Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 25
Fréttir 25Helgarblað 1.–3. nóvember 2013 23 Elín Hrefna Thorarensen 69 ára Eignir: 370 milljónir kr. n Elín Hrefna er ekkja Hauks Clausen tannlæknis. Haukur var sonur Arreboe Clausen, kaupmanns og síðar bifreiðastjóra í Reykjavík. Faðir Elínar Hrefnu var Stefán Oddsson Thorarensen, lyfjafræðingur og apótekari í Laugavegs Apóteki í Reykjavík. 24 Októ Einarsson 51 árs Eignir: 367 milljónir kr. n Októ er sonur Einars Friðriks Kristinssonar, fyrrverandi aðaleiganda Ölgerðarinnar. Októ á ráðandi hlut í Ölgerðinni eftir að hann keypti umtalsverðan hlut í fyrirtækinu af föður sínum árið 2007. Hann er stjórnarformaður fyrirtækis- ins og er kvæntur Bryndísi Önnu Rail. 25 Jón Ægir Ólafsson 77 ára Eignir: 365 milljónir kr. n Jón Ægir er ásamt bræðrum sínum eigandi Miðness hf. sem seldi Burðarási umtalsverðan hlut í Haraldi Böðvarssyni hf. árið 1999. Kaup- verð bréfanna var rúmur milljarður. Jón Ægir er kvæntur Guðbjörgu Ólöfu Bjarnadóttur. 26 Axel Gíslason 68 ára Eignir: 364 milljónir kr. n Axel var forstjóri Vátryggingafélags Íslands frá stofnun en hann hætti störfum þar árið 2002. Hann var auk þess framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga og Eignarhaldsfélagsins Andvöku. Um tíma var hann auk þess stjórnarformaður VÍS. Hann er kvæntur Hallfríði Konráðsdóttur. 27 Gabríela Kristjánsd. 46 ára og Páll Magnússon 45 ára Eignir: 336 milljónir kr. n Gabríela Kristjánsdóttir var einn eigenda eignarhaldsfélagsins Sunda, sem nú heitir Icecapital. Það var tekið til gjaldþrotaskipta í fyrra. Gabríela er dóttir Óla Kristins Sigurðssonar í Olís. Páll eiginmaður hennar var auk þess einn eigandi Sunda sem og stór hluthafi í VBS- fjárfestingarbanka. Grunur lék á því að á meðan Páll Þór var stjórnarformaður bankans hafi átt sér stað markaðsmisnotkun sem gekk út að halda uppi verði bréfa í FL Group. 28 Linda Margrét Stefánsdóttir 44 ára Eignir: 324 milljónir n Linda Margrét er fyrrverandi eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Hún starfar sem ljósmóðir svo ætla má að auðinn megi rekja til hennar fyrrver- andi hjónabands. Hún var meðal annars hluthafi í fjárfestingarfélaginu Gaumi sem var höfuð Baugsveldisins. Gaumur fór í þrot fyrr á þessu ári. 29 Hreinn Jóhannsson 76 ára Eignir: 323 milljónir kr. n Hreinn var byggingameistari í Garðabæ lengi vel. Faðir hans var Jóhann Magnús Hallgrímsson byggingameistari í Reykjavík. Hreinn er eigandi Helgadals samkvæmt lögbýlaskrá ársins 2011. Hreinn þakkar velgengni sína fyrst og fremst eljusemi. „Vinna og aftur vinna. Maður er búinn að vera að puða allt sitt líf frá því fyrir fermingu. Að sjálfsögðu líka að fara vel með féð, það skiptir heilmiklu máli, að láta ekki ginna sig í Mammonsdýrkun,“ segir Hreinn. 30 Hildur Ösp Þorsteinsdóttir 38 ára Eignir: 299 milljónir kr. n Hildur Ösp er dóttir Þorsteins Más Vilhelmssonar, forstjóra Samherja og eins ríkasta manns Íslands. Hún er gift Magnúsi Jónssyni. 31 Gunnar Halldór Sverrisson 48 ára Eignir: 298 milljónir kr. n Gunnar Halldór Sverrisson er forstjóri Íslenskra aðalverktaka. Hann eignaðist allt hlutaféð í Íslenskum aðalverktökum árið 2004 eftir umdeilda einkavæðingu verktakafyrirtækisins árið áður. Hann er kvæntur Sigríði Hrólfsdóttur. 32 Kristinn G. Kristinsson 65 ára Eignir: 298 milljónir kr. n Kristinn er sonur Kristins Guðbrandssonar sem var stofnandi Björgunar ehf. og fiskeldisfyrirtækjanna Tungulax og Ísnó. Hann er þó sennilega þekkt- astur fyrir leitina að gullskipinu Het Wapen Van Amsterdam, sem reyndist vera þýskur togari. Fyrirtækið Valfell ehf. er skráð á heimili Kristins og ætla má því að hann eigi það. Valfell leigir vinnuvélar og tæki til byggingafram- kvæmda og mannvirkjagerðar. Kristinn er kvæntur Sigríði K. Gunnarsdóttur. 33 Júlía Ingvarsdóttir 61 árs og Markús K. Möller 61 árs Eignir: 286 milljónir kr. n Júlia er dóttir Ingvars heitins Helgasonar sem stofnaði samnefnda bílasölu. Fjölskylda Ingvars, þar á meðal Júlía, seldi hópi fjárfesta allt hlutafé í fyrirtækjum Ingvars Helgasonar hf. og Bílheima ehf. Júlía er gift Markúsi K. Möller, hagfræðingi hjá Seðlabanka Íslands. 34 Eyjólfur Axelsson 72 ára Eignir: 269 milljónir kr. n Faðir Eyjólfs, Axel Eyjólfsson, stofnaði húsgagnafyrirtækið Axis árið 1935. Eyjólfur var lengi framkvæmdastjóri fyrirtækisins en synir hans Eyjólfur og Gunnar keyptu fyrirtækið árið 2006. Ætla má að eignir Eyjólfs megi rekja til þeirrar sölu. Hann er kvæntur Sólveigu Gunnarsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.