Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Blaðsíða 25
Fólk 25Mánudagur 14. janúar 2013
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
K
atie Holmes mætti óvænt til
réttarhalda í Queens í síðustu
viku. Réttað var yfir Li Hang-
bin sem er sakaður um að
hafa hrist unga dóttur sína til dauða
árið 2007.
Minnst var á viðveru Katie í The
New York Times. Almannatengill
Katie segir hana nána vinkonu sak-
sóknara í málinu, Leigh Bishop, og
hún hafi mætt til að fylgjast með
henni. Hann vildi ekki gefa upp
hvort hún væri að undirbúa sig fyrir
hlutverk í kvikmynd. „Hún var þarna
fyrst og fremst til að sýna vinkonu
sinni stuðning,“ sagði fulltrúinn
en Katie fór strax eftir að vinkonan
hafði kynnt mál sitt.
G
amanleikararnir kampa-
kátu, Tina Fey og Amy
Poehler, voru kynnar á
Golden Globes-verð-
launahátíðinni á sunnu-
dagskvöld og voru í skemmtilegu
viðtali í Hollywood Reporter áður
en þær stigu á svið. Þar fóru þær á
kostum og komu með hugmynd að
drykkjuleik fólki til skemmtunar.
Fey: „Í hvert sinn sem leikkona
grætur í ræðu, fáið ykkur sopa. Í
hvert skipti sem þú sérð mann-
eskju á sviði sem er greinilega ekki
að hlusta á ræðu þess sem er í
pontu, taktu sopa.“
Poehler: „Og í hvert skipti sem
einhver segir, ég var nú ekki búinn
að undirbúa neitt!“
Fey:„Í hvert skipti sem ein-
hver þakkar Harvey Weinstein á að
borða brauðbát með kjötbollum.“
Fey: „Í hvert skipti sem Judi
Dench er sýnd á skjánum, þá skal
fara úr einni flík.“
Poehler: „Og í hvert skipti sem
Maggie Smith vinnur til verð-
launa.“
Í viðtalinu gáfu þær einnig
til kynna að þær hefðu mjög af-
slappað viðhorf til hlutverks síns á
kvöldinu. „Við höfum ekki undir-
búið neitt,“ gantaðist Fey með og
bætti því við þær ætluðu ekki einu
sinni að horfa á allar þessar myndir.
Þær útskýrðu af hverju Globe-
verðlaunahátíðin þyki alltaf frétt-
næm. „Þar er fullt af fólki í einu
herbergi sem fær ekki mikið að
borða, þú gefur þeim einn drykk
og góðir hlutir gerast hratt,“ sagði
Tina og skellti upp úr.
M
iley Cyrus heldur áfram
að birta myndir af sér
á samskiptasíðunni
Twitter en fáar stjörnur
eru jafn duglegar við þá
iðju og ungstirnið.
Nýjasta myndin er af henni,
litlu systur og útskornu pappa-
spjaldi af tónlistarmanninum, og
fyrrverandi kærasta Taylor Swift,
Harry Styles úr strákasveitinni One
Direction.
Í texta sem fylgir myndinni
kemur fram að yngri systir Miley,
hin 13 ára Noah, sé svo mikill að-
dáandi strákasveitarinnar að hún
hafi samið sérstakan afmælis-
söng handa sjálfri sér þegar hún
frétti að Taylor og Harry væru
hætt saman: „happy bday to me
happy bday to me Harry broke
up with Taylor happy bday to
me,“ hljóðar textinn.
Sjálf segist Miley engan áhuga
hafa á tónlistarmanninum. „Ég
er hamingjusöm og trúlofuð. Ég
gleymdi mér bara í smá stund
með spjaldinu.“
Kossaflens með
pappaspjaldi
n Miley er sinn eigin fjölmiðill
Vinsæll Breski söngvarinn er svaka-
lega vinsæll á meðal ungra stúlkna.
Kossaflens
Litla systir
Miley Cyrus
er afar mikill
aðdáandi One
Direction.
Drykkjuleikur
Tinu og Amy
n Enginn undirbúningur n Allir fullir og enginn að taka eftir
„ Í hvert skipti sem
Judi Dench er sýnd
á skjánum, þá skal fara
úr einni flík.
Afslappaðar
Amy og Tina
sögðu frá því fyrir
verðlaunahátíð-
ina að þær væru
nú ekki búnar að
undirbúa neitt.
Katie mætti í réttarhöld
n Li sakaður um að hafa hrist dóttur sína til dauða
Góð vinkona
Katie reynist
góð vinkona.