Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2013, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2013, Qupperneq 3
Vikublað 17.–19. desember 20134 Fréttir Guðbjarti var sagt upp hjá Samherja Ein frægasta sagan í sjávarútveginum sem rammar inn eitt af vandamálum kvótakerfisins É g starfa ekki lengur hjá Sam- herja,“ segir Guðbjartur Ás- geirsson skipstjóri sem sagt var upp hjá útgerðarris- anum fyrr á þessu ári eftir sautján ára starf fyrir fyrirtækið. Guðbjartur var skipstjóri á ein- um af verksmiðjutogurunum sem dótturfélag Samherja gerði út frá Kanaríeyjum til veiða við vestur- strönd Afríku. DV hefur heimildir fyrir því að Guðbjartur sé ósáttur við uppsögnina hjá Samherja og skoði nú stöðu sína. Hann vill hins vegar ekkert ræða um málið. Guðbjartur er þekktastur fyrir að hafa verið skipstjóri á aflaskip- inu Guðbjörginni, eða Guggunni, sem gerð var út frá Ísafirði á níunda og tíunda áratugnum í gegnum útgerðina Hrönn hf. Guggan var stærsta og glæsilegasta fiskiskip sem smíðað hafði verið fyrir Ís- lendinga þegar hún kom til lands- ins árið 1994 og tók við af eldra skipi sem bar sama nafn. Kaup Samherja Árið 1994 greiddi Hrönn hf. tvo milljarða króna fyrir nýju Gugguna, rúmlega 4,8 milljarða króna á nú- virði, og bar fyrirtækið ekki þann kostnað miðað við þær aflaheim- ildir sem voru á skipinu. Hrönn og Samherji unnu nokkuð saman á þessum árum og kom Samherji að því að útvega Guggunni kvóta. Tveimur árum eftir að Guggan var keypt til Ísafjarðar rann Hrönn saman við Samherja og veiddi Guggan á Flæmska hattinum í tvö ár þar á eftir áður en hún var seld til þýsks dótturfélags Samherja. Þegar Hrönn rann inn í Sam- herja sagði Þorsteinn Már Baldvinsson að skipið yrði áfram gert út frá Ísafirði en setningin þar sem þetta kom fram er eitt þekktasta kvót íslenskrar útgerðar- sögu: „Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði.“ Þetta gekk hins vegar ekki eftir og viður- kenndi Þorsteinn Már að stað- hæfingin um Gugguna hefði verið mistök. „Aðstæður í sjávarútvegi eru það breytilegar að það verður að viðurkennast. Sjávarútvegurinn er eins og sjórinn, síbreytileg- ur.“ Þessi staðhæfing Þorsteins er auðvitað rétt, ekki er hægt að neita því, en þegar fyrri staðhæfingin var sett fram þá stóð til að skipið yrði áfram gert út frá Ísafirði. Setningin er gjarnan notuð sem dæmi um þær afleiðingar sem kvótakerfið hafði á minni byggð- ir landsins þar sem skip og kvóti voru keypt og flutt annað með til- heyrandi slæmum afleiðingum fyrir bæjarfélögin. „Ekki fréttamatur“ Guðbjartur hélt hins vegar starfi sínu eftir sameiningu Hrannar og Samherja og stýrði einum af tog- urum Samherja við Afríkustrend- ur eftir að Samherji keypti útgerð Sjólaskipa þar árið 2007. Sam- herji seldi hins vegar þá útgerð til rússneska útgerðarfélagsins Murmansk Trawl Fleet fyrr á árinu og Guðbjartur missti vinnuna. Hermt er að Guðbjartur sé ekki sáttur við skilin við Samherja, meðal annars vegna óuppgerðra launamála. Hann vill hins vegar ekkert ræða um starfslok sín við DV: „Þetta er ekki fréttamatur.“ DV hefur hins vegar heimildir fyrir starfslokum hans hjá Samherja, og staðfestir Guðbjartur þau sjálfur, þó ekki vilji hann ræða þau efnis- lega opinberlega. