Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2013, Síða 62
Á
föstudagskvöldum fá frétta-
mennirnir Benedikt og Fann-
ar að láta ljós sitt skína í Kast-
ljósi. Þátturinn þeirra heitir
Hraðfréttir og er ekki lengri
en fimm mínútur hverju sinni. Því
þarf fréttaefnið að komast hratt og
örugglega til skila og hafa þeir fengið
mikið lof fyrir frammistöðu sína. Vin-
sældir þeirra eru miklar og uppátæk-
in frumleg. Tilurð þáttanna má rekja
nokkur ár aftur í tímann, eða þegar
Fannar vann hjá Morgunblaðinu.
„Þá byrjuðu ég, Friðrik Dór og
Grímur, vinur minn, með sketsaþátt
uppi á Mogga. Áður en MBL-sjón-
varp varð til. Þættirnir hétu Synir
Jesú,“ sagði Fannar við blaðamann
og ljósmyndara DV sem komu í
heimsókn í stúdíó þeirra.
Misskilningur í símtali við Sigmar
Hraðfréttir tóku núverandi mynd
á sig skömmu síðar þegar sketsa-
þátturinn rann sitt skeið og Bene-
dikt gekk til liðs við Fannar. Það
var hálfgerð tilviljun að þátturinn
þeirra rataði á sjónvarpsvef Morgun-
blaðsins. Móttökurnar fóru hins
vegar fram úr björtustu vonum og
fóru vinsældir þeirra stigvaxandi.
Það kom því ekki á óvart þegar Ríkis-
útvarpið falaðist eftir kröftum þeirra.
„Þegar Sigmar [í Kastljósi] hringdi
í mig og spurði hvort við vildum vera
í Kastljósinu, þá sagði ég bara „já,
auðvitað“. Þá spurði hann „hvað,
eruð þið ekki samningsbundnir
eða?“,“ sagði Fannar þegar hann rifj-
ar þetta skemmtilega símtal upp.
„Ég hélt að hann væri að tala um að
við kæmum í viðtal og ég skildi ekk-
ert hvað hann var að tala um. Síðan
þegar maður áttaði sig á öllu saman
þá brást maður öðruvísi við,“ bætti
Fannar brosandi við.
Hefur áhuga á að framleiða
eigið efni
Félagarnir eru samningsbundnir
RÚV út þetta ár og er framtíðin eftir
það óráðin. Fannar sér fram á að
vera meira á bak við myndavélina,
en hann spáir því að Benedikt vilji
vera áfram fyrir framan hana. Hann
vill þó ekki fullyrða það.
„Ég lærði leikstjórn og hef áhuga
á að framleiða mitt eigið efni og sjá
hvar það endar,“ sagði Fannar um
hugsanleg framtíðaráform. „Þegar
þetta ævintýri er búið tekur eitthvað
annað við.“ En hefur Fannar verið að
skrifa nýtt efni samhliða Hraðfrétt-
unum?
„Nei, ég hef ekki komist í það eftir
að ég byrjaði á RÚV. Það er alltaf í
langtímaplönunum,“ sagði þessi vin-
sæli hraðfréttamaður í sama mund
og hann stillti upp myndatökuvél-
inni fyrir tökur á næsta þætti. n
62 Fólk 1.–3. nóvember 2013 Helgarblað
Bannað börnum
n Djókaín Hugleiks í Reykjavík n Óformlega rætt um framhald Hulla
L
istamaðurinn Hugleikur
Dagsson verður með uppi-
stand 29. nóvember í Há-
skólabíói og er miðasala
hafin. Hugleikur hefur farið um
landið þvert og endilangt með
uppistandsefnið sitt, sem hann
nefndi Djókaín eftir miklar vanga-
veltur og valkvíða, og lýkur því
ferðalagi í höfuðborginni. Hann
segir að þrátt fyrir nafngiftina þá
sé ekkert talað um kókaín í uppi-
standinu.
„Ég er með samansafn af því
besta sem ég hef bullað uppi á
sviði og þetta nær yfir klukku-
tíma,“ sagði Hugleikur. „Ég var
með þetta á Akureyri í september
og þá fór þetta upp í einn og hálf-
an tíma. Það veltur náttúrulega
allt á salnum. Ef salurinn er góður,
þá bulla ég meira.“
Sýningin verður bönnuð
börnum vegna klámfenginna
brandara. Frændi Hugleiks, Ari
Eldjárn, sagði að hann gæti geng-
ið lengra með grínið sitt en gengur
og gerist, vegna þess að klúrar
bækur hans hafa náð svo miklum
vinsældum.
