Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2013, Síða 29
Vikublað 17.–19. desember 201336 Fólk
Dópuð á verðlaunahátíðum
Leikkonan Susan Sarandon opinská í sjónvarpsþætti Andy Cohen
L
eikkonan reynda, Susan Sar-
andon, sagði í viðtali við
bandaríska sjónvarpsþáttinn
Watch What Happens Live að
hún hafi yfirleitt verið undir áhrif-
um eiturlyfja á verðlaunahátíðum.
Susan segist þó aldrei hafa verið á
eiturlyfjum á Óskarsverðlaunahá-
tíðinni sem er sú stærsta sinnar
tegundar í heiminum.
Þáttastjórnandinn Andy Cohen
reið á vaðið með því að spyrja hana
út í orðróm þess efnis að hún hafi í
eitt skipti mætt undir áhrifum eit-
urlyfja á hátíð í Hollywood. Susan
skammaðist sín ekkert fyrir að
viðurkenna eiturlyfjaneyslu sína og
hló að spurningu Andy.
Þessi 67 ára leikkona hefur leik-
ið í 123 kvikmyndum á 44 ára ferli
sínum sem er ótrúlegt afrek. Susan
er frægust fyrir leik sinn í myndun-
um Bull Durham (1988), The Rocky
Horror Picture Show (1975) og
Thelma and Lousie (1991).
Sarandon hefur unnið til fjölda
verðlauna á stórglæsilegum ferli
sínum í gegnum tíðina, þar af
átta Golden Globes-verðlauna og
fjögurra Emmy-verðlauna. n
ingosig@dv.is
Notar eiturlyf …
… og leynir því ekki.
Í gamla daga Susan hefur
alltaf þótt bráðmyndarleg.
Fölsk Katy í
beinni
Aðdáendur Katy Perry urðu fyrir
miklum vonbrigðum með hana
þegar hún tróð upp í The X Factor
síðastliðið sunnudagskvöld. Katy
Perry þótti fölsk og var fyrirferðar-
mikill búningur hennar ekki til
þess að létta henni verkið. „Hvaða
númer þarf maður að hringja í til
þess að hún hætti?“ skrifaði með-
al annars einn á Twitter-aðgang
sinn. Þátturinn var í beinni út-
sendingu og voru mun fleiri sem
tjáðu sig á veraldarvefnum um lé-
lega frammistöðu söngkonunnar,
sem er alla jafna þekkt fyrir fallega
rödd.
L
eikarinn Peter O'Toole, sem
skaust upp á stjörnuhim-
ininn með hlutverki sínu í
kvikmyndinni Lawrence of
Arabia, lést á laugardaginn
síðastliðinn, 81 árs að aldri.
Peter fæddist á Írlandi en bjó
lengst af í London. Hann varð heims-
frægur eftir frumsýningu kvik-
myndarinnar Lawrence of Arabia árið
1962 þar sem hann fór með aðalhlut-
verkið. Blá augu hans og ljósir lokkar
heilluðu áhorfendur upp úr skónum
og Peter gerði breska herforingjann
sem aðstoðaði Araba í viðnáminu
gegn veldi Ottómana ódauðlegan.
Skrímslið
Heimsfrægðina átti Peter erfitt með
að höndla. Villt hegðun hans utan
kvikmyndaversins fór í taugarnar
á framleiðandanum Sam Spiegel.
Spiegel, sem hafði vonast eftir því
að ráða Marlon Brando í hlutverkið,
sá ekki eftir ákvörðun sinni en sagði
um Peter: „Þú býrð til stjörnu, og þú
býrð til skrímsli.“
Hápunktur ferils O'Toole var á
sjöunda áratugnum í kjölfar Arabíu
Lárens. Hann lék aðalhlutverk í
Becket, The Lion in Winter, Goodbye
Mr. Chips og The Ruling Class á með-
al fjölmargra annarra hlutverka.
Við dauðans dyr á unga aldri
Villtu líferni Peters lauk eftir að hann
var við dauðans dyr árið 1978. Þá
greindist hann með magakrabba-
mein og hann varð að hætta að
drekka og taka upp heilbrigðari og
rólegri lífsstíl. Hann fékk að njóta
lengri ævi en útlit var fyrir þrátt fyrir
að hann stríddi við langvinn og erfið
veikindi síðustu ár.
