Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 26
Drónar Drápu ömmu þeirra E nn þann dag í dag hefur enginn sagt mér hvers vegna móðir mín var drepin þennan dag,“ sagði Rafiq ur Rehma, pakistanskur barnaskóla- kennari, sem kom fyrir Bandaríkja- þing í vikunni ásamt tveimur börn- um sínum, Zubair, 13 ára, og Nabilu, 9 ára. Tilefnið var drónaárás Banda- ríkjahers á sveitabýli fjölskyldu hans í Norður-Waziristan, strjálbýlu svæði í nyrsta hluta Pakistans, þann 24. október í fyrra. Móðir Rafiqs, Mom- ina Bibi, lést í árásinni og barnabörn hennar, Zubair og Nabila, særðust. „Strengurinn slitinn“ Þetta er í fyrsta skipti sem fórnarlamb eða ættingjar fórnarlamba dróna- árása Bandaríkjahers koma fyrir Bandaríkjaþing. Aðeins fimm þing- menn, allir úr röðum demókrata, sáu ástæðu til að mæta og hlusta á fram- burð Rafiqs. Í vitnisburði sínum lýstu Rafiq og börn hans atburðarásinni þennan örlagaríka dag. Þau áttu sér einskis ills von enda höfðu þau ekkert sér til saka unnið. Rafiq sagði og gagn- rýndi, með aðstoð túlks, að hann hefði aldrei fengið neinar skýringar á því hvers vegna flugskeyti var skotið að sveitabýli fjölskyldu hans. „Fjölmiðlar greindu frá því að árásin hefði beinst að bíl í nágrenninu. Það stenst ekki þar sem enginn vegur er nálægt húsinu. Aðrir fjölmiðlar greindu frá því að árásin hefði verið gerð á hús en flugskeytin lentu á akri við hús okkar – þar sem við vor- um. Allir greindu frá því að þrír, fjór- ir eða fimm vígamenn hefðu fallið,“ sagði hann. Hið rétta er að einn féll í árásinni. „Ekki vígamaður heldur móðir mín.“ Rafiq segir að móðir hans hafi ver- ið „strengurinn sem hélt fjölskyldu hans saman“. „Með andláti hennar hefur þessi strengur verið slitinn og lífið hefur ekki verið eins og það var.“ 900 óbreyttir borgarar Í skýrslu sem mannréttindasamtökin Amnesty International gáfu út í síð- ustu viku er Bibi í hópi 900 óbreyttra borgara sem fallið hafa í drónaárás- um Bandaríkjahers. Það er miklu hærri tala en hingað til hefur verið haldið fram. Í skýrslunni var ýjað að því að Bandaríkin gætu hafa gerst sek um stríðsglæpi og rétta ætti yfir þeim sem ábyrgð bera. Yfirvöld í Banda- ríkjunum hafa fullyrt að mjög fáir óbreyttir borgarar hafi látist í dróna- árásum hersins. Þessar aðgerðir, sem eiga að beinast gegn vígamönnum og baráttunni gegn hryðjuverkamönn- um, væru í samræmi við alþjóðalög. Höfðu engar áhyggjur Í vitnisburðinum lýsti sonur Rafiqs, Zubair, því sem fyrir augu bar. Hann sagði að dagurinn hefði byrjað vel, himininn hafi verið heiðskír og til- hlökkun hjá fjölskyldunni fyrir há- tíðardag múslima sem haldinn var daginn eftir. Zubair sagði að skyndi- lega hefðu tvær ómannaðar flug- vélar Bandaríkjahers birst yfir þeim þegar þau voru úti á akri að vinna. „Þær sveimuðu fyrir ofan okkur en ég hafði engar áhyggjur. Af hverju hefði ég átt að hafa áhyggjur? Hvorki ég né amma mín vorum glæpamenn.“ Skyndilega heyrðust drunur og jörðin hristist áður en svartur reykur steig upp til himins skammt frá hon- um, rifjaði Zubair upp. „Við hlupum en nokkrum mínútum síðar var aftur skotið á okkur. Fólk úr nærliggjandi þorpi kom okkur til aðstoðar og fór með okkur á sjúkrahús,“ sagði hann og bætti við að hátíðardeginum sem allir höfðu hlakkað til hefði verið varið á sjúkrahúsi. Fara ekki í skólann lengur Í máli sínu sagði þessi þrettán ára drengur að árásin hefði haft mikil áhrif á íbúa á svæðinu; börn væru hætt að leika sér úti og færu ekki í þá fáu skóla sem væru á svæðinu. Hann sagði að hans heitasta ósk þegar hann færi að sofa á kvöldin væri að skýjað yrði daginn eftir. „Þá fljúga drónarnir ekki. Þegar sólin skín koma þeir aftur og óttinn með.“ Systir hans, hin níu ára gamla Nabila, sagði að hún hefði verið úti á akri með bróður sínum og ömmu þegar skotið var á þau. „Ég heyrði öskur. Ég held að það hafi verið amma mín en ég sá hana ekki,“ sagði hún og sýndi þingmönnum mynd sem hún teiknaði af upplifun sinni þennan dag. Vill friðsama lausn Rafiq sagðist vilja fá svör við því hvers vegna árás hafi verið gerð á fjölskylduna. „… starf mitt er að kenna og uppfræða. En hvernig get ég útskýrt eitthvað sem ég skil ekki sjálfur? Hvernig get ég með góðri trú sannfært þessi börn um að drónarnir komi ekki aftur og drepi þau líka ef ég get ekki skilið hvers vegna móðir mín var drepin og börnin mín slösuð?