Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Side 48
48 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað „Bráðskemmtilegur Jeppi í eðalmeðferð“ Jeppi á Fjalli Benedikt Erlingsson „Fínpússaður gullmoli“ FIFA 14 Tölvuleikurm e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g Hvað er að gerast? 1.–3. nóvember Föstudagur1 nóv Laugardagur2 nóv Sunnudagur3 nóv Bubbi í Selfosskirkju Þessir tónleikar eru hluti af heimsókn Bubba til nokkurra staða en hann verður einn með kassagít- arinn og mun líkt og svo oft áður leika sambland af nýju og eldra efni. Að þessu sinni verður hann í Selfosskirkju. Selfosskirkja Kl. 20.30 Stóru börnin Aðalæfing á leikriti Lilju Sigurðardóttur fjallar á margræðan hátt um gildi ástarinnar. Þó verkið hafi nokkuð hefðbundna leikhús- umgjörð er umfjöllunar- efnið nýstárlegt og varpar fram spurningum sem vel eiga heima í nútímanum. Er ástin einungis einhvers virði ef hún er ókeypis? Missir hún gildi sitt ef borgað er fyrir hana? Hættir hún þá að vera alvöru ást? Og síðast en ekki síst: er sá sem selur ástina frjáls í því að falbjóða? Tjarnarbíó Kl. 20.00 Perlur íslensku poppsögunnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Gunnar Þórðarson sameina krafta sína með Tónlistarmiðstöð Austurlands og Kór Fjarðabyggðar undir stjórn Gillian Haworth á tónleik- um helguðum helstu perlum íslensku poppsögunnar frá árunum 1960–1980 þar sem lög Gunnars Þórðarsonar skipa veigamikinn sess. Hof Akureyri Kl. 20.00 Barnatónleikar Eivarar Eivör Pálsdóttir verður með barnatónleika þar sem hún flytur tónlistina úr verðlaunaleiksýningunni Skrímslið litla systir mín ásamt fleiri af sínum lögum. Með henni verða Páll Guðmundsson frá Húsafelli sem spilar á steinhörpu og lítill stúlknakór. Þjóðmenningarhúsið Kl. 16.00 Carmen í Hörpu Ein frægasta ópera sögunnar, Carmen, er saga um ástríður, átök og hefnd. Verkið gerist á Spáni en hermaðurinn Don José fellur fyrir töfr- um hinnar glæsilegu Carmen- ar, sem starfar í sígarettuverksmiðju. Hann bjargar henni úr vanda og með þeim takast ástir. En ekki líður á löngu uns Carmen fær meiri áhuga á glæsilegum nautabana, Escamillo, og snýr baki við Don José. Hann sættir sig ekki við afneitun hennar og grípur til örþrifaráða. Margir af okkar fremstu óperusöngvurum fara með hlutverk í óperunni en einnig munu nokkrir kornungir söngvarar þreyta frumraun sína á íslensku óperusviði. Auk einsöngvara munu þrjátíu og sex manna Kór Íslensku óperunnar, barnakór og sextíu manna sinfóníuhljómsveit taka þátt í sýningunni ásamt nokkrum dönsurum. Eldborg Kl. 20.00 Einstakt dansverk Tímar er dansverk byggt á stefnumóti eldri og yngri kynslóða úr sögu íslenskrar danslistar. Tímar er sýning sem á erindi jafnt við þá sem þekkja til í íslenskum dansheimi og hinna sem hér upplifa hjart- slátt hans í fyrsta skipti, enda stefnt að því að gefa áhorfendum í öðrum löndum færi á kynnast sýningunni og sögunni. Borgarleikhúsið Kl. 20.00 komi okkur til Íslands“ B andaríska indírokkhljóm­ sveitin Caveman kom til landsins á miðvikudags­ morgun. Hljómsveitin hjúfraði um sig á Kex hostel á Skúlagötu og hyggst nýta gisti­ aðstöðuna þar þá fjóra daga sem sveitin er á landinu. Caveman