Hann var illa farinn á líkama þegar
hann tilkynnti á síðasta ári að hann
væri hættur að leika. Hann sagði við
það tækifæri að leiklistin hefði auðg-
að líf sitt bæði tilfinningalega og fjár-
hagslega. Hann hefði kynnst mörgu
góðu fólki og deilt með því vonbrigð-
um og velgengni. Hann gerði þó eina
undantekningu og tók að sér hlutverk
í mynd um Katherine í Alexandríu.
Myndin verður sýnd á næsta ári.
Eins og frægt er þá fékk Peter átta
tilnefningar til óskarsverðlauna á ævi
sinni og vann aldrei. „Alltaf brúðar-
mær, aldrei brúður,“ sagði Peter eitt
sinn vegna þessa.
Hann var hins vegar heiðraður
fyrir ævistarf sitt árið 2003.
Hann lætur eftir sig tvær dætur,
Pat og Kate, sem hann átti með
leikkonunni Siân Phillips, og soninn
Lorcan, sem hann átti með Karen
Brown, segir í frétt Guardian um and-
lát leikarans.
Peter var goðsögn í lifanda lífi.
Svo mikil að Ridley Scott, leikstjóri
Prometheus, notaði hann sem fyrir-
mynd vélmennisins Davids, sem
Michael Fassbender lék. Í byrj-
un myndarinnar má sjá David eyða
löngum stundum í að fylgjast með
Arabíu Lárens og herma eftir honum
látbragð og útlit. n
kristjana@dv.is
Bláeyga goðsögnin
n Peter O'Toole var goðsögn n „Þú býrð til stjörnu, og þú býrð til skrímsli“
Farsæll Peter var
við dauðans dyr á
yngri árum vegna
drykkju og ólifnað-
ar en sneri lífi sínu
við. Hann lést 81
ára gamall.
Arabíu Lárens
Peter heillaði í
hlutverki breska
herforingjans
sem kom Aröbum
til hjálpar.
Goðsögn Leikstjórinn Ridley Scott notaði Peter
sem fyrirmynd þegar hann leikstýrði Michael Fass-
binder í hlutverki vélmennis í Prometheus.
„Alltaf
brúðar-
mær, aldrei
brúður.
Best launuðu
pörin
1 Beyoncé og Jay Z Efst trónir ofurparið með samanlagt 95
milljóna dollara tekjur samkvæmt tekju-
lista Forbes. Beyoncé þénaði meira en
eiginmaðurinn eða 11 milljónum dollara
meira og er það að mestu að þakka Mrs.
Carter-tónleikaferðalaginu hennar.
2 Tom Brady and Gisele
Bündchen Í öðru
sæti eru fyrirsætan
Gisele Bündchen og
Tom Brady leikstjórnandi
Pat- riots. Gisele er hæst launaða
fyrirsæta heims og Tom fær vel borgað
fyrir sitt starf hjá New England Patriots.
3 Brad Pitt and Angelina
Jolie Tvær stærstu
stórstjörnur heimsins,
Hollywood-parið
Angelina og Brad eða
Brangelina eins og þau
eru gjarnan kölluð, eru í þriðja sæti
yfir tekjuhæstu pörin með 50 milljónir
Bandaríkjadala samanlagt. Kvikmyndin
World War Z skilaði Brad dágóðri
summu þetta árið og Angelina fékk vel
greitt fyrir Maleficent.
4 Ashton Kutcher
and Mila Kunis
Þó það sé ekki langt
síðan þau tóku
saman þá hafa þau
þekkst síðan þau léku
saman í þáttum That ´70s show. Asthon
er hæst launaða sjónvarpsstjarnan, fyrir
hlutverk sitt í þáttunum Two and a Half
Men. Mila hefur grætt vel á hinum ýmsu
hlutverkum. Samanlagt eiga þau 35
milljónir Bandaríkjadala.
5 Kanye West og Kim
Kardashian Kim
er aðallega fræg
fyrir að vera fræg en
þénar um 10 milljónir
dala á ári. Saman þénaði
þetta ofurpar um 30 milljónir dollara
á árinu.
topp 5