Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2013, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2013, Blaðsíða 15
Ég myndi berja hana í andlitiðHún er allt of góð Ólafur Vigfús Ólafsson segist aldrei hafa hótað Hildi Lilliendahl. – DV Bjartsýni og vonir glæðast Spurningin „Já, það eru einungis við sem apar sem skynjum tímann sem ör.“ Hákon Jens Pétursson 31 árs frumkvöðull „Nei.“ Margrét Mjöll Benjamínsdóttir 17 ára nemi „Það gæti verið mögulegt án okkar vitundar.“ Margaret Rose Swenson 19 ára þjónn „Nei, það er ekki mögulegt.“ Örn Erlendsson 23 ára námsmaður „Nei, því miður.“ Einar Logi Hreinsson 23 ára námsmaður Er tímaflakk mögulegt? 1 Flugdólgurinn betri afþreying en gamlar kvikmyndir Mishörð og misgáfuleg ummæli fólks um íslenska flugdólginn í erlendum miðlum. 2 Höfðu þvaglát yfir unga stúlku og misnotuðu kynferð- islega í partíum Lögreglan í Steubenville setur upp opin- bera heimasíðu vegna nauðgunarmáls. 3 Grennri Siggi stormur mætir aftur Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur verður með veðurfréttir á sjónvarpsstöðinni ÍNN. 4 Milljóna króna niðurfærslur hjá lántakendum Stóru bankarnir komnir á veg með endurútreikninga ólögmætra lána. 5 „Ég forðaði mér“ Íþróttamaðurinn Adolf Ingi flutti til Reykjavíkur eftir að hafa orðið faðir 17 ára. 6 Spáir miklum verðhækkunum á matvælum Forstjóri breskrar verslunarkeðju býst við verðsprengingu á nýju ári. 7 Félög Jóns Ásgeirs með 146 milljarða lán Saman voru áhættuskuldbindingar þeirra langt yfir 25% mörkunum. Mest lesið á DV.is Á síðustu dögum hafa birst tvær athyglisverðar fjölþjóð- legar kannanir þar sem fólk er spurt um ánægju með líf sitt eða beðið að leggja mat á horfur og aðstæður í sínu heimalandi. Kannanirnar tvær eru ólíkar. Annars vegar er það Eurobarometer könnun- in frá því í nóvember sem Capacent framkvæmir á Íslandi. Eurobarometer könnunin nær til um 30 Evrópulanda. Hins vegar er árleg könnun Gallup á alþjóðavísu sem Capacent Gallup framkvæmir á Íslandi. Þar er spurt um ánægju og efnahagsvæntingar. Niðurstöður úr báðum þessum könnunum hljóta að teljast mjög já- kvæðar fyrir Ísland. Þær rýma ríma einnig ágætlega við þróun helstu hag- vísa hér á landi undanfarin misseri samanborið við önnur þróuð lönd og alveg sérstaklega önnur Evrópulönd. Flestir erlendir greinendur og umfjöll- unaraðilar um efnahagsmál sem hafa úttalað sig um Ísland hafa sömuleiðis almennt verið á jákvæðum nótum þegar þeir fjalla um þróun mála hér að undanförnu. Eurobarometer Í hinni viðamiklu Eurobarometer Eurobarometer-könnun eru viðhorf könnuð til allmargra þátta. Til að mynda er spurt hvort aðstæður í við- komandi landi séu nú að þróast í rétta eða ranga átt. Þar kemur Ísland slá- andi vel út í samanburði við önnur lönd. Mun stærri hluti þjóðarinn- ar telur þróunina vera í rétta átt en hjá næstu þjóðum sem reynast vera Danmörk og Svíþjóð. Ísland hefur bætt stöðu sína í þessu efni frá síð- ustu mælingum. Tæplega 60% svar- enda á Íslandi telja Ísland á réttri leið, næst bjartsýnastir eru Danir en 46% þeirra eru sömu skoðunar, þ.e. telja aðstæður vera að þróast í rétta átt en hinir eru næstum jafn margir í tilviki Dana sem telja svo ekki vera. Meðaltal hinna bjartsýnu innan ESB ESB-ríkj- anna er einungis um 24%. Um 28% svarenda á Írlandi telja að land þeirra sé á réttri leið en mun stærri hluti, eða um 46%, vill meina hið gagnstæða. Staðan er því gerólík á Íslandi eins og sjá má í töflunni að neðan. Í Eurobarometer könnuninni kemur auk þess fram að um 60% Ís- lendinga telja að botni kreppunnar á vinnumarkaði sé þegar náð, en einungis um þriðjungur telur það versta eftir. Þetta er sömuleiðis mun jákvæðari niðurstaða en í öllum öðr- um Evrópulöndum sem könnunin tekur til. Gallup Íslendingar eru almennt ánægðir með lífið samkvæmt nýrri alþjóðlegri könnun Gallups sem nær til 50 landa. Ísland er í tíunda sæti yfir ánægðustu þjóðir heims þegar spurt er hvort fólk sé ánægt eða óánægt með líf sitt. Á Íslandi eru um 68% ánægð með líf sitt og 7% óánægð. Um 24% segjast hvorki ánægð né óánægð og 1% tekur ekki afstöðu. Íbúar Rómönsku-Am- eríku eru ánægðaastir með lífið en mest hefur dregið úr ánægju í Afríku og sumum löndum Vestur-Evrópu miðað við niðurstöður sambærilegrar könnunar ári áður. Niðurstaða Samandregið benda niðurstöður þessara kannana sterklega til þess að Íslendingar séu á nýjan leik í fremstu röð meðal þjóða heims hvað snertir ánægju með líf sitt og lands- menn bjartsýnir á það sem framund- an er. Íslenska þjóðin sjálf virðist sem sagt telja sig vera á réttri leið. Það er athyglisvert og ánægjulegt í senn því ekki vantar nú að ýmsir reyni í sínum málflutningi að telja landsmönnum trú um hið gagnstæða. Fallegt veður Reykjavíkurborg skartaði sínu fegursta í fallegu vetrarveðri á sunnudag. Athygli vekur að þó að nú sé hávetur hefur oft verið meiri snjór í Esjunni. MyNd PrEssPhotos.bizMyndin Umræða 15Mánudagur 7. janúar 2013 Við þurfum að borga með okkur Íris Mist segist ekki kvarta þótt það sé fáránlegt að Evrópumeistarar þurfi að greiða æfingagjöld. – DV Adolf Ingi Erlingsson segist hafa verið heppinn að næla í kærustuna 14 ára. – DV Eru aðstæður í landinu nú að þróast í rétta eða ranga átt? Kjallari Steingrímur J. Sigfússon Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra „Samandregið benda niðurstöður þessara kannana sterk- lega til þess að Íslendingar séu á nýjan leik í fremstu röð meðal þjóða heims hvað snertir ánægju með líf sitt Ísland Danmörk Svíþjóð Austurríki Bretland Tyrkland Finnland Lúxemborg Þýskaland Malta Holland Makedónía Írland Lettland Eistland Búlgaría Pólland ESB meðaltal (27) Slóvakía Litháen Frakkland Króatía Portúgal Belgía Rúmenía Ungverjaland Slóvenía Ítalía Tékkland Spánn Kýpur Grikkland 57 46 44 39 38 37 36 33 33 32 29 28 28 27 27 27 26 24 23 23 23 19 17 17 14 14 12 12 12 10 4 4 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 Rétta átt Ranga átt h Ei M il d : E u r o b a r o M Et Er

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.