Hugleikur hefur verið með nóg
á sinni könnu undanfarið. Eins
og flestum er kunnugt náðu þætt-
ir hans um Hulla miklu áhorfi í
haust. Hugleikur var hræddur um
viðtökurnar á þáttunum en segir
að hann hafi fengið sönnun þess
að það sem manni finnst sjálfum
fyndið, finnist öðrum líka fyndið.
Eftir miklar vinsældir þáttanna
veltir fólk vöngum yfir því hvort
Hulli verði að annarri þáttaröð.
„Við stefnum á að koma með
framhald, en það er of snemmt
að staðfesta það,“ sagði Hugleikur
dulur. „Það hefur ekkert verið
formlega rætt. Við höfum blaðrað
um það og það virðist vera von í
loftinu um að það gerist.“ n
ingosig@dv.is
Á forsíðu í
Noregi
Alexandra Mjöll Ágústsdóttir er
búsett í Noregi og hefur sam-
hliða námi lagt rækt við rokktón-
list í hljómsveitinni So What. Svo
skemmtilega vildi til að hljóm-
sveitin var valin ásamt þremur
öðrum að koma fram á Rockens
Weekend í bænum Odda í Suð-
ur-Noregi og var fjallað um
framkomu Alexöndru og hljóm-
sveitarinnar á forsíðu dag-
blaðsins. Alexandra er að vonum
ánægð með framgöngu hljóm-
sveitarinnar í ljósi þess að þetta
var í fyrsta sinn sem hún kom
fram opinberlega.
Með nóg á sinni könnu
Vinsældir Hugleiks eru miklar
um þessar mundir.
„Eruð þið ekki samn-
ingsbundnir eða?“
n Sigmar hringdi og bauð þeim í Kastljós n Byrjuðu fyrir hálfgerða tilviljun
Ingólfur Sigurðsson
blaðamaður skrifar ingo@dv.is
Í settinu Fannar
á von á því að
Benedikt vilja vera
áfram fyrir framan
myndavélarnar.
„Ég lærði leikstjórn
og hef áhuga á að
framleiða mitt eigið efni
og sjá hvar það endar.
Á langtímaplönum að skrifa sjálfur efni „Ég lærði leikstjórn og hef áhuga á að
framleiða mitt eigið efni og sjá hvar það endar,“ segir Fannar.
Dóra Takefusa
opnar Bast
Dóra Takefusa opnaði á dögun-
um nýjan stað, Bast Reykjavík, og
er hann staðsettur að Hverfisgötu
20, skáhallt á móti Þjóðleikhúsinu.
Staðurinn er hinn glæsilegasti
og gefur þar að líta flott graffití-
verk eftir myndlistarmanninn Örn
Tönsberg. Dóra er mikil athafna-
kona og hefur um árabil rekið
skemmtistaðinn Jolene í Kaup-
mannahöfn sem hún hefur fjar-
stýrt úr Reykjavík. Þá var staður-
inn Dolly á hennar snærum og
Bast enn ein rósin í hnappagat
athafnakonunnar
Brúnaþungur
og furðulegur
Heiða Kristín Helgadóttir gerir
upp samstarfið við Jón Gnarr í
fjörugum pistli í Kjarnanum. Hún
lýsir þar einnig fyrstu kynnum sín-
um af félögunum Birni Blöndal og
Óttari Proppé og hvernig hallaði á
konur í Besta flokknum.
„Björn var brúnaþungur með
skjalatösku og Óttarr furðulegur.
Það hallaði verulega á konur í
Besta flokknum þegar ég kom
við sögu. Ekki vegna þess að það
væri ekki vilji til að hafa þær með
– þvert á móti reyndum við mikið
að kalla þær til, en það var erfitt að
selja þessa hugmynd. Ég fór í að
kynbæta listann. Jón kynnti mig
fyrir Elsu Yeoman, listakokki og
húsgagnasmið, sem talaði mest
um sleipiefni og New Jersey á
fyrsta fundinum okkar – sem mér
þótti áhugavert. Hún var til í allt.“