mun koma fram þrisvar sinnum á Iceland Airwaves, en þeir félagar unnu keppni á vegum REYKA um að koma til landsins til að spila á tónlistar­ hátíðinni margrómuðu. Blaðamaður heimsótti hljómsveitina á dvalar­ stað þeirra og settist niður með Jeff Barrell, bassaleikara sveitarinnar. „Umboðsmaðurinn fór með okk­ ur í keppni hjá REYKA og í kjölfar­ ið vorum við valdir til þess að koma til Íslands,“ útskýrði Jeff. Caveman var ekki eina hljómsveitin sem var valin úr keppninni, en söngkonunni Nite Jewel var einnig boðið til lands­ ins. Alls tóku hátt í 400 hljómsveitir þátt í REYKA Airwaves, sem er nafn keppninnar, og því voru ansi margir um hituna. Vissi ekki af Iceland Airwaves „Ég vissi ekki um Iceland Airwaves áður en við fórum í þessa keppni. Ef ég gæti spilað á hvaða tónlistar hátíð sem er og ég mætti ráða hvar hún yrði haldin, myndi ég velja Ísland! Þetta er draumur sem rætist,“ sagði Jeff og varð dreyminn á svip. Hann hefur lesið sig mikið til um land og þjóð og er til að mynda vel með­ vitaður um sögurnar um víking­ ana sem voru uppi hér á landi. Hins vegar segist Jeff ekki vita eins mik­ ið um íslenska tónlist og hann vildi, en sér langþráð tækifæri til þess að bæta úr því í stuttri heimsókn sinni til landsins. „Ég veit ekki næstum því nóg um íslenska tónlist,“ sagði Jeff hreinskil­ inn. „Ég mun kynna mér tónlistina betur á næstu dögum.“ Iceland Airwaves er fyrsti viðkomustað­ ur sveitarinnar í nýhöfnu ferðalagi hennar um Evrópu. Næsti mánuð­ urinn verður undirlagður í tónleika­ hald um álfuna og munu þeir heim­ sækja fjölmörg lönd sem þeir hafa aldrei komið til. Tónlistin gerir kraftaverk „Þetta er í raun byrjunin á ferða­ lagi sveitarinnar um Evrópu. Við höfum ferðast þrisvar, fjórum sinn­ um um öll Bandaríkin. Við förum til London og spilum í viku á Englandi. Við gætum ekki verið meira spennt­ ari,“ sagði Jeff. Hljómsveitina skipa fimm manns og var hún stofn­ uð í New York, heimaborg með­ lima hennar. Í apríl gáfu þeir út nýja plötu – nefnda eftir sveitinni sjálfri – og hefur hún hlotið góðar viðtökur á tónlistarmiðlum vestanhafs. Í lok samtalsins barst talið að tón­ listinni almennt og hefur Jeff orð á því hversu heppinn hann er með starfsvettvang. Tónlistin komi hon­ um á marga staði og gefi honum færi á að víkka sjóndeildarhringinn til muna. „Það er ótrúlegt að tónlistin komi okkur til lands eins og Íslands. Þetta er í raun kraftaverk,“ sagði þessi viðkunnanlegi bassaleikari fullur eft­ irvæntingar fyrir hátíðinni. n Ingólfur Sigurðsson blaðamaður skrifar ingo@dv.is Bandaríska sveitin Caveman leikur á tónlistarhátíð- inni Iceland Airwaves í boði REYKA. Caveman var önn- ur tveggja hljómsveita sem REYKA valdi úr tæplega 400 umsóknum. Blaðamaður spjallaði við Jeff Barrell, bassaleikara sveitarinnar, um tónlistina, áhuga hans á Íslandi og Evróputúrinn sem er fyrir höndum. Spila einnig á off-venue Hljómsveitin Caveman mun leika off-venue í kvöld, föstudag, klukkan 19.30 á Bar 11. „Ótrúlegt að tónlistin Á sviði í gærkvöldi Hljómsveitin Caveman spilaði fyrir fullu húsi í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi. mynd dAVíð þór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.