Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 22
22 Fréttir 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað Auðmenn Garðabæjar 4 Guðmundur Steinar Jónsson 57 ára Eignir: 1.264 milljón kr. n Guðmundur Steinar Jónsson er einn af Sjólaskipssystkinunum svokölluðu. Fjölskyldan auðgaðist á öflugri útgerð í Hafnarfirði undir merkjum Sjólaskipa. Fjölskyldan stofnað svo aðra útgerð á Kanaríeyjum sem veiddi fisk undan ströndum Afríku. Árið 2007 var Afríkuútgerðin seld til Samherja fyrir um 140 milljónir evra, um 12 milljarða króna á gengi þess tíma. Systkinin eru börn Jóns Guðmunds sonar, fyrrverandi forstjóra og eiganda Sjólaskipa. Guðmundur Steinar á um níu prósenta hlut í MP banka. Hann bjó í Garðabæ er nú fluttur á Akranes. Hann er kvæntur Gígju Jónatansdóttur. Kristinn Reynir Gunnarsson apótekari er ríkastur Garðbæinga og eru eignir hans tæpir tveir og hálfur milljarðar samkvæmt skatta-og útsvarsskrá árið 2012. DV birtir í dag upplýsingar um ríkustu einstaklinga Garðabæjar. Séu makar sem eru sam- skattaðir taldir saman eru þrjátíu og fjögur heimili í Garðabæ sem eiga meira en 160 milljónir í hreina eign. Garðabær hlýtur því að teljast með auðugri sveitarfélögum landsins miðað við fjölda íbúa, en aðeins þrjátíu og sex eiga svo mikið á allri lands- byggðinni. DV mun á næstu vikum fjalla áfram um auðugustu Íslendingana innan byggðarkjarna höfuðborgarsvæðisins. hjalmar@dv.is n Apótekarinn er ríkastur n 34 heimili eiga meira en 160 milljónir n „Steingrímur er búinn að ná þessu öllu af mér“ 2 Finnur Reyr Stefánsson 44 ára og Steinunn Jónsdóttir 45 ára Eignir: 1.729 milljónir kr. n Hjónin Finnur Reyr Stefánsson og Steinunn Jónsdóttir hafa bæði verið fyrirferðarmikil í íslensku viðskiptalífi síðastliðin ár. Steinunn er dóttir Jóns Helga Guðmundssonar í BYKO og er hún næst stærsti hluthafinn í Eimskipafélaginu. Steinunn átti á sínum tíma hlut í Íslandsbanka og sat þá í stjórn bankans. Bæði eiga þau hjón hlut í Sjóvá; Finnur Reyr í gegnum félag sitt Siglu og Steinunn í gegnum félag sitt Ark ehf. Finnur Reyr var náinn samverkamaður Bjarna Ármannssonar meðan hann var forstöðumaður rekstrar- sviðs Glitnis sem var. Finnur er auk þess einn eigenda Klasa sem er fasteignafyrirtæki sem sérhæfir sig í rekstri og stýringu fasteigna. 9 Tómas Agnar Tómasson 74 ára Eignir: 826 milljónir kr. n Tómas Agnar er sonur Tómasar Tómassonar sem stofnaði Ölgerð Egils Skallagrímssonar árið 1913. Eftir fráfall hans ráku synir hans, Jóhannes og Tómas Agnar, fyrirtækið fram til ársins 2002 er þeir seldu hlut fjölskyldunnar. Báðir bræðurnir högnuðust vel á þeirri sölu. Tómas Agnar vildi lítið tjá sig um auðinn í samtali við DV. „Jesús minn góður, vinur minn. Steingrímur er búinn að ná þessu öllu af mér,“ segir Tómas Agnar. 6 Lovísa Jóhannsdóttir 63 ára Eignir: 1.182 milljónir kr. n Lovísa er eiginkona Þórarins Ragnars- sonar sem er með lögheimilli í Lúxemborg. Þórarinn á tæpan helmingshlut í Foodco sem rekur meðal annars veitingastaðina American Style, Lækjarbrekku, Eldsmiðjuna, Greifann á Akureyri og Aktu taktu. Félagið á sömuleiðis Þorp ehf. sem heldur utan um fasteignir matsölustaðanna. Foodco hagnaðist um rúmar 700 milljónir króna árið 2010. 7 Jón Pálmason 54 ára Eignir: 1.174 miljónir kr. n Jón er sonur Pálma í Hagkaupum og er einn eigenda IKEA á Íslandi í gegnum eignarhalds- félag sitt Miklatorg. Vel gengur hjá IKEA á Íslandi og var til dæmis greiddur út 150 milljóna króna arður til hluthafa vegna rekstrarársins 2010. Jón komst í fréttir dönskum dagblöðum fyrir tveimur árum er fjallað var um glæsieignir auðmanna, þar á meðal Jóns, í Holte, sem kallað er Matador- land þarlendis. Pálmi er kvæntur Elísabetu Björnsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.