Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 18
n „Hér ætlum við að ræða og skoða gott dóp á Íslandi“ n Fíkniefni á Facebook Gott aðgengi Ljóst er að afar auðvelt er að nálgast ólögleg fíkniefni hér á landi. Myndin er sviðsettDíla með Dóp unDir fullu nafni H ér ætlum við að ræða og skoða gott dóp á Íslandi. Endilega verið dugleg að adda vinum lofum samt ekki að taka við hverjum sem er ;) Eins verið dugleg að láta vita af fólki sem á ekki heima hérna inná ;)“ Svona er lýsingin á Facebook- hópnum Adidas, hóp sem hefur þann tilgang einan að auðvelda kaup og sölu ólöglegra fíkniefna. Meðlimir hans eru 360 talsins og koma margir fram undir nafni auk þess sem ófáir gefa jafnvel upp símanúmer er þeir auglýsa ólögleg fíkniefni og ýmsa muni, hugsanlega þýfi, til sölu. Fjölbreyttur hópur Hópurinn er lokaður svo aðeins meðlimir hans geta séð það sem sett er inn á síðuna en hópurinn er afar fjölbreyttur. Í honum er fólk á öllum aldri; allt frá framhaldsskólanem- um upp í miðaldra fjölskyldufólk og koma allmargir fram undir fullu nafni á síðunni. Ljóst er að sum- ir meðlimir hópsins eru foreldrar ungra barna og á meðal notenda síðunnar eru allt frá starfsmanni á leikskóla upp í margdæmda brota- menn auk þess sem þjóðþekktur tónlistarmaður er einnig meðlimur í hópnum. Ekki er þó hverjum sem er heim- ill aðgangur, líkt og fram kemur í lýsingu stjórnenda, og í færslu sem sett var inn þann 24. janúar síð- astliðinn eru tilgreindar siðareglur síðunnar þar sem meðal annars er kveðið á um að nöfn meðlima eigi ekki að spyrjast út fyrir síðuna og að ekki megi bæta við fólki í hóp- inn sem ekki notar fíkniefni. Mögulegt þýfi til sölu Óhætt er að segja að framboðið af fíkniefnum á síðunni sé gríðarlega mikið. Ekki er óalgengt að á hverj- um degi séu settar inn 15 til 20 færsl- ur þar sem fíkniefni á borð við hass, e-töflur, kókaín, spítt og sveppi eru auglýst til sölu auk þess sem nokk- uð magn af læknadópi er í umferð á síðunni. Samkeppnin á hópnum er því nokkur en verð fíkniefnanna er gjarnan gefið upp auk þess sem margir bjóða upp á heimsendingu og lofa hraðri og góðri þjónustu, sé verslað við þá. Eins bjóða sum- ir upp á afslátt sé efni keypt í miklu magni eða fleiri en eitt efni keypt. Innan hópsins eru þó ekki ein- göngu seld fíkniefni því þar hafa allmargir deilt myndum af hinum ýmsum munum til sölu. Má þar nefna gullúr frá Fossil, dúnúlpu frá 66°Norður og iPhone-síma. Allt eru þetta notaðir hlutir og ekki er útilokað að um þýfi sé að ræða. Á síðunni eru einnig til sölu hlut- ir sem tengjast neyslu fíkniefna, til dæmis svokallaður „vaporizer“ en slíkt tæki er notað til að neyta kannabisefna. Fleiri svona síður Aðgengi að fíkniefnum á Íslandi er talsvert betra en marga eflaust grunar en fjölmargar íslenskar Facebook-síður hafa þann til- gang einan að auðvelda slík við- skipti. DV hefur áður fjallað um slíkar síður en í síðustu viku var til að mynda greint frá Facebook- hópnum Mucho Grande þar sem fram fer umfangsmikil sala á fíkni- efnum sem og ólöglegum dýrum á borð við snáka. Í júlí 2012 var einnig fjallað um hópinn Rebels sem innihélt um hundrað manns og var þar mikið úrval ólöglegra fíkniefna til sölu. n 18 Fréttir 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefna- deildar lögreglunnar, vildi lítið tjá sig um málið þegar blaðamaður spurði hann út í umrædda síðu. Kannastu við þessa síðu? „Ég þyrfti aðeins að skoða það. Ég kannast við eitthvað af þessum síðum en ég ætla nú ekki að fara að tjá mig um hverja einustu sem er svona. Eins og ég sagði við ykkur um daginn þá er þetta eitt formið af miðlun á efnum og það er bara ekki tilefni til þess, finnst mér, að fara að tjá mig um hvert og eitt; hvort ég þekki þetta og þekki hitt, ég hef bara ekki tíma í svoleiðis. Við erum náttúrulega bara að fylgjast með þessu og þetta er eitt af því sem við skoðum.“ Þannig að þið vitið af mörgum svona síðum? „Við vitum af mörgum svona síðum, já. Við vitum af þessu fyrirkomulagi til þess að miðla efnum.“ Af hverju hefur ekkert verið gert? „Hvað áttu við? Veistu eitthvað hvað við höfum gert, eða?“ Eruð þið sem sagt að vinna í því að uppræta þessa síðu og aðrar svipaðar? „Við myndum náttúrulega ekki greina frá því fyrirfram. Þannig að það verður bara tíminn að sýna.“ Er erfitt að uppræta svona síður? Eru þetta flókin mál? „Já, þau eru það.“ Þannig að þú vilt ekki tjá þig um málið? „Nei, ég eins og ég sagði um daginn þá er þetta eitt formið til þess að miðla fíkni- efnum og við skoðum hvaða úrræðum við getum beitt til þess að grípa þar inn í eins og lög heimila okkur. Það er í raun ekkert meira sem ég get sagt.“ Skortir lögregluna mannafla til að vinna í svona málum? „Nei,nei. Veistu, ég nenni ekki í þessa um- ræðu. Þetta er fínt. Þetta er svarið frá mér. Nú þarf ég að sinna öðru.“ Hörn Heiðarsdóttir blaðamaður skrifar horn@dv.is selur símann iPhone 4 í boði fyrir peninga og fíkniefni. Ólögleg fíkniefni Ofskynjunarsveppir, afmetamín og fentanyl til sölu. samkeppni Sumir bjóða upp á heimsendingu og afslátt. Framboð og eftirspurn Notendur hópsins leggja sjálfir fram fyrirspurnir um fíkniefni. siðareglur Samkvæmt siðareglum hópsins eru klöguskjóður (e. snitches) ekki vel séðar. „Ég nenni ekki í þessa umræðu“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.