“ sagði hann. Yfirvöld í Pakistan hafa ekki dregið framburð hans í efa en segjast ekki geta borið neina ábyrgð á árás Bandaríkjahers. Þess vegna þurfti Rafiq sjálfur að greiða fúlgur fjár fyrir þá læknisaðstoð sem börn hans þurftu á að halda eftir árásina. Þegar hann var spurður hvað hann myndi segja við Barack Obama Bandaríkjaforseta fengi hann tæki- færi til, sagði hann: „Það sem var gert við fjölskyldu mína var rangt. Ég myndi biðja hann um að finna frið- sama lausn á því sem er í gangi. Það er eitthvað sem ég held að yfirvöld í Bandaríkjunum og Pakistan geti unnið saman að.“ Alan Grayson, einn þeirra þing- manna sem hlýddi á erindi fjöl- skyldunnar, hefur verið mjög gagn- rýninn á stríð Bandaríkjanna í Afganistan og Írak. „Árásir úr lofti eru ekkert öðruvísi en árásir á jörðu niðri. Það er ekki undir nein- um kringumstæðum hægt að rétt- læta það að saklaus börn og ástvin- ir verði fyrir skaða,“ sagði Grayson meðal annars. n 26 Fréttir 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað n Pakistönsk fjölskylda kom fyrir Bandaríkjaþing í vikunni Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Drónaárásir í Pakistan n Fjöldi dauðsfalla 2008 2009 2010 2011 2012 2013* Fallnir 298 Fallnir 549 Fallnir 849 Fallnir 517 Fallnir 306 Fallnir 132 * Til 30. september sl. Upplýsingar frá bandarísku hugveitunni New America Foundation. n Vígamenn n Óbreyttir borgarar n Óvitað Teiknaði mynd Nabila sýnir hér mynd sem hún teiknaði af atburðunum 24. október í fyrra. Engar áhyggjur Zubair flytur hér erindi sitt á meðan systir hans fylgist með. Hann sagðist ekki hafa haft neinar áhyggjur þegar hann sá drónana, því hvorki hann né amma hans hefðu nokkuð til saka unnið. „Það er ekki undir neinum kringum- stæðum hægt að rétt- læta það að saklaus börn og ástvinir verði fyrir skaða. Heimili Steve Jobs friðað Yfirvöld í Los Altos í Kaliforníu hafa ákveðið að friða einbýlis- húsið sem Steve Jobs, stofnandi Apple, ólst upp í. Húsið, sem nú er í eigu systur Jobs, Patriciu, er sögulegt fyrir margra hluta sakir en það voru fósturforeldrar Jobs sem keyptu húsið árið 1968. Í því má segja að saga Apple-stór- veldisins hafi hafist en þar voru fyrstu hundrað Apple-tölvurnar framleiddar. Friðunin þýðir að ekki má gera neinar breytingar á húsinu nema að fengnu sérstöku leyfi hjá yfirvöldum. Steve Jobs lést sem kunnugt er árið 2011 eftir baráttu við krabbamein. Aftur heim eftir þrjú ár í gíslingu Fjórir Frakkar eru komnir aftur til síns heima, þremur árum eftir að þeir voru tekn- ir í gíslingu í Afríkuríkinu Ní- ger. Það var forseti Frakklands, Francois Hollande, sem tók á móti þeim í París á fimmtudag. Mennirnir, sem voru við vinnu í úraníumnámu í Níger, voru teknir höndum af mönnum tengdum al-Kaída í septem- ber 2010 og fluttir til nágranna- ríkisins Malí. Franskir fjölmiðl- ar hafa greint frá því að tuttugu milljóna evra lausnargjald, 3,3 milljarðar króna, hafi verið greitt til að fá mennina úr haldi. Utanríkisráðherra Frakklands, Laurent Fabius, þvertekur hins vegar fyrir það að lausnargjald hafi verið greitt. iPhone bjargaði mannslífi Starfsmaður bensínstöðvar á Flórída getur þakkað iPhone- snjallsímanum sínum fyrir að vera ekki alvarlega særður eða jafnvel látinn. Maður vopnaður byssu ruddist inn á bensínstöð- ina og krafðist þess að hann opnaði peningaskáp verslunar- innar. Þegar það tókst ekki tók ræninginn upp skammbyssu og skaut að honum. Kúlan fór í kvið mannsins en sem betur fer var hann með iPhone í vasan- um sem dró mjög úr kraftinum. Hann hlaut minniháttar meiðsl en á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig fór fyrir símanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.