Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Blaðsíða 49
„Brjáluð ást“
Blue is the
warmest color
Leikstjóri: Abdellatif Kechiche
Menning 49Helgarblað 1.–3. nóvember 2013
„Einstaklega ánægjulegt að
fylgjast með barnaskaranum“
Óvitar
Leikstjóri: Gunnar Helgason
„Leiksýning sem flýgur hátt“
Hús
Bernhörðu Alba
Leikstjóri:
Kristín Jóhannesdóttir
Suðurkóresk
poppstjarna
gestur á Airwaves
Ein frægasta poppstjarna Suður-
Kóreu, Lee Hoyri, er í Reykja-
vík í tilefni af Iceland Airwaves.
Lee birti mynd af inngöngumiða
sínum á hátíðina á Twitter-að-
gangnum sínum.
Lee Hoyri er 34 ára gömul og
hefur marga fjöruna sopið á ferli
sínum. Á fjögurra ára skeiði, í
kringum aldamótin, var hún hluti
af poppgrúppunni Fin.K.L. sem er
vinsælasta grúppa sinnar tegund-
ar frá upphafi í Suður-Kóreu. Síð-
astliðinn áratug hefur Lee Hoyri
gert efni undir eigin nafni og gefið
út fimm plötur. Samhliða tónlist-
arsköpun hefur hún reynt fyrir
sér á hvíta tjaldinu og lék í fyrra í
myndinni Dancing Queen.
Agent Fresco
Mikil stemning var
á tónleikum Agent
Fresco í Listasafni
Reykjavíkur á mið-
vikudagskvöld.
Grísalappalísa
Voru virkilega hressir í
Listasafni Reykjavíkur.
Sóley
Var með
skemmtilega
tónleika í
Hörpu.
Emilíana Torrini Emilíana spilaði í Silfurbergi í Hörpu við góðar undirtektir.
Samaris Sigurvegarar Músíktilrauna 2011 spiluðu fyrir fullum
sal í Silfurbergi í Hörpu.
Ojba Rasta Reggíhljómsveitin Ojba Rasta spilaði lög af nýrri plötu í Norðurljósasal Hörpu.
Bloodgroup Austfirska hljómsveitin Bloodgroup var í Hörpu.
Myndir dAvíð ÞÓr
Íslenskir tón
listarmenn voru
í aðalhlutverki á
miðvikudaginn
GusGus ekki
á Airwaves
Stórsveitin GusGus verður aldrei
þessu vant ekki á tónlistarhá-
tíðinni Iceland Airwaves í ár,
aðdáendum bandsins til mikillar
armæðu. Sveitin lék á hátíðinni í
fyrra fyrir troðfullum sal í Hörpu og
vakti mikla lukku eins og hún ger-
ir yfirleitt með tónleikahaldi sínu.
Ástæða þess að hún mætir ekki í
ár er sú að upptökur standa yfir á
nýrri plötu sveitarinnar. Þetta kom
fram á Facebook-síðu GusGus. Að-
dáendur bandsins ættu því að geta
tekið gleði sína á ný, enda heyrir
það til stórtíðinda þegar GusGus
sendir frá sér nýtt efni.
JÖR hýsir
tónleika
Samhliða Iceland Airwaves verða
fjölmargir off-venue tónleikar í
miðbæ Reykjavíkur. Guðmundur
Jörundsson, fatahönnuður og eig-
andi JÖR, mun hýsa slíka tónleika
í búð sinni á Laugavegi. Fjölmargir
þekktir tónlistarmenn munu leika
list sína. Helst ber að nefna Retro
Stefson, Prins Póló, Hjaltalín og Sísý
Ey. Drykkir verða í boði í Ölgerðar-
innar. Búist er við að fjölmargir
muni leggja leið sína í verslunina
og hlusta á ljúfa tóna sveitanna.
JÖR fagnaði ársafmæli sínu
fyrir skemmstu, en von er á nýrri
fatalínu fyrir haustið. Þar á meðal
verður kvennalína til sölu í fyrsta
skipti og bíða kvenkyns aðdáend-
ur hönnuðarins hennar með eft-
irvæntingu. Mikill áhugi ríkir hjá
ýmsum aðilum að koma merkinu á
erlendan markað.