Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2013, Blaðsíða 16
Vikublað 17.–19. desember 2013 Fréttir Erlent 17
Kominn heim eftir
óhugnanlega árás
n Augun voru plokkuð úr Guo Bin n Fékk fullkomin gerviaugu
S
ex ára kínverskur drengur,
Guo Bin, sem missti bæði
augun í skelfilegri árás í
borginni Shenzhen í ágúst
síðastliðnum kom heim af
sjúkrahúsi í síðustu viku. Málið vakti
talsverða athygli þegar það kom upp
enda var árásin sérlega hrottafengin.
Augu drengsins voru plokkuð úr
honum og í seinni hluta nóv-
embermánaðar voru gervi-
augu sett í drenginn.
Fullkomin gerviaugu
Í kveðjuathöfn sem haldin var
á sjúkrahúsinu í Shenzhen, í
suðurhluta Kína, í síðustu viku
dansaði Bin og þakkaði fjöl-
skylda hans læknum fyrir að-
hlynninguna sem hann fékk
á sjúkrahúsinu. Gerviaugun
sem grædd voru í hann eru
ein þau fullkomnustu sem til
eru. Hann getur hreyft þau og
blikkað þeim og við fyrstu sýn lítur
Guo Bin út eins og ungur drengur
með eðlilega sjón. Eðli málsins sam-
kvæmt er Bin þó blindur og þarf að
lifa með því það sem eftir er.
Hver framdi ódæðið?
Það mun líklega aldrei koma fyllilega
í ljós hver framdi ódæðið en grunur
féll þó fljótlega á frænku Bins, Zhang
Huiying, eftir að blóð úr drengnum
fannst í fötum hennar. En hvers vegna
hún hefði átt að ráðast með svo heift-
arlegum hætti á barnungan frænda
sinn veit enginn. Nokkrum dögum
eftir árásina framdi hún sjálfsvíg með
því að stökkva ofan í brunn. Foreldr-
ar Bins efast um að frænka hans hafi
verið að verki þar sem Bin hafi sjálf-
ur sagt að konan sem plokkaði augun
úr honum hefði talað með öðruvísi
hreim en heimamenn í Shenzhen
gera, það bendi til þess að frænka
hans hafi ekki verið að verki.
Allur að koma til
Eftir að málið kom upp grunaði lög-
reglu jafnvel að líffæraþjófar hefðu
framið verknaðinn og ásælst horn-
himnurnar í augum Bins. Við rann-
sókn á augunum, sem fundust á vett-
vangi ódæðisverksins, kom þó í ljós
að ekki var búið að fjarlægja horn-
himnurnar. Enn sem komið er liggur
enginn undir grun. Bin er þó kominn
til síns heima og eru foreldrar hans
þakklátir fyrir það. „Hann hefur að-
lagast ágætlega og er allur að koma
til,“ sagði móðir hans, Wang Wenli, í
kveðjuathöfninni og þakkaði starfs-
fólki sjúkrahússins kærlega fyrir um-
önnun sonarins. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Góð umönnun Guo
Bin hefur dvalið á
sjúkrahúsi síðan í ágúst.
Byggja íþróttahöll Verkamenn að störfum við Arena Amazonia-
íþróttahöllina í Brasilíu. Undirbúningur fyrir HM í í fótbolta í Brasilíu stendur yfir og áföllin
hafa verið mörg. Tveir verkamenn létust í síðustu viku við störf sín við íþróttahöllina. Annar
þeirra hrapaði niður af sama þaki og sést hér á myndinni, en hinn fékk hjartaáfall sem fjöl-
skylda hans telur að hafi tengst miklu álagi sem hann hefur mátt sæta vegna framkvæmd-
anna. Í nóvember létust tveir verkamenn þegar byggingarkrani hrundi.
Heiðraður
sérstaklega
Leikarinn Peter O‘Toole
lést aðfaranótt
sunnudags. Hann hafði
barist við erfið veikindi
um nokkra hríð. Hann
sést hér á mynd með
leikkonunni Meryl
Streep. Myndin er
raunar frá 2003, en þá
var O‘Toole heiðraður
fyrir ævistarf sitt í þágu
kvikmynda. Hann hafði
átta sinnum verið til-
nefndur til óskarsverð-
launa en hreppti þau
þó aldrei, ekki fyrr en
hann var heiðraður
sérstaklega. Þekktasta
hlutverk O‘Toole er
án efa í Lawrence of
Arabia frá árinu 1962.
Mótmæli í Úkraínu Mótmælin í Kíev á sunnudag vöktu mikla athygli,
en þúsundir Úkraníumanna mótmæltu forseta landsins, Viktor Yanukovich. Stór hluti mót-
mælenda vill frekara samstarf við Evrópusambandið og óttast að Yanukovich muni slíta
öllu veigamiklu samstarfi, sérstaklega eftir að fríverslunarsamningur við sambandið fór út
um þúfur. Mótmælin hafa staðið frá 21. nóvember og enn bætist í hópinn.
Biðja fyrir Claire Claire Davis, sautján ára nemandi við skólann í Cen-
tennial í Colarado, er enn þungt haldin á sjúkrahúsi eftir að samnemandi hennar hóf skothríð
í skólanum á föstudag. Claire var eini nemandinn sem særðist, en hún hlaut alvarlega áverka
á höfði. Á myndinni sést samnemandi hennar biðja fyrir framan reit sem komið hefur verið
upp. Við hlið hans má sjá blómvendi og bangsa, en á girðinguna hefur verið skrifað: Biðjum
fyrir Claire. Árásarmaðurinn sem særði Claire heitir Karl Halverson Pierson. Hann er átján
ára og mun hafa verið ósáttur við ræðuþjálfara skólans sem leyfði honum ekki að taka
þátt í kappræðum. Karl var með talsvert af vopnum með sér, byssur og molotov-kokteil.
Skotárásin vakti sérstakan óhug, enda aðeins ár liðið á laugardag frá skotárásinni í Sandy
Hook þar sem 26 börn og fullorðnir féllu fyrir hendi óðs byssumanns.
Kveðjuveisla Guo Bin kvaddi starfsfólk
sjúkrahússins í Shenzhen í síðustu viku.
Með mömmu Wang Wenli, móðir Guo Bin,
segir að sonur hennar sé allur að koma til.
G L U G G A G Æ G I R
Í S L E N S K H Ö N N U N O G R I T S N I L L D
Í Þ Á G U F A T L A Ð R A B A R N A O G U N G M E N N A
Gluggagægir í túlkun Sigga Eggerts og Vilborgar Dagbjartsdóttur fæst hjá okkur 5. - 19. desember.
Casa - Skeifunni og Kringlunni • Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð • Kokka - Laugavegi • Kraum - Aðalstræti • Módern - Hlíðarsmára
Líf og list - Smáralind • Þjóðminjasafnið - Suðurgötu • Around Iceland - Laugavegi • Hafnarborg - Hafnarfirði • Blómaval - Allt land
Blóma og gjafabúðin - Sauðárkróki • Póley - Vestmannaeyjum • Valrós - Akureyri
www.jolaoroinn. is
STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA