bifreiðar
keyptar á Ítalíu á liðnu ári. Sala á
nýjum Maserati-sportbifreiðum
dróst saman um 72 prósent.
Efnahagsniðursveiflan á Ítalíu
er talin hafa sín áhrif en samtök
bílaframleiðenda á Ítalíu kenna
auknum skattheimtum um minnk-
andi sölu. Maserati og Ferrari eru í
eigu Fiat.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Ef ég verð
læknir
einn daginn þá
verður mitt fyrsta
verkefni að bæta
kjör íbúanna hér
Úrbætur Almenningur
hefur stormað út á götur
og krafist úrbóta. Hér
sést hópur lögmanna í
Nýju Delhi sem krafðist
þess að dómskerfið tæki
harðar á nauðgurum og
ofbeldishrottum.
99.135 42.968 35.565 24.206 8.618 8.570 9.652
Af hálfu eigin-
manns eða
skyldmennis
Fjöldi tilkynntra mála árið 2011
Nauðgunarglæpir í hlutfalli við aðra glæpi gegn konum
Ofbeldi gegn konum á Indlandi
Kynferðisleg
áreitni Mannrán Nauðgun
2007 2008 2009
2010 2011
Heiðurs-
morð
Kyn-
ferðisleg
áreitni á
vinnustað Annað
Nauðganir
Annað
20.737 21.467 21.397 22.172 24.206
185.312 195.856 203.804 213.585
228.650
HeiMild: iNdia‘s NatioNal CriMe reCords Bureau