Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 28
28 Sport 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað Toppliðin mætast n Liverpool hefur aðeins unnið einn af síðustu tíu leikjum sínum gegn Arsenal S annkallaður stórleikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardag þegar topplið Arsenal tekur á móti Liverpool. Bæði lið hafa farið vel af stað í deildinni og virðast til alls líkleg. Arsenal er sem fyrr segir á toppnum með 22 stig en Liverpool er skammt undan með 20 stig. Fleiri athyglisverðir leikir eru á dagskránni um helgina og má þar nefna viður- eign Everton og Tottenham á Good- ison Park á sunnudag. Arsenal haft betur Óhætt er að segja að Arsenal hafi vinninginn þegar síðustu tíu viður- eignir liðanna eru skoðaðar. Liðin hafa mæst níu sinnum í deild og einu sinni í deildarbikar á þessum tíma og hefur Arsenal unnið fimm leiki, fjórir hafa endað með jafntefli en Liverpool hefur aðeins unnið einn. Markatalan er 17–13 Arsenal í hag. Þessi tölfræði er einungis til viðmiðunar og ekki er ráðlegt að taka hana of alvarlega. Liverpool hefur verið í djúpum öldu- dal á síðustu árum en Brendan Rod- gers, stjóri Liverpool, hefur gert frá- bæra hluti að undanförnu og virðist ætla að takast að gera Liverpool að toppliði að nýju. Það má því gera ráð fyrir frábærri skemmtun síðdegis á laugardag þegar tvö heitustu lið úr- valsdeildarinnar mætast. David Moyes er ekki saknað Chelsea hefur verið á góðu skriði undanfarnar vikur og er sem stend- ur í 2. til 3. sæti deildarinnar með 20 stig eins og Liverpool. Liðið mæt- ir Newcastle á útivelli í fyrsta leik tí- undu umferðar í hádeginu á laugar- dag. Gengi Newcastle hefur valdið mörgum stuðningsmönnum liðsins vonbrigðum en liðið er sem stendur í 11. sæti deildarinnar með 11 stig. Sem fyrr segir mætast Everton og Tottenham í stórleik sunnudagsins, en Roberto Martinez, nýr stjóri Ev- erton, hefur séð til þess að stuðn- ingsmenn Everton sakna David Moyes ekkert. Everton er í 6. sætinu með 18 stig en Tottenham í því fjórða með 19 stig. Manchester-lið í basli Gengi Manchester-liðanna hefur verið undir væntingum það sem af er en þessi lið verða í eldlínunni um helgina. Manchester United heim- sækir Fulham á laugardag en á sama tíma tekur Manchester City á móti Norwich. Bæði lið þurfa í raun á sigri að halda til að dragast ekki aftur úr í toppbaráttunni sem verður gríðar- lega hörð í vetur. City er í sjöunda sæti deildarinnar með 16 stig en United í því áttunda með fjórtán stig. Bæði Norwich og Fulham hefur gengið illa í vetur. Norwich er í fallsæti, með 8 stig í 18. sæti deildarinnar en Fulham er í 13. sætinu með 10 stig. Loks má geta þess að South- ampton, sem hefur komið allra liða mest á óvart í vetur, heimsækir Stoke á laugardag. Southampton er í 5. sæti úrvalsdeildarinnar með 18 stig en Stoke í því 17. með 8 stig. n B jarni Felixson er líklega einhver þekktasti íslenski stuðningsmaður Arsenal. Bjarni, sem spáir því að sín- ir menn hafi betur gegn Liverpool um helgina, segist fylgjast ágætlega með enska boltanum. Hann hafi hins vegar orðið hrifnari af þeim þýska, eftir því sem tíminn líði. Newcastle - Chelsea 1–1 „Það benda allar spár til þess að Chelsea vinni leikinn. Newcastle leikur hins vegar í KR-búningum og þess vegna tekst þeim að halda jöfnu. Fulham - Man Utd 1–2 „Ég held að Manchester United sé komið í gang, þó ég sé ekkert sérlega hlynntur því. Ég hef mikl- ar mætur á Moyes, sem er son- ur ágæts kunningja míns. Ég spái United sigri enda gera flestar spár ráð fyrir því.“ Hull City - Sunderland 1–0 „Þetta verður spennandi leikur. Sunderland vann loksins leik um síðustu helgi og það er ekki langt á milli þessara liða. Hull stóð sig vel í síðasta leik og átti ekki skilið að tapa á móti Tottenham.