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Dómurinn er bara rangur“ Þingmaðurinn Brynjar Níelsson kemur dæmdum Kaupþingsmönnum til varnar D ómurinn er bara rangur. Þetta er bara röng niður- staða að mínu mati,“ sagði Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í viðtali á Bylgjunni á mánudags- morgun, þegar rætt var um nýfall- inn dóm í Al-Thani málinu. Sagð- ist Brynjar ekki telja að háttsemi sakborninganna uppfyllti skilyrði ákvæðisins sem þeir væru dæmdir fyrir. Þá gagnrýndi hann að málsvörn sakborninganna kæmi ekki fram í dómnum sjálfum. Al-Thani málið snýr að kaupum eignarhaldsfélagsins Q-Icelandic Finance, sem var í eigu Sheikh Mohamed Khalifa Al-Thani, á fimm prósenta hlut í Kaupþingi í septem- ber 2008 fyrir hrun. Voru þeir Hreið- ar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarfor- maður Kaupþings, Magnús Guð- mundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, og Ólafur Ólafsson fjárfestir ákærðir fyrir markaðsmisnotkun, markaðssvik og umboðssvik. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna sem einnig var til viðtals, tók ekki undir með Brynjari Níelssyni og sá ekki ástæðu til að vé- fengja niðurstöðu héraðsdóms. Þá sagðist hann ánægður með að Ís- lendingar hefðu dregið bankamenn til ábyrgðar fyrir alvarleg efnahags- brot ólíkt ýmsum öðrum ríkjum sem hafa verið sökuð um að draga taum fjármálaaflanna og halda hlífiskildi yfir hvítflibbaglæpamönnum. n ritstjorn@dv.is Varði þá dæmdu Brynjar Níelsson segir að niðurstaðan í Al-Thani málinu sé „röng“. MyNd MálIð „Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði Sagt upp störfum Guðbjartur fylgdi Guggunni til Samherja og starfaði hjá fyrirtækinu þar til fyrr á árinu, þegar honum var sagt upp.MyNd BB.IS Guggan gula Skiptstjóra skipsins sem áður hét Guggan og var gul, Guðbjarti Ásgeirssyni, missti starf sitt hjá Samherja fyrr á árinu . Ein fleygustu um- mæli íslenskrar útgerðarsögu runnu úr munni Þorsteins Más Baldvinssonar um skipið. Kennari safnar gjöf- um fyrir börn „Fyrir nokkrum dögum fékk ég hugmynd. Hálf klikkaða hugmynd, en það hefur ekki stoppað mig áður svo ég leyfði mér að dvelja aðeins við hana.“ Svona byrjar stöðuupp- færsla ein á Fésbókinni sem meðal annars hefur hrundið af stað söfnun fyrir þau börn á Suðurnesjum sem ekki eiga kost á því að fá eitthvað frá jólasveinin- um í skóinn. Styrmir Bark- arson, grunn- skólakennari í Reykjanesbæ, hefur hrint af stað söfnun fyrir börn á Suðurnesjum sem ekki eiga kost á því að fá eitthvað frá jóla- sveinunum í skóinn. Framtakið hófst á stöðuuppfærslu á Face- book. Viðbrögðin voru framar öllum vonum en um þúsund gjafir höfðu safnast á sunnu- dagskvöld. „Þetta er búið að vera að gerjast í huganum á mér undanfarið. Ég er að kenna í grunnskóla og hef því sjálf- ur séð margt af því sem ég lýsi í stöðuuppfærslunni á Fés- bókinni […] Um daginn upp- lifði ég það svo að nokkuð sem manni hættir til að taka sem einfalt mál reyndist stórmál fyr- ir barnið sem átti í hlut því að- stæður heima buðu ekki upp á það. En með símtali á réttan stað og hjálparhönd aðila utan úr bæ var hægt að leysa vand- ann,“ segir Styrmir og bætir við: „Ég var bara að láta hugann reika í tengslum við ástandið hér á Suðurnesjum og langaði að gera eitthvað í því.“ Hægt er að leggja verkefn- inu lið með því að leggja inn á reikninginn 0542-14-403565 á kennitölu 281080-4909 eða koma með gjafir til Styrmis. „Öllu sem þangað kemur veiti ég í réttan farveg með hjálp þeirra sem best til þekkja.“ Góðverk í Grindavík „Ég var bara að láta hugann reika. Styrmir Barkarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.