“ Man City - Norwich 3–0 „Þarna hallast ég að heimasigri. Norwich hefur átt misjafna leiki. Þeir hafa átt það til að bíta hressi- lega frá sér en tapa svo illa inn á milli. Ég held að þeir steinliggi þarna. Þarna ráða peningarnir.“ Stoke City - Southampton 0–0 „Southampton er lið sem hefur komið hvað mest á óvart á þessari leiktíð. Ég held að þessum leik lykti með jafntefli.“ West Brom - Crystal Palace 2–0 „Þarna hallast ég að heimasigri. Þetta verður erfitt tímabil hjá Palace. Þurfa þeir að safna liði í janúar en á meðan þeir gera það ekki verða þeir á botninum. West Brom vinnur.“ West Ham - Aston Villa 1–1 „Þessi lið eru bæði um og fyrir neðan miðju. Gengi Aston Villa hefur verið skrykkjótt. Þeir unnu Arsenal á útivelli í fyrstu um- ferðinni en hafa ekki staðið sig vel síðan. West Ham hefur klórað í bakkann og náð þessum stigum sínum með litlum glæsibrag.“ Arsenal - Liverpool 2–1 „Þetta eru liðin í fyrsta og þriðja sæti og það er skammt á milli þeirra. Ég verð að halda með mínum mönnum og segja að Arsenal vinni þennan leik. Mín- ir menn leika fallega fótbolta og sennilega besta fótboltann í deildinni. Það hefur verið órói innan Liverpool undanfarin ár en ég þekki ekki hvort eigendurnir hafa þar verið að hræra í hlutun- um. Rodgers hefur fengið frið og nýtt þennan tíma mjög vel. Leik- mennirnir hafa trú á honum og því sem hann er að gera. Liðið spilaði undir getu í fyrra og hitteðfyrra og það var óskiljanlegt hvað þeim gekk illa. Þeir eru með virkilega gott lið og gamli sig- urviljinn, sem maður þekkir frá fornu fari, er kominn aftur.“ Everton - Tottenham 1–0 „Everton er það lið ásamt Sout- hampton sem hefur komið mest á óvart. Everton með nýjan stjóra og þeir hafa bara eflst við það að Moyes hverfi á braut.“ Cardiff - Swansea 2–2 „Þetta er úrstlialeikur fyrir Wales- menn. Sagan segir að í svona grannaslag lykti leiknum með jafntefli – eftir mikil læti.“ n „Verð að halda með mínum mönnum“ n Bjarni Fel spáir í spilin fyrir leiki helgarinnar n Spáir Arsenal sigri gegn Liverpool í toppslagnum Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Grjótharður Bjarni segir að sínir menn í Arsenal vinni sigur gegn sterku Liverpool-liði. Tveir góðir Luis Suarez hefur skorað sex mörk í fjórum leikjum á tímabilinu en Ramsey fimm mörk í átta leikjum. Þeir eru tveir heitustu leikmenn deildarinnar. Aaron Ramsey Aldur: 22 Leikir: 8 (1) Mörk: 5 Stoðsendingar: 4 % heppnaðra sendinga: 87,3 Skot í leik: 2,3 Luis Suarez Aldur: 26 Leikir: 4 Mörk: 6 Stoðsendingar: 1 % heppnaðra sendinga: 82,8 Skot í leik: 5,8 Vissir þú … … að Michu hefur aðeins skorað eitt mark í síðustu fjórtán úrvalsdeildarleikjum með Swansea. … að enginn leikmaður hefur komið oftar inn á sem varamaður en Shola Ameobi (127) í sögu ensku úrvals- deildarinnar. … að undir stjórn Sir Alex Ferguson vann Manchester United 305 af 405 heimaleikjum sínum í ensku úrvals- deildinni. Vinningshlutfallið er 75,31%. … að Jermain Defoe hefur skorað flest mörk í sögu úrvalsdeildarinnar (21) eftir að hafa komið inn á sem varamaður. … að Alan Shearer hefur klúðrað flestum vítum í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, eða ellefu. … að Tottenham hefur á þessu tímabili unnið fjóra leiki 1–0, eða jafnmarga og liðið gerði allt síðasta tímabil. … að Manchester City hefur aðeins unnið fjóra af síðustu þrettán úti- leikjum sínum í deildinni. Enski boltinn Staðan 1 Arsenal 9 7 1 1 20:9 22 2 Chelsea 9 6 2 1 16:6 20 3 Liverpool 9 6 2 1 17:8 20 4 Tottenham 9 6 1 2 9:5 19 5 Southampton 9 5 3 1 10:3 18 6 Everton 9 5 3 1 14:10 18 7 Man.City 9 5 1 3 21:11 16 8 Man.Utd 9 4 2 3 14:12 14 9 Swansea 9 3 2 4 12:11 11 10 Hull 9 3 2 4 7:10 11 11 Newcastle 9 3 2 4 12:16 11 12 WBA 9 2 4 3 8:10 10 13 Fulham 9 3 1 5 9:12 10 14 Aston Villa 9 3 1 5 9:12 10 15 West Ham 9 2 3 4 8:8 9 16 Cardiff 9 2 3 4 8:13 9 17 Stoke 9 2 2 5 6:10 8 18 Norwich 9 2 2 5 6:13 8 19 Sunderland 9 1 1 7 7:21 4 20 Cr.Palace 9 1 0 8 